Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 SJONVARPIÐ 9.00 ►Morgunsjónvarp barnanna Sýndur verður fyrsti þátturinn í myndaflokki um Heiðu, teiknimynd um lítinn fíl sem týnir foreldrum sín- um og annar þátturinn í teikni- myndasyrpu um sögu og menningu Ameríku. Þá fara einkaspæjaramir Geirlaugur Áki og Uggi Steinn á stúfana, Vilhjálmur og Karítas leika sér saman, Glámur og Skrámur hitta kónginn og prinsessuna í Sælgætis- landi og Kór Mýrarhúsaskóla syngur. 11.00 ►Hlé 14.20 TnUI IQT ►Hamrahlíðarkórinn lUnLldl i Listasafni íslands Hamrahlíðarkórinn syngur lög eftir íslensk tónskáld undir stjóm Þor- gerðar Ingólfsdóttur. Stjóm upptöku: Bjöm Emilsson. Áður á dagskrá 17. júní 1989. 14.55 ►Atli Húnakonungur Ópera eftir Giuseppe Verdi og Temistocle Solera í flutningi' Scala-óperannar í Mílanó. Hljómsveitarstjóri er Riecardo Muti en aðalhlutverkin syngja Samuel Ramey, Cheryl Studer, Giorgio Zanc- anaro, Kaludi Kaludow, Ernesto Gavazzi og Mario Luperi. Þýðandi: Óskar Ingimarsson. 16.55 ►Öldin okkar Ást og friður (Notre siécle) Franskur heimilda- myndaflokkur um helstu viðburði aldarinnar. í þessum þætti era tekin fyrir árin frá 1968 til 1980. Þýð- andi: Ingi Karl Jóhannesson. Þulur: Árni Magnússon. (8:9) 17.50 ►Sunnudagshugvekja Sigrún Helgadóttir líffræðingur flytur. 18.00 ►Búkolla Síðasti hluti bamaleikrits Sveins Einarssonar í flutningi Þjóð- leikhússins. (3:3) 18.30 ►Ævintýri á norðurslóðum - Móðir hafsins Grænlensk mynd, byggð á þjóðsögu um móður hafsins sem er voldug náttúravættur og ræður yfir dýram hafsins. Græðgi mannanna og virðingarleysi fyrir umhverfinu hafa reitt hana svo til reiði að nú er ekki lengur neina björg að fá. Systkinin Malik og Uloq hafa áhyggjur af matarleysinu og leggja því af stað út á ísinn til að veiða. Þar hitta þau móður hafsins æfa af reiði og lofa að segja fullorðna fólk- inu frá kröfum hennar um bætta umgengni við náttúrana. En ætli ein- hver trúi sögum þeirra? Handritið skrifaði Jens Brönden en Maariu Olsen leikstýrir. 19.00 ►Táknmálsfréttir 19.05 ►Auðlegð og ástríður (The Power, the Passion) Ástralskur framhalds- myndaflokkur. 19.30 ►Fyrirmyndarfaðir (The Cosby Show) Bandarískur gamanmynda- flokkur um fyrirmyndarföðurinn Cliff Huxtable og fjölskyldu hans. Þýð- andi: Guðni Kolbeinsson. (8:26) 20.00 ►Fréttir og veður 20.35 ►Húsið í Kristjánshöfn (Huset pá Christianshavn) Sjálfstæðar sögur um kímilega viðburði og kynlega kvisti, sem búa í gömlu húsi í Christ- ianshavn í Kaupmannahöfn og nán- asta nágrenni þess. Aðalhlutverk: Ove Sprogoe, Helle Virkner, Paul Reichert, Finn Storgaard, Kirsten Hansen-Moller, Lis Severt, Bodil Udsen og fleiri. (1:24) 21.00 ►Steinn við stein í nýrri heimildar- mynd þeirra Guðmundar Emilssonar og Baldurs Hrafnkels Jónssonar er íslensk samtímatónlist í öndvegi. Þar er rakinn náms- og starfsferill Þor- kels Sigurbjörnssonar tónskálds. Myndefni hefur verið sótt um langa vegu, bæði til meginlands Evrópu og Bandaríkjanna. 21.30 IflfllfIIVIIIl ►Klara (Clara’s ll I Inlrl I RU Heart) Bandarísk bíómynd frá 1988. í myndinni segir frá Klöra sem er frá Jamaíka og gerist ráðskona hjá ríku fólki í Bandaríkjunum. Syninum á heimilinu líst ekkert á fyrirkomulagið í fyistu en smám saman tekst Klöru að vinna traust hans. Leikstjóri: Robert Mull- igan. Aðalhlutverk: Whoopi Gold- berg, Michael Ontkean, Kathleen Quinlan og Spalding Gray. Þýðandi: Rannveig Tryggvadóttir. 23.15 ►Sögumenn (Many voices, One World) Abbi Patrix frá Frakklandi segir söguna Af deyjandi manni. Þýðandi: Guðrún Arnalds. 