Morgunblaðið - 08.12.1992, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992
Frumvörp koinin fram um tekjuöflun ríkissjóðs á næsta ári
Ríkið innlieimtir 1,4
milljarða kr. með nýju
14% virðisaukaþrepi
Skattleysismörk lækka um rúmar 2.000 krónur
SAMKVÆMT lagafrumvarpi um tekju og eignarskatt sem ríkisstjórnin
samþykkti á laugardag, hækkar tekjuskatthlutfall um 1,5%, barnabæt-
ur lækka um 30% en barnabótaauki er hækkaður um allt að 30% á
móti. Þá verður lagður 14% virðisaukaskattur á þær atvinnugreinar
sem áður hafa notið undanþága frá virðisaukaskattkerfinu eða hafa
legið utan kerfisins. í frumvarpi um heilbrigðismál kemur fram að
skerða á mæðra- og feðralaun verulega en á móti verður meðlag og
barnalífeyrir hækkaður. Einnig lækkar hlutur ríkisins í skólatannlækn-
ingum í 75%. I frumvarpi um tekjustofna sveitarfélaga kemur fram
að aðstöðugjald verður afnumið um áramót og framlag í Lánasjóð
sveitarfélaga skert um 110 miHjónir. Þessi lagafrumvörp eru hluti af
efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar, sem náði á laugardaginn sam-
komulagi um að skera ríkisútgjöld um 8-900 milljónir umfram það sem
gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu. Hér á eftir verður gerð grein
fyrir helstu atriðum þessara þriggja frumvarpa.
h
Áhrif breytinga á tekjuskatti
og barnabótum á skattbyrði
*tf»
Mánaðar- Tekjuskatts- Breyting á Samtals Heildarbreyting
tekjur.kr. áhrif.kr. bamabótum, kr. breyting, kr. (%) af tekjum
I. Einstæðir foreldrar - eitt bam (meðaltekjur kr. 90.000}
60.000 -798 248 -550 -0,9%
90.000 -1.350 178 -1.172 -1,3%
100.000 -1.500 178 -1.322 -1,3%
150.000 -2.250 178 -2.072 -1,4%
200.000 -3.000 -1668 -4.668 -2,3%
II. Hjón með tvö böm, annað yngra en sjö ára (meðaltekjur kr. 235.000)
100.000 0 -610 -610 -0,6%
150.000 -2.250 -610 -2.860 -1,9%
200.000 -3.000 -765 -3.765 -1,9%
235.000 -3.525 -1.634 -5.159 -2,2%
250.000 -3.750 -1.634 -5.384 -2,2%
300.000 -4.500 -1.634 -6.134 -2,0%
400.000 -6.000 -1.634 -7.634 -1,9%
450.000 -9.250 -1.634 -10.884 -2,4%
500.000 -12.500 -1.634 -14.134 -2,8%
► Um áramótin hækkar tekjuskatt-
hlutfall um 1,5%, úr 32,8% í 34,3%.
Verður þessi tekjuskatthækkun not-
uð til að bæta sveitarfélögum upp
afnám aðstöðugjalds sem fella á nið-
ur um áramót. Þetta þýðir að skatt-
hlutfall, með útsvari, hækkar úr
39,85% í 41,35%. Persónuafsláttur
verður óbreyttur, 24.013 krónur á
mánuði og lækka skattleysismörk við
breytinguna í í 58.072 krónur úr
60.258 krónum.
► Taka á upp sérstakan 5% há-
tekjuskatt sem leggst á tekjuskatt-
stofn einstaklinga umfram 2,4 millj-
ónir og á tekjuskattstofn hjóna um-
fram 4,8 milljónir. Skatturinn verður
lagður á vegna tekna næsta árs,
1993 og ársins 1994. Gert er ráð
fyrir að þeir sem þurfa að greiða
þennan skatt greiði fyrirfram með
fimm jöfnum mánaðarlegum greiðsl-
um mánuðina ágúst til desember á
næsta ári og verður þá miðað við
tekjur á árinu 1992 samkvæmt skatt-
framtali.
