Morgunblaðið - 08.12.1992, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992
Það var mikið dekrað við Brönu, sem hér fær fótakælingu á heitum
sumardegi.
Hrossarækt í Danmörku
Pernille með stóðhestinn Sörla frá Eriksholm, en hún hefur keppt
á honum nokkrum sinnum í tölti og fjórgangi og gengið prýðilega.
Reyni að rækta hross eins og Brönu
- segir Pemille Brinch sem eignaðist gæðingshryssuna
Brönu frá Garðsauka fyrir tilviljun og ræktar nú út af henni
_________Hestar______________
Valdimar Kristinsson
ÞAÐ ER með ýmsum hætti sem
hrossaræktendur í Danmörku
hafa endað í ræktun íslenskra
hesta en ekki farið í einhver önn-.
ur kyn. Einnig hafa tilviljanir ráð-
ið því að hestamenn hafa farið út
í ræktun en ekki látið sér nægja
að stunda útreiðar og þjálfun reið-
hesta. Pernille Brinch sem býr við
smábæinn Græsted á Norður-Sjá-
landi fór út í hrossarækt meira
af tilviljun en að það hafí verið
hennar fastmótuðu áform.
Allt byijaði þetta með hryssunni
Brönu frá Garðsauka sem var undan
Hjarranda 631 frá Garðsauka og
Mósu frá Hofstaðaseli. Faðir Pernille
hafði keypt tvær hryssur sem upp-
haflega átti að vera ein hryssa en
þar sem seljandi sagði að þær yrðu
að fýlgjast að voru báðar keyptar.
Sú sem fylgdi með af illri nauðsyn
var Brana. Hina hryssuna fékk Pem-
ille, en hún reyndist ekki hafa þessa
gangtegund, töltið, sem allir íslensk-
ir hestar urðu að hafa til að vera
eitthvað spennandi. Brana virtist
hinsvegar hafa gott eðlistölt og því
skipti Pemille við föður sinn sem
aftur seldi hina hryssuna. „Þetta var
upphafið að minni alvöru hesta-
mennsku," segir Pemille, sem var
fjórtán ára þegar hún eignaðist
Brönu. „Hún var svo til ótamin og
byijaði ég á að ríða henni í skógin-
um. Ég kunni ekkert að ríða tölt á
þessum tíma en fann þó fljótlega að
ef ég lét hana reisa sig þá kom tölt-
ið nokkuð auðveldlega. Ég varð alveg
gagntekin af Brönu og endaði með
því að ég flutti að heiman til að geta
verið nær henni. Faðir minn rak bú
ekki langt frá heimili okkar þar sem
ég hafði hana. Ég tók saman pjönk-
ur mínar og flutti yfir á búgarðinn
við litla hrifningu foreldranna."
Tveimur ámm seinna, 1976, er
fyrsta Norðurlandamótið haldið í
Heselröth á Norður-Sjálandi og þá
er Brana farin að tölta býsna vel.
Pemille sýnir áhuga á að keppa þar
en þá var ekki um að ræða að lönd-
in sendu keppnissveitir heldur gátu
allir keppt sem vildu, bara að mæta
og skrá sig. Þar mættu þær stöllur
til leiks og höfnuðu í þriðja sæti og
þótti góður árangur hjá 16 ára stúlku
sem aldrei hafði farið á námskeið
og kunni lítið fyrir sér annað en það
sem Brana hafði kennt henni. „Eftir
þetta fór Brana í kynbótadóm og ég
byijaði að rækta og hugsaði ekkert
um keppni fyrr en 1991. Á þessum
tíma vorum við, ég og maðurinn
minn, að koma okkur upp húsi og
aðstöðu fyrir hrossaræktina. Einnig
eignaðist ég tvö böm á þessu tíma-
bili svo tíminn til útreiða var ekki
fyrir hendi," segir Pemille.
Með tvo stóðhesta í takinu
í dag á Pemille tvo stóðhesta, sá
eldri er Sörli frá Eriksholm undan
Glaði 887 frá Ytra-Skörðugili og
Stjörnu frá Gunnarsholti, en Pemille
keypti hann veturgamlan. „Ég keypti
Sörla með það í huga að nota hann
sem stóðhest ef hann yrði nógu góð-
ur. Hann var dæmdur á síðasta ári
og fékk leyfi til notkunar á fjórar
hryssur og á ég nú tvö afkvæmi
undan honum sem mér líst ágætlega
á. Ég var meðeigandi í Hrannari frá
Selfossi en seldi hlut minn í honum
og keypti Sörla í staðinn. Sörli kem-
ur seint inn í ræktun en ástæðan
fyrir því er sú að ég hafði ekki tíma
til að temja hann fyrr en hann var
orðinn sjö vetra gamall. Hinn stóð-
hesturinn er Ófeigur frá Hejelte, en
hann er undan Kylju frá Hejelte sem
er undan Brönu og Ljúfi frá Svigna-
skarði og svo Rauðdreka frá Hol-
landi sem nú er orðinn heimilisfastur
í Danmörku. Ófeigur var dæmdur á
sama tíma og Sörli og hlaut heldur
betri dóm en Sörli og leyfi til ótak-
markaðrar notkunar. Hann er mjög
viljugur, fékk 8,6 fyrir vilja og feg-
urð í reið en aðeins 7,0 fyrir brokk
sem venjulega er prýðilegt en það
tókst illa til með það í sýningunni.
