Morgunblaðið - 08.12.1992, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992
47
Kveðja
Ragnar Jónsson
fv. skrífstofustjóri
Þegar við kveðjum ættingja eða
vini hinstu kveðju koma í hugann
myndir frá liðnum stundum.
Á æskuárum mínum í sveitinni
voru gestakomur ákaflega
skemmtileg tilbreyting. Einn
skemmtilegasti gesturinn fannst
mér móðurbróðir minn, Ragnar
Jónsson, er lést á heimili sínu 25.
nóvember sl. Hann var alltaf kær-
kominn gestur, kátur og hress og
hafði frá mörgu að segja.
Ragnar fæddist 24. ágúst 1915
í Bjóluhjáleigu í Djúpárhreppi, son-
ur hjónanna Önnu Guðmundsdóttur
og Jóns Jónssonar er þar bjuggu.
Hann var yngstur sex systkina sem
fullorðinsaldri náðu. Fjögur eru á
lífi: Kristinn, Guðrún, Ingibjörg og
Sigríður. Ingólfur lést árið 1984.
Sautján ára gamall fór Ragnar
í Verslunarskólann og lauk þaðan
verslunarprófi árið 1936. Einn vet-
ur, 1938/1939, var hann við versl-
unamám í Þýskalandi, en ævistarf
hans tengdist allt verslunar- og
skrifstofustörfum.
Eftir heimkomuna frá Þýskalandi
starfaði hann við Kaupfélagið Þór
á Hellu til ársins 1950, að undan-
skildum þrem árum sem hann vann
við skrifstofustörf í Reykjavík. Árið
1951 gerðist hann svo fram-
kvæmdastjóri Verslunarfélags
Vestur-Skaftfellinga í Vík og þar
var hann í tíu ár eða þar til fjöl-
skyldan flutti til Reykjavíkur og
Ragnar varð skrifstofustjóri Áfeng-
is- og tóbaksverslunar ríkisins og
Lyfjaverslunar ríkisins. Því starfí
gegndi hann í 24 ár, eða þar til
hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir árið 1985.
Síðustu mánuðina var hann for-
stjóri ÁTVR, en því starfí hafði
hann oft gegnt í forföllum þáver-
andi forstjóra.
Ragnar sat á Alþingi nokkur
kjörtímabil fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn í Suðurlandskjördæmi, bæði
sem varamaður og sem landskjörinn
þingmaður.
Ollum þessum störfum sinnti
Ragnar af mikilli alúð og samvisku-
semi, eins og hans var von og vísa.
Ragnar kvæntist árið 1944 Krist-
ínu Einarsdóttur frá Vestri-Garðs-
auka í Hvolhreppi. Þau eignuðust
Jólamerki
Thorvald-
sensfélags-
ins 1992
JÓLAMERKI Barnauppeldis-
sjóðs Thorvaldsensfélagsins 1992
er komið í sölu. Selma Jónsdótt-
ur, auglýsingateiknari, teiknaði
merkið. Allur ágóði af sölu merk-
isins rennur til líknarmála eins
og undanfarin ár.
Merkið er
tll sölu á tHOHVStDSKSSÍÍACStNS
Thorvalds-
ensbazar,
Austurstræti
4, Reykjavík
og hjá fé-
lagskonum.
Einnig hefur
Frímerkja-
varsla Pósts
og síma sýnt
þá vinsemd
að dreifa merkjum á pósthúsin, og
þar eru þau til sölu. Verð á merkinu
er 25 kr. hvert merki og ein örk
með 12 merkjum kostar því 300 kr.
Thorvaldsenskonur vilja þakka
af alhug öllu þeim sem undanfarna
áratugi hafa keypt merkið og styrkt
starfsemi Thorvaldsensfélagsins á
margan hátt.
fjögur börn; Einar, kvæntan Gerði
Pálsdóttur, Brynhildi Önnu, gifta
Ólafi Bjarnasyni, Jón, kvæntan
Gyðu Halldórsdóttur og Þorgerði,
gifta Gísla Heimissyni. Barnabörnin
eru níu.
