Morgunblaðið - 08.12.1992, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992
57
SAMmíém SMmióm sammM
BMMi
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 78 90o|
SAsmm
CH^-0 i-
SNORRABRAUT37, SfM111384-252
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 78 900
GRÍNISTINN
„THiS IS MY LIFE“ er frábærlega skemmtileg grínmynd með þeim
Julie Kavner, Carrie Fisher og Oan Aykroyd í aðalhlutverkum.
„THISIS MY LiFE“ gerð af Nohra Ephron (When Harry met Sally).
Aöalhlutverk: Julie Kavner, Dan Aykroyd, Carrie Fisher og Samantha
Mathis. Framleiðandi: Linda Obst (The Fisher King). Leikstjóri: Nohra
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 350 Á ALLAR MYNDIR NEMA GRÍNISTANN
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 350 Á ALLAR MYNDIR NEMA FRÍÐU
OG DÝRIÐ OG VEGGFÓÐUR
Aðalhlutverk: Alec Baldwin, Meg Ryan, Kathy Bates og Ned Beatty.
Leikstjóri: Norman René.
Sýnd kl. 5,7,9og 11.
SYSTRAGERVI
Sýnd kl. 5,7 og 9.
VEGGFÓÐUR
Sýnd kl. 11.
FRIÐHELGIN ROFIN
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Ephron.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
FRIÐA OG DÝRIÐ
★ ★★★ AI.MBL. Miðaverð kr. 400. Sýndkl. 5.
............■■■■■■miiri
V estmannaeyjar
★ ★★SV.MBL. ★★★S.V.MBL,
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Sýnd kl. 5,7,9og11.
Bönnuð innan 16 ára.
Fulltrúaráð Sjálfstæð-
BLADERUNNER
Sýnd kl. 9 og 11.
LYGAKVENDIÐ
Sýnd kl. 5 og 7.
MIÐAVERÐ KR.350
isfélaganna harm-
ar skattahækkanir
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVER.Ð KR. 350 Á BORG GLEÐINNAR
cuy of ioy
Aðalhiutverk: Patrick Swayze, Pauline Collins, Om Purí og Art Malik.
Framleiðandi: Jake Eberts og Roland Joffé. Leikstjóri: Roland Joffé.
Sýnd kl. 4.45,6.55 og 9.10 ÍTHX.
★ ★★AI.MBL. Miðav.kr.400. ÍTHX.
■ ■■■iiniT
Morgunblaðið/Rax
Hilmar Jensson, Chris Speed, Jim Black og Skúli Sverris-
son leika á Tveimur vinum í kvöld og annað kvöld.
Morgunblaðið/Emilta
Eigendur og starfsmenn Ostahússins.
Sérverslun með osta
OPNUÐ hefur verið í
Fjarðargötu 11 í Hafnar-
firði sérverslun með osta,
sem nefnist Ostahúsið.
Aðaleigendur eru Þórar-
inn Þórhallsson, Þórey Sig-
urðardóttir og María R.
Ólafsdóttir.
í þessari ostasérverslun
eru boðnir til sölu alls konar
ostar, tertur, kex, sultur,
kerti, servéttur, konfekt og
ýmis konar. gafavara. Einnig
er unnt að fá veisluþjónustu,
þ.e. ostapinna og bakka eftir
pöntun. Afgreiðslutími í des-
ember er frá klukkan 10 til
19 mánudaga til laugardaga
og frá 10 til 16 sunnudaga.
Vestmannaeyjum.
Á fjölmennum fundi Sjálfstæðisfélaganna í Vest-
mannaeyjum var samþykkt áskorun á þingflokk Sjálf-
stæðisflokksins að beita sér fyrir að fallið verði frá upp-
töku virðisaukaskatts á húshitun, gistingu og fargjöld
innanlands. Einnig var samþykkt áskorun um nauðsyn-
legar breytingar á tillögum um bætur til sveitarfélaga
vegna niðurfellingar aðstöðugjalda og skattahækkanir
eru harmaðar.
Þorsteinn Pálsson sjávar-
útvegsráðherra og Ámi John-
sen alþingismaður fluttu
framsöguræður á fundinum.
