Morgunblaðið - 08.12.1992, Qupperneq 51
SGGI ÍI38M333G .8 flUOAG’JLGIS'í GIGAJSMUOflOM
’ l,-.--MOBpUNBLAÐÍÐ~ ÞRIÐJUDAQIIR If. WSKMBER~ 1992
vb
51
Minning
Gróa, Jónsdóttir
Fædd 8. september 1907
Dáin 30. nóvember 1992
Hún amma tilheyrði peysufata-
kynslóðinni. Fyrir þrjátíu og fimm
árum eða svo, heyrðist öðru hvoru
lítil rödd full af gleði og fögnuði,
kalla „þama kemur amma mín í
langa kjólnum sínum svarta". Það
var sannarlega fagnaðarefni, þeg-
ar amma bjó sig uppá í peysufötin
og kom til Hafnarfjarðar til að
heimsækja okkur.
Þegar við svo fluttum okkur til
hennar að Hvoli, komumst við að
því að amma og peysufötin vom
ekki óaðskiljanleg, þá kynntumst við
„hversdags“ ömmu sem þrátt fyrir
miklar annir hafði alltaf tíma til að
hlusta á okkur. Hún var aldrei að
verða of sein á erobik-æfíngu eða
Fædd 1. júlí 1925
Dáin 17. nóvember 1992
Fáum orðum langar mig að minn-
ast vinkonu minnar Ellu, Elínar
Bryndísar Bjamadóttur, sem lést
17. nóv. sl. eftir hugdjarfa baráttu
við þann gest, sem óboðinn settist
að hjá henni — og hafði betur í
lokin. Ungar hittumst við fyrst á
Laugavegi 28. Þar sem við lögðum
homsteininn að 60 ára tryggðar-
böndum sem sterkust reyndust í
öllum okkar samskiptum. Hún stóð
á tröppunum heima hjá sínum góðu
foreldrum, horfði á mig og sagði:
Þú ert bara alltaf úti að göslast.
Nú, sagði ég. Bíddu aðeins, sagði
hún, ég ætla að koma niður snöggv-
ast. Og þama stóð hún, falleg og
fín,'í nýjum skóm, horfði á mig og
sjjurði: Finnst þér þeir ekki fallegir?
Eg hafði aldrei séð betri skó. Síðan
þá, átti vinkona mín ávallt nýja
skó. Hún bauðst til að sauma föt á
dúkkurnar mínar — ef ég ætti ein-
hveijar. Ekki var ég viss, en sagð-
ist ætla að gá í kommóðunni henn-
ar mömmu. Þar fann ég nakið töt-
ur, sem innan fárra daga varð að
annað það sem nútíma ömmur fást
við. Það er okkar lán að hafa átt
slíka ömmu. Það var hægt að tala
við ömmu um hvað sem var, hún
kunni listina að hlusta. Hún hafði
ekki þörf fyrir að dæma eða þröngva
sínum skoðunum upp á mann.
Einhvern tíma þegar henni þótti
æskan dæma full hart, sagði hún
bara „það verður hver að fljúga
eins og hann er fíðraður". Svona
viðbrögð festast í minni og kenna
umburðarlyndi gagnvart þeim sem
eru öðruvísi en fjöldinn.
Það var alveg sama hve gamall
viðmælandinn var, amma talaði við
alla á jafnréttisgrunni. Börn höfðu
í hennar augum alveg jafn mikið
til málanna að leggja og fullorðn-
ir. Krökkum þótti gaman að heim-
sækja ömmu og gátu setið lengið
dragfínu djásni. Þannig var það
æ, síðan; allt sem hún fór höndum
um, varð að hreinastu snilldarverk-
um. Á lífsgöngunni snerum við
ætíð bökum saman, deildum með
okkur gleði og sorg, vonbrigðum
og sigrum. Vinkona mín fór í gegn-
um líf sitt með fágætri reisn til
hinsta andvarps. Eg er þakklát
forsjóninni fyrir að leiða okkur
saman, litlar stúlkur á Laugavegin-
um. Nú, þegar svanamóðir er fall-
in, hefur lagt höfuð sitt undir
væng, hvílt á freranum um stund
og er öll, vil ég biðja Hann, er
stjörnur skóp að gefa vinkonu
minni byr undir nýja vængi, til
flugs inní óravíddir almættis.
Dætrum hennar Anítu og Helen,
tengdasonum og börnum þeirra
votta ég mína dýpstu samúð.