Gert er ráð fyrir að hækkun skatt-
hlutfalls og álagning hátekjuskatts
skili 3.150 milljónunum króna til rík-
isins. Þetta jafngildir 1,4% hækkun
á skattbyrði einstaklinga að jafnaði,
samkvæmt útreikningum fjármála-
ráðuneytis, en að teknu tilliti tíl
lækkunar bamabóta er hækkunin
tæplega 1,6%.
► Bamabætur verða lækkaðar á
næsta ári um 30% að meðaltali og
er áætlað að ríkið spari 500 milljón-
ir vegna þess. Jafnframt verður
bamabótaauki hækkaður. Bama-
bótaaukinn er tekjutengdur og eftir
þessar breytingar verður meiri hluti
bamabótagreiðslna orðinn tekju-
tengdur. Gert er ráð fyrir að heildar-
greiðslur bamabóta einstæðra for-
eldra með eitt bam og allt að 150
þúsund króna mánaðatekjur hækki
þrátt fyrri lækkun á almennu bama-
bótunum.
Bamabætur eru nú 8.886 krónur
á ári með fyrsta bami en eiga að
, lækka í 6.220 krónur um áramótin.
Með hveiju bami umfram eitt voru
á þessu ári greiddar 27,591 krónur
en sú upphæð á að lækka í 19.295
krónur. Að auki eru greiddar 20.240
krónur á hvert bam ef barnið er
yngri en sjö ára en sú upphæð er
28.917 krónur nú.
Bamabætur með börnum ein-
stæðra foreldra lækka úr 66.725
krónum í 46.710 krónur með fyrsta
bami. Með bömum umfram eitt
lækka bamabætumar úr 70.960
krónum í 49.660 en úr 99.855 krón-
um í 69.900 krónur ef bamið er
Íngra en sjö ára.
► Bamabótaauki hækkar, þó meira
hjá einstæðum foreldrum en hjónum.
Hann hækkar úr 89.284 krónum á
ári í 99 þúsund krónur hjá hjónum
og í 114 þúsund hjá einstæðum for-
eidrum. Jafnframt lækka þau tekju-
mörk þar sem bamabótaaukinn byij-
ar að skerðast, úr 1.098.000 krónum
í 1.043.000 krónur hjá hjónum og
úr 732 þúsund krónum í 695 þúsund
krónur hjá einstæðum foreldrum.
Þetta þýðir, að hjón með eitt bam
missa bamabótaaukann alveg þegar
þau hafa náð 2,45 milljóna árstekjum
en þau mörk em nú um 2,3 milljón-
ir. Hjón með tvö böm missa bama-
bótaaukann við 2,7 milljóna króna
árstekjur, samanborið við 2,5 milljón-
ir nú, og hjón með þijú böm missa
bamabótaaukann við rúml.ega 3
milljóna árstekjur en á þessu ári
misstu þau bamabótaaukann við 2,8
milljóna árstekjur.
Einstætt foreldri með eitt bam
missir barnabótaaukann alveg við
2,32 milljóna árstekjur en þau mörk
vom 1,95 milljónir á þessu ári. For-
eldri með tvö böm missir bamabóta-
aukann við 2,6 milljóna króna árs-
tekjur í stað 2,15 milljóna nú, og
foreldri með þijú börn missir bama-
bótaaukann við tæplega 3 milljóna
króna árstekjur í stað 2,45 milljóna
nú.
► Fyrirhugað e'r að skerða vaxta-
bætur vegna húsnæðiskaupa á skatt-
árinu 1994 um 400 milljónir króna.
Ekki hefur verið ákveðið með hvaða
hætti það verður gert, en í fmmvarp-
inu er kveðið á um að framtalin
vaxtagjöld verði skert um 10% og
eignarmörk lækkuð um 20%. Þetta
getur haft það í för með sér að vaxta-
bætur skerðist um allt að 20% hjá
þeim sem þeirra njóta.
Ef tekið er dæmi af hjónum sem
hafa 2,5 milljónir í tekjuskattstofn
og 300 þúsund krónur í vaxtagjöld
má ætla að þau hafí fengið 150 þús-
und krónur í vaxtabætur á yfirstand-
andi ári. Sú tala er fengin út á þann
hátt, að 6% af tekjuskattstofni, 150
þúsund krónur, em dregin frá vaxta-
gjöldunum. Miðað við sömu tekjur
og sömu vaxtagjöld gætu þessi hjón
búist við að vaxtabæturnar lækki í
120 þúsund krónur eða um 20%. Er
þá miðað við að framtalin vaxtagjöld
skerðist um 10%, eða í 270 þúsund
krónur, og 150 þúsund séu dregin
frá eins og áður.