Sjálfri finnst mér mjög gaman að
ríða stóðhestunum mínum, þeir eru
báðir góðir, hvor á sína vísu, en ann-
ars mjög ólíkir," segir Pernille.
Takmarkið er viljug og
geðgóð hross
Þegar talið berst að ræktunar-
stefnum og ýmsu er viðkemur
hrossaræktarpólítíkinni segist hún
ekki hafa sett sig inn í BLUP-ið og
þar af leiðandi gæti hún ekki tjáð
sig neitt um það. Hinsvegar liti hún
alltaf til nánustu ættingja einstakl-
inganna sem hún notar ogtæki nokk-
uð mið af því hvemig þeir litu út og
hvað þeir gætu gert undir manni.
„Ég held að þótt vel ættaður ein-
staklingur sé ekkert úrval að getu
eða útliti geti hann verið mikilvægur
hlekkur í ræktuninni og gefið af sér
góða einstaklinga ef foreldrar og
aðrir ættingjar eru góðir,“ segir
Pemille af mikilli sannfæringu. Sjálf
segist hún vilja rækta góða keppnis-
hesta sem séu sterkbyggðir og viljug-
ir. „Þeir verða að nenna áfram ef
maður á að hafa einhveija ánægju
af að ríða þeim,“ segir Pemille
ákveðin, en þegar hún er spurð hvort
hún sækist frekar eftir að rækta fyór-
eða fimmgangshesta hugsar hún sig
vel um og svarar síðan á þá leið að
erfitt sé fyrir hana að segja til um
það, því hún hafi nú aldrei riðið skeið.
„Það kann að vera að ég vilji ekkert
nema fimmgangshesta þegar ég hef
loksins komist á bragðið með skeið-
ið. Það er reyndar næsta mál á dag-
skrá hjá mér að læra á skeiðið. Eg
veit að Ófeigur býr yfir ágætu skeiði
— ætli sé ekki best ég byiji að æfa
mig á honum," segir hún hlæjandi.
„Ég vil rækta hross eins og Brana
var, að vísu mega þau vera örlítið
hærri en með góðan vilja, gott geð-
slag og tölt, það er heila rnálið."
Pemille segist alltaf hafa komist
í úrslit þegar hún hafi keppt þar til
á danska meistaramótinu síðastliðið
sumar, en þá hafnaði hún í tíunda
sæti á Sörla og missti þar með af
sæti í danska liðinu sem keppti á
Norðurlandamótinu sem haldið var í
Noregi. Hún segist hinsvegar ætla
að þjálfa stíft í vetur og vonast til
að taka þátt í úrtökumótum fyrir
heimsmeistaramótið næsta sumar.
Mikið ræktað en lítíð selt
Búskapurinn hefur vaxið hjá Pem-
ille þessi ár frá því hún eignaðist
Brönu. Hrossin em nú komin vel á
þriðja tuginn, sem er mikið á dansk-
an mælikvarða, lítið hefur verið selt
og viðurkennir hún að tilfinningarnar
spili sterkt inn í hrossaræktina hjá
sér og hún eigi af þeim sökum erfitt
með að láta hross frá sér. „Það er í
rauninni ekki bara tilfinningalegs
eðlis, því ég á einnig oft erfítt með
að verðleggja hrossin mín,“ segir
Pemille og hún viðurkennir að nú
verði hún að fara að fækka við sig,
því annars stefni þetta í óefni og
vinnan verði of mikil í kringum þetta.
En það em ekki bara hestar á bú-
inu. Pemille hafði heyrt að vel færi
á að hafa blandaða beit í högunum
og því fékk hún sér nokkrar kindur,
En líkt og með hrossin hefur fjöldinn
farið eitthvað úr böndunum, því nú
em kindurnar orðnar um hundrað.
En það stendur til að fækka þeim
einnig, segir Pemille og fullyrti að
næsta vetur yrðu þær á milli tíu og
fimmtán. „Þetta var hrein Klepps-
vinna síðastliðið vor í sauðburðirium,
því ég varð að hýsa allar lambærnar
áður en þær bám,“ segir Pemille.
Pílagrímsför til íslands er eitt af
því sem Pemille á eftir að koma í
verk, en fram að þessu hefur ekki
verið rúm fyrir íslandsferð á þétt-
skipaðri dagskránni hjá henni. Það
er líka meira en að segja það að
hlaupa frá tæplega þijátíu hestum
og hundrað kindum og svo þarf að
koma bömunum fyrir. „Ég geri mér
vonir um að komast til íslands á
næsta eða þamæsta ári, þegar lands-
mótið verður haldið," segir þessi ork-
umikla kona sem elskar íslensku
hestana sína meira en orð fá lýst.
