Morgunblaðið - 08.12.1992, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992
AKUREYRI
Ferðamálafélag
Eyjafjarðar
Áhyggjur
vegna skatts
á gistingu
Á aðalfundi Ferðamálafélags
Eyjafjarðar var lýst yfir áhyggj-
um vegna efnahagsaðgerða ríkis-
sljórnarinnar er snúa að ferða-
þjónustu, „en lækkun tryggingar-
gjalds og niðurfelling aðstöðu-
gjalds mun ekki vega upp á móti
álagningu 14% virðisaukaskatts á
gistingu og fólksflutninga," segir
í ályktun frá félaginu.
„I ferðaþjónustu liggja miklir
framtíðarmöguleikar og fjöldi nýrra
atvinnutækifæra ef rétt er á málum
haldið. Þessum möguleikum er nú
stefnt í mikla tvísýnu með efnahags-
aðgerðum ríkisstjómarinnar. I þessu
sambandi er vert að líta til Sviþjóðar
en þar fór saman á síðasta ári; ný
skattlagning á ferðaþjónustu og að
þýskum ferðamönnum fækkaði um
300.000. í stað sífellt aukinna álaga
á ferðaþjónustu sem hljóta að leiða
til fækkunar ferðafólks, ber ríkis-
valdinu að styðja og styrkjá ferða-
þjónustuna með öllum tiltækum ráð-
um, s.s. með stóraukinni markaðs-
sókn og landkynningu," segir í álykt-
uninni.
Glerárkirlqa var fullsetin þegar hún var vígð á sunnudag.
Glerárkirkja
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Olafur Rafn
Olafsson
kjörinn for-
maður Varðar
AÐALFUNDUR Varðar FUS
(Félag ungra sjálfstæðismanna)
var haldinn hinn 22. nóvember í
félagsheimili sjálfstæðismanna í
Kaupangi.
I stjóm vom kjömir: Olafur Rafn
Ólafsson, formaður, Friðrik Agn-
arsson, varaformaður, Jón Stefán
Einarsson, gjalkeri, Jens . Garðar
Helgason, ritari, Laurent Friðrik
Ólafsson, spjaldskrárritari, Magnús
Sæmundsson, meðstjómandi og
Birgir Júlíusson, meðstjórnandi. I
varastjóm vom kjörnir: Gísli Símon-
arson, Björn Björnsson og Ólafur
Rúnar Ólafsson.
Fjöldi fólks við vígsluathöfn
BISKUP íslands, herra Ólafur
Skúlason, vígði Glerárkirkju að
viðstöddu miklu fjölmenni siðast-
Iiðinn sunnudag, m.a. kirkju-
málaráðherra, Þorsteini Páls-
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kveikt á Randestrénu
Fjöldi fólks kom saman á Ráðhústorgi á laugardag þegar kveikt vom
ljós á jólatrénu, sem er gjöf frá vinabæ Akureyrar í Danmörku, Ran-
des. Slydda var meðan á athöfninni stóð og vom því margir orðnir
blautir og kaldir þegar jólasveinamir mættu á svæðið. Marianne Jens-
en garðyrkjustjóri í Randes var viðstödd er ljós vom tendmð á trénu
og kom hún færandi hendi, en 23 fjölskyldur fengu að gjöf jólatré frá
Randesbúum. Kirkjukór Akureyrarkirkju, Bamakór Akureyrarkirkju,
Kór verkmenntaskólans og Lúðrasveit Akureyrar sáu um tónlistarflutn-
ing við athöfnina.
syni, herra Pétri Sigurgeirssyni
biskupi, sem tók fyrstu skóflu-
stungu að byggingunni fyrir
rúmum átta árum og sóknar-
prestum við Glerárkirkju, full-
trúum bæjarstjómar Akureyrar
og fleirum. Bárast kirkjunni
margar gjafir og kveðjur í tilefni
dagsins.
Hvert sæti kirlqunnar var skipað
og var setið og staðið í hliðarsölum
að auki. Biskup íslands, herra Ólaf-
ur Skúlason, vígði kirkjuna, sr.
Bolli Gústafsson vígslubiskup þjón-
aði fyrir altari og sóknarpresturinn
sr. Gunnlaugur Garðarsson og sr.
Birgir Snæbjömsson, prófastur í
Eyjafjarðarprófastsdæmi, aðstoð-
uðu í athöfninni.
Bárast kirlq'unni gjafir og kveðj-
ur á vígsludaginn.
í hátíðarmessu á vígsludaginn
var fmmfluttur sálmurinn í Glerár-
kirkju eftir Áskel Jónsson fyrrver-
andi organista kirkjunnar í áratugi
við texta eftir Kristján frá Djúpa-
læk.
Sigríður Stefánsdóttir, forseti
bæjarstjómar Akureyrar, flutti
kveðju bæjarstjómar og færði hún
kirkjunni peninga að gjöf frá bæn-
um til kaupa á munum í kirkjuskip-
ið. Séra Pálmi Matthíasson, fyrsti
sóknarprestur Glerárkirkju, eigin-
kona hans, Unnur Ólafsdóttir, og
Hanna María dóttir þeirra, Ingi Þór
Jóhannsson, fyrrverandi formaður
sóknamefndar, eiginkona hans,
Ema Pétursdóttir, og Hildur dóttir
þeirra færðu kirkjunni að gjöf
messuhökul eftir Guðrúnu J. Vig-
Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, vígði kirkjuna.
fúsdóttur í Kópavogi. Þá fluttu við
athöfnina ávörp m.a. sr. Birgir
Snæbjörnsson prófastur, sr. Pétur
Þórarinsson, fyrrverandi sóknar-
prestur í Glerárkirkju, og herra
Pétur Sigurgeirsson biskup.