í öðmm tilfellum gæti verið um
litla sem enga breytingu að ræða.
Ef hjón em með 2,5 milljóna króna
tekjur og 400 þúsund króna vaxta-
gjöld nytu þau í báðum tilfelium fulls
vaxtaafsláttar, 200 þúsund króna.
► Tekjuskattur lögaðila lækkar.
Tekjuskattur hlutafélaga lækkar úr
45% í 33% í tveimur áföngum. Á
næsta ári lækkar hann í 38% en í
33% árið 1994. Hins vegar lækkar
tekjuskattur sameignarfélaga aðeins
í 41%. Ekki þykir ráðlegt að færa
tekjuskatthlutfall þessara aðila
meira niður þar sem það er talið
kunna að valda því að mikill fjöldi
þeirra einstaklinga, sem em í at-
vinnurekstri, myndi sjá sér hag í því
að stofna sameignarfélög um rekstur
sinn til að komast hjá skattlagningu.
Jafnframt fellur niður heimild til að
leggja 10% af hagnaði fýrirtækja í
ljárfestingarsjóði og frádráttur út-
hlutaðs arðs lækkar úr 15% í 10%
af nafnvirði hlutafjár.
► Aflagðar verða undanþágur virð-
isaukaskatts af bókum, blöðum,
tímaritum, húshitun og afnotagjöld-
um útvarps og sjónvarps. Þessar
greinar hafa hingað til ekki innheimt
virðisaukaskatt af seldri þjónustu,
en hafa fengið endurgreiddan inn-
skatt af aðföngum. Þá leggst virðis-
aukaskattur á atvinnugreinar, sem
hingað til hafa legið utan virðisauka-
skattkerfísins, svo sem hótel- og
gistihúsarekstur og fólksflutningar.
I öllum þessum tilfellum er um að
ræða nýtt 14% virðisaukaskattþrep.
Gert er ráð fyrir að þessar breyt-
ingar verði í þremur áföngum:
* Virðisaukaskattur á húshitun
leggst á um áramót. Á það að skila
ríkinu um 500 milljóna króna tekjum.
Til að draga úr áhrifum virðisauka-
skattsins verður hluti skattsins, eða
um 200 milljónir króna, endurgreidd-
ur. Um áramót á einnig að lækka
endurgreiðslur virðisaukaskatts
vegna vinnu iðnaðarmanna við íbúð-
arhúsnæði úr 100% í 60%.
* Um mitt næsta ár á að leggja virð-
isaukaskatt á afnotagjöld útvarps og
sjónvarps, og áskriftir blaða og tíma-
rita og sölu íslenskra bóka.
* í upphafíjársins 1994 verður lagð-
ur virðisaukaskattur á ferðaþjónustu.
Um leið verður tryggingargjald af
ferðaþjónustu lækkað úr 6% í 2,5%
Gert er ráð fyrir að ríkið inn-
heimti um 1,4 milljarð króna sam-
kvæmt þessu nýja virðisaukaskatt-
þrepi á næsta ári. Er það nokkru
minna en áður var ráðgert vegna
þess að breytingarnar koma fram á
lengri tíma.
► Samkvæmt frumvarpi að lögum
um almannatryggingar eiga að verða
þær breytingar á tryggingabótum
um áramótin að meðlag og barnalí-
feyrir hækkar úr 7.551 krónur á
mánuði í 11.300 krónur á mánuði.
Jafnframt eru feðra og mæðralaun
lækkuð verulega. Þau falla niður með
fyrsta bami en eru nú 4.732 krónur
á mánuði. Þá lækka mæðralaun með
tveimur bömum úr 12.398 krónum
á mánuði í 3.000 krónur, og mæðra-
laun með þremur bömum og fleiri
lækka úr 21.991 krónu á mánuði í
7.750 krónur. Einnig verður heimilt
að tekjutengja greiðslu mæðra- og
feðralauna.
