Morgunblaðið - 08.12.1992, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992
19
Nýjar
bækur
■ Alveg glymjandi einvera
heitir ný skáldsaga eftir
tékkneska stórskáldið Bo-
" humil Hrab-
al. Olga Mar-
ía Franzdótt-
ir hefur þýtt
textann en
Þorgeir Þor-
geirson ís-
lenskaði síð-
an þýðingu
Olgu.
Boliumil
Hrabal
í kynnningu útgefanda segir
m.a.: „Bohumil Hrabal sem nú
er á 78. aldursári bjó löngum
við ritskoðun verka sinna, fyrst
á velmektardögum Hitlers og
síðan undir ægishjálmi Gott-
walds og Novotnys. Á valdadög-
um Dubceks fengu verk hans
að koma út, en 1968 fóru þau
aftur á bannlista og Hrabal
þurfti enn að skrifá í felum allt
til frelsisársins 1989. Síðan hef-
ur vegur skáldsins farið sívax-
andi, bæði heima og erlendis.
Hann er nú almennt kallaður
„þriðji bókmenntarisinn frá
Prag á þessari öld“. Hinir tveir
eru Jaroslav Hasek og Franz
Kafka.“
Úgefandi er leshús.
■ íslenskir auðmenn heitir
bók eftir Jónas Sigurgeirsson
og Pálma Jónsson.
í kynningu
útgefanda
segir m.a.:
„Bókin ís-
lenskir auð-
menn er upp-
lýsingarrit um
val á annað
hundrað auð-
Jónas ugustu íslend-
inga, þá sem eiga í hreinum
eignum að minnsta kosti 200
milljónir
króna. Á bók-
arkápu segir
að viðfangs-
efnið sé „við-
kvæmt mál“.
Hér sé hulunni
svipt af þeirri
leynd sem um-
Pálmi lykur auð og
peninga og greint sé frá því
hvemig auðurinn hafi safnað-
ast._“
Útgefandi er Almenna
bókafélagið hf. Bókin er 320
bls., prentuð i Prentstofu G.
Ben. Verð 2.995 krónur.
■ Fulltrúar á fimbulslóðum
— þættir úr Grænlandsflug-
inu heitir ný bók eftir Svein
Sæmundsson.
í kynningu
útgefanda
segir m.a.:
„Fullhugar á
fimbulslóðum
skiptist í fimm
meginkafla. í
fyrsta kaflan-
Sveinn um «
Sæmundsson um þá miklu
einangrun sem Grænlendingar
bjuggu við í aldir og þá miklu
breytingu sem varð þegar farið
var að fljúga þangað. í öðrum
kaflanum er m.a. sagt frá upp-
hafi Grænlandsflugs íslendinga
og hvemig það þróaðist smátt
og smátt. í þriðja kaflanum er
síðan fjailað um aukningu
Grænlandsflugsins frá íslandi
og hvernig það varð stór þáttur
í flugmálum íslendinga. Þar er
sagt frá ævintýraferðum m.a.
alla leið til Pearylands. Fjórði
kaflinn fjallar um skíðaflugið
en yfir því hvíldi mikill ævin-
týraljómi og fimmti kaflinn fjall-
ar síðan um mjög sögulegar
flugferðinjn.a. þegar flogið var
upp á líf og dauða til þess að
bjarga sjúkujn og særðum.“
Útgefandi er Fróði hf. Bók-
in er 212 bls., prentunnin hjá
G. Ben. Prentstofu. Kápu-
hönnun annaðist Helgi Sig-
urðsson. Verð 2.980 krónur.
Stóra brandarabókin
Bókmenntir
Sigurður Haukur Guðjónsson
__ Prentun: í Skotlandi.
Útefandi: Iðunn.
Fýndni? Ákaflega erfitt að skil-
grein það orð. Lífið hefur kennt
mér að það er háð stund og stað;
hugarástandi þess er segir og þess
er á hlýðir. Um okkur Islendinga
hefir það verið fullyrt að brandarar
okkar birtist helzt á kersknislegan
og blautlegan hátt. Danir, aftur á
móti, kunni þá list að þræða veg
háðs og alvöru svo vart verði greint
í milli. Þetta hafa eyru mín numið
og verð ég að viðurkenna að mér
fellur danska listin betur, jafnvel
þó ég verði um leið að viðurkenna
með roða í vöngum að hugsun mín
er svo sein, að frá því eyra nemur
orð þar til hlátur vaknar líða oft
margir dagar. Flestar þjóðir stend
ég að því að hlátur er þeim helzt
vakinn er þær horfa á ófarir ann-
arra, án slysa, eða þá hugsun hlýt-
ur búning á röngu í stað réttu.
Sjálfsagt hefir sá eða þeir sem
söfnuðu til þessarar bókar gert sér
grein fyrir: Að svo er margt sinnið
sem skinnið. Því fara þeir víða í
leit fanga, safna saman 2.924
kímnisögum, flokka niður og birta
á 364 síðum. Af því ætti að sjást,
að flestir munu finna sér hlátur-
vaka í þessari bók.
Eigum við að reyna?
Lalli: „Sýndirðu vinkonum þínum
trúlofunarhringinn frá mér?“
Lína: „Já, og tvær þeirra þekktu
hann aftur.“
„Ertu kominn með nýja kærustu,
Tryggvi?"
„Nei, þetta er sú gamla. Hún er
bara nýmáluð."
Viðskiptavinur: „Og hvemig stend
ég til að fá 200.000 króna lán?“
Bankastjórinn: „Þú stendur ekki,
þú skríður."
„Ég var ekki nema fjórar merkur
þegar ég fæddist.“
„Hvað segirðu? Og lifðirðu?"
„Ég er orðinn níutíu og fímm ára
og ég á ekki einn einasta óvin.“
„Það er ánægjulegt.“
„Já, þeir eru allir löngu dauðir.“
„Vindlareykur drepur sýkla.“
„Já, en það er svo skolli erfitt að
kenna þeim að reykja.“
Unglingar sýna að þeir hafa þörf
fyrir að vera öðravísi með því að
klæða sig allir nákvæmlega eins.
Látum þessi sýnishom nægja,
en hér er úr miklu að moða. Bókin
er snyrtilega og vel úr garði gjörð,
heimska og klúrheit skilin eftir við
götu, eins og frekast er unnt.
En hver safnaði efni? Þess er
hvergi getið.
HEKLA
LAUGAVEGI174
SÍMI'695500
VANDAÐIR
VINNUBÍLAR
Jaá
VOLKSWAGEN
Kjörnir til hverskonar
vöruflutninga og fólksflutninga
□ Bensín- eða Dieselhreyfill
□ Aflstýri
□ Framhjóladrif
□ 5 gíra handskipfing/sjálfskipting
□ Burðargeta 1-1,2 tonn
□ Farþegafjöldi allt að 9 manns
□ Þriggja ára ábyrgð
BÍLL FRÁ HEKLU BORBAR SIB