Morgunblaðið - 08.12.1992, Page 41
NBIÁÐ
.8 ÍIUDAQUIQIM QIQAU8V5UDHOM
MGRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992-
Morgunblaðið/Árni Helgason
Mikil hálka hefur verið á götum í Stykkishóimi.
Gæftir góðar en afli rýr
framhaldsskólapróf er þó fyrst
nefnt sérstaklega eru þær að við
ríkjandi aðstæður leita flestir nem-
endur inn á stúdentsbrautir. Með
framhaldsskólaprófí ætti þeim
þrýstingi að vera nokkuð aflétt.
Segja má að íslenska skólakerfíð
bjóði ekki neitt af því sem kalla
mætti millimenntun. Dæmi um það
er iðnfræðslan sem í raun miðar
alit fyrirkomulag sitt við að allir
verði sveinar eða meistarar. For-
senda japanska efnahagsundursins
er öflug starfsmenntun. Upp úr ol-
íukreppunni 1967 tóku Danir þá
ákvörðun að efla sérstaklega starfs-
menntun hjá sér til þess að bæta
efnahagslíf sitt. Það tókst með
miklum ágætum. Þeim þætti hafa
íslendingar lítt sinnt, m.a. vegna
þess að hið einhæfa atvinnulíf okk-
ar, tengt fískútgerð og fiskvinnslu,
hefur ekki gert kröfu um sérstaka
menntun. Nú eru forsendur að
breytast og krafan um breytt at-
vinnulíf og samkeppni við erlendar
þjóðir á því sviði neyðir íslendinga
til að taka upp markvissa milli-
menntun.
í sérhveijum einstaklingi búa
einhveijir hæfileikar. Sumir eru
lagnir handverksmenn en aðrir og
einhveijum lætur betur að nota
bókvit. Svo eru til þeir sem er sterk-
ir á báðum sviðum. Öllum þessum
aðilum þarf skólakerfið að sinna
vegna þess að efnahagslíf okkar
þarf á öllu mannviti að halda hvoit
heldur er með huga eða hönd. A
mynd nr. 1 má sjá hvenig stuttar
starfsbrautir og langar falla að
skólakerfínu. Lykilatriði er að full-
trúar vinnumarkaðarins skilgreini
þarfir sínar og annist í samstarfí
við skólana starfsþjálfun. Um er
að ræða starfsbrautir á öllum hugs-
anlegum sviðum atvinnulífsins,
skipulagðar sem þrepanám þannig
að stöðugt má bæta við fyrra nám
en útgönguleiðir eru jafnan greiðar.
Nefna má starfsbrautir fyrir versl-
unarstörf, ferðaþjónustu, háseta,
handlang ýmiss konar, skrifstofu-
störf, fískverkun og þannig mætti
áfram telja. Fjárfesting í menntun
er arðvænleg. Ekki gefst hér rúm
til að lýsa í smáatriðum skipulagi
hinna nýju starfsmenntabrauta en
mjög gott samstarf hefur verið um
þróunarstarf á því sviði á Suður-
nesjum síðustu misseri. Hugmyndin
er að skóli annist tiltekinn þátt
fræðslunnar en fyrirtæki hinn verk-
lega þátt á grundvelli sérstakrar
vinnubókar,.
Mynd nr. 1 endurspeglar í raun-
inni þann veruleika sem ætti að
blasa við grunnskólanemanda eða
við unglingi sem er að hefja nám
í framhaldsskóla. Sá veruleiki er
byggður á þörfum atvinnulífs og
efnahagslífs þjóðarinnar hvort held-
ur er um stuttar starfsmenntunar-
brautir eða langskólanám í háskóla
að ræða.
Þarf að kenna almennar
greinar?
