Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993
19
Grundartangi
Þarf enn
50 millj-
ónir úr
/1 • • /
rikissjoði
JÁRNBLENDIVERKSMIÐJ-
AN á Grundartanga þarf í jan-
úar 50 milljónir króna úr ríkis-
sjóði til að standa skil á
greiðslu, en ekki kom til kasta
stjórnvalda í desember. Gert
hafði verið ráð fyrir að verk-
smiðjan þyrfti aðstoð ríkisins
skömmu fyrir jól, en nærri 50
milljónir fengust óvænt stað-
greiddar fyrir kísiljárn í
Bandaríkjunum og voru nýttar
í afborgun láns.
Jón Sigurðsson framkvæmda-
stjóri verksmiðjunnar segir að við-
ræður um orkukjör hafi að undan-
förnu haldið áfram við Landsvirkj-
un. Hann geri ráð fyrir að ein-
hveijar vikur taki að fá botn í
þær. Jafnframt sé ljóst að fram-
leiðsluáætlun fyrir næsta ár verði
ekki gerð endanlega fyrr en eftir
að norska fyrirtækið Elkem lýkur
sinni í janúar. Enn séu því nokkr-
ar vikur í ákvörðun eigenda (ríkis-
ins, Elkem og Sumitomo) varð-
andi aukningu hlutafjár til að
halda megi verksmiðjunni gang-
andi. Erlendu eigendurnir leggi
mikið upp úr hagstæðum samn-
ingum við Landsvirkjun.
Þannig bendir allt til að niður-
staða verði ekki fengin nú í jan-
úar, næst þegar verksmiðjan þarf
að standa skil á hárri upphæð. Jón
segir að rætt hafi verið um þörf
fyrir 150 milljóna króna aðstoð
frá ríkinu síðari hluta 1992 og
tvisvar fengist 50 milljónir. Síð-
asti hluti upphæðarinnar færist
fram í ársbyrjun 1993 þar sem
hlaupið hafi á snærið fyrir jólin.
Ljóðlist-
arhátíð í
Þjoðleik-
húskjall-
ara í vetur
ÞRIÐJA ljóðakvöld Ljóðleik-
hússins verður í Þjóðleikhú-
skjallaranum mánudaginn 4.
janúar kl. 20.30. Ljóðleikhúsið
hóf starfsemi sína í haust og
hefur þegar staðið fyrir tveim-
ur ljóðakvöldum. Ljóðleikhúsið
starfar áfram af fullum krafti
á nýju ári, en fyrsta mánudag
hvers mánaðar stendur það fyr-
ir Ijóðakvöldum í Þjóðleikhú-
skjallaranum.
Heiðursgestur á ljóðakvöldi 4.
janúar verður Geirlaugur Magnús-
son, skáld á Sauðárkróki. Og mun
hann lesa úr væntanlegri bók
sinni. Guðmundur Andri Thorsson
fjallar um skáldskap Geirlaugs.
Guðmundur Magnússon leikari les
úr óbirtum ljóðaþýðingum Geir-
laugs úr pólsku.
Einnig koma fram og lesa úr
verkum sínum þau Árni Ibsen,
Hallfríður Ingimundardóttir, ísak
Harðarson og Linda Vilhjálms-
dóttir. Þá lesa leikararnir Ragn-
heiður Steindórsdóttir, Ingvar Sig-
urðsson og Sigurður Skúlason úr
ljóðum og örleikritum eftir Kjartan
Árnason.
Ljóðabókamarkaður verður á
staðnum sem fyrr og veitingar.
Aðgangseyrir er 250 krónur.
Stórkostleg nýjung
í tslensku stórhappdrætti
Hæsti vinningurinn í hverjum mánuði
leggst við hæsta vinninginn í næsta mánuði
efhann gengur ekki út og þannig hleðst
spennan upp koll afkolli þar til sá heppni
hreppir þann stóra margfaldan
...þú?
Tryggðu þér möguleika
Hundruð milljóna dreifast á miðaeigenda
■ .I I 'Vl/ver/i If 1 Í /1 ,1'ri /H..l « t-^i ..í. ...... rr.* / t /. .. .. . i.i. f.. - f i _ \ A ’ T mo
i fj Lægsta miðaverð í stórhappdrætti (óbreyttfrá tfyrra) aðcins kr. 500.-
Upplýsingar um næsta umboðsmann i síma 91-23130
... fyrir lifið sjálft