Ragnar var mikill fjölskyldumað-
ur og lét sér mjög annt um sitt
fólk. Ekki bara sína nánustu. Hann
fylgdist líka með frændfólkinu,
systkinabörnunum og þeirra afkom-
endum. Hann gladdist með þeim
er vel gekk, en átti líka til hlý orð
ef eitthvað bjátaði á.
í tómstundum átti Ragnar marg-
ar ánægjustundir með hestunum
sínum. Eg og fjölskylda mín minn-
umst margra góðra stunda sem við
áttum með honum á hestaferðalög-
um, við Heklurætur og á Fjalla-
baksleiðum. Á björtum sumarkvöld-
um þegar hestar voru komnir í
nátthaga var gjaman sest út í guðs-
græna náttúmna. Þá var spjallað,
sagðar sögur og jafnvel tekið lagið.
Og Ragnar kunni að segja frá.
Það var gaman að hlusta á hann
segja frá æskuárunum og sam-
ferðamönnum.
Honum þótti vænt um sveitina
sína, Rangárþing. Þar var hann á
heimaslóðum þó heimili hans væri
lengst af utan þess. Þó átti hann
þar sitt annað heimili á seinni ámm
er hann eignaðist jörðina Árbæjar-
hjáleigu í Holtahreppi ásamt Einari
syni sínum og bróðursyni sínum,
Jóni Erni Ingólfssyni. í Árbæjarhjá-
leigu áttu þau Kristín og Ragnar
sumarbústað og naut ég og fjöl-
skylda mín oft gestrisni þeirra þar.
Dugnað og dyggð
ei djúpið hylur kalda,
um breiða byggð
mun blessun lengi valda
þitt lista ljós
þó liði í dauðans rann.
Mundin óþreytt
meðbræðrum gagn réð inna,
ágætið eitt
alls staðar mátti finna
hvert verk sem vann.
(Páll Ólafsson)
Við Þórir þökkum honum sam-
fylgdina. Við munum sakna hans.
Blessuð sé minning Ragnars Jóns-
sonar.
Anna Jóna Óskarsdóttir.
Orbsnilld
kvenna
MÁLMFRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
TÓK SAMAN
Minning-
argjöf
Húsavík.
BÓKAÚTGÁFAN Vaka-Helga-
fell færði Friðrikssjóði á Húsavík
að gjöf 200.000 krónur í tilefni
útgáfu bókarinnar Undarlegt er
líf mitt - bréf Jóhanns Jónsson-
ar, skálds til sr. Friðriks A. Frið-
rikssonar, prófasts, en þeir voru
miklir vinir.
Ljóð Jóhanns vöktu strax mikla
eftirtekt en hann lést í Leipzig 1932
úr berklum aðeins 12 ára gamall.
Pétur Már Ólafsson afhenti Ing-
vari Þórarinssyni fulltrúa gjöfina á
Morgunblaðið/Silli
Ingvar Þórarinsson og Pétur Már
Ólafsson t.h.
heimili Bjargar Friðriksdóttur og
Ingvars, en þar fundust þessi merku
bréf í safni séra Friðriks.
— Fréttaritari.
Dr. Sigui'bjöm Einarsson
Bók um líf mannsins og trú, sögu
þjóöarínnar og sögu mannsandans
Kirkjuhúsið
Skálhoitsútgáfan
Kirkjuhvoli Sími 21090
/
Hér er ótrúlega fjölbreytt úrval af
fleygum oröum eftir helstu skáldkonur
okkar um náttúruna og landiö, ástina,
börnin, karlana, sorgina, gleöina...
Stattu upp kona
þaö kemur enginn prins
á hvítum hesti
oð frelsa þig
úr klóm ryksugunnar
„Eg ber virbingu fyrir hinni einkennilegu og
orblausu rökfrœbi kvenna, sem oft virbist ratvís-
ari og glöggskyggnari á sannleikann en hin rök-
vísa sundurjibun karlmanna."
Sigrún P. Blöndal
(HU'n 1926)
Hún skrifabi nokkur ástarbréf
en þau hafa öli lent í glatkistunni
einsog hún
einsog hún
einsog hún
Kristín Ómarsdóttir:
Athugasemd ritarans
og menmng
LAUCAVECI 18, SÍMI (91) 24240 & SÍOUMÚLA 7-9, SÍMI (91) 688577
(Fréttatilkynning)