Að loknum framsögum voru
almennar umræður. Mest
umræða varð um upptöku
virðisaukaskatts á húshitun,
gistingu og fargjöld, sem
fundarmenn töldu falla þungt
á landsbyggðarfólk. Þá var
mikið rætt um niðurfellingu
aðstöðugjalds og skattahækk-
anir.
I ályktun er skorað á þing-
flokk Sjálfstæðisflokksins að
beita sér fyrir að ríkisstjómin
falli frá öllum áformum um
upptöku virðisaukaskatts á
húshitun, gistingu og fargjöld
innanlands og til að mæta
tekjuskerðingu ríkisins verði
ríkisútgjöld lækkuð sem því
nemur. „Það er með öllu óþol-
andi að mismuna landsmönn-
um með þessari skattlagningu
þar sem hún mun leggjast
mun þyngra á fólk utan höfuð-
borgarsvæðisins," segir í
álylrtuninni.
I ályktuninni er skorað á
stjórnvöld að gera nauðsyn-
legar breytingar á tillögum
um bætur til sveitarfélaga
vegna niðurfellingar aðstöðu-
gjalda, þannig að áformaðar
bætur taki mið af álagningar-
reglum og innheimtuhlutfalli
viðkomandi sveitarfélaga síð-
astliðin þrjú ár, en verði ekki
útdeilt án tillits til reynslu af
innheimtu sveitarfélaganna.
í lok ályktunarinnar segir:
„Fundurinn gerir sér fyllilega
grein fyrir að ekki varð undan
því vikist að ríkissljómin gripi
til efnahagsaðgerða, en harma
verður að þurft hafí að grípa
til þeirra beinu skattahækk-
ana sem boðaðar hafa verið
en þær ganga þvert á stefnu
Sjálfstæðisflokksins."
Grímur
Frjáls og óháður
djass á Tveimur vinum
DJASSTÓNLEIKAR verða í kvöld og annað kvöld með
hljómsveit sem Hilmar Jensson gptarleikari hefur kallað
saman, en auk Hilmars leika Skúli Sverrisson á bassa,
Chris Speed á saxafón og Jim Black á trommur. Tíu frums-
amin lög verða flutt á tónleikunum á veitingastaðnum
Tveimur vinum.
Sama hljómsveit lék við
góðar undirtekir í marsmánuði
síðastliðnum en hún hefur æft
upp nýja efnisskrá fyrir tón-
leikana í kvöld og annað kvöld.
Hilmar sagði að þeir félagar
hefðu tekið upp efni á plötu
þegar þeir léku saman siðast
hér á landi, en útgefandi hefði
ekki fundist að því enn. Hann
“sagði að ekki væri um hefð-
bundna djasstónlist að ræða,
tónlistin væri fijáls og óháð.
Áhrifa gætti einkum frá
bandarískum fijálsdjassi og
evrópskum djassi
Þeir félagar kynntust er
þeir voru við nám í Bandaríkj-
unum en léku saman í fyrsta
sinn á þessu ári í Púlsinum.
Speed og Black búa í New
York og leika með hljómsveit-
inni Human Feel. Þeir þykja
standa mjög framarlega á sínu
sviði. Black hefur m.a. leikið
með Delfeyo Marsalis og John
Scofield, og Speed með Dave
Holland og Artie Shaw.
Skúli Sverrisson leikur með
hljómsveit Alans Holdsworth
og hefur verið á hljómleika-
ferðalagi með sveitinni óslitið
í hálft ár, í Evrópu, Bandaríkj-
unum og Japan. Skúli sagði
að fjölbreytni væri ríkjandi á
nýju efnisskránni og auk þess
væri hver tónsmíð fjölbreyti-
leg að gerð. Hann kvaðst
undrast þá miklu grósku sem
væri ríkjandi í íslensku menn-
ingarlífi. Reykjavík væri orðin
heimsborg og í hverri heims-
borg væri leikin djasstónlist.
Hann sagði að það væri alltaf
barátta að koma metnaðar-
fullri tónlist á framfæri og það
væri göfugt starf sem Hilmar
hefði tekið sér fýrir hendur.