Skrifari er þeirrar skoðunar að
önnur meginástæða þess að 35%
nemenda gefast upp í framhalds-
skóla sé sú að hinn hefðbundni
kjami almennra greina höfðar ekki
til þeirra. Er þar um að ræða grein-
ar eins og íslensku, stærðfræði,
ensku, dönsku og félagsfræði. Þær
eiga allar rót sína í Lærða skóla á
Bessastöðum í gegnum mennta-
skóla og fjölbrautaskóla. Spyija
má hvers vegna nemendur, sem
lokið hafa 10 ára grunnskólanámi,
þurfí á þessum hefðbundnu kjarna-
greinum að halda fyrir starfsmennt-
un sína. Um er að ræða afskaplega
viðkvæmar spurningar sem snúast
m.a. um það hvenær eigi að hefja
sérhæfíngu. Flestir virðast þó vera
sammála um að einhveijar sameig-
inlegar greinar þurfí nemendur
framhaldsskólans að hafa. Bæði er
það til þess að framhaldsskólinn
mennti ekki einungis „fagidiota"
sem og til að kenna nemendum að
njóta tómstunda. En við höfum ver-
ið afskaplega ófrumleg í að skil-
greina þessar greinar. Sé pólitískur
vilji fýrir því að nemendur læri al-
mennar greinar þarf að bregðast
við því með því að fínna greinum
þessum stað í kerfínu þannig að
kjamagreinar verði ekki flöskuháls
fýrir eðlilega námsframvindu í
framhaldsskólanum. Með þeim rök-
um er eðlilegt að lágmarkskjarni
fyrir alla nemendur íslenskra fram-
haldsskóla byggi á listgreinum,
verklegu námi og almennri tján-
ingu. Hafa þarf í huga að við upp-
haf framhaldsskóla hafa nemendur
stundað almennar greinar í tíu ár.
Flestir nemendur ættu að geta not-
ið sín innan þess sviðs; auk þess
sem það stuðlar að þeim undirstöðu-
atriðum lýðræðissamfélagsins sem
skólinn á að sinna. Hinar hefð-
bundnu kjarnagreinar geta svo
komið inn í nám þeirra nemenda
er hyggjast róa á hefðbundin mið
í menntakerfinu eftir/samhliða því
sem lágmarkskjarnanum er sinnt.
Gleðjum nemendur og spörum
fyrir ríkið
Hver er svo ávinningurinn af
þeim hugmyndum er hér hafa verið
nefndar? Hann ætti að vera augljós.
1. Framhaldsskólinn getur með
þessu móti þjónað öllum, tekið við
öllum skjólstæðingum sínum og
byggt þá upp í stað þess að véla
þá inn á fölskum forsendum, eins
og nú er gert.
2. Tengsl skóla og atvinnulífs
eflast með þessu þar sem fulltrúar
atvinnulífsins taka beinan þátt í að
þjálfa nemendur og vinna að starfs-
námi þeirra með skólanum.
3. Nemendur ættu með þessu
fyrirkomulagi að ljúka fýrr námi
en ella og þar með spara ríkinu
ákveðin útgjöld. Mismuninn mætti
nota til að hlúa betur að skólum,
t.d. í kjörum og búnaði.
4. Líklegt er að dragi úr félags-
legum vandamálum unglinga er
þeir koma sáttir frá námi sínu og
sjá tilgang með því í stað þess að
hrökklast frá skólanum með skerta
sjálfsmynd.
5. Atvinnulífið er styrkt með
bættri menntun.
6. Framhaldsskólinn þjónar við-
tökuskólunum betur.
7. Námsval nemenda verður
markvissara.
8. Hæfíleikar einstaklingsins eru
viðurkenndir og nýttir í mennta-
kerfínu í þágu efnahagslífsins.
Þær hugmyndir er hér hafa verið
kynntar hafa oftsinnis verið rædd-
ar. í þeim umræðum virðast flestir
sammála um að ofangreind mynd
af framhaldsskólanum sé skárri en
sú er við okkar blasir í dag. Form-
lega séð er afskaplega auðvelt að
hrinda henni í framkvæmd. Ekki
verður annað séð en fulltrúar vinnu-
markaðarins séu sammála henni í
meginatriðum með því að taka þátt
í að skilgreina brautirnar, meta þær
til. launa og viðurkenna þannig
menntun sem fjárfestingu. Flest
skólafólk gerir sér grein fyrir mátt-
leysi núverandi fyrirkomulags en
eftir stendur þá einungis að stíga
skrefíð til fulls, viðurkenna að ís-
lenska framhaldsskólakerfíð hefur
staðnað og taka ákvörðun. Við þurf-
um með öðrum orðum að breyta
viðhorfum okkar úr hinu íhaldss-
ama stúdentsprófi og taka ákvörð-
un um að koma á framhaldsskóla
fyrir alla sem hug hafa á. Þá gætum
við hugsanlega talað með stolti um
tengsl skóla og atvinnulífs og fram-
haldsskóla fyrir alla.
