Morgunblaðið - 08.12.1992, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992
55
ARNARFJÖRÐUR
Hættir póstflutningum
eftir 20 ára starf
E-Talldór Jónsson sjópóstur á Bíldu-
•®--“-dal hefur hætt póstflutningum
um Amarfjörð eftir 20 ára starf.
Sonur Halldórs, Jón Halldórsson
rækjusjómaður, hefur tekið við starf-
inu af föður sínum og siglir nú með
póst og nauðsynjavörur til bænda og
starfsmanna Mjólkárvirkjunar í
framtíðinni.
Halldór eða Dóri á Hóli eins og
hann er kallaður, er fæddur á Litlu-
Eyri 13. september 1920. Rúmlega
tvítugur hóf hann kúabúskap fram
á Hóli skammt frá Bíldudal. Það var
árið 1974 að Dóri keypti trillu frá
Súgandafirði og hóf póstferðir um
Amarfjörð á báti sínum en áður hafði
hann verið í tvö ár á minni bát sem
illa dugði í póstferðimar. Farið var
tvær ferðir í viku frá Bíldudal um
Arnarfjörð og voru viðkomustaðirnir:
Laugaból, Ós, Mjólká, Hjallkárseyri,
Hrafnseyri og Auðkúla. Yfir sumar-
tímann keyrði Dóri með póstinn á
viðkomustaðina. Dóri tók við póst-
ferðunum af Þórði Ólafssyni heitnum
sem hafði þá starfað í 20 ár við póst-
ferðimar en var með mun styttri leið
en farin er í dag.
„Jú, ég neita því ekki að það fer
um mann tómleikatilfínning að vera
hættur. Þó svo ég sé hálfpartinn feg-
inn í aðra röndina að vera hættur
eins og veðrið er í dag,“ segir Hall-
dór og hlær. „Ég hef nú trú á því
að maður eigi eftir að sakna starfs-
ins því tengslin við fólkið þama rofna
með tímanum. En ég hætti líka vegna
þess að kransæðin þolir þetta ekki á
vetuma svo í lagi sé. Manni líður
betur með því að gera ekki neitt en
ef bílfært væri árið um kring hefði
ég haldið þessu áfram, blessaður
vertu.“
Póstleiðin sem Dóri fór er sú næst-
lengsta á Vestfjörðum. Sú lengsta
er í ísafjarðardjúpi. Póstbáturinn
hans Dóra heitir Hrafn og er nefnd-
ur eftir Hrafni Sveinbjamarsyni sem
hélt úti fyrstu feijunni í firðinum
eins og segir í Sturlungu. Hrafn er
nú mældur 3,5 tonn og var smíðaður
1961 í Reykjavík.
En hvað hyggst Dóri gera þegar
hann er hættur póstflutningunum,
skyldi hann setjast við skriftir?
„O, nei, maður er nú óttalegur
apaköttur þannig og ég hef lítið vit
á því. En með vorinu dytta ég að
bátnum, klíni á hann og svoleiðis.
Ég set hann kannski á flot næsta
sumar til að komast út á fjörð í góðu
veðri og hver veit nema ég heilsi upp
á fólkið í fírðinum. Nú, ég vil nota
tækifærið og þakka öllu því fólki sem
ég hef kynnst frá því ég byijaði og
sérstaklega öllum sem hafa verið á
Mjólká. Þeir hafa alltaf verið boðnir
og búnir að liðsinna mér.“
En er eitthvað sem stendur upp
úr eftir þessi 20 ár?
„O, nei, það held ég ekki. Þetta
hefur verið þokkalegt. Það kom
stundum kaldi og maður fékk eina
og eina skvettu, annað var það nú
ekki,“ sagði Halldór Jónsson að lok-
um.
R. Schmidt.
í 20 ár hefur Halldór siglt með póst en nú hefur hann hætt og son-
ur hans tekinn við.