í lok athafnarinar var 12 ein-
staklingum veitt viðurkenning
sóknamefndar fyrir fómfús störf í
þágu kirkjubyggingarinnar, en að
því loknu var kirlq'ugestum boðið
til kaffísamsætis.
Frystihús KEA í Hrísey
Ari nýr fram-
kvæmdastjóri
ARI Þorsteinsson hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri í Frystihúsi
KEA í Hrísey, en Jóhann Þór
Halldórsson sem gegndi stöðunni
hefur tekið við starfi fram-
kvæmdastjóra Búlandstinds á
Djúpavogi.
Ari er Homfirðingur og hefur
starfað hjá Kaupfélagi Austur-Skaft-
fellinga á Hornafírði frá árinu 1987,
en frá 1990 sem forstöðumaður físk-
iðjuvers KASK. Hann er sjávarút-
vegsverkfræðingur að mennt frá
Háskólanum í Alaborg.
Jóhann Þór lét af störfum fyrir
nokkm og mun Jón Þór Gunnarsson
sinna störfum framkvæmdastjóra
frystihússins þar til Ari tekur við
eftir næstu áramót.
Eiginkona Ara er Akureyringur,
María Gísladóttir, og eiga þau tvö
börn.
Akureyrarbær auglýsir
tillögu að deiliskipulagi miðhverfis í Síðuhverfi.
Deiliskipulagstillagan er tvíþætt. Annars vegar er gerð
grein fyrir megindráttum byggðar í miðhverfinum sem af-
markað var í aðalskipulagi Akureyrar 1990-2010 (með
síðari breytingum). Hins vegar er gert ráð fyrir lóð fyrir
bensínstöð á horni Austursíðu og Hlíðarbrautar með að-
komu frá Lindarsíðu. Tillagan sýnir endanlega lóðarstærð,
nýtingarhlutfall og umferðartengingar bensínstöðvarlóðar-
innar. Miðað er við að í miðhverfinu verði að öðru leyti
blanda íbúðabyggðar og atvinnustarfsemi og að hverfið
tengist garði/útivistarsvæði austan Glerárkirkju.
Skipulagstillagan, uppdrættirog greinagerð, liggurframmi,
almenningi til sýnis á Skipulagsdeild Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, 3. hæð, næstu 4 vikur frá birtingu þessarar
auglýsingar þannig að þeir sem þess óska geta kynnt sér
tillöguna og gert við hana athugasemdir sbr. grein 4.4. í
skipulagsreglugerð. Frestur til að skila athugasemdum er
til föstudagsins 8. janúar 1993. Þeir sem telja sig verða
fyrir bótaskyldu tjóni vegna samþykktar eða framkvæmdar
deiliskipulagstillögunnar er bent á að gera við hana athuga-
semdir innan tilgreinds frests ella teljast þeir samþykkir
tillögunni.
Skipulagsstjórn Akureyrar.
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn á Akureyri skorar hér með á gjaldendur
sem ekki hafa staðið skil á gjöldum sem voru álögð 1990,
1991 og 1992 og féllu í gjalddaga fyrir 8. desember 1992
og eru til innheimtu hjá ofangreindum innheimtumanni,
að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga
frá dagsetningu áskorunar þessarar.
Gjöldin eru þessi; Tekjuskattur, útsvar, hækkun á tekju-
skatti og útsvari, eignaskattur, sérstakur eignaskattur,
slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald,
iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, lífeyristryggingagjald
skv. 20. gr. 1. nr. 67/1971, slysatryggingagjald atvinnurek-
enda skv. 36. gr., atvinnuleysistryggingagjald, kirkjugarðs-
gjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, skattur af verslun-
ar- og skrifstofuhúsnæði, launaskattur, bifreiðaskattur,
slysatryggingagjald ökumanna, þungaskattur skv. öku-
mælum, viðbótar- og aukaálagning söluskatts vegna fyrri
tímabila, skemmtanaskatt og miðagjald, virðisaukaskatt
af skemmtunum, tryggingagjald af skipshöfnum ásamt
skráningargjöldum, vinnueftirlitsgjald, vörugjald af innl.
framleiðslu, aðflutningsgjöld og útflutningsgjöld, skilagjald
umbúða, verðbætur á ógreiddan tekjuskatt og verðbætur
á ógreitt útsvar.
Vanskilafé og álag skv. 1. nr. 50/1988 um virðisaukaskatt
fyrir september og október 1992 með eindaga 5. desem-
ber, vanskilafé, álag og vexti skv. 29. gr. 1. nr. 45/1987
um staðgreiðslu opinberra gjalda, skv. 14. gr. 1. nr.
90/1987 fyrir 10. greiðslutímabil 1992 með eindaga 15.
október. Stöðvunarbrotsgjald skv. 108. gr. umferðarlaga
nr. 50/1987.
Virðisaukaskattur með gjalddaga 1. mars og 1. september
(bændur) svo og virðisaukaskattshækkun álögðum frá 1.
janúar 1992 til 7. desember 1992.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldn-
um eftirstöðvum gjaldanna að liðnum 15 dögum frá dag-
setningu áskorunar þessarar.
Akureyri 7. desember 1992.
Sýslumaðurinn á Akureyri.