Höfundur er skólameistari
Fjölbrautaskóia Suðurnesja.
SLE-hópurinn innan sænska gigt-
arfélagsins stóð fyrir fyrsta sam-
norræna fundi SLE-hópa/sjúklinga
á Norðurlöndunum. Fundurinn var
hluti af fjölbreyttri uppbyggingar-
starfsemi á gigtarárinu, sem nýtur
stuðnings norrænu ráðherranefnd-
arinnar, til að vekja athygli á fjórum
milljónum gigtarsjúklinga á Norður-
löndunum. Á fundinum, sem haldinn
var í Stokkhólmi 31. október til 1.
nóvember 1992, voru fulltrúar frá
Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finn-
landi og íslandi. Sjúkdómurinn er
lítið þekktur á meðal heilbrigðis-
stétta og hjá almenningi. Það eru
u.þ.b. 10.000-12.000 sjúklingar
ÞAÐ MÁ með sanni segja að
haustið það sem af er hefur ver-
ið Hólmurum gott. Ekki hafa
margar sjóferðir fallið niður eða
þurft að sitja í landi.
Einu sinni hefur Kerlingaskarð
orðið ófært en það stóð stutt, súld,
snjór og frost hafa séð um að nú
er mjög hált á götunum í Stykkis-
hólmi en ekki til skaða svo vitað sé.
Þrír bátar hafa verið með línu
héðan og lagt langa lóð en ekki
með rauða úlfa á Norðurlöndunum.
Þörfin fyrir virka áhugahópa kom
skýrt fram á fundinum.
Helstu niðurstöður fundarins
voru:'
• Reyna að auka fræðslu og upp-
lýsingastreymi um sjúkdóminn og
um leið að bæta alla þjónustu innan
heilbrigðisgeirans fyrir fólk með
rauða úlfa.
• Auka fræðslu um rauða úlfa inn-
an heilbrigðisstéttanna sérstaklega.
• Auka framlag til rannsókna á
orsökum sjúkdómsins.
• Auðvelda ungu fólki með rauða
úlfa að fá upplýsingar um sjúkdóm-
inn og mynda tengsl við annað ungt
aflað sem við mætti búast. Það er
nú svona að ekki verður alltaf á
eitt kosið en með minnkandi afla
fæst svo meira fyrir það seip veið-
ist. Skelveiði er hér eins og áður
farsæl og jöfn og oftast hefur verið
hægt að sækja fímm ferðir í viku.
Aldraðir föndra og spila hvern
þriðjudag og er það mjög góð af-
þreying og nú er föndrið farið að
draga dám af fyrirhugaðri jólahátíð
og prófín í skólanum standa nú yfír.
- Arni.
fólk með króníska sjúkdóma.
• Standa vörð um norrænt trygg-
inga- og velferðakerfí og tiyggja að
ráðamenn taki ábyrgð á og gleymi
ekki fólki með króníska sjúkdóma.
• Kanna hvort endurhæfing í heit-
um laugum íslands hafi góð áhrif á
sjúkdóminn og hvort að þar sé mögu-
leiki á sameiginlegri endurhæfíngu
fólks með rauða úlfa. Þetta fólk
hefur í flestum tilfellum ofnæmi fyr-
ir sólarljósi og getur því ekki tekið
þátt í ferðum gigtarsjúklinga til heit-
ari landa.
• Þróa norræna samvinnu á milli
hópanna fyrir fólk með rauða úlfa
og styrkja þá í evrópskri samvinnu.
Ákveðið hefur verið að stofna sér-
deild fyrir fólk með rauða úlfa innan y
Gigtarfélags íslands. Mikilvægt er
að ná til sem flestra einstaklinga
með rauða úlfa sem og annarra sem
áhuga hafa á hagsmunamálum
þeirra. Þeir sem hafa áhuga á mál-
efninu geta haft samband við skrif-
stofu Gigtarfélags íslands.
