Morgunblaðið - 08.12.1992, Side 49

Morgunblaðið - 08.12.1992, Side 49
49 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992 Guðborg Blöndal Akureyri - Minning Fædd 7. október 1926 Dáin 1. desember 1992 Hve það smáa og fínlega er oft mikils virði. Skiptir kannski mestu máli í lífsins amstri. Nú á jólaföst- unni rennur upp fyrir manni hversu mikilvægur kunningsskapur okkar Bíbíar Blöndal var. Aðfangadagur jóla var okkar dagur. Ég kynntist Bíbí sem nágranna og móður kærs vinnufélaga míns þegar ég flutti til Akureyrar fyrir fimm árum. Viðmót- ið var hlýlegt og það var gott að heimsækja hana. Ekki svo að skilja að við værum inni á gafli hjá hvort öðru allan ársins hring. Öðru nær. Nema á aðfangadag — eftir hádeg- ið. Þá mætti minn maður í Einilund- inn ásamt tveimur dætrum mínum og drakk kaffi með Bíbí. Og við gáfum okkur góðan tíma. í mínum huga komu jólin þarna heima hjá Bíbí. Aðfangadagur nálgast og hvað gera bændur þá? Minningin yljar og víst verður Bíbí ofarlega í huga þeg- ar jólin ganga í garð. Blessuð sé minning Guðborgar Blöndal. Kristján. Bíbí amma var yndisleg kona, allt- af svo brosmild og blíð. Hún vildi allt fyrir okkur gera og gerði það alltaf. Okkar yndislegustu minning- ar um hana eru frá þeim tíma þegar við vorum böm og fórum og gistum hjá henni nokkrar vikur á hvetju sumri. Þegar við vorum í heimsókn hjá henni máttum við aldrei hjálpa til við heimilisverkin því hún vildi að við hefðum það sem best. Við vorum í fríi og áttum að láta okkur líða vel. Það var alltaf jafn spenn- andi og gaman að heimsækja Bíbí ömmu og Bjössa afa á Akureyri. í minningunni lifir hvað það var nota- legt að koma í hlýja faðminn hennar eftir langt ferðalag á holóttum veg- um og fá að borða köku sem hún bakaði sérstaklega fyrir okkur. Hún var alltaf að dekra við okkur á einn eða annan hátt. Eitt stendur sérstak- lega uppúr og það er að hún keypti alltaf handa okkur kom, eins og hún kallaði það, sem var þá Cocoa Puffs eða Trix. Slíkan munað fengum við aldrei heima. Það var líka svo snið- ugt að hún skyldi kalla það korn. Okkur fannst eins og hún hefði búið til þetta litla spaug bara fyrir okk- ur. Það var því virkilega hátíð að vera hjá ömmu. Þar sem okkar fallega amma er farin á fund hins æðsta, þá er það örlítil huggun, þó að við vitum hvorki né skiljum af hveiju amma var tekin strax burt, þá verður okkur það ljóst seinna. í staðinn finnum við lítið ljós, ljós sem lýsir upp nýja tilhugsun um dauðann. Eftir sitjum við með það erfiða vérkefni að reyna að venjast heim- inum án hennar. Því heimurinn eins og við þekktum hann er ekki lengur til. Amma er ekki lengur í honum. Væntumþykja okkar eigrar nú um stefnulaus því sú sem átti hana er ekki lengur til staðar. En í staðinn eigum við allar góðu minningamar um hana. Ef við bara leyfum okkur að syrgja hana og líða illa vegna söknuðar, kemur að því að við getum brosað í gegnum tárin. Þá mun hún lifa í ást okkar og minningunni um allt það góða sem hún gaf okkur með nærveru sinni. Þó að sárt sé að þurfa að vera án hennar og allr- ar blíðunnar og þolinmæðinnar, þá er besta huggunin sú að hún hefur ekkert annað getað farið en á besta stað hjá þeim uppi. Þegar lokastund- in rann upp hefur hún ekki þurft að bíða í neinni biðröð heldur hefur hliðið staðið galopið sérstaklega fyr- ir hana. Ei vitkast sá, er verður aldrei hryggur, Hvert visku bam á sorgar bijóstum liggur. Á sorgarhafs botni sannleiks perlan skín, þann sjóinn máttu kafa, ef hún skal verða þín. (Steingrimur Thorsteinss.) Hrafnhildur, Dóra, Linda og Börkur Halldór. Komdu nú iijn úr kuldanum, elsk- an mín, og borðaðu með okkur salt- kjöt og heita baunasúpu. Þannig tók Bíbí á móti mér á köldum eftirmið- degi í desember fyrir réttum fjórtán árum. Ég var nýbyrjuð í Menntaskól- anum á Akureyri og svolítið ein- mana, nýskriðin undan verndarvæng foreldranna. Magga vinkona hafði boðið mér heim með sér eftir leikfé- lagsæfingu og þessa kvöldstund leið mér eins og heima, þó þetta væri í fyrsta sinn sem ég kæmi á heimili Bíbíar og Bjössa. Magga hafði oft talað við mig um foreldra sína og ég tók strax eftir því að hún bar mikla virðingu fyrir þeim og þau voru vinir hennar. Þegar ég kynntist Bíbí og Bjössa skyldi ég að það var gagnkvæmt. Þau komu fram við böm og unglinga sem jafningja og báru virðingu fyrir lífínu. Það eru forréttindi að kynnast konu eins og Bíbí og svo margs að minnast. Magga og Bíbí voru trún- aðarvinkonur og þegar við Magga vorum á leið út á lífið á skólaárunum treystum við Bíbí til að dæma um hvort við værum nógu fínar og flott- ar og ég veit að oft skemmti hún sér vel yfir uppátækjum okkar. Dag- inn eftir böll galdraði hún svo fram jarðarbeijatertu og við mösuðum um stráka og staðpeyndir lífsins. Það er svo sorglega sjaldgæft að mæður taki svona ríkan þátt í lífi unglinga og gefi sér tíma til að kynnast börn- unum sínum. Árin liðu og nú á Magga vinkona mín tvær yndislegar stúlkur og ég horfi á söguna endurtaka sig. Magga ber virðingu fyrir dætrum sínum og þær eru vinkonur hennar. Þannig gaf Bíbí Möggu veganesti sem ekki verður metið til fjár. Bíbí lést aðfaranótt 1. desember eftir erfið veikindi en eftir lifir minn- ingin um einstaka konu sem kunni betur að gefa en þiggja. Elsku Magga mín, Sigyn, Sara Hjördís, Bjössi og þið öll. Guð gefi ykkur styrk í sorginni. „Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin bjðrt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt.“ Sigríður Pétursdóttir. Þegar komið er að leiðarlokum er gott að doka aðeins við og líta yfir farinn veg. Hún Bíbí er nú far- in til sumarlandsins eilífa og við sem eftir sitjum hugsum til hennar með söknuði. Það er þó> huggun harmi gegn að eiga góðar minningar um- maeta konu. Ég man litla og fíngerða konu á háum hælum ganga upp Hrafnagils- strætið. Hún var svo fín og falleg og það geislaði alltaf af henni gleðin og gæðin. Eg man hvað hún var alltaf ljúf og indæl. Hún gat þó orðið þung í skapi ef hana grunaði að við vinkon- urnar værum að pukrast með áfengi, en þann vökva notaði Bíbí ávallt sem vaskahreinsi og sýndi honum þar með tilhlýðilega virðingu. Ég man hve gott var að hitta hana og spjalla um alla heima og geima. Hún var ótrúlega ung í hugs- un og margt sem við spjölluðum hefði ég aldrei reynt að segja nokkr- um nema henni. Ég gat alltaf verið viss um að Bíbí skildi hvað ég var að fara. Ég man þegar hún bauð okkur systrum í mat. Þegar við komum inn var lagt á borð fyrir einum færri en staddir voru í húsinu. Auðvitað héld- um við að einhver misskilningur væri á ferðinni og aðeins annarri okkar hefði verið boðið. Það kom þá í ljós að Bíbí-taldi það sjálfsagt að þjóna gestum sínum til borðs og hafði ekki lagt á borð fyrir sjálfa sig. Svona húsmæður höfðum við heyrt uin en aldrei séð áður. Ég man þegar ég reyndi fyrir ein jólin að baka loftkökur og bömin stóðu með tárin í augunum þegar út úr ofninum komu samanþjappaðir renningar sem í engu líktust kökum. Bíbí frétti af þessu og sendi um hæl stóran kassa af loftkökum og upp- skriftina með. Loftkökur hafa aldrei mistekist hjá mér síðan. Ég man þegar við sátum saman á kvöldin og ræddum framtíð okkar stelpnanna. Ég skyldi verða annað hvort prestur eða sjálfsþurftarbóndi. Þá ákváðum við að Bíbí og Bjössi skyldu koma í próventu til mín þeg- ar þar að kæmi. Þessa umræðu út- leiddum við á ýmsa vegu og urðu mikii hlátrasköll af. Ég man þegar Magga kom og sótti Sigga Bjama til að fara í fjár- sjóðsleit. Þegar þeir komu til baka sagði sá stutti: „Ég fann fjársjóð hjá Bíbí.“ Hann minnist þess nú og gerir sér betur grein fyrir því hversu mikill sá fjársjóður var. Kæru vinir, við biðjum Guð að geyma ykkur og blessa minningur mætrar konu. Sigga og Kata. L)ÓÐ ÚR AUSTRl KÍNVERSK oc iapönsk uóð heigi hálfdanarson ■rap Ljób úr austrí HELCI HÁLFDANARSON Loksins eru aftur fáanlegar þýöingar Helga Hálfdanarsonar á fornum japönskum og kínverskum Ijóöum. Þessi bók er gersemi. Mál Ityl og menning LAUGAVEGI 18, SÍMI (91) 24240 & SÍOUMÚLA 7-9, SÍMI (91) 688S77, Á LATTU EKKI HEIMIUÐ FAMI I A ^ A Á 12-15% AFSLÁTTUR 23.-28. nóv. 30^5- nov 12. des. 14Á9. des. parkjtvika TCPFAVIKA DÚKÁVÚÍÁ mottuviÁa_ TEPPABUÐIN GÓLFEFNAMARKAÐUR»SUÐURLANDSBRAUT 26*SÍMI:681950 Ml'XH) Jólaluhku Tepþabúdarinnar. Fimm 25.000 kr. ■vörnúttektir.Dregid í beinni ú/seiu/ingii á hverjuni l(tiiiiar(legi á Hylfjju n n i. 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.