VEUIÐ ÞAÐ BESTA
VEUIf )lfö
m HREINLÆTISTÆKI
- SÆNSK GÆÐAVARA
j* } ♦ jflr*®*1 ^ 'g J |:.4 ; ' **• • Hr' K íi|l l i I - ; J .• ■ ! .
FÁST í BYGGINGAVÖRU-
VERSLUNUM UM LAND ALLT.
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Halldór Jónsson sjópóstur rær að landi að Ósi í Arnarfirði með póst
og nauðsynjavörur.
ARIETTA
Hönnun: Tobio Scoipo
MISS SISSI
Jiðnnun Ptiilippe Sfrock
GIBIGIANA
Hðnnun Acfiille Castiglioni
PIERROT
Hðnnun: Afro e lobio Scorpo
* Wjjmít
JILL
Hönnun: Kuig, Miranda, Arnoidi
PAO COROLLE
Hðnnun: M. Thun Hönnun: E. Oidone
WALL
Hðnnun: King, Mironda, Amoldi
PRISBI
Hönnun: Ashille Casligliom
Verslun okkar
ALESSI
í Kringlunni
opin um helgina
sími 620640.
J
Tilboðið okkar hitti í
mark.
Evrópubandalagsverð, engin
hækkun til jóla
Við myndum til og með 19. des.
og afgreiðum allar myndatökur
og stækkanir fyrir jól.
Myndatökur af einu bami eða
fleiri bömum saman, frá kr.
11.000,00, innifalið 6 myndir
13x18 cm, tvær stækkanir
20 x 25 cm og ein stækkun
30 x 40 cm í ramma.
Ljósmyndastofumar:
3 ódýrastir:
Ljósmyndastofan Mynd sími:
65 42 07
Bama og fjölskyldu
Ljósmyndir sími,: 677 644
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími: 4-30-20
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut,
Kopavogi, sími
671800
Chevrolet Crew Cap Stepside „Z-71**
4x4 '92, hvítur, 8 cyl. (350), sjálfsk., ek.
26 þ. Mikið af aukahl. V. 2.5 millj. (sk. á ód).
Toyota Corolla Touring GLi ’91, blár, 5
g., ek. 31 þ., dráttarkúla o.fl. Toppeintak.
V. 1320 þús.
Subaru 1800 GL station 4x4 '89, hvítur,
5 g., ek. 73 þ., rafm. í rúðum o.fl. Gott
ástand. V. 890 þús. stgr.
Mazda 323 LX '89, 5 g., ek. 52 þ. V. 490
þús. stgr.
Fjöldi góðra bifreiða á
kjörum viö allra hæfi
MMC L-200 4x4 Double Cap diesel '91,
5 g., ek. 32 þ., 32" dekk o.fl. V. 1310
þús. stgr.
Nissan Pick Up diesel '87, VSK-bíll, 5 g.,
ek. 90 þ. Gott eintak. V. 495 þús. stgr.
Honda Legend V-6 '88, sjálfsk., m/öllu,
ek. 56 þ. V. 1350 þús. stgr.
V.W. Golf CL '87. 3ja dyra, ek. 100 þ.
V. 460 þús.
Toyota Hllux Extra Cap '91, miþúsi, rauð-
ur, 5 g., ek. 33 þ., upphæRkaður, 33“
dekk o.fl. V. 1650 þús., sk. á ód.
Isuzu Trooper LS '88, 5 g., ek. 109 þ., 7
manna, rafm. í öllu of.l. V. 1150 þús.,
skipti.
Nissan Prairie 4x4 '88, 5 g., ek. 59 þ.,
2 dekkjag. o.fl. Gott eintak. V. 850 þús.
Nissan Patrol 6 cyl. '87, hvítur, 5 g., ek.
56 þ., 33“ dekk o.fl. V. 1080 þús. stgr.
Suzuki Fox 410 '87, blár, ek. 37 þ.
V. aöeins 390 þús. stgr.
VAIMTAR GÓÐA BÍLA Á STAÐINN