Morgunblaðið - 08.12.1992, Síða 52

Morgunblaðið - 08.12.1992, Síða 52
52 MORGUNBLABIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8, DESEMBER 1992 + Danska listakonan TOVE ÓLAFSSON, lést í Kaupmannahöfn 5. desember. Erna Flygenring, Pétur Þór Gunnarsson. t Hjartkær eiginmaður, faðir og tengdafaðir, ÁRNI ÖRNÓLFSSON, Hlíðarvegi 33, Kópavogi, lést að kvöldi 4. desember á hjartadeild Borgarspítalans. Guðrún Jörundardóttir, Helga Sigurbjörg Árnadóttir, Helgi Freyr Kristinsson. + Móðir okkar, GUÐNÝ GUÐN ADÓTTIR, Gunnlaugsgötu 5, Borgarnesi, lést í sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 6. desember. Ásdfs Arnibjarnardóttir, Haukur Arinbjarnarson. + Hjartkær dóttir okkar, systir, mágkona og frænka, KATRÍN ÞÓRISDÓTTIR, lést í Borgarspítalanum aðfaranótt sunnudags 6. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Þórhildur Helgadóttir, Þórir Hilmarsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HLfF SVAVA HJÁLMTÝSDÓTTIR, frabakka 10, lést í Borgarspítalanum að kvöldi laugardagsins 5. desember. Jón Karl Sigurðsson, Kristfn Ingibjörg Sigurðardóttir, Guðbjörn Guðmundsson, Jakobína Sigurrós Sigurðardóttir, Guðmundur Ásgeirsson, Páll Sigurðsson, Sigrún Pálsdóttir, Hjálmdfs Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐNÝ ÁRNADÓTTIR, lést í Borgarspítalanum 5. desember. Þorsteinn Davíðsson, Björg Þorsteinsdóttir, Davíð Þorsteinsson, Janice Balfour, Halldóra Þorsteinsdóttir, Guðmundur E. Sigvaldason, barnabörn og langömmubarn. + Faðir okkar, JAKOB GUNNLAUGSSON, Móabarði 6, Hafnarfirði, andaðist á St. Jósefsspítala Hafnarfirði, 6. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Jakobsdóttir, Þóra Jakobsdóttir, Sigrún Jakobsdóttir, Þórdfs Jakobsdóttir, Gunnlaug Jakobsdóttir. + Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, THEODÓRA ÞORSTEINSDÓTTIR frá ytri Þorsteinsstöðum, Haukadal, Hávegi 13, Kópavogi, lést í Borgarspítalanum 27. nóvember sl. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðfinnur Ingi Hannesson, Halldóra Guðjónsdóttir, Theodór Guðfinnsson, Ragnheiður Snorradóttir, Hildur Guðfinnsdóttir, Magnús Flygenring og barnabarnabörn. Kristínn Stein- grímsson Kristinn Steingrímsson, sem hér er kvaddur, lést á heimili sínu í Reykjavík 28. nóvember sl. eftir margra ára stranga baráttu við ill- ' vígan sjúkdóm. Þótt dánarfregnin kæmi ekki á óvart snart hún djúpt. Það er sárt að sjá á bak kærum mági og góðum vini eftir áratuga kynni og vináttu. Nú að samferðar- lokum langar mig að minnast hans nokkrum orðum og þakka honum vináttu og samfylgdina. Lífsstarf Kristins Steingrímsson- ar var bundið landinu, fóstuijörðinni sem honum var svo kær. Hann var bóndi í rúman aldarfjórðung, bjó myndarbúi vestur í Tjaldanesi í Saurbæ í Dalasýslu. Búnaðist hon- um vel, enda bráðduglegur og verk- laginn, framkvæmdasamur og framfarasinnaður. Kristinn hafði í uppvextinum sitt hvað numið og lært í búfræðum af föður sínum, Steingrími Samúelssyni, sem var kunnur bóndi í sinni tíð vestur í Dölum. Þá hafði hann gengið í skóla á Hvanneyri og brautskráðst þaðan búfræðingur. Eftir að hann brá búi í lok áttunda áratugarins og flutti suður til Reykjavíkur gegndi hann lengst af störfum sem tengdust landbúnaði. Kristinn Steingrímsson var lið- lega meðalmaður á hæð, grannvax- inn og karlmannlegur, léttur og kvikur í hreyfíngum og bar sig vel. Hann var ljós yfírlitum og vel eygð- ur, svipurinn bjartur og hreinn. Yfír- bragðið var drengjalegt og glaðlegt. Þeir sem þekktu hann vissu, að hann var alvörumaður. Hann lét sig trúmál skipta og hafði þar mjög ákveðnar skoðanir. Áhugi hans á þjóðmálum var mikill og lifandi og fór hann ekki dult með skoðanir sínar. í umræðum um þau færði hann ávallt góð rök fyrir sínu