Morgunblaðið - 08.12.1992, Side 20

Morgunblaðið - 08.12.1992, Side 20
20 (•; t. í,:i'i i , !' i.cf.JH r. ;>.)•' u MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8: DESEMBER I992 ' Merarkóngar lands- íns í einni bók Nýjar bækur Orðabók sr. Bjöms Halldórssonar ORÐABÓK séra Bjöms Halldórs- sonar, sem upphaflega kom út í Kaupmannahöfn árið 1814, er nýkomin út að nýju. í kynningu útgefanda segir: „Orðabók Bjöms Halldórssonar var fyrst gefin út undir umsjón hins þekkta danska málfræðings, Rasm- usar Kristjáns Rasks. í orðabókinni eru um 30 þúsund flettiorð og er mikill hluti þeirra al- mennur orðaforði 18. aldar. Einnig er í bókinni mikið af vestfirsku eða vestlensku tungutaki af heimaslóð- um höfundar. Bókin hefur því mikið gildi fyrir sögu íslensks orðaforða og er ómissandi þeim sem vilja fræð- ast um hana. Dr. Jakob Benedikts- son hefur lýst orðabók Bjöms á þann veg að hún „markaði upphaf ís- lenskrar orðabókagerðar í nútíma- skilningi, bæði sakir orðaflölda og eins vegna þess að þýðingar voru þar ekki aðeins á latínu heldur og á samtfðarmáli, svo að fleiri en latínu- lærðir menn gátu haft af henni full not.“ í formála þessarar útgáfu er greint frá ævi og störfum höfundar- ins og fjallað sérstaklega um orða- forða bókarinnar." Útgefandi er Orðabók Háskól- ans og er bókin annað bindið f ritröðinni Orðfræðirit fyrri alda. Hún er 554 bis. Jón Aðalsteinn Jónsson, fyrrverandi orðabókar- stjóri, annaðist útgáfuna. Verð 3.750 krónur. úlega litrík en sönn sagal ...prakkarastrik...fyrsta kynlífsfræðslan...pabbi handtekinn á stríðsárunum...pabbabílarnir klessukeyrðir... fyrstu ástarskotin . sungrð með KK-sextett...sungið með Hljómsveit Svavars Gests. merkilegur miðilsfundur... kýldur gegnum rúðu í NoregL.sögur úr leigubílastarfi... þegar Raggi Bjarna varð landeigandi i Ameríku... gamansögur frá Sumargleðiárunum . þegar Raggi Bjama upprætti þjófahring á Spáni...glímt viö áfengisvanda... partí með blómahippum í New York...kynni af milljónamæringum...eltur af glæpamönnum í Bandaríkjunum... Lifssaga Ragga Bjarna - bókin sem allir eru að tala um! ----------------------------------—/ ÆSKAN f-------------------------------------- feitu letri eða öðru sem tölvan býður upp á við setningu. Af þessum sök- um er tæplega hægt að segja að upplýsingamar séu aðgengilegar en taka ber tillit til að mikið er lagt upp úr að hraða útgáfu bókarinnar sem er út af fyrir sig gott mál og svo er greiiiilega verið að spara pláss en hér er um að ræða mjög umfangs- mikið efni eins og gefur að skilja. Þá heldur höfundur sig við eigin nýyrði varðandi ýmis dómsatriði og segir í formála að hann sjái enga ástæðu til að breyta yfir í þau orð og nöfn sem aðrir menn nota þar sem hans orð séu miklu betri. Því miður virðist Jónas vera einn fárra manna þeirrar skoðunar, ef ekki sá eini og er ekki laust við að manni finnist hann þama vera að beija höfðinu við steininn. En þrátt fyrir þessar smávægilegu aðfinnslur verð- ur bókin Merarkóngar vel þegin í bókahillur hestamanna. Fram til þessa hafa bækur Jónasar verið vin- sælar og nýtur hann þess mjög hversu fljótvirkari hann er en þeir Búnaðarfélagsmenn að koma með MorgunblaðiðA''aldimar Kristinsson Jónas Kristjánsson á hestamanna- þingi. sína ættbók á markað. í ættbókum Jónasar koma fram allar þær upplýs- ingar sem menn þyrstir í að sjá og það er það sem skiptir