Morgunblaðið - 08.12.1992, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.12.1992, Blaðsíða 15
Nýjar bækur ■ Madonna án ábyrgðar heitir ný bók eftir Christoph- er Andersen íþýðingu Giss- urar Ó. Erl- ingssonar. I kynningu útgefanda segir m.a.: „Þetta er ævi- saga hinnar þekktu söng- konu og leik- konu sem get- ið hefur sér orð fyrir hispurs- lausa framkomu og neitar að taka tillit til eins eða neins sem kallast hefðbundið, siðlegt eða við hæfí. Bókin er ekki skrifuð eftir Madonnu sjálfri heidur er dregin upp raunsönn mynd af henni með lýsingum þess fóiks sem þekkir hana best, ásamt því sem hún hefur látið hafa eftir sér opinberlega við ýmis tækifæri." Útgefandi er Skjaldborg hf. Verð 2.490 krónur. ■ Þjófur og hundar heitir skáldsaga eftir Nagíb Mahf- úz í þýðingu Úlfs Hjörvar. I kynningu útgefanda segir m.a.: „Uppreisna- maðurinn og atvinnuþjófur- inn Said Mahran kem- ur úr fangelsi og á óupp- gerðar sakir við þá sem sviku hann í hendur lögreglunnar. Eins og flestar aðrar skáldsög- ur Nagíbs Mahfúz tengist þessi sáifræðiiega spennusaga ákveðnu hverfí í Kaíró. í henni spinnst grimmilegur vefur hundsku, haturs og óslökkvandi hefndarþorsta en jafnframt skörp þjóðfélagsrýni. Harmþrungin ástarsaga, vitnsi- burður um óbrigðula vináttu °g tryggð.“ Útgefandi er Setberg. Bókin er 170 bls. og kostar 2.250 krónur. ■ KOMIN er út bókin Sögu- stund, 365 valdir kaflar úr íslenskum barnabókmennt- um, sem hefur að geyma hæfílega langa lestra fyrir hvert kvöld ársins og auka- lestur á hlaupári. í kynningu útgefanda seg- irm.a.:„Hér eru í fyrsta skipti á einum stað sýnishom af því besta sem íslenskir höfundar hafa skrifað fyrir böm frá fyrstu tíð fram yfir 1985, auk fjölda sígildra ævintýra og þjóðsagna í endursögn Silju Aðalsteinsdóttur sem valdi efn- ið.“ Útgefandi er Mál og menn- ing. Bókin er 750 bls. og í henni eru myndir eftir flesta þekktustu barnabókateikn- ara okkar. Prentsmiðjan Oddi sá um prentun, gyllingu og bókband. Verð 2.980 krónur. ^iMlWIUlO VERKFÆRI FYRIR FAGMENN1 G/obus? -heimur gcebai UCMÚLA í\- »Ey>|AVlK ■ 5ÍMI 91 ■ 68155S MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992 ----r—-■' 1----------------- 15 Hlýir Silfurtónar Hljómplötur Árni Matthíasson Siifurtónar stæra sig af því að vera elsta starfandi poppsveit landsins og í bæklingi sem fylgir geisladisk sveitarinnar, Skýin eru hlý, og kom út fyrir nokkru má sjá að hljómsveitarmenn segja Silf- urtóna stofnaða 1971. Ekki verður hér lagt mat á þessa staðhæfingu, en óristar ásjónur Silfurtóna, sem sjá má í geisladisksbæklingnum renna varla stoðum undir hana. Tónlistin aftur á móti gæti eins verið leikin af hljómsveit sem lifað hefði allt frá 1971, því að hlusta á diskinn er líkt og að fara hrað- ferð í gegnum poppsögu áttunda áratugarins. Annað eins glens og Silfurtónar gengur ekki upp nema hljómsveit- armeðlimir hafí ólík stflbrigði á valdi síðu og þá einlægni sem þarf til að gera afurðina trúverðuga. Það tekst Silfurtónum og því Ský- in eru hlý er bráðskemmtileg sem spaug og um leið fyrirtaks popp- plata, þar sem víða bregður fyrir stjörnutilþrifum. Upptöku stýrði af stakri snilld Bjöm Jörundur Friðbjörnsson, sem hefur ekki lítið að segja, en hvarvetna bregður fyrir á plötunni frábærum gítarleik Ama Kristjánssonar, sem sýnir ít- rekað á plötunni að hann er í fremstu röð íslenskra gítarleikara fyrir smekkvísi og Qölhæfni. Bestu lög plötunnar em Söngur um þrá, hið ógleymanlega Töfrar, Við, sem leynir á sér, í Dyragætt- inni, Litið til baka, þar sem hipp- isminn fær fyrir ferðina, og