Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 Selfoss Hefðbundin róleg- heit um áramótin Selfossi. ÁRAMÓTIN liðu hjá á Selfossi með hefðbundnum rólegheitum án allra óhappa. Á gamlárskvöld var kveikt í áramótabrennu á Hellun- um og unga fólkið sótti áramótadansleik í Hótel Selfossi. Mjög gott veður var á gamlárs- kvöld og góð færð um allt Suður- land og því engin fyrirstaða fyrir þá sem fóru um einhvem veg til að vera með sínum nánustu. Góða veðrið gerði áramótaskotmönnum hægt um vik en þeir skópu lita- og ljósadýrð ofan húsþakanna á miðnætti. Staða í atvinnumálum er ofar- lega í hugum margra um áramót- in en fleiri eru nú á atvinnuleysis- skrá en á sama tíma í fyrra. „Mér fínnst atvinnuleysið fara vaxandi," sagði Hafsteinn Stefánsson, starfsmaður verkalýðsfélagsins Þórs á Selfossi, en félagssvæði þess nær um alla Ámessýslu að undanskildiim þorpunum við ströndina og Hveragerði. „Ég ótt- ast að þeir sem hafa sótt vinnu til höfuðborgarsvæðisins muni í einhveijum mæli bætast í hóp avinnulausra vegna þrenginga á því svæði,“ sagði Hafsteinn. - Sig. Jóns. Féll af dráttarvél ARAMOT I EYJUM Morgunblaðið/Sigurgeir ELLEFU ára gamall drengur slasaðist talsvert þegar hann féll út úr dráttarvél sem hann var farþegi í síðdegis síðastlið- inn miðvikudag. Slysið varð Níu skip að veiðum um áramót „HÉR VAR lítið gert til hátíða- brigða um áramótin. Það var þá helst í mat á gamlársdag og nýárs- dag,“ sagði Hjalti Hávarðarson, stýrimaður á Breka VE sem var á karfaveiðum um áramótin, þegar rætt var við hann í gærmorgun. Átta fískiskip vom úti auk Breka um áramót. Þau era Engey RE, Rán HF, Skagfírðingur SK, Hólmanes SU, Haukur, GK, Viðey RE, Skafti SK og Hegranes SK. ----------» ♦ ♦---- Rás 2 og Bylgjan Sigrún Huld maður ársins SIGRÚN Huld Hrafnsdóttir sundkona var kjörinn maður árs- ins af hlustendum Rásar 2 og Bylgjunnar á gamlársdag. Sigrún Huld tók þátt í Ólympíu- leikum þroskaheftra í Madríd í sum- ar og hlaut þar níu gullverðlaun og tvenn silfurverðlaun. Þá valdi DV Helga Jónsson, 29 ára Selfyssing, mann ársins. Helgi bjargaði sl. sumar þriggja ára dreng frá drukknun Ölfusá. -♦-♦-♦■■ skammt frá bænum Syðri- Varðgjá. Drengurinn var flutt- ur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og þaðan með sjúkra- flugi á Borgarspítalann í Reykjavík. Slysið varð með þeim hætti að dráttarvélinni var ekið heim að bænum Syðri-Varðgjá. í beygju opnaðist hurð dráttarvélarinnar og drengurinn féll út. Lenti hann á frosinni jörð og hlaut við það mik- ið höfuðhögg. Hann var fluttur meðvitundarlaus á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri og þaðan með sjúkraflugi á Borgarspítalann þar sem hann gekkst undir aðgerð. Sauðárkrókur Nýtt ár heilsaði með björtu og blíðu veðri EFTIR verulega umhleypinga- sama tíð fyrir og um jóladagana birti upp með vægu frosti síðari hluta gamlársdags. Var ára- mótaveðrið hið fegursta og eins og undanfarin ár var um kl. Illa meiddur af völdum rörasprengju TÆPLEGA tvítugur maður slasaðist illa á hendi og i and- liti þegar heimatilbúin sprengja sprakk í höndunum á honum á nýársnótt. Atburðurinn átti sér stað um klukkan fímm um morguninn við Lyngheiði í Kópavogi. Þar voru nokkur ungmenni saman komin og hugðist maðurinn sprengja heimatilbúna rörasprengju. Þegar maðurinn var enn yfír sprengjunni sprakk hún af miklu afli og hlaut maðurinn áverka í andliti og meiddist mikið á hendi. Svo öflug var sprengjan að undan henni myndaðist gígur í fönnina sem þarna var yfír. Maðurinn var færð- urmeð sjúkrabíl á Borgarspítalann og gekkst þar undir aðgerð. Fyrsta barn ársins fæddist á Akureyri FYRSTA barnið sem fæddist á nýbyijuðu ári fæddist á fæð- ingardeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri kl. 2.32 á nýjársnótt. Fyrsta bam ársins á fæðingar- deild Landspítalans var drengur og kom hann í heiminn skömmu eftir kl. 4 á nýjársnótt. Á síðasta ári fæddust 2.913 börn á deild- inni og er það veraleg fjölgun frá fyrra ári en þá fæddust 2.558 börn. Á síðasta ári fjölgaði íslend- ingum um 2.625 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu ís- lands. Mest varð fjölgunin á höf- uðborgarsvæðinu eða um 2.325. Morgunblaði/Rúnar Þ6r Fyrsta barn ársins er myndardrengur en hann vó rúmar 17 merkur og var 55 sentimetrar að lengd. Fæðingin gekk vel og heilsast móður og syni vel. 20.30 kveikt í miklum bálkesti, sem dreginn hafði verið saman á nöfunum ofan heimavistar Fjölbrautaskólans, en um hálf- tíma síðar var vegleg flugelda- sýning á vegum björgunarsveit- arinnar og skátafélagsins. Að sögn lögreglunnar var nóttin einstaklega. róleg, allt fór vel fram og þurfti hvergi að hafa afskipti af nokkrum manni. Að sögn bæjarstjórans á Sauðárkróki, Snorra Björns Sig- urðssonar, er það ánægjuleg stað- reynd að íbúum bæjarins skuli hafa fjölgað verulega umfram landsmenn á síðasta ári og að ekki hafi verið um fækkun að ræða í héraðinu sem heild. Snorri Björn sagði að að vísu væri ástandið í atvinnumálum erfítt núna rétt yfir áramótin og fleiri á atvinnuleysis- skrá en áður hefði gerst, en vænt- anlega um eða eftir miðjan janúar færa hjólin aftur að snúast, físk- vinnslufyrirtækin sem hafa verið lokuð um hátíðirnar hæfu aftur vinnslu af fullum krafti. Þá benti Snorri Björn á, að á síðasta ári hafi verið unnið mjög mikið starf til eflingar atvinnulífs á Sauðárkróki og nefndi þar meðal annars mjög áhugaverðar hug- myndir um eldi og rannsóknir á hlýsjávarfiskinum „barra“, en Guðmundur Ingólfsson sjávarlíf- fræðingur, í samvinnu við íslenskar og franskar hafrannsóknastofnan- ir, stendur að þessu verkefni. Og eitt það nýjasta í málefnum fisk- vinnslunnar er svo það að stofnað var nú í haust nýtt fyrirtæki um vinnslu á ígulkershrognum og virð- ist sem þar verði um allt að 15 ný störf að ræða og ætti vinnsla að geta hafíst af fullum krafti nú fljótlega eftir áramótin. - BB Yestmannaeyjar Maður særður með eggjárni UNGUR maður var særður með eggjárni fyrir utan skemmtistað- inn Hallarlundinn í Vestmanna- eyjum á nýársnótt. Sauma varð 25 spor í kvið mannsins, en sárið var grunnt. Afar óljóst er um alla málavöxtu, að sögn lögreglunnar í Vestmanna- eyjum. Hinn særði sá ekki hver veitti honum áverkann og engin vitni voru að atburðinum. Hinn særði vissi ekki að honum hefðu verið veittir áverkar fyrr en honum var bent á blóðuga skyrtu sína inni á veitingastaðnum. Suðurnes Hugmyndir um stór- gróðurhúsasvæði TILLÖGUR hafa verið gerðar um uppbyggingu stór-gróðurhúsasvæðis á Suðurnesjum, þar sem nýttur yrði aðgangur að ódýrum orkulindum og nálægð við alþjóðaflugvöll. Tillögurnar eru unnar að frumkvæði verkfræðinganna Jóns Hjaltalín Magnússonar, Baldurs Líndal, Pálma Stefánssonar og Ásgeirs Leifssonar. Áformað er að hugmyndirnar verði kynntar íslenskum aðalverktökum á fundi í næstu viku, en stefnt er að því að ná fram samstarfi um verkefnið meðal innlendra og er- lendra fjárfesta, að sögn Jóns. framkvæmd, en til stæði að halda fund með íslenskum aðalverktökum í næstu viku, þar sem hugmyndir verkfræðinganna yrðu kynntar. „Við sjáum Aðalverktaka sem bæði fram- kvæmda- og eignaraðila,“ sagði hann. „Þeir gætu til dæmis gerst stórir hluthafar með því að leggja til mannvirkin.“ Jón sagði að einnig væri verið að horfa til Flugleiða sem mögulegs samvinnuaðila. „Það hefur enn ekki verið unnin ítarleg könnun á ytri þáttum, svo sem markaðsaðstæðum og samkeppni," sagði Jón. „Þó er vitað að markaður er fyrir lífrænt ræktað grænmeti í Svíþjóð, og einnig kæmi til greina að rækta blómlauka og dýrari teg- undir af blómum, svo dæmi séu nefnd. í framhaldinu má hugsa sér að byggja upp stærra svæði fyrir minni og stærri fyrirtæki á sviði efna- og lífefnaiðnaðar, með nýtingu jarðgufu að !eiðarljósi.“ í samtali við Morgunblaðið sagði Jón að hugmyndin hefði þróast út frá vangaveltum um nýtingu jarðhita og gufu í efna- og lífefnaiðnaði. Lagt er til að sem fyrst verði stofnað undirbúningsfélag um skipulagningu og kynningu á alþjóðlegum gróður- húsasvæðum, þar sem boðið er upp á umhverfisvæna og ódýra orku- gjafa. Jafnframt verði athugaðir möguleikar á að setja á stofn innlend stór-gróðurhúsafyrirtæki, og þá helst í samstarfí við erlenda markaðs- og framleiðsluaðila. „Hugmyndin er að þarna verði byggð mjög stór gróðurhús með mik- illi sjálfvirkni, sem þó verða atvinnu- skapandi,“ sagði Jón. „Þótt Flúðir og Suðurland séu einnig ákjósanlegir staðir með mikla hefð fyrir gróður- húsaræktun, er nálægð við alþjóðleg- an flugvöll einnig mikilvæg, og því urðu Suðurnes fyrir valinu.“ Jón sagði að mikið fjármagn þyrfti til að koma verkefni sem þessu í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.