Morgunblaðið - 08.12.1992, Side 27
MORGUNBLAÐiÐ ÞRIÐJUDAGUK 8. DESEMBER 1992
27
Súluritið hér til hliðar sem sýnir tekjuskatt
sem hlutfall af brúttótekjum 1991 birtist í
nýjasta tölublaði The Economisl. Texti með
súluritinu er svohljóðandi:
Súluritið sýnir tekjuskatta, þar með talið
útsvar, af meðaltalstekjum starfsmanna við
framleiðslustörf sem hafa fyrir fjögurra
manna heimili að sjá. Byggt er á upp-
lýsingum Efnahagssamvinnustofnunar
Evrópu (OECD). Árið 1991 borgaði danskur
verkamaður af þessu tagi 36% af launum í
tekjuskatta, en stallbræður hans í Frakklandi,
Lúxemborg, Portúgal og á íslandi um eða
innan við 1%. Væri tekið tillit til ýmiss konar
frádráttarliða, svo sem vaxtaafsláttar vegna
húsnæðislána og lífeyris, væri skattbyrðin
minni í flestum landanna. Ef launatengd
gjöld launþeganna og bamabætur væm talin
launþeganum til tekna hefði danski iðn-
verkamaðurinn 68% af tekjum sínum til
ráðstöfunar. Ráðstöfunarfé hins fslenska yrði
hins vegar 117% af brúttótekjum, þökk sé
nflegum ijölskyldubótum.
Tekjuskattan sem hlutfall af heildantekjum árið 1991
Meðaltekjur fjölskyldumanns með tvö börn, ekki er tekið tillit til
ósamræmdra skattaafslátta
Fjáraukalög 1992
Fjárlag'anefnd samþykk-
ir 335 millj. aukin útgjöld
FJARLAGANEFND hefur sam-
þykkt viðbótarútgjöld í frum-
varpi til fjáraukalaga fyrir árið
1992 að upphæð rúmlega 335
milljónir króna.
Meðal breytinga á frumvarpinu
sem meirihluti nefndarinnar gerir
eru rúmlega 100 millj. króna aukin
útgjöld sjúkratrygginga Trygginga-
stofnunar ríkisins og um 120 millj-
óna króna hækkun útgjalda til rík-
isspítala en þar er um að ræða við-
bótarkostnað vegna þess að fallið
var frá sumarlokun á öldrunardeild
og bamageðdeild ríkisspítalanna í
tengslum við gerð kjarasamninga
sl. vor. Þá er samþykkt um 60 millj.
kr. aukin framlög til Borgarspítala.
Fj áraukalagafrumvarpið var lagt
fram á Alþingi 19. október og í
nefndaráliti meirihluta fjárlaga-
nefndar kemur fram að fallist hefur
verið á flestar tillögur ráðuneyt-
anna um auknar gíeiðsluheimildir
um fram það sem kom fram í sjálfu
frumvarpinu.
Erfitt tíðarfar
í Ameshreppi
Skólabörn í
helgarfríið
á vélsleðum
Djúpavík.^
IBUAR Arneshrepps í Stranda-
sýslu hafa ekki farið varhluta af
umhleypingasömu veðurfari síð-
ustu vikurnar. Rafmagnslaust
varð á öllum bæjum í hreppnum
í óveðrinu 23. nóvember sl. og
komst rafmagn ekki á fyrr en
síðdegis hinn 26.
Þetta erfiða tíðarfar hefur að
sjálfsögðu haft mikil áhrif á sam-
göngur sem þó eru erfiðar fyrir
yfir vetrartímann. Áætlunarflug
Islandsflugs féll niður tvisvar sinn-
um en föstudaginn 27. var loksins
hægt að fljúga öllurn þorpsbúum
til ómældrar ánægju vegna þess að
þá komu dagblöðin fyrir alla vikuna
sem menn voru orðnir langeygðir
eftir.
Meðan á rafmagnsleysinu stóð
varð að flytja skólabörnin úr skólan-
um vegna kulda þar sem olíukynd-
ing skólans var ekki í lagi þegar
til átti að taka. Vegna veðurs var
þó ekki hægt að koma öllum böm-
unum til sinna heimila og var þeim
komið fyrir á bæjum sem betur lágu
við. Þau börn sem lengst eiga heima
úr skóla búa á Djúpavík og hafa
þau ekki komist heim í helgarfrí
síðan 16. nóvember fyrr en núna.
Farið var með þau á vélsleða og
var það bóndinn á Bæ sem flutti
þau.
- E.S.
-----♦ » ♦-----
Ólafsfjörður
Snjóflóð tók
vatnsleiðslu
í sundur
UM KÍLÓMETRA breitt siyóflóð
féll í Skeggjabrekkudal í Ólafs-
firði á laugardagskvöld og tók í
sundur hitaveituleiðslu. Gert hef-
ur verið við leiðsluna til bráða-
birgða. Talið er að tjónið nemi
um einni milljón króna, en búist
er við að það fáist bætt úr trygg-
ingum.
Kristinn Hreinsson, settur bæjar-
stjóri í Ólafsfirði, sagði að Hitaveita
ólafsfjarðar væri með holur á
tveimur stöðum, Skeggjabrekkudal
og í Laugarengi, en þar væri aðal-
hola veitunnar. Laxeldistöðin Laxós
og einn bær í Ólafsfirði fá vatn úr
holunni á Skeggjabrekkudal.
Brugðist var skjótt við eftir að
leiðslan fór í sundur og hún tengd
til bráðabirgða, en Kristinn sagði
að vegna aðstæðna væri ekki unnt
að gera við leiðsluna fyrr en næsta
vor.
Atvikið varð til þess að minni
þrýstingur varð á bæjarkerfinu og
var skrúfað fyrir vatn til sund-
laugarinnar til að létta á kerflnu.
MA7DA R9R
IVI/At-L/rA UlIU
, BILL
ARSINS
1993!
Hinn nýi MAZDA 626, sem kom á markaðinn á þessu ári hefur hvan/etna
fengið fádæma lofsamlegar umsagnir og dóma. Nú nýlega völdu
bílagagnrýnendur í Danmörku MAZDA 626 „BÍL ÁRSINS 1993" og
sigraði hann keppinautana með yfirburðum.
í forsendum dómnefndar segir m.a. að MAZDA 626 hafi orðið fyrir valinu
vegna einstakra aksturseiginleika, mikils rýmis og þæginda. Þetta er 13.
árið í röð, sem þetta val fer fram og má geta þess að aldrei fyrr hefur bíll
framleiddur í Japan hlotið þessa eftirsóttu viðurkenningu!
Stigagjöf dómnefndar:
1. MAZDA 626..............................197 stlg
2. Toyota Carina E.........................160 "
3. Alfa Romeo 155 ........................ 77 "
4. Seat Toledo............................. 44 "
5. Toyota Corolla........................... 41 "
6. Mitsubishi Colt/Lancer................... 23 "
7. /8. Hyundai Elantra..................... 14 "
7./8. Rover 200 .......................... 14 "
9. Honda Civic...............................13 "
Meira á
næstu
síðu!