máli, en hlustaði jafnframt á rök annarra. Hann var mildur og sanngjam í dómum um menn og málefni. Hann var minnisstæður maður. Kristinn var góðgr ijöiskyldufaðir og sérstakur uppalandi. Get ég þar um borið af eigin raun. Synir okkar hjóna nutu þess í mörg sumur að vera undir hans handleiðslu og stjóm við holl störf í Tjaldanesi. ' Var það einstakur skóli og þáttur í þeirra uppeldi, sem þeir hafa búið að æ síðan. Fyrir þetta og allt ann- að ber að þakka og verður samt aldrei fullþakkað. Fyrir rúmum sex ámm var það staðfest eftir langvinnar rannsóknir, að Kristinn var með alvarlegan sjúk- dóm, sem ágerðist brátt svo starfs- þrekið brast. Barðist hann til hinstu stundar við sjúkdóminn og hélt reisn sinni til endalokanna. Hann stóð reyndár ekki einn í baráttu sinni. Eiginkona hans, Una Jóhannsdóttir, stóð sem klettur við hlið hans alla tíð og annaðist hann þar til yfír lauk. Það er mörg hetjudáðin drýgð í hversdagslífinu innan íjögurra veggja heimilis og án nokkurrar vitneskju annarra en nákominna. Ég kveð kæran mág og bið góðan Guð að styðja og styrkja Unu og bömin í sorg þeirra. Ólafur Stefán Sigurðsson. - Minning Ég ætla að fara hér nokkrum orðum um æskuvin minn og sveit- unga Kristinn Steingrímsson. Hann lést 28. nóvember síðastliðinn. Það er margs að minnast eftir áratuga samfylgd. Ég ætla að drepa á nokk- ur atriði úr æviskeiði hans einkum það sem samfélagið gæti tekið til íhugunar. Hann varðaði veginn sem liggur til betri afkomu í sveitum landsins. Hann var til fyrirmyndar á mörg- um sviðum í búskap sínum. Kristinn Steingrímsson fæddist í Miklagarði í Saurbæ, Dalasýslu 4. ágúst 1923, ólst þar upp í stórum systkinahópi. Árið 1936 kaupir faðir Kristins Heinaberg á Skarðströnd. Þar dvaldi Kristinn sín unglingsár. Á þessum árum var lífsbaráttan hörð, allir urðu að vinna um leið og þeir gátu vettlingi valdið. Mörg hetju- sagan er óskráð af bammörgum flölskyldum sem háðu lífsbaráttuna á fyrri helmingi þessarar aldar, nánast upp á líf og dauða. Kristinn Steingrímsson var fæddur inní þessa baráttu og varð snemma vopnfær í þeirri baráttu. Ungur vandist hann við mikla vinnu og snemma falin ábyrgð á ýmsum þátt- um í búskap foreldra sinna sem komust vel af á rýrum ábýlum með dugnaði sínum og forsjálni. Kristinn Steingrímsson hóf nám við Bændaskólann á Hvanneyri og útskrifaðist þaðan með ágætisein- kunn enda stálgreindur og mikill námsmaður. Það mátti segja að í hann væri hrúgað hæfíleikum. Hann hefði getað orðið meira en meðalmaður á mörgum sviðum. Eftir að systkinahópurinn dreifðist úr foreldrahúsum stundaði Kristinn ýmis störf, enda hvarvetna eftir- sóttur í vinnu sakir dugnaðar síns og lagvirkni. Hann dvaldi um tveggja ára skeið á Norðurlöndum í ævintýraleit, vann þar meðal ann- ars við mjög vandasöm verk í bíla- verksmiðju. Þar kom að Kristinn valdi sér að ævistarfi búskap. Kona hans var Hildur Eggertsdóttir frá Tjaldanesi í Saurbæ. í Tjaldanesi hófu þau búskap 1953. Þar fékk Kristinn útrás fyrir dugnað sinn og athafnaþrá, því þar var um algjört landnám að ræða. Þar reisti Kristinn frá grunni hús yfir fólk og fénað. Ræktaði og keypti vélar til nútímabúskapar á mjög skömmum tíma. Kristinn fékk góðan arf úr föðurgarði gulli betri, sem var skyldurækni, iðjusemi, reglusemi og snyrtimennska. Við þessi atriði var hann alinn upp, og varð honum eiginlegt eins og sjálf- sagður hlutur. Enginn hlutur á hans búi fór í niðurdröbbun eða hirðu- leysi, honum entust vélar og tæki betur en flestum öðrum. Fjárbú hans var eitthvert það arðsamasta í Dalasýslu og þó víða væri leitað. Þó er Tjaldanes ekkert betra að landgæðum til en aðrar jarðir á þessu svæði. Þama spilaði inní snjöll umhirða og rétt fóðuröflun. Kristinn var ein- dreginn