Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 11 Tékkóslóvakía liðin undir lok Hætta á efnahagsóreiðu og þjóðernisumróti í Slóvakíu Stjórnvöld í Bratislava auka vopnasölu til þriðjaheimsins Prag, Bratislava. Reuter og The Daily Telegraph. FAGNAÐ var með fallbyssuskot- um og fiugeldum á gamlárskvöld í Bratislava, höfuðborg Slóvakíu, þegar sjálfstæð Slóvakía varð að veruleika í fyrsta sinn í 1.000 ár. Opinber hátíðarhöld fóru ekki fram fyrr en á nýársdag í Prag, höfuðstað Tékkneska lýðveldisins, og þar sögðu végfarendur að al- ger skilnaður þjóðanna tveggja hefði komið til vegna óbilgirni og valdafíkni slóvakískra sljórnmála- leiðtoga. Heyra mátti raddir af sama toga í Bratislava. 74 ára sögu sambandsríkisins Tékkóslóv- akíu er lokið, skoðanakannanir sýna að naumur meirihluti beggja þjóðanna var á móti fullum skiln- aði. Fögnuðurinn var því blendinn, mun færri voru á götum úti en 1989 er veldi kommúnista var hrundið. Flestir Slóvakar óttast að erfiðir tímar séu framundan í efnahagsmálum en Tékkar eru bjartsýnni. Ráðamenn Tékka og Slóvaka hétu því að gott samstarf yrði eftir sem áður milli þjóðanna. Sagt hefur verið að markaðshyggjumaðurinn Vaclav Klaus, forsætisráðherra Tekka, og Vladimir Meciar, forsætisráðherra Slóvaka og fyrrum kommúnisti sem haft hefur í frammi nokkra einræð- istilburði og vill beita miðstýringar- lausnum í efnahagsmálum, hafí verið sammála um að hundsa kröfur um þjóðaratkvæði vegna aðskilnaðarins. Klaus hafi viljað losna við að þurfa að taka tillit til afturhaldsstefnu meirihluta Slóvaka og Meciar viljað leika aðalhlutverkið í landi sínu, án Reuter Vladimir Meciar, forsætisráðherra Slóvakíu, veifar skjali með fyrstu sjálfstæðu stjórnskipunarlögum landsins á nýársdag. afskipta stjórnvalda í Prag. Tíu milljónir Tékka og fimm millj- ónir Slóvaka hafa búið saman í friði og spekt í 1.000 ár, lengst af undir yfírstjóm annarra þjóða. Slóvakar hafa þó ávallt verið litli bróðirinn í þessu sambandi og minnimáttar- kennd þeirra hjaðnaði ekki meðan sambandsríkið var við lýði. Margir Tékkar eru á hinn bóginn þeirra skoðunar að skilnaðurinn losi þá end- anlegu úr tengslum við gömlu aust- urblokkina. Bræðraþjóðin Slóvakar, sem talar nokkurn veginn sömu tungu, var öldum saman frumstæður útkjálki í austurríska keisaradæminu og síðustu áratugi þess undir stjórn ungverskra aðalsmanna er tröðkuðn á landslýð. Tékknesk menning varð fyrir miklum þýskum áhrifum og Prag er fomfræg mennta- og lista- borg. í Slóvakíu er mikill, úreltur þunga- iðnaður sem kommúnistar lögðu megináherslu á og helstu vopna- smiðjur Tékkóslóvakíu vom í lands- hlutanum. Atvinnuleysi er fjórfalt meira í Slóvakíu en löndum Tékka og hafa slóvakískir ráðamenn þegar þreifað fyrir sér um vopnasölu til ýmissa þriðjaheimslanda til að reyna að halda efnahagnum á floti. Annað mál er Tékkum mikill þym- ir í augum og dró úr áhuganum á því að halda sambandsríkinu saman en það er vandi þjóðabrota í Slóvak- íu. Um 560.000 Ungverjar búa í landinu auk 400.000 sígauna og hef- ur Meciar leikið óspart á strengi þjóð- emisrembu. Talsmenn Ungverja vilja tryggja sérréttindi þjóðabrotsins en Meciar bregst hart við slíkum tillög- um og sakar m.a. nágrannaríkið Ungverjaland um að vilja breyta landamæmm sem ákveðin vom í lok fyrri heimsstyrjaldar. KMMTEFÉLHú KFVKJKUÍKUK - OKiniaiiiia 6 oju avu Aðili að alþjóðlegum samtökum Okinawa goju ryu I.O.G.K.F. Aðalþjálfari félagsins er Sensei George Andrews 5 dan yfirþjálfari í Englandi. Innritun er hafin í alla flokka kvenna, karla og barna. Nánari upplýsingar í síma 35025. Allir þjálfarar eru handhafar svarta beltisins 1. dan og margfaldir (slandsmeistarar í karate: Grétar Halldórsson, Halldór Svavarsson, Jónína Olesen, Konráð Stefánsson og Jón ívar Einarsson. Karatefélag Reykjavíkur, kjallara Sundlaugar Laugardals, gengið inn að vestanverðu. ATH: Sérstakir kvennatímar á fimmtUdögum Ath. ekki inn um aðalinnganginn. kl. mán Þ ri miö lim tös lau 17.00-18.00 18.00-19.00 byrjendafl born byrjendafl fullorðnir 1. flokkur börn unglinga: flokkur byrjendafl börn 2. flokkur fullorðnir 1. flokkur börn byrjendafl. fullorðnir unglinga- flokkur 1. flokkur fullorðnir 19.00 - 20.00 l.flokkur fullorðnir 2. flokkur fullorðnir 1. flokkur ful Kvennatími 2. flokkur fullorðnir Aðgangur að sundlaugunum er innifalin í æfingagjöldum. Kynnist karate af eigin raun MAL Velkominn í Enskuskólann Verið velkomin að líta inn í Enskuskólann i spjall og kaffi áður en námskeiðin hefjast 6.-12. janúar. Við bjóðum upp á 11 námsstig í ensku. Við metum kunnáttu þina og i framhaldi af þvi ráðleggjum við þér hvaða námskeið hent- ar þér og þinum óskum best. Hámark 10 nemendur i bekk. Komdu i heimsókn eða hringdu - þvi fylgja engar skuldbindingar. INNRITUN STENDUR YFIR HRINGDU i SÍNIA 25330 EÐA 25900 OG FAÐU FREKARIUPPLYSINGAR KENNSLA HEFST 13. JANÚAR Fyrir fullorðna Almen íenn enska með áherslu á talmál. Námskeið að degi til, kvöld og laugardaga Viðskiptaenska Rituð enska - enskar bókmenntir Krárhópar TOEFL-G MAT-GRE undirbúningsnámskeið Fyrir stofnanir og fyrirtæki: Viðskiptaeinkakennsla- sérmótuð námskeið fyrir fyrirtæki Fyrirbörn Leikskóli fyrir 3-4 ára Forskóli fyrir 5-6 ára Enskuskoli fyrir 7-12 ára Unglinganámskeið fyrir 13-15 ára Einkatímar Hægt er að fá einkatíma eftir vali VR og flest önnur stéttarfélög taka þátt i námskostnaði sinna félagsmanna. ÞU FINNUR ORUGGLEGA EITTHVAÐ VIÐ ÞITT HÆFI HJÁ OKKUR - VELKOMIN ! HÓPINN... skólinn TUNGOTU 5 101 REYKJAVIK M 9209

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.