Morgunblaðið - 03.01.1993, Page 20

Morgunblaðið - 03.01.1993, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 Nýársávarp forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur Fullveldishugsj ónin er fjöreg-g- okkar Góðir íslendingar, góðan dag og gleðilegt nýtt ár. Nú sem fyrr við áramót leiðum við hugann að þeim sem okkur voru kærir og horfið hafa sjónum á liðnu ári. Þessir vinir lifa áfram í minning- um okkar, eru hluti af lífinu og því tímanna safni sem mótar hvern ein- stakling. En um leið og við minn- umst með þökk genginna manna og horfinna kynslóða fögnum við og bjóðum velkomna alla þá sem í okk- ar hóp hafa bæst, ekki síst börnin sem fæðst hafa og við viljum alls til kosta svo þau eigi sér glæsta framtíð í landinu. Þar eru fólgnar vonir okkar allra. A þessum tímamótum er mér sjálfri ofarlega í huga, að á nýliðnu ári var mér í fjórða sinn trúað fyrir því að fara með embætti forseta Islands. Ég vil af heilum huga þakka það traust sem mér var þá sýnt og alla þá vinsemd sem þjóðin hefur veitt mér í starfi mínu, hlýjar óskir, góðar ábendingar, holl ráð sem koma úr ýmsum áttum og við líkleg sem ólíkleg tækifæri. Á undanförnum mánuðum hefur okkur íslendingum orðið tíðrætt um erfiðleika sem að okkur steðja. í annað skipti í sögu lýðveldisins stöndum við frammi fyrir alvarlegu atvinnuleysi. Og atvinnuleysi veldur margþættu böli: Það leiðir ekki ein- ungis fátækt yfir þann sem fyrir því verður og hans skyldulið, það dæm- ir menn úr leik frá virkri þátttöku í samfélaginu og rýrir þar með sjálfs- traust þeirra og þá sjálfsvirðingu sem hveijum manni er nauðsynleg til gæfu - auk þess sem atvinnuleysi er líklegt til að grafa undan þeirri samstöðu sem okkur er nauðsynleg til að takast á við verkefni okkar og þjóðarskyldur. Þegar svona stendur á er nauð- synlegra en oft ella að við gerum okkur grein fyrir að erfiðleikar eru tvenns konar. Annars vegar eigum við einatt við skammtímavanda að etja. Hins vegar geta svo við blasað erfíðleikar sem aðeins verða leystir á löngum tíma. Um það er samstaða meðal allra landsmanna að atvinnuleysið sé vandi sem okkur ber skylda til að leysa og við getum leyst og þannig er greinilegt að við lítum á það sem skammtíma- erfiðleika og munum ráða fram úr þeim sem slíkum. Það hefur engum dulist síðustu árin að veröld okkar er breytingunum háð. Kannski fínnst okkur einmitt vera að fást í kringum okkur endanleg sönnun þess að hann hafi haft rétt fyrir sér, gríski heimspekingurinn sem hélt því fram að allt streymdi, nú eða þá Jónas Hallgrímsson sem staðhæfði að „mönn- unum munar, annað hvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið.“ Fyrir þeim hugsuðum var engin kyrrstaða möguleg. Við horfum á landamæri bre'ytast, múra hrynja, nýjar þjóðir rísa upþ, og allt má það verða okkur til áminning- ar um að Iokastöðu verður aldrei náð, að allt er ferli. Það getur meira að segja orðið þjóðinni hættulegt, trúi hún því nokkurn tíma að hún sé komin á lckareit í baráttu sinni fyrir betra og fegurra mannlífí. Eitt af því sem má jafnan minna okkur á hverfulleikann og breyting- amar er það sem Kristján Eldjárn nefndi „lífbeltin tvö“, sem umlykja okkur í hafínú og á landi. Ég hefí áður drepið á það um áramót, hve mikilvæg umhyggja okkar er fyrir lífbeltunum tveim, arfi kynslóðanna. Við gjöldum þess nú að hafa farið illa með auðlindir hafsins. Þar erum við á báti með fjölda þjóða sem mikl- ar áhyggjur hafa af lífinu í sjónum. Og við þurfum eins og margir aðrir að leggja okkar af mörkum við skyn- samlega, verndun og ræktun á því lífi sem þar verður til. Við höfum líka leikið landið grátt á liðnum öldum. En á síðastliðnum áratugum hefur okkur tekist að sanna það fyrir sjálfum okkur, að við getum stundað landvinninga inni á okkar eigin landi, rétt eins og við færðum landhelgina lengra út á hafið. Hver fermetri lands sem okk- ur tekst að græða upp á íslandi er sigur fyrir alla þá sem standa frammi fyrir þeirri vá, að allt að einni smálest af jarðvegi tapast á ári á hvert mannsbarn í heiminum. Ef okkur, hér rétt sunnan við heim- skautsbaug, tekst að vinna til liðs við okkur örfoka land, þá er það sannarlega saga til næsta bæjar, til annarra landa sem eiga einnig við jarðvegseyðingu að stríða. Hvar sem menn