höfuðmáli. En látum nú lokið umíjöllun um sjálfa ættbókina og snúum okkur að „merarkóngunum". í formálum að bókum sínum hefur Jónas lýst ágæti tölvu sinnar og það íslensk sönglög ARGUS/SÍA Kemur upp um LACOSTK þinn góða smekk! HERR4MT/U/ERSUIN LAUGAVEGI 61 - 63 - SIMI14519 __________Bækur______________ Valdimar Kristinsson JÓNASI Kristjánssyni áhuga- manni um hrossarækt halda engin bönd og nú nýlega kom út fjórða hestabókin hans sem ber nafnið Merarkóngar. Nú sem fyrr er bókin afsprengi tölvuleikja Jónas- ar og áhuga hans á hrossarækt. Bókinni er skipt í tvo hluta þ.e. Ættbók ársins 1992 sem inniheld- ur alla dóma það árið og svo aft- ur skrá yfir flest alla hrossarækt- armenn aldarinnar eins og höf- undur orðar það í formála bókar- innar. Af þessari skrá dregur bókin nafn sitt. Ættbókinni er skipt í tvo hluta þannig að í fyrri hlutanum eru birt- ar myndir af sumum hrossunum með ættargröfum og staðsetningu fæð- ingarstaðar hestsins. í seinni hlutan- um eru birtar allar upplýsingar um hrossin svo sem nafn, nafnúmer, ætt, eigandi eða eigendur og ein- kunnir og sýningarstaður. Undirrit- aður hefur áður gagnrýnt þetta fyr- irkomulag og gerir enn því mikið óhagræði er að hafa mynd og ættar- graf á einum stað og aðrar upplýs- ingar á öðrum stað í bókinni. Að skaðlausu mætti minnka ættargröf- in, þrír ættliðir ættu að nægja, og þar með mætti kom fyrir einkunnum og öðrum upplýsingum fyrir á síð- unni. Sé þetta mögulegt af tæknileg- um ástæðum væri það mun betri kostur. Þá má finna að uppsetningu upplýsinganna sem er massífur texti án nokkurra aðgreiningar með t.d. Hljómdiskar Oddur Björnsson Gunnar Guðbjörnsson, tenór. Jónas Ingimundarson, píanó. Steinar hf. Af íslenskum tenórsöngvurum nú um stundir er Gunnar Guðbjömsson bestur (ég sagði ekki „mestur"). Fara þar saman falleg rödd og blæ- brigðarík og gulltryggt músikalitet í beitingu hennar. Allt sungið með innlifaðri smekkvísi, með öðrum orð- um er hér fyrir hendi sú fágun og sá taktur, af ferskleikanum ógleymdum, sem aðeins er á valdi bestu söngvara (orðið stórsöngvari á hér ekki við). Jónas Ingimundarson er heldur ekki neinn venjulegur „undirleikari", hann er píanisti og túlkandi. Því hefur leikur hans hljómauðgi og karakter (ekki spillir Bösendorfínn fyrir). Engu að síður hefur leikurinn þann takt, sem er ekki aðeins nauð- synlegur í samvinnu af þessu tagi heldur á sinn fullgilda þátt í að skila því erindi sem hrífur áheyrandann. Engan skyldi því undra að leið þeirra félaga hafi legið um Lundúnaborg í nóvember sl. til að halda tónleika í Wigmore Hall. Islensku lögin á þessum geisla- diski eru ákaflega vel valin, allt perl- ur - kannski svolítið mismunandi dýrar. Aftur og aftur var ég heillað- ur af flutningi sem og sjálfum tón- smíðunum (flestar vel þekktar) - og jafnvel á stundum af textanum líka! Það er varla við hæfi að gefa sumum af þessum lögum sérstaka einkunn á kostnað annarra, en Jón- amir (Þórarinsson og Leifs) hrifu mig sérstaklega. Það má svo sem líka segja um lög Sigfúsar Einars- sonar, hið seiðmagnaða lag Karls 0. Runólfssonar (í fjarlægð), Bí, bí og blaka (yndislega sungið), Vísur- Vatnsenda-Rósu - og öll hin lögin! Hafi menn ekki vitað það áður eiga íslendingar fjársjóð af fallegum sönglögum - og sum eru perlur. Hljóðritun hefur tekist skínandi vel.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.