Hvað gerir hann fyrir þig?
Geymir skrá yfir nöfn,
heimilsföng, síma og
faxnúmer.
Heldur utan um 3
bankareikninga og 3
greiðslukort. Þannig er
greiðslustaðan alltaf klár.
Gefur hljóðmerki, og þá
stendur á skjánum hvað
það var sem þú ætlaðir að
muna/gera.
Hefur 3 föst minni fyrir
gengi gjaldeyris og rofa
fyrir gagnstæða útkomu.
Skeiðklukka, sem telur
bæði upp og niður.
• Klukka sem sýnir
mánaöardag, vikudag, klst.
mín. og sekúndur.
• Reiknivé! með „prósentu"
reikningi og minni.
• Öryggislykill sem læsir
persónulegum
upplýsingum sem eru í
minni tölvunnar, t.d.
fjármálin.
• Stærð minnis samsvarar
10000 stöfum.
FRÓDI KOSTAR
AOEINS kr. 2.980,-
Rafhlöður og hlffðarveskl
Innlfallð f verðl.
DREIFING: G.K. VILHJALMSSON
Smyrlahraun 60, 220 Hafnarfjörður,
sími 91-651297
ÖAM MAStB
Akranes: Tölvuþjónustan. Akureyri Nýja Fílmuhúsid. Blönduós: Kaupfélagió. Borgarnes: Kaupfelagiö.
Buóardalur: Versl. Einars Stefánssonar. Dalvik: Sogn. Egilsstaðir: Bókabuðin Hlööum. Eskifjörður: Rafvirk-
inn. Flateyri: Þjónustulundinn. Hafnarfjörður: Rafbúöin, Álfaskeiði. Húsavik: Öryggi. Hvammstangi: Kaupfé-
lagiö. Hverageröi: Ritval. Hvolsvöllur: Kaupfélagiö. Höfn: Hafnarbúöin. ísafjörður: Bókabúö Jónasar Tóm-
assonar. Keflavik: Stapafell. Neskaupstaður: Bókabuð Brynjars Júliussonar. Ólafsvik: Vik. Reyðarfjörður:
Rafnet. Reykjavik: Hjá Magna, Bókahornið. Sauðárkrókur: Rafsjá. Siglufjörður: Aöalbuöin. Stykkishólm-
ur: Húsið.
Góðandaginn! ^5? Metsiilubiað á hverjum degi!
Hveragerði
Aætlaðar tekjur bæjar-
sjóðs um 157 milljónir
í fjárhagsáætlun Hveragerðis-
bæjar fyrir árið 1993, sem lögð
hefur verið fram til fyrri um-
ræðu, kemur fram, að tekjur eru
áætlaðar 157 miiyónir og
greiðslubyrði lána er áætluð 33
milljónir og eigið fé til ráðstöfun-
ar 17 milljónir.
í frétt frá bæjarstjóm segir, að
þörf sé á stækkun leikskóla og
byggingu við grunnskóla, sem eru
flárfrekar framkvæmdir. Þá þurfí
að leysa mörg önnur verkefni á
næstu árum svo sem viðhald á fast-
eignum auk átaks í gatnagerð.
„Við fjárhagsáætlunargerð er því
horft tií langs tíma og sérstök
áhersla er lögð á ráðstafanir til að
auka atvinnu á sviði endurhæfingar
og heilsuræktar auk hefðbundinna
atvinnugreina Hvergerðinga, garð-
yrkju og ferðamannaþjónustu.
Hveragerði hefur verið mjög skuld-
sett sveitarfélag en á undanfömum
tveimur ámm hefur fjárhagsvandi
þess verið tekinn mjög föstum tök-
um. Greiðslubyrði lána á þessu ári
er til dæmis mjög há og kemur
sveitarfélagi vissulega í koll, þegar
opinberir aðilar ættu að hafa svig-
rúm til að ráðast í stærri verkefni
til atvinnusköpunar," segir í frétt
frá bæjarstjórn.
Gert er ráð fyrir að fjárhagsáætl-
unin verði afgreidd til síðari um-
ræðu um miðjan janúar.
-----» ......—
Breytingum á
endurgreiðslu-
hlutfalli virð-
isaukaskatts
mótmælt
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Lands-
sambandi íslenskra rafverktaka:
„Stjórn Landssambands ís-
lenskra rafverktaka harmar þá
ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
lækka endurgreiðsluhlutfall virðis-
aukaskatts vegna vinnu iðnaðar-
manna við íbúðarhúsnæði. Stjóm
LÍR óttast að við það að endur-
greiðsluhlutfallið verði lækkað úr
100% í 60% munu margir fresta
nauðsynlegu viðhaldi og að einnig
muni beiðnum um svarta vinnu fara
fjölgandi.
Því er skorað á ríkisstjórnina að
falla frá þessum fyrirætlunum."