talsmaður þess að hver bóndi aflaði fóðurs fyrir búfénað sinn af eigin landi og brúkaði fóður- bæti framleiddan í landinu sjálfu ef hans þyrfti með. Hann fordæmdi fóður-innflutning úr öðrum heims- álfum handa íslensku búfé. Betur væri komið hjá íslenskum landbún- aði í dag ef þeirri stefnu hefði ver- ið fylgt. Margir leituðu ráða hjá Kristni og litu upp til hans, sem vel mátti. Hann var sómi sinnar stéttar. Hans var ákaft saknað þeg- ar hann hvarf frá búskap. Hræddur er ég um að illa hefði Kristni fallið að verða dæmdur til hokurbúskapar eins og nú er farið að plana. Kristinn hætti búskap 1979 það var mikið áfall fyrir bændastéttina, því eins og áður er sagt sýndi hann í verki að hægt var að reka arðsamt sauðfjárbú með innlendum aðföng- um. Kristinn flutti til Reykjavíkur, stundaði þar ýmis störf hjá SIS. Honum féll aldrei verk úr hendi, meðan heilsan leyfði. Kona hans Hildur Eggertsdóttir lést 1988. Þau áttu 4 börn. Seinni kona Kristins er Una Jóhannsdóttir frá Búðardal. Undanfarin ár hefur Kristinn barist við mjög erfíðan sjúkdóm uns yfír lauk 28. nóvember síðastliðinn. í þeirri baráttu sýndi hann aðdáunar- verðan kjark og æðruleysi, reyndi fram á síðustu mínútu að leyna aðstandendum _ slæmri líðan sinni. Þeim til léttis. Ég votta samúð mína við_ fráfall hans. I fomum sögum er oft sagt að þessi eða hinn hafí verið drengur góður. Það orð hafði sterka merk- ingu. Og varla hægt að ná meira virðingarheiti. Ég lýk þessum orðum minum og segi Kristinn Steingrímsson var drengur góður. Blessuð sé minning hans. Steinólfur Lárusson. Nú þegar Kristinn Steingrímsson móðurbróðir minn er látinn, langar mig til að minnast hans með nokkr- um orðum. Það fyrsta sem ég man eftir þess- um stórfrænda mínum var þegar ég dvaldi að sumarlagi hjá ömmu og afa á Heinabergi á Skarðs- strönd, þá þriggja ára gömul. Hann var nýkominn frá Svíþjóð þar sem hann hafði dvalið eitt ár við land- búnaðarstörf. Hann leyfði mér að sitja á dráttarvélinni hjá sér um heyskapartímann og skemmti sér konunglega við að láta mig syngja fyrir sig. Ég var með afbrigðum smámælt á þeim tíma og textafram- burðurinn í meira lagi skoplegur. Þótt hann hlæi mikið að mér gafst ég aldrei upp á því að syngja fyrir hann. Hvellur hlátur hans lifir mér í barnsminni þar sem hann rann saman við kvak silfurmáfsins í berginu fyrir ofan bæinn. Nokkrum árum seinna fluttu amma og afi að Tjaldanesi í Saurbæ þar sem Kiddi frændi hafði þá búið um skeið ásamt konu sinni, Hildi Eggertsdóttur, sem þar var fædd og uppalin. Afi og amma bjuggu í litlu húsi í túninu skammt þar frá. Ég dvaldi hjá þeim sumar eftir sum- ar svo hér rifjuðum við Kiddi upp fyrri kynni. Það má segja áð Kiddi frændi hafi komið að húsalausri jörð í Tjaldanesi. Hann byijaði á því að byggja íbúðarhúsið. Síðan rak hver byggingin aðra og alltaf þegar ég í sveitina á vorin var Kiddi annað hvort að byggja eða búinn að byggja eitthvað nýtt. Hann byggði fjárhús, heyhlöðu, súrheysturn, fjós og mjólkurhús, allt eftir nýjustu tísku og samtengt til að auðvelda bóndanum sem best hans störf. Á hveiju vori sléttaði hann og ræktaði upp ný tún svo hekturum skipti. Þá kepptust bændur við að stækka búin sín og engin takmörk voru komin á bústærð eða sá kvóti sem bændur verða nú að lifa eftir. Á þessum árum má segja að Kiddi hafi lagt nótt við dag við uppbygg- ingu jarðarinnar og búsins. En hann var félagslyndur maður og skorað- ist aldrei undan að gegna ábyrgðar- störfum fyrir sveitunga sína þegar hann var til þess kosinn. Þau Hildur áttu 4 börn og ólu að auki upp systurdóttur Hildar. Alltaf var hjá þeim á sumrin mikið af unglingum, bæði systkinabörn hans og vandalausir. Hann stjóm-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.