Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.01.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 13 ísafjörður Erum biartsýn að eðlisfari ísafirði. UM MIÐJAN gamlársdag mátti sjá hóp manna með gaffallyftara og önnur stórvirk tæki við að hlaða bálköst á Hauganesinu við Pollinn á ísafirði í stormi og stórhríð. Er hægt að hugsa sér meiri bjartsýni en þetta? Orfáum klukkutímum áður en fyrirhugaður útifagnaður á að hefjast, stríta menn áfram í myrkri og byl og trúa að innan skamms birti upp og betri tið blasi við. Á gamlárskvöld var svo kveikt í kestinum í stilltu og björtu veðri, þar sem stórir hópar manna nutu útiverunnar og sungu áramótalög- in við undirleik harmonikkunnar. brautir í tengslum við atvinnulífíð og skíðabrautin við skólann, sem er sú eina í landinu, er að styrkjast. Þótt Ferðaskrifstofa Vestfjarða hafi orðið gjaldþrota á árinu er ákveðinn stígandi í ferðaþjónustu, hótelið nýtur vinsælda og farþega- báturinn Eyjalín hefur stóraukið umferð um ísafjarðardjúp. Skipasmíðastöð Marzellíusar hef- ur náð góðum árangri í alls konar viðhaldsvinnu en nú virðast vera á lokastigi samningar um byggingu á tvíbytnu í samvinnu við franskt hönnunarfyrirtæki, en með smíði slíks skips fyrir Islendinga yrði brot- ið blað í útgerðarsögu landsins. Heilbrigðisþjónusta er í góðu horfi. Góðir læknar að mestu orðnir stað- fastir, þótt nokkuð vanti af mennt- uðu hjúkrunarfólki. Eins og sagt var í upphafi er veð- ur rysjótt og óútreiknanlegt en slíkt undirstrikar aðeins undurfegurð íjallanna þegar þau stíga út úr sort- anum skjannahvít og brött með sínar dökku brúnir. Ungir bjartsýnir menn skrifa í þau ártalið 1993 sem spegl- ast í lognkyrrum Pollinum. Við Isfírðingar sendum lands- mönnum bestu kveðjur með ósk um farsælt átakaár. - Úlfar. JÓLATRÉSSKEMMTUN g§| Félags harmnolkknunnenda verður kl. 15.00 í dag íTemplarahöllinni við Eiríksgötu. Jólasveinar mæta með gott í poka. Allirvelkomnir. Skemmtinefndin. 1 1 | Meim en þú geturímyndaó þér! ■ Það sem líklega einkennir ára- mótabrennumar í þetta sinn á ís- landi er hinn mikli fjöldi báta sem þar hverfur í logana. Breytingar á fískisókninni hafa leitt til þess að mikill fjöldi minni báta er úreltur og þar sem bannað er að nota slíka báta og ekki má lengur sökkva þeim verða þeir kjörnir máttarviðir ára- mótabrennunnar. Á Hauganesinu var verið að brenna Skúla fógeta, sem menn héldu að væri elsti bátur- inn á skipaskrá íslendinga. Smíðaður í Bolungarvík 1916 og þá fulltrúi nýrra tíma og þátttakandi í fram- farasókn íslendinga til betra lífs. Lífdagar bátsins urðu þó 20 árum fleiri en til stóð vegna þessarar líf- seigu bjartsýni landans. Eftir rúm- lega hálfrar aldar glímu við Ægi voru menn á leið með hann á ára- mótabrennuna í desember 1972 brot- inn og illa farinn eftir að hafa rekið í óveðri upp í Skipeyrina. Þá tókst þúsundþjalasmiðnum Finnboga heitnum Péturssyni að kaupa hann af Vélbátaábyrgðarfélagi ísfírðinga og endursmíða hann. Drógu menn björg í bú á bátnum, þar til hann rak upp í annað sinn og nú vestur á Þing- eyri og brotnaði mikið. Þessi enda- lausu átök við óblíða náttúru gera menn að bjartsýnismönnum. Þeir sem ekki eru bjartsýnir hljóta að hverfa á braut til átakaminni svæða. ísfírðingar hafa við þessi áramót nokkra ástæðu til bjartsýni umfram marga aðra landsmenn. Utgerð virð- ist vera að vaxa. Nýbúið er að ganga frá kaupum á skuttogaranum Jöfri til ísafjarðar. Vonir standa til að Gyllir landi afla sínum hér eftirleiðis. Auðunn, 200 tonna línu- og togbát- ur, var keyptur hingað. Þá keypti Hnífsdælingur hf. línubát í haust sem nú er gerður út frá Flateyri, auk þess sem nokkrir minni bátar hafa verið keyptir á árinu. Útlit er fyrir miklar byggingar- framkvæmdir á þessu ári. Unnið er við lokaáfanga íþróttahúss, væntan- lega verður byijað eftir fáa daga við lokaáfanga Fjórðungssjúkrahússins og í vor er fyrirhugað að hefjast handa við byggingu kirkju og tónlist- arskólahúss. Unnið er að frágangi við nýja vöruhöfn í Sundunum. Menningarfélög í bænum hafa stofnað félag til að endurbyggja gamla Edinborgarhúsið og breyta því í menningarmiðstöð. Framhaldsskóli Vestfjarða undirbýr nýjar náms- Sveitasin- fónía sýnd á Suðurlandi Syðra-Langfaolti. UNGMENNAFÉLAG Hruna- manna hefur að undanförnu æft gamanleikinn Sveitasinfóníu eftir Ragnar Arnalds, en tónlist er eft- ir Atla Heimi Sveinsson. Leikstjóri er Halla Guðmundsdóttir. Leik- endur eru 15, en alls koma um 20 manns að sýningunni. Frumsýning var í félagsheimilinu á Flúðum 30. desember fyrir fullu húsi við góðar undirtektir. Næstu sýningar verða að Flúðum sunnudag- inn 3. janúar klukkan 14 og 21. Fyrirhugað er að sýna leikritið í fé- lagsheimilum nágrannasveitanna á næstunni, einnig í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjarklaustri. Þá áforma leikendumir að sýna leikritið í félags- heimili Kópavogs í lok janúar. Sig. Sigm. Það er Búnaðarbanka íslands mikið fagnaðarefni að kynna nýjan reikning - Stjörnubók. Reikningurinn er kærkomin nýjung, því hann sameinar tvö aðalmarkmið sparifjáreigandans - að fá góða vexti og njóta hámarksöryggis. STJBRNUBÓH Búnaðarbanhans 4* Verðtrygging. 4* 7% raunávöxtun! 4" Vextir bókfærðir tvisvar á ári. 4» Vextir lausir til útborgunar eftir að þeir hafa verið bókfærðir. Hver innborgun bundin í 30 mánuði.* Eftir það er hún alltaf laus til útborgunar. 4* Spariáskrift - allar innborganir lausar á sama tíma. 4* Lántökurétturtilhúsnæðiskaupa. BÚNAÐARBANKANS * Ef nauðsyn ber til getur reikningseigandi sótt um heimild til » .. . . , , , .. _ úttektar á bundinni fjárhæð gegn fnniausnargjaidi, sem er nú 2.5%. Þar sem oryggi og hámarksavoxtun fara saman stjSrnubóh

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.