Am- ina, þó ekki beri mikið á milli laga. Textar em svo sérkaptítuli fyrir sig, því þar er víða farið á kostum, eins og til að mynda í textanum við Söng um þrá: Ég hafði gengið götu sannleika og fegurðar / Þá fannst mér komið nóg, ég þráði lygina óforsmáða / því hver er varanleiki þessa lífs / sem við lifum þú og ég? Textinn við Töfra er einnig eftirminnilegur og lyftir lag- inu upp í hæðir sem íslenskar hljómsveitir komast alla jafna ekki. Það verður að telja einkennilegt að ekki skuli meira vera spilað af Silfurtónum í útvarpi, enda má segja að á plötunni sé að fínna spéspegil alls þess besta sem fram hefur komið í poppheiminum síð- ustu áratugi, flutt af hlýju og ein- lægni. JÓLAGJÁJIR HEMLANNA í ÁR Ji'RÁ RAJHÁ Z-619/4 kæli- og frystískápur Heildarmagn 230 1, kælir 190 1, frystir 40 1, 4ra stjömu fryst- ir, frystigeta á sólarhring 3,0 kg, afhríming í kæli, hraðfryst- íng í frysti, margir stillimögu- leikar f/grindur og bakka, 100% þéttir, segulstál, þétti- kantar, 50% minna freon held- ur en áður, hægt að snúa hurð- um, ljós í kæli, eggjabakki, ís- teningabakki, eyðsla á sólar- hring 1,4 kWh, framleiðslu- staður Ítalía, hæð 141,5 cm, breidd 54,5 cm, dýpt 55 cm. Zanussi ZD-100C þurrkari Heildarmagn af strauþurrum þvotti 4,5 kg, tímastillir, kaldur blástur í 10 mín. (tau krumpast ekki), eyðsla á kist. 2,1 kWh, gerð belgs sink, fullur/hálfur hiti, valkerfi fyrir bómullar- og gerviefni, gufulosun er á öllum hliðum nema að framan, bamaöryggi á hurð, yfirhitun- aröryggi, hæð 85 cm, breidd 60 cm, dýpt 57 cm. Zanussi ZW-107 uppþvottavél vélin þvær á 65* C, íjöldi val- kerfa 4, hávaði 54 db, mjög umhverfisvæn vél, 100% sápu- nýtíng, start/stopp-hnappur, borðbúnaður fyrir 12, auka- hólf fyrir gljávökva, mjög traust, þétt og góð hurð, tvö- falt vatnsöryggi, flotskynjari í botni (hindrar að vatn flæði út úr vélinni), háþrýstislanga, tvöfaldur botn, tekur kalt vatn, tekur heitt vatn að 65" C, eyðsla á meðalvalkerfi 1,4 kWh, hæð 85 cm, breidd 59,5 cm, dýpt 57 cm. Zanussi ZF-8000 - þvottavél , Snúningshraði á mínútu 800 !Jsn., heildarmagn af þvottí . kílóum 4,5 kg, gerð belgs harð- plast (mjög endingargott), vatnsdreifikeríi, fjöldi valkerfa 16, spamaðarhnappur, hnapp- ur tíl að setja þvott í hálfa vél, eyðsla pr. þvott 1,9 kWh, 100% sápunýting, hæð 85 cm, breidd 60 cm, dýpt 52 cm. 3ja ára ábyrgð. Ókeypis heimkeyrsla og upp- setning á höfuðborgarsvæðinu Eldavél EH-640-WN Hellufjöldi 4, 22 sm hellan er 2000 vött, 18 sm hraðsuðuhella er 2000 vött, 18 sm venjuleg hella er 1500 vött, 14 sm hrað- suðuhella er 1500 vött, stærð á ofni 63 1, hitastillir í ofni, grill í ofni, hasð 85 sm, breidd 60 sm, dýpt 60 sm. C-306 vifta Val: Hægt áð hafa útblástur eða blástur i gegnum kolafilt- er, fjöldi hraða- I stíllfnga 3, inn- byggt ljós beggja vegna, kol fylgja, hlifðargler fylgir (til vamar heitri gufu í andlitíð), sogafköst á klukkutima á 1. hraða 170 M3, sogafköst á klukkutíma á 2. hraða 200 M3, sogafköst á klukkutima á 3. hraða 260 M3, viftan sogar og eyðir gufu allt að 82%, hávaðamæling í desibilum á meðalval- kerfi 48 db. Hversu mörg vött hefur hún? 200 W, hæð 8 cm, breidd 60 cm, dýpt 45 cm. Mikið úrval af smáraftækjum 10& Verð er miðað við staðgreiðslu. Okkarfrábæru greiðslukjörl Útborgun aðeins 25% og eftirstöðvar á allt að 12 mánuðum. Opld sem hór seglr: Vlrka dags «11 kl. 18. Laugardaga frá kl. 10-16. h/f VERSLUNIN RAFHA, HAFNARFIRÐI. SÍMI50022 - LÆKJARGÖTU 22 VERSLUN RAFHA, REYKJAVÍK, SÍMI620100 - BOR6ARTÚNI26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.