Samkvæmt upplýsingum heil-
brigðisráðuneytisins skerðast heild-
Samkvæmt dómi Hæstaréttar er
setningu bráðabirgðalaganna jafnað
til uppsagnar kjarasamninga BHMR
og ríkisins. Hæstaréttarlögmennirnir
Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar
Már Matthíasson sögðu báðir að
þetta atriði væri veikasti hlekkurinn
í röksemdarfærslu dómsins og orkaði
mjög tvímælis. Þetta væri þó niður-
staða dómsins sem hefði í för með
sér mikila óvissu því í lögum um
kjarasamninga opinberra starfs-
manna segir að fara eigi eftir ákvæð-
um síðasta kjarasamnings þar til nýr
hefur verið gerður. Ágreiningur er
því um hvort 5. og 15. grein samn-
ings BHMR og ríksins, sem fjallar
um að aðilar geti krafist breytinga
á samningi verði aðrar almennar
hækkanir á launakjörum annarra
arbætur einstæðra foreldra ekki
þrátt fyrir þessar breytingar þótt
meðlagshækkun sé minni en nemur
lækkun mæðralauna þar sem þau eru
skattlögð en meðlög og bamalífeyrir
ekki. Þetta á að spara um 500 millj-
óna króna útgjöld heilbrigðisráðu-
neytisins á næsta ári, að sögn Jóns
Sæmundar Siguijónssonar deildar-
stjóra í heilbrigðisráðuneyti.
í fjármálaráðuneytinu munu menn
ekki vera sérlega ánægðir með þessa
spamaðaraðgerð heilbrigðisráðu-
neytisins, þar sem við hana verður
ríkið af skatttekjum, sem gætu num-
um vel á annað hundrað milljónir
króna, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, þannig að spamað-
ur ríkisins sé minni sem því nemi.
Biðtími sem einstæðir foreldrar
hafa eftir að sambúð er tilkynnt
styttur úr tveimur ámm í eitt. Að
sögn Jóns Sæmundar Siguijónssonar
er þetta, og lækkun mæðra og feðra-
launa, gert til að draga úr misnotkun
á því að foreldrar skrái sig einstæða
til að njóta hærri tryggingabóta frá
ríkinu. Og stefnt sé að því að mæðra-
og feðralaun verði felld út og ein-
stæðir foreldrar fái þau í breyttu
formi, svo sem í gegnum bamabætur
og bamabótaauka.
► Samkvæmt frumvarpinu er gert
ráð fyrir að sjúkratryggingar greiði
ekki fyrir sérfræðilæknishjálp og
rannsóknir nema sjúklingur hafi til-
vísun frá heimilis- eða heilsugæslu-
lækni. Þetta þýðir að ef sjúklingur
fer til sérfræðings án milligöngu
heimilis- eða heilsugæslulæknis verð-
ur sjúklingurinn að greiða sjálfur
reikning sérfræðingsins. Þó er gert
ráð fyrir að ráðherra geti með ákveð-
ið undanþágur frá þessu með reglu-
launþega, hafa verið vaktar til lífsins
með dómi Hæstaréttar.
Viðar Már sagði það sitt álit að
kjarasamningurinn gilti áfram og
tæki þeim breytingum sem hann
kvæði á um. Tók Sólveig Backman,
formaður stéttarfélags lögfræðinga
í ríkisþjónustu, undir sjónarmið Við-
ars Más. Jón Steinar sagði hins veg-
ar að í samningnum sjálfum hefði
verið ákvæði um gagnkvæman upp-
sagnarrétt eftir 30. september 1990.
Breytingar á launakjörum eftir þann
tíma hefðu ekki getað tekið gildi. „Ég
held að rétt skýring á þessari réttar-
stöðu sé sú að eftir að annar aðilinn
er búinn að segja upp samningnum,
samkvæmt heimild í honum sjálfum,
verði ekki um frekari breytingar á
kjörum að ræða samkvæmt honum.
gerð. Þetta á að spara ríkinu 200
milljónir króna.
► Ákveðið hefur verið að draga enn
úr lyfjakostnaði. Samkvæmt frum-
varpinu verða einungis lífsnauðsyn-
leg lyf ókeypis en vegna annarra
lyfla þurfí sjúklingar að greiða hlut-
deild í kostnaði. Ekki hefur verið
gefin út lyfjareglugerð með frum-
varpinu, en að sögn Jóns Sæmundar
Siguqónssonar er gert ráð fyrir að
með þessum breytingum verði svo-
nefnd lyfjakort nánast aflögð. Gegn
framvísun þeirra hafa sjúklingar
fengið ákveðin lyf ókeypis. Með
þessu er áætlað að ríkið spari sér
170 milljóna króna útgjöld.
► Loks hefur verið ákveðið að
hækka greiðsluhlutfall vegna skóla-
tannlækninga úr 15% í 25%. Einnig
þarf að greiða 25% kostnaðar vegna
tannverndar. Einnig er gert ráð fyrir
að elli og örorkulífeyrisþegar, sem
njóta fulltrar tekjutryggingar, greiði
25% fyrir tannlæknaþjónustu. Þó er
heimilt að fella niður greiðsluþátt
þessara bótaþega samvkæmt reglu-
gerð sem ráðherra setur. Þetta á að
spara ríkinu 170 milljónir króna.
► Samkvæmt frumvarpi sem ríkis-
stjómin samþykkti á laugardag verð-
ur framlag ríkissjóðs í Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga skert um 110 milljónir
króna og er lagt til að það komi til
skerðingar á framlagi til Lánasjóðs
sveitarfélaga.
► Samkvæmt sama frumvarpi
verður aðstöðugjald fellt niður um
áramótin. í stað aðstöðugjalds gjald-
ársins 1993 fá sveitarfélög sérstakt
framlag úr ríkissjóði sem svarar til
80% af áætluðu álögðu aðstöðugjaldi
á þessu ári.
Ég held einfaldlega að menn standi
uppi með það að þurfa að gera nýjan
kjarasamning núna,“ sagði Jón
Steinar.
Páll Halldórsson formaður BHMR
sagði það skilning samtakanna að
farið verði eftir samningum þar til
nýr hefði verið gerður í samræmi við
12. grein samningsréttarlaganna en
ágreiningur um það væri óleystur.
BHMR-félagar fjölmenntu á fund-
inn í gær þar sem fjallað var um
hinar ýmssu hliðar á dómi Hæstarétt-
ar sem féll í síðustu viku. Fundar-
menn voru sammála um að helsta
niðurstaða dómsins hefði verið sú að
ríkisstjórn Steingríms Hermannsson-
ar hefði brotið jafnræðisreglu stjóm-
arskrárinnar með setningu bráða-
birgðalaganna. Þá kom fram á fund-
inum að þótt félagafrelsisnefnd Al-
þjóðavinnumálastofnunarinnar hefði
komst að þeirri niðurstöðu, vegna
kæru BHMR til stofnunarinnar, að
setning bráðabirðalaganna hefði ekki
brotið gegn samþykktum stofnun-
arinnar hefðu samtökin krafist þess
að sérfræðinganefnd Alþjóðavinnu-
málastofnunarinnar (ILO) fjallaði um
málið í kjölfar dóms Hæstaréttar og
væri niðurstöðu hennar að vænta
innan tíðar.
GSH
Dómur Hæstaréttar í máli BHMR
Ovíst hvort BHMR-félagar eiga
rétt á launahækkunum annarra
ÓVISSA ríkir um hvort dómur Hæstaréttar í máli BHMR hefur í
för með sér að félagsmenn samflotsfélaga BHMR eigi rétt á 1,7%
launhækkun og 8.000 kr. orlofsuppbót sem samið var um í almennu
kjarasamningunum sl. vor og annarri launaleiðréttingu í samræmi
við ákvæði kjarasamnings BHMR og ríkisins þar til nýr kjarasamn-
ingur hefur verið gerður. Hefur BHMR sett fram kröfur um að fé-
lagsmönnum beri hækkanir í samræmi við hækkanir sem aðrir laun-
þegar hafa fengið en viðræður við ríkið um þetta eru ekki hafnar.
A fundi sem BHMR-félagar voru boðaðir á í gær komu fram skiptar
skoðanir lögfræðinga um hvort dómurinn opnaði möguleika á að
nýta ákvæði síðasta kjarasamnings um launabreytingar í samræmi
við hækkanir á launakjörum annarra launþega.