(Fréttatilkynning)
Gigtarfélag íslands
Sérdeild stofnuð fyr-
ir fólk með rauða úlfa
RAUÐIR úlfar (Systematic Lupus Erythematosus: SLE) er sjúkdómur
þar sem ónæmiskerfíð ræðst gegn eigin líkama. Sjúkdómurinn heijar
á með bólgum í bandvef á ólíkum stöðum I líkamanum. Rauðir úlfar
er krónískur gigtarsjúkdómur og eru orsakir hans óþekktar. Vamar-
kerfi líkamans starfar ekki eðlilega og eru bólgnr í liðum og vöðvum
mjög algengar ásamt húðútbrotum. Bólgur í innri Uffærum (nýru,
hjarta, lungu og miðtaugakerfi) valda því að sjúkdómurinn getur ver-
ið mjög alvarlegur. Rauðir úlfar er útbreiddur um allan heim en er
algengastur í Austurlöndum fjær. Konur eru 90% af þeim sem fá sjúk-
dóminn.
skólar/námskeið
handavinna ~1
■ Ódýr saumanámskeið.
Aðeins 5 nemendur í hóp. Faglærður
kennari. Upplýsingar í síma 17356.
ýmlslegt
■ Næsta námskeið í almennri
skyndihjálp hefst mánudaginn 14. des.
kl. 20. Kennsludagar verða 14., 15.,
16., og 17. des. Kennt verður frá kl.
20-23. Námskeiðið verður haldið í Fáka-
feni 11, 2. hæð.
Þeir, sem hafa áhuga á því að gefa þátt-
tðku í bamfóstrunámskeiði eða nám-
skeiði í skyndihjálp í afmælis- eða jóla-
gjöf, geta fengið gjafabréf á skrifstofu
Reykjavikurdeildar RKl.
Upplýsingar í súna 688188 kl. 8-16.
Reykjavíkurdeild
Rauða kross íslands.
NÁMSAÐSTŒ)
■ Námsaðstoð viö grunn-, framhalds-
og háskólanema. Flestar námsgreinar.
Einkatímar - hópar.
Reyndir réttindakennarar.
Innritun í súna 79233 kl. 14.30-18.30.
Nemcruíafjjómistan ,sj.
tónlist
Söngskglinn i Reykjavik
■ Frá Söngskólanum
í Reykjavík
Getum bætt við nokkrum sóngnemend-
um frá áramótum.
Upplýsingar á skrifstofu skólans á Hverf-
isgötu 45, daglega frá kl. 9.00-17.00,
sími 27366.
Skólastjóri.
tölvur
■ TÖLVUNOTKUN f FYRIRTÆKJA-
REKSTRI
Nám sem veitir FORSKOT í atvinnulíf-
inu. Markmið námsins er að útskrifa fjöl-
hæfa starfsmenn með alhliða hagnýta
kunnáttu í notkun PC-tölva í fyrirtækj-
um. Hefst 18. janúar og lýkur 16. júní
1993, 252 klst., mán.-fim. kl. 16-19.
Innritun hafin. Fáðu sendar nánari upp-
lýsingar.
Tölvuskóli Stjórnunarfélags
fslands og Nýherja.
Símar 621066 og 697769.
■ TÖLVUSKÓLI f FARARBRODDI
Námskeið sem henta öllum PC-notend-
um. Einnig námskeið fyrir Macintosh-
notendur. Gott verð. Góð kennsluað-
staða. Reyndir leiðbeinendur.
Fáðu senda nýju námsskrána fyrir vor-
önn 1993.
Tölvuskóli Stjórnunarfélags
íslands og Nýherja.
Símar 621066 og 697769.
■ UNIX KERFISSTJÓRNUN
Hagnýtt námskeið 14.-16. des. kl. 9-16
fyrir umsjónaraðila UNIX/AIX vinnu-
stöðva. Þátttakendur þurfa að hafa þekk-
ingu á grunnotkun kerfisins, helstu skipun-
um, textaritþór og eúifaldri skeljaforritun.
Leiðbemandi er ÁrsæU Hreiðarsson.
Tölvuskóli Stjórnunarfélags
íslands og Nýherja.
Sfmar 621066 og 697769.
■ Danssýningar. Bjóðum upp á dans-
sýningar við ýmis tækifæri. Suður-amer-
ískir dansar og sígUdir samkvæmisdansar
(baUroom dansar). Danspðr á OUum aldri.
Dansskóli Jóns Péturs og Köru.
Uppl. í símum 36645 og 685045.
■ Dansskóli Jóns Péturs og Köru.
Mikið úrval af dansskóm fyrir dömur,
herra og böm og ýmsir fylgihlutir: Net-
sokkabuxur, semalíusteinar, kjólfata-
skyrtur og allt tilheyrandi. Dansbúningar
tU leigu. Sendum um aUt land.
Símar 36645 og 685045.