Morgunblaðið - 03.01.1993, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993
3a
Minning
Benedikt Guðmunds-
son frá Saurum
Fæddur 21. janúar 1926
Dáinn í desember 1992
Mánudaginn 4. janúar verður
Benedikt Guðmundsson bóndi á
Saurum á Skaga borinn til moldar
í Hofskirkjugarði, en hann lést af
slysförum nú skömmu fyrir jól.
Bensi, eins og við kölluðum hann
jafnan grannar hans, var fæddur
21. janúar árið 1926 að Holti í
Nesjum en fluttist 11 ára gamall
með foreldrum sínum að Saurum
og átti þar heima til dauðadags.
Foreldrar Bensa voru hjónin Mar-
grét Benediktsdóttir og Guðmundur
Einarsson er lengi bjuggu á Saurum
og á ég um þau hlýjar minningar
frá æsku- og uppvaxtarárum.
Bensi ólst upp við venjuleg
sveitastörf eins og þau tíðkuðust á
þeirri tíð. Heyöflun fór fram með
handverkfærum og sauðfé var hald-
ið til beitar. Hann var einnig nokk-
uð í snertingu við sjósókn því faðir
hans átti bát sem hann reri til fiskj-
ar á Nesjamið, einkum að haustinu,
og vandist þá Bensi við að beita lóð
og ganga frá fiski í salt og herslu,
en hann mun sjaldan hafa róið.
Nokkrar vertíðir fór Bensi suður
með sjó og vann þá jafnan við störf
í landi. Einnig minnist ég þess að
hann var eitt sumar á síld hér fyrir
Norðurlandi.
Rætur Bensa stóðu djúpt hér á
heimaslóð og þegar hinni miklu
sauðfjárplágu, mæðiveikinni, létti
fór hann að koma sér upp kindum
og hætti að sinna öðrum störfum
enda mun fjárgæsla hafa verið það
starf er honum var hugleiknast.
Um alllangt skeið lifði Bensi af
sauðfjárbúi sínu, eða þar til heilsu
hans fór að hraka svo hann gat
ekki sinnt um féð. Var þá flestu fé
hans lógað, en Bensi var í eðli sínu
fastheldinn og vildi eiga nokkrar
ær eftir. Hélst það svo þar til yfir
lauk.
Lífsviðhorf og gildismat Bensa
var mjög frábrugðið því sem al-
mennt gerist og mátti sjá þess
merki í lifnaðarháttum hans. Hann
var óáleitinn við aðra menn, fáforð-
ur og fáskiptinn og leitaði ekki til
annarra nema í ítrustu neyð. En
aldrei leitaði ég svo til hans með
bón að hann yrði ekki við henni
ætti hann þess nokkurn kost. Þótt
Bensi væri fáorður drógust krakkar
að honum. Minnist ég þess að á
síðastliðnu sumri var hjá mér sonar-
dóttir mín á 5. ári í nokkrar vikur
og fór hún með mér þegar ég fór
að hitta Bensa. Henni þótti margt
undarlegt að sjá í híbýlum hans,
dót skrítið að lit og lögun hangandi
upp um veggi og loft en það lá jafn-
an á lausu ef látið var í ljósi að það
væri girnilegt. Þegar hún nú heyrði
um endadægur felldi hún sín barns-
tár yfir örlögum hans.
Eftir að heilsu Bensa fór að hraka
dvaldi hann suma vetur um eitt-
hvert skeið á Héraðshælinu á
Blönduósi sér til hressingar. Síðast-
liðinn vetur dvaldi hann þar allan
og veit ég að honum líkaði þar vel
og leið vel. í huga hans var þakk-
læti til lækna og hjúkrunarfólks og
ekki síður til þeirra vistmanna er
best náðu til hans. Þess minnist ég
að nú í haust færði ég Bensa kveðju
yfirlæknisins og það með að hann
væri velkominn hvenær sem væri.
Þá færðist bros yfir andlit hans,
þótt ekki fyndist honum tímabært
að fara. Ekki er þess að dyljast að
oft greindi okkur Bensa á um það
nú á seinni árum hvað honum væri
fyrir bestu. En hann hlaut að ráða
og má vera að hann hafi þegar alls
er gætt haft réttara fyrir sér. í það
minnsta finnst mér nú þegar göngu
hans er lokið að ég sjái mannlegt
líf frá fleiri sjónarhomum en áður.
Þegar ég kveð minn gamla
granna hinstu kveðju er mér ekki
harmur í huga, svo viss er ég um
að umskiptin verða til hins betra.
Mér finnst þó eins og eyða sé eftir
og víst hefði ég kosið að aldurtilann
hefði borið að með öðrum hætti.
En hér á sjálfsagt við að enginn
má sköpum renna.
Ég vil í lok þessara kveðjuorða
þakka í nafni Benedikts leitarmönn-
um í björgunar- og hjálparsveitum
frá Skagaströnd og Blönduósi svo
og öðrum mönnum sem í leitinni
voru þann 16. og 17. desember síð-
+
útför
HALLFRÍÐAR GUÐJÓNSDÓTTUR
frá Gilsfjarðarmúla,
til heimilis að Furugerði 1,
Reykjavík,
sem andaðist 25. desembér sl., fer fram frá Aðventkirkjunni mið-
vikudaginn 6. janúar kl. 10.30.
Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á líknarsjóð Systra-
félagsins Alfa.
Vandamenn.
t
Ástkær systir mín, mágkona og föðursystir okkar,
HULDA GUNNLAUGSDÓTTIR,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn 4. janúar
kl. 15.00.
Jón M. Gunnlaugsson, Nína Markússon,
Ragnhildur Þórðardóttir,
Sigriður Elín Sigfúsdóttir, Arnór Þórir Sigfússon,
Gunnlaugur Sigfússon.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
INGVAR VILHJÁLMSSON
útgerðarmaður,
sem andaðist 24. desember sl., verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni þriðjudaginn 5. janúar kl. 13.30.
Sigríður Ingvarsdóttir,
Jón Ingvarsson, Anna Sigtryggsdóttir,
Anna Fríða Ottósdóttir
og barnabörn.
astliðinn.
Ég kveð með mildum og hlýjum
huga. Hvíli hann í friði guðs.
Sveinn á Tjörn.
Mig langar með fáeinum línum
að minnast hans bróður míns, Bene-
dikts Guðmundssonar. Hann var
fæddur að Holti í Nesjum í Skaga-
hreppi 21. jánúar 1926. Foreldrar
hans voru Margrét Benediktsdóttir
og Guðmundur Einarsson, sem þar
bjuggu. Barnahópurinn varð stór.
Arið 1937 fluttist fjölskyldan að
Saurum í sömu sveit og þar fædd-
urs tvær yngstu systurnar og þar
ólúmst við upp.
í mínum huga var Bensi stóri
bróðir því 12 ár voru á milli okkar.
Ég minnist útreiðartúra fram um
alla heiði, ferða á engjar, ótal ferða
við kindasmölun, beijaferða og lax-
og silungsveiðiferða í vatnið og ána
heima. Síðast en ekki síst göngu-
ferða með sjónum. Að ganga á rek-
ann var eitt hans mesta yndi. Alltaf
er fjaran ný og fersk eftir hvert
flóð og eftir hvert stórbrim, sem
svo sannarlega gerir oft í víkinni
okkar heima.
Bamgóður var Bensi. Sem dæmi
um það get ég sagt að þegar til
stóð að fara sumarferðir norður að
Saurum var í hugum barna okkar
systkinanna ekki verið að fara í
neina venjulega sveit, nei, það var
verið að fara norður til Bensa.
0, já, það er svo ótal margs að
minnast frá liðnu áninum. En nú
mun enginn standa lengur á hlaðinu
heima til að fagna komu okkar.
Nú er allt orðið hljótt.
Veri Benedikt bróðir minn kært
kvaddur. Honum er færð hjartans
þökk fyrir allt sem hann var okkur.
Guð blessi minningu hans.
Þorgerður Guðmundsdóttir.
+
Móðir okkar,
MARÍA KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Vestmannaeyjum, síðast til heimilis á Kleppsvegi 32,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Aðventkirkjunni í Reykjavík á morgun, mánu-
dag 4. janúar, kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna
Guðfinnur Sigurjónsson,
Jón Ármann Sigurjónsson.
+
Elskuleg sambýliskona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT KRISTÍN HELGADÓTTIR,
Borgarnesi,
verður jarðsungin frá Borg á Mýrum þriðjudaginn 5. janúar
kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu
minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið.
Jón B. Ólafsson,
Helgi Aðalsteinsson, Þorgerður Þorgilsdóttir,
Gunnar Aðalsteinsson, Fríða Sigurðardóttir,
Sumarliði Aðalsteinsson, Elin Hjörleifsdóttir,
Anna Margrét Aðalsteinsdóttir, Sævar Magnússon
og barnabörn.
+ |
Móðurbróðir minn,
ÞÓRHALLUR INGVAR JÓNSSON,
Hrafnistu, Reykjavík, ' ■
lést 30. desembér.
Guðbjörg Egilsdóttir. 4lml
JANÚARTILBOD
SPARADU
með magninnkaupum
Bréfabindi ELBA (takmarkaö magn) 25 stk. 5.625 kr.m/vsk.
Gatapokar 100 stk. 450 kr. m/vsk.
L-möppur 100 stk. 990 kr. m/vsk.
Faxpappír 30 m 6 rúllur 1.188 kr. m/vsk.
Ljósritunarpappír 5pk. 2500 blöð 1.750 kr.m/vsk.
Skrifblokkir 10 stk. 750 kr. m/vsk.
Gulir minnismiöar m/lími 5x7,5cm 12stk. 460 kr. m/vsk.
Gulir minnismiðar m/limi 7,5x7,5cm 12 stk. 675 kr. m/vsk.
Kúlupennar 50 stk. 650 kr. m/vsk.
Dagatölf/MICROFILE-FILOFAXo.fi.skipulagsbækur 1 stk. 395kr. m/vsk.
Síðumúla 35 - S 688911 - Fax 689232
Fjölbreytt úrval af skrifstofuvörum á hagstæðu verði!