Starir þú stjama,
stillilega,
björt af himni brosir.
Gott áttu geimur
að geta faðmað
þetta ljúfa ljós.
(Jóhann G. Sigurðsson)
Herdís Gröndal.
og spjallað um áhugamál sín.
Amma var vel heima f öllu.
Eitt af því skemmtilegasta sem
við gerðum, var að rökræða við
ömmu. Hún hafði skoðun á öllum
málum og rökstuddi álit sitt, en
hlustaði á það sem aðrir höfðu
fram að færa og velti því fyrir sér.
Það var með ólíkindum hveiju
amma kom í verk, hún var skipu-
lögð og dugleg. Á hveiju sumri
lifnaði gróðurhúsið hennar við með
óteljandi plöntum og ekki síst bið-
um við með eftirvæntingu þess að
smakka vínberin sem hún ræktaði.
Hún ræktaði líka sumarblóm sem
hún gaf svo allri fjölskyldunni. Hún
varð að hafa líf í kringum sig,
dýrin í sveitinni og gróðurinn alls
staðar. Garðurinn hennar var
augnayndi og húsið hennar alltaf
opið gestum og gangandi og voru
það ófáir sem heimsóttu ömmu
Gróu heim. Hún hafði gaman af
að fá gesti og var líka dugleg að
heimsækja ættingja og vini alveg
fram á síðasta dag.
Amma var rík, ekki af veraldleg-
um gæðum, en henni fannst hún
alltaf eiga nóg og ekki datt henni
í hug að öfundast út í þá sem
bárust meira á.
Amma var ósammála þeirri hug-
mynd sem nú er uppi að stefna
skuli að því að allir verði eins, og
að þeir sem eru öðruvísi séu lokað-
ir af frá samfélaginu. Hún vildi sjá „
allt litróf mannlífsins saman, í
hennar huga var máltækið „haltur
leiðir blindan“ ekki lýsing á ein-
hverju sem illa gengur, heldur leið
til betra lífs.
Við erum forsjóninni' þakklát
fyrir að hafa úthlutað okkur henni
ömmu Gróu.
Kíddi, Gotti, Gróa,
Rúnar og Össi.
Sumum ætla menn ódauðleika.
Svo var farið með hana ömmu
okkar. Við höfðum líklega ætlast
til af örlögunum að hún yrði með
okkur um aldur og ævi.
En ekkert varir að eilífu. Nema
minningin um konu sem bar af
öðru fólki. Hún var rós meðal
blóma. Að gleðja aðra var hennar
sanna gleði.
Þegar við bræður bjuggum er-
lendis var ætíð tilhlökkunarefni
mikið að hitta ömmu í Hveragerði
þegar við komum heim á sumrin,
því alltaf var hún jafnmikill höfð-
ingi heim að sækja.
Amma hafði gaman af félags-
skap og undi sér ætíð vel í návist
fólks. Hún hafði mjög fastmótaðar
lífsskoðanir en virti skoðanir ann-
arra. Henni fórst vel úr hendi að
hlýða á annað fólk og hændi hún
af þeim sökum að sér unga sem
aldna.
Hún hafði ætíð eitthvað fyrir
stafni og lifði í mikilli sátt við guð
og menn.
Hún gaf okkur svo mikið af
sjálfri sér og kenndi okkur svo
margt. Fyrir það eigum við henni
mikið að þakka.
Með trega kveðjum við hana og
þrátt fyrir að hún sé horfin af sjón-
arsviði þessa heims lifír minning
hennar í hjörtum okkar um
ókomna tíð.
Við felum Guði ömmu okkar og
þökkum henni fyrir þann tíma sem
við áttum við með henni.
Sigfús og Gottskálk
Gizurarsynir.
'O
Kynjasögur
BOÐVAR CUÐMUNDSSON
Cáskafullar sögur um samskipti kynjanna þar sem
brugöiö er á leik og gamalkunnum fyrirbrígöum gefiö
nýtt og óvoent inntak. Fyndin frásögn þar sem allt
getur gerst!
Mál IMI og menning
LAUGAVEGI 18, SIMI (91) 24240 & SIÐUMULA 7-9, SÍMI (91) 688577
Kveðjuorð
Elín B. Bjamadóttir
ótngjöf
Eins árs ábyrgð gegn verksmiðjugöllum
Viðgerðar- og varahlutabiónusta._____--
SS.-ttíS.’íS'