23.20 ►Útvarpsfréttir í dagskrárlok SUNNUPAGUR 3/1 STOÐ TVO 9.00 ►Sögur úr Nýja testamentinu Teiknimynd með íslensku tali. 9.20 ►Össi og Ylfa Teiknimyndaflokkur um bangsa sem lenda í ævintýram. 9.45 ►Myrkfælnu draugarnir Teikni- mynd um þijá litla drauga. 10.10 ►Prins Valíant Ævintýralegur teiknimyndaflokkur. 10.35 ►Maríanna fyrsta Spennandi teiknimyndaflokkur. 11.00 ►Brakúla greifi Gamansöm teikni- mynd fyrir alla aldurshópa. 11.30 ►Fimm og furðudýrið Framhalds- þáttur fyrir börn og unglinga. (1:6) 12.00 ►Sköpun (Design) í þessum þætti verða kannaðar hinar ýmsu boð- og samskiptaleiðir, allt frá tímaritum til tölva. Spjallað verður við þau Muriel Cooper frá MIT, tækniháskóla í Cam- bridge Massachusetts, grafíska hönnuðinn Neville Brody og ritstjóra Vouge, Önnu Vintour. Áður á dag- skrá í nóvember 1990. (4:6) 13.00 IÞROTTIR ► NBA-tilþrif (NBA Action) Fjölbreyttur þáttur þar sem bragðið er upp svip- myndum af liðsmönnum deildarinnar og spjallað við þá. 13.25 ►ítalski boltinn Bein útsending frá leik í fyrstu deild ítalska boltans. 15.15 ►íslandsmótið í handknattleik karla. íþróttadeild Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með gangi mála og bregður upp svipmyndum frá leikjum. 15.45 ►NBA körfuboltinn Einar Bollason £ og íþróttadeild Stöðvar 2 og Bylgj- unnar lýsa leik í bandarísku úrvals- deildinni. 17.00 ►Listamannaskálinn José Carreras í þættinum er rakin við- burðarík ævisaga söngvarans. 18.00 ^60 mínútur Bandarískur frétta- skýringaþáttur. 18.50 ►Aðeins ein jörð Endurtekinn þátt- ur frá síðastliðnu fimmtudagskvöldi. •19.19 ►19:19 Fréttir og veður 20.00 ►Bernskubrek (The Wonder Years) Kevin Amold þarf að glíma við alls- konar unglingavandamál. (3.24) 20.25 ►Lagakrókar (L.A. Law) Banda- rískur framhaldsmyndaflokkur um félagana hjá Brachman og McKenzie. 2115 ifuivuvun ► Sak|aust fórn- ll I IIVItI II1U arlamb (Victim of Innocence) Myndin sem byggð er á sannri sögu segir frá hjónunum Barry og Laura sem eiga lítið bam, fallegt heimili og eru hamingjusöm í hjónabandi en atvik úr fortíð Barrys reyna mikið á samband þeirra. Áður en þau giftust sinnti Barry herþjón- ustu í Víetnam og átti í ástarsam- bandi við þarlenda konu. Hann frétt- ir síðar að ástkona hans og bamið, hafi fallið í Saigon. Mörgum áram síðar sér Barry mynd af lítilli víet- namskri stúlku í tímariti og er sann- færður um að hún sé dóttir sín. Eft- ir miklar rannsóknir og baráttu við skrifræðið kemst hann í samband við dóttur sína og konan hans samþykk- ir að hún megi búa hjá þeim. Hvor- ugt þeirra er hins vegar undirbúið undir þær fréttir að móðir stúlkunnar sé lifandi Aðalhlutverk: Cheryl Ladd („Jekyl and Hyde“) og Anthony John Denison („Crime Story“). Leikstjóri: Mel Damski. 1990. 22.45 ►Von Bulow-réttarhöldin (Trials of Von Bulow) Heimildaþáttur um sögufræg réttarhöld sem voru ein þeirra fyrstu sem sýnt var frá í beinni útsendingu í bandarísku sjón- varpi. Stöð 2 sýndi um jólin kvik- myndina_ „Reversal of Fortune" en þar fór Óskarsverðlaunahafinn, Jer- gpg'faJrons, með hlutverk Bulows 23.30 VlfllíklVllll ► Allt er br«yt<ng- IV VllVnlI I1U um háð (Things Change) Jerry er smápeð innan maf- íunnar sem hefur átt erfítt með að fara eftir settum reglum og því farið halloka í valdabaráttunni innan sam- takanna. Hann fær það verkefni að hafa gætur á Gino, gömlum skó- burstara, sem ætlar að taka á sig sökina fyrir morð sem stór karl innan mafíunnar framdi. Aðalhlutverk: Don Ameche og Joe Mantegna. Leik- stjóri: David Mamet. 1988. Maltin gefur ★ ★ Vi Myndbanda- handbókin gefur ★ ★ 'h 1.20 ►Dagskrárlok Litríkar persÓRiur í gömlu fjölbýli Valdir þættir úr einum vinsælasta framhalds- myndaflokki Norðurlanda SJÓNVARPIÐ Kl. 20.35 Danski gamanmyndaflokkur- inn Húsið í Kristjánshöfn ger- ist í gömlu fjölbýlishúsi og nágrenni þess. Við sögu koma margar litríkar persónur. Sjónvarpið hefur nú sýningar á 24ra þátta syrpu úr þessum flokki og er hver þáttur sjálf- stæð saga. Meðal höfunda eru Leif Panduro, Knud Poulsen og Benny Andersen.JÍ aðal- hlutverkum eru margir af þekktustu leikurum Dana, til dæmis Ove Sprogoe, Helle Virkner, Paul Reichert, Finn Storgaard, Kirsten Hansen- Moller, Lis Sovert og Bodil Udsen. Ólöf Pétursdóttir þýð- ir. Tónleikar Bryndísar og Steinunnar Bimu Tónleikarnir eru hluti Tónlistarverð- launana Ríkisútvarps- ins RAS 1 KL. 15.00 Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Steinunn Bima Ragnarsdóttir píanóleikari leika á nýárstónleikum Ríkisút- varpsins í dag, sunnudaginn 3. jan- úar, og verða þeir í beinni útsend- ingu á Rás 1. Verkin eru Sónötur númer 3 í a-moll eftir Antonio Vi- valdi og ópus 5 númer 2 í g-moll eftir Ludwig van Beethoven og svítu sex laga úr sönglagaflokki eftir Manuel de Falla. Kynnir er Tómas Tómasson. Bryndís Halla Gylfadóttir sigraði í keppninni um Tónvakann, Tónlistarverðlaun Rík- isútvarpsins 1992 og lék við verð- launaafhendinguna með Sinfóníu- hljómsveit íslands í Sellókonsert eftir Antonín Dvorák. Selló - Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari. Píanó - Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari. Greifynjan - Martha von Bulow Réttarhöklin yfir Claus von Bulow Eitt fyrsta dómsmálið þar sem kvikmyndatök- ur voru leyfðar í réttarsal t STÖÐ 2 KL. 22.45 Þessi heimildar- mynd fjallar um réttarhöldin yfir Claus von Bulow sem sakaður var um að hafa reynt að stytta sykur- sjúkri eiginkonu sinni aldur með því að gefa henni of stóran skammt af insúlíni. Martha von Bulow hefur legið í dái síðan árið 1982 en hún er einhver auðugasta kona Banda- ríkjanna. Fjölmiðlar sýndu þessu máli mikinn áhuga en þetta var eitt af fyrstu dómsmálunum þar sem kvikmyndatökur voru leyfðar í réttarsalnum. Eftir liðlega mánað- arlöng réttarhöld var Claus von Bulow fundinn sekur og dæmdur til 30 ára fangelsisvistar. Hann áfrýjaði dómnum og önnur réttar- höld hófust 25. apríl 1983. Þar voru kvikmyndatökur einnig leyfðar og í bandarísku sjónvarpi var málinu Iíkt við bestu sápuóperu. Aðalsak- sóknarinn gat heldur ekki orða bundist og sagði eitthvað á þá leið að þetta sakamál hefði allt til að bera, „peninga, kynlíf, eiturlyf, Newport, New York, Evrópu, þernu og þjóna, garðyrkjumann og rík- mannleg híbýli". Fyrir hinn al- menna borgara líkist þetta einna mest tálsýn og skyldi engan undra þótt hann hafi fylgst með framvindu mála af áfergju og innlifun. Ekki minnkaði umtalið þegar veijandi von Bulows, Alan M. Dershowits, gaf út bókina „Reversal of Fortune“ en Stöð 2 sýndi reyndar samnefnda mynd sem byggði á bókinni í desem- ber síðastliðnum. Þar fóru þau Jer- emy Irons og Glenn Close með hlut- verk von Bulow-hjónanna og hlaut hann Óskarsverðlaun fyrir túlkun sína á greifanum. í heimildarmynd- inni er reynt að svara flestum þeim spumingum sem koma upp í huga fólks þegar það horfír á sannsögu- legar kvikmyndir. Hvemig lítur Claus von Bulow út í raun og vera? Hvern mann hafa stjúpbörn hans að geyma? Hvað með vinstúlkur greifans sem flæktar voru í málið? Leikstjórinn, Elkan Allan, reynir að svara þessum spurningum og öðrum í þeim tilgangi að komast sem næst því hvað raunverulega gerðist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.