Morgunblaðið - 08.12.1992, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.12.1992, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992 Menn átti sig á stöðunni Jón Baldvin Hannibalsson og Kristín Einarsdóttir eru ósammála um hver staða EES sé núna. Geir H. Haarde og Ragnar Amalds finnst staðan óljós. Óviss staða EES eftír þjóðaratkvæði í Sviss UTANRÍKÍSRÁÐHERRA, Jón Baldvin Hannibalsson, telur að Alþingi sé ekkert að vanbúnaði til að samþykkja frum- varp til staðfestingar á samningnum um Evrópskt efnahags- svæði, EES. Niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Sviss knýi á um að íslendingar staðfesti samninginn til að þeir geti verið fullgildir aðilar að nauðsynlegri tæknilegri end- urskoðun á samningnum. Ymsir stjórnarandstæðingar telja nauðsynlegar breytingar verða svo stórfelldar að um gjör- breyttan samning sé að ræða. Alþingi geti ekki staðfest úreltan gjörning. Ragnar Arnalds, formaður þingflokks Alþýðubandalags, og Geir H. Haarde, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokks, vilja að menn reyni að átta sig á breytum aðstæðum og réyni að ná samkomulagi eftir að utanríkis- ráðherra kemur heim af ráðherrafundi EFTA síðar í vik- unni. Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknar- flokks, útilokar ekki að samkomulag geti tekist eftir að menn hafi náð áttum. í gær var staða samnings um Evrópskt efnahagssvæði, EES, til umræðu utan dagskrár að beiðni Samtaka um kvennalista. Þessi umræða var samkvæmt fyrri máls- grein 50. greinar þingskapa þannig að ráð var fyrir því gert að hún skyldi ekki standa lengur en hálf- tíma. Fallinn í Sviss og úreltur annars staðar Talsmaður Samtaka um kvenna- lista, Kristín Einarsdóttir (SK-Rv) sagði ljóst að eftir að Svisslending- ar hefðu fellt samninginn um EES í þjóðaratkvæði, stæði Alþingi frammi fyrir því að fjalla um samn- ing sem ekki endurspeglaði raun- verulega stöðu mála. Það væri ljóst að gera yrði meiri og víðfeðmari breytingar en einungis tæknilegar gætu talist. Hlutur EFTA væri í mestu óvissu; eftir brottfall Sviss- lendinga væri EFTA ekki lengur aðili að þessum samningi. Þar að auki þyrfti að semja um kostnaðar- skiptingu á nýjan leik. Kristín vildi vísa á bug yfirlýsingum utanríkis- ráðherra sem fram hefðu komið í sjónvarpsviðtali kvöldið áður um að íslendingar yrðu útlokaðir frá þátt- töku í viðræðum um endurskoðun samningsins ef þeir hefðu ekki stað- fest þá samningsgjörð sem Sviss- lendingar hefðu nú um helgina hafnað. Ræðumaður vitnaði til 129. greinar samningsins þar sem segir: „Samningur þessi öðlast gildi 1. janúar 1993 að því tilskyldu að all- ir samningsaðilar hafí afhent full- gildingar- eða samþykktarskjöl sín til vörslu fyrir þann dag. Eftir. þann dag skal samningurinn öðlast gildi fyrsta dag annars mánaðar eftir síðustu tilkynninguna. Lokafrestur varðandi þá tilkynningu skal vera 30. júní 1993. Eftir þann dag skulu samningsaðilar boða til ráðstefnu stjómarerindreka til að meta stöðu mála.“ Kristínu sýndist nú vera tími til að endurmeta þetta mál og spurði hvort dagsetningin 30. júní gilti ekki lengur. Ekkert að vanbúnaði Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra vísaði til þess að 129. grein og samþykktir við samn- inginn kvæðu á um hvemig fara skyldi með mál af þessu tagi. Fyrri ræðumaður hefði gert grein fyrir því hvemig bregðast skyldi við ef eitthvert land stæðist ekki tíma- mörkin. En í annan stað væri kveð- ið á um hvemig með skyldi fara ef einhver samningsaðila felldi samninginn. Utanríkisráðherra vitnaði til samþykktar samningsað- ila vegna 129. greinar: „Ef einhver [samningsaðila] fullgildir ekki samninginn skuiu hinir samnings- aðilamir boða til ráðstefnu stjómar- erindreka til að meta áhrif fráviks frá fullgildingu samningsins og skoða möguleika á að samþykkt verði bókun um breytingar sem verða með fyrirvara um nauðsyn- lega meðferð innanlands. Slík ráð- stefna skal haldin jafnskjótt og ljóst er að einhver samningsaðili muni ekki fullgilda samninginn eða í síð- aðsta lagi ef dagsetning gildistöku samningsins er ekki virt.“ Utanríkisráðherra taldi Alþingi ekki vera neitt að vanbúnaði að samþykkja frumvarp til laga um EES'. 1. grein þess frumvarps væri heimildarákvæði um að fullgilda fyrir íslands hönd samninginn um EES og samninga EFTA-ríkjanna um eftirlitsstofnun og fastanefnd. Utanríkisráðherra benti á að þessi fyrsta grein væri það eina sem fengi 'lagagildi strax. Og 5. grein hljóð- aði: „Ákvæði 1. gr. laga þessara öðlast þegar gildi. Önnur ákvæði laganna öðlast gildi um leið og EES-samningurinn öðlast gildi að því er ísland varðar." Utanríkisráð- herra sagði að þetta þýddi á „mannamáli" að samningurinn sjálfur fengi ekki lagagildi fyrr en við hefðu afhent fullgildingarskjöl og öll önnur ríki hefðu gert það einnig. Það sem myndi gerast áður en samingurinn gengi í gildi væri að efnt yrði til fyrrgreindar ríkjaráð- stefnu. Og þar myndu menn kom- ast að niðurstöðu um þær tæknilegu breytingar sem yrði að gera. Strika út nöfnin Sviss og EFTA þar sem við ætti og önnur þau atriði sem upp kynnu að koma. Ná samkomu- lagi um þessar viðbótarbreytingar °g leggja það fyrir sín þing. Það lægi fyrir að forsvarsmenn annarra EFTA-ríkja hefðu þegar lýst afstöðu sinni sem væri á þá leið að pólitískur vilji til að hrinda málinú í framkvæmd væri óbreytt- ur. Utanríkisráðherra sagði nauð- synlegt að við samþykktum frum- varpið um EES til þess að hafa það á hreinu að við hefðum aðild að framhaldi málsins. Utanríkisráðherra treysti sér ekki til að segja til um það hvað nýliðnir atburðir og fyrirsjáanleg viðbrögð myndu teQa EES-málið mikið. En ráðherrar EFTA-ríkjanna myndu koma saman 10. og 11. þ.m. og í framhaldi að því myndu ráð- herrar þeirra ríkja sem vildu ljúkja málinu koma saman til sérstaks fundar. Við myndum óska eftir því að ríkjaráðstefnan kæmi saman hið allra fyrsta. Utanríkisráðherra greindi einnig frá því að fram- kvæmdastjóm EB hefði lýst því yfír að pólítískur vilji væri óbreytt- nir. Utanríkisráðherra lagði áherslu á það að engin ástæða væri fyrir Alþingi Islendinga til að leggja hendur í skaut, heldur þvert á móti væri það í samræmi við íslenska hagsmuni að taka af öll tvímæli um ókkar afstöðu með því að staðfesta þetta frumvarp svo ekki sé neinn vafi um vilja Alþingis og ríkisstjóm- ar og að við yrðum fullgildir aðilar að því að ljúkja málinu. Breytt staða Páll Pétursson (F-Nv) formaður þingflokks framsóknarmanna taldi EES-málið nú vera í allt annarri stöðu en áður. Hugmyndin um EFTA sem aðra af tveimur stoðum EES væri nú dauð. Það væri frá- leitt að ætla Alþingi það hlutskipti að fjalla um samning sem aldrei kæmi til framkvæmda. Björn Bjarnason (S-Rv) sagði það vera ákaflega mikilvægt að fulltrúar ís- lands sætu við sama borð og fulltrú- ar þeirra ríkja sem þegar hefðu gengið frá formlegum heimildum til fullgildingar. Bjöm sagði úrslitin í Sviss gera þá kröfu til þingmanna að þeir könnuðu til hlítar hvemig staðið skyldi að_ afgreiðslu EES- mála á Alþingi. Úrslitin leiddu ekki til þeirrar niðurstöðu að menn ættu að leggja hendur í skaut. En hitt væri jafn mikilvægt og áður að reyna að ná sem víðtækastri sam- stöðu um málsmeðferð enda væri tekið tillit til hinnar breyttu stöðu. Bjöm taldi að úrslitin í Sviss hefðu ekki þau áhrif hér á landi að efnisá- stæður væm fyrir öðm en því að staðfesta EES-samninginn. Ólafur Ragnar Grímsson (A-Rv) og Jóna Valgerður Krislj- ánsdóttir (SK-Rv) vom fyrra ræðu- manni mjög ósammála um að að engar nýjar efnisástæður væm í vegi fyrir samþykkt EES-samn- ingsins. EFTA væri fallið út með Sviss og eftir stæði lauslegt sam- band þeirra ríkja sem eftir væra. Og á næstunni væm ekki þær tíma- setningar sem gerðu samþykkt samningsins að formlegri nauðsyn. Rannveig Guðmundsdóttir (A-Rn) lagði hins vegar áherslu á að EES-samningurinn gerði ráð fyrir því hvemig með þessi mál skyldi fara, og því væri nauðsynlegt að íslendingar staðfestu samning- inn til að vera fullgildir aðilar að framhaldi málsins. „Pínleg staða“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (SK-Rv) sagðist hafa höggvið eftir því að utanríkisráðherra hefði í kvöldfréttum sjónvarpsins talað um svissneskt lýðræði og þjóðarat- kvæði sem vandamál. Ingibjörg Sólrún taldi það ekki eiga að vera vandamál að leyfa þjóð að segja sitt álit, þótt það kynni að valda stjómvöldum ákveðnum vanda. Ingibjörg Sólrún greindi frá því að sænskir þingmenn teldu mikil- vægt að fá upplýst hvar íslendingar stæðu svo þeir þyrftu myndu ekki standa frammi fyrir þvi að samn- ingsniðurstaðan strandaði á íslend- ingum í það skiptið og þeir yrðu þá að semja í þriðja sinn. Ingibjörg Sólrún taldi það vera „pínlega stöðu" fyrir ríkisstjómina að geta ekki sannfært sína samningsaðila um að hún hefði meirihluta fyrir samningnum. En á hinn bóginn vildi Ingibjörg Sólrún benda á að -við gætum verið með í áframhaldandi samningsferli á meðan við hefðum ekki hafnað EES-samningnum. Hún vildi einnig greina þingheimi frá því áliti sínu að það væri ekki boðlegt fyrir Alþingi að samþykkja fmmvarp sem vitað væri að ekki stæðist. „Þegar miklir atburðir gerast eiga litlir karlar að þegja, eins og skáldið sagði,“ sagði Eyjólfur Kon- ráð Jónsson (S-Rv). „Ef menn hafa ekki gefíð sér tíma áður til að hugsa um okkar stöðu, hljóta þeir að gera það núna og forðast allt fljótræði. I mínum huga er al- veg ljóst að stjórnarskrá íslenska lýðveldisins yrði brotin ef drögin að Evrópska efnahagssvæðinu yrðu samþykkt eins og þau er nú. Til þess fær mig enginn maður. Frá því að Bjöm Þ. Guðmundsson pró- fessor sendi utanríkismálanefnd álit sitt í júlí síðastliðnum hefur hann haldið áfram rannsóknum sínum og einkum skoðað frekar norrænan rétt. Þetta hefur leitt til þess, að hann telur sig ekki lengur í vafa um, að samningurinn um EES bijóti í bága við íslensku stjórnarskrána." Eyjólfur Konráð greindi frá því að Björn hefði greint utanríkismála- nefnd frá þesSu áliti sínu og hann hefði nú leyft sér að greina Alþingi frá því. Samkomulag í uppnámi Ragnar Arnalds (Ab-Nv), for- maður þingflokks Alþýðubanda- lags, greindi frá því að samkomulag hefði verið um að önnur umræða um framvarpið um staðfestingu EES-samningsins færi fram 12., 14. og 15 desember en allir flokkar stjórnarandstöðu hefðu haft fyrir- vara um niðurstöðu þjóðaratkvæða- greiðslunnar í Sviss. Það væri Ijóst að stjórnarandstaðan þyrfti tíma til að kynna sér málið í nýju ljósi við í stað fjárlagafrumvarpsins verða tekjuöflunarfmmvörp ríki- stjómarinnar til fyrstu umræðu í dag, fmmvarp um breytingar í skattamálum og fmmvarp um breytingar á lögum um almanna- tryggingar. Meðal efnisatriða þess- ara fmmvarpa er hækkun á tekju- skatti einstaklinga, sérstakur bá- tekjuskattur, niðurfelling á mæðra- og feðralaunum með fyrsta bami og lækkun á mæðra- og feðralaun- um með tveimur bömum og fleiri breytar aðstæður. Utanríkisráð- herra væri á fömm til útlanda til að fjalla um þetta mál. Við heim- komu hans yrði auðvitað að fara fram sérstök umræða um stöðu þessa máls. Ákvörðun um aðra umræðu yrði ekki tekin fyrr en menn hefðu áttað sig á því hvemig þetta mál stæði. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra vildi benda á að hér væri ekki um að ræða samning milli EFTA og EB. Þetta væri samningur milli EFTA-ríkja og EB. Og eftir að utanríkisviðskipta- og evrópumálaráðherrar EFTA-ríkj- anna annarra enn Sviss hefðu ráðið sínum ráðum þá yrðu niðurstöðum- ar væntalega kynntar fyrir upphaf annarrar umræðu. Hann ítrekaði að ekki mætti leika á tveim tungum að pólitískur vilji íslendinga til að ljúka þessu máli væri óbreyttur. Reynum að nota tímann Þegar utanríkisráðherra hafði lokið ræðu sinni var liðinn sá tími sem ætlaður var til þessarar utan- dagskrámmræðu. En þá var eftir að ræða gæslu þingskapa. Ólafur Ragnar Grímsson og Svavar Gestsson (Ab-Rv) töldu ekki bara nauðsynlegt að fjalla um staðfest- ingarfmmvarp EES heldurög fylgi- framvörp því tengdu. Innti Svavar Gestsson forseta Alþingis, Salome Þorkelsdóttur, eftir því hvemig ætti að haga þinglegri meðferð þessara mála. Geir H. Haarde (S-Rv), formaður þingflokks Sjálf- stæðismanna, sagði ekki sanngjarnt að ætlast til þess að þingforseti svaraði þessari spumingu sam- stundis. Formenn þingflokkanna hefðu fundað í hádeginu um þessi mál. Þessi mál væm til umræðu milli þingflokka og forsætisnefnd- arinnar. Það væri ljóst að fara yrði vel yfír þessi mál. Það væm breytar aðstæður; menn þyrftu að átta sig á breyttum aðstæðum. Það lægi nú ljóst fyrir að ekki myndi frekara gerast fyrr en utanríkisráðherra kæmi heim að nýju síðar í vikunni. Það væri skynsamlegast að menn héldu ró'sinni og reyndu að átta sig á breytum aðstæðum og reyndu að ná samkomulagi. Páll Péturs- son formaður þingflokks Fram- sóknarmanna vildi ekki útiloka að gott samstarf gæti tekist um þing- störfín. Hann tók undir ráðlegging- ar um að menn ættu að nota tím- ann til að átta sig á breyttum að- stæðum. Hann taldi að þetta væri sérstakt heilræði fyrir utanríkisráð- herrann. Jón Baldvin Hannibals- son utanríkisráðherra rifjaði það upp að umræða og afgreiðsla samn- ingsins um EES, hefði verið frestað sérstaklega vegna tilmæla Fram- sóknarflokksins. Niðurstaða þjóðar- atkvæðagreiðslu í Sviss hefði í engu breytt um okkar forsendur. Hann vildi koma þeirri ósk eða áliti á framfæri að ekkert hefði gerst sem breytt gæti samkomulagi um viti boma og skynsamlega meðferð mála. Auk fyrrgreindra tóku til máls: Hjörleifur Guttormsson (Ab-Rv), Anna Ólafdóttir Bjömsson (SK-Rv), Kristín Ástgeirsdóttir (SK-Rv), Ingibjörg Pálmadóttir (F-VÍ) og Jón Helgason (F-Sl). og heimild til að tekjutengja þessar greiðslur. Til að vega nokkuð á móti þessum breytingum hækkar bamalífeyrir og meðlag. Þingleg afgreiðsla samnings um Evrópskt efnahagssvæði, EES, og fmmvarpa sem flutt eru í tengslum við hann em í mikilli óvissu en von- ast er eftir því að þau mál skýrist eftir að utnaríkisráðherra kemur heim af ráðherrafundi EFTA næst- komandi föstudagskvöld. Umræðu um fjárlaga- frumvarp er frestað AFGREIÐSLA þingmála hefur tekið nokkrum breytingum frá því sem að var stefnt. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis hafði verið gert ráð fyrir því að önnur umræða um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1993 hæfist i dag en þeirri umræðu var frestað fram á fimmtudag að beiðni Karls Steinars Guðnasonar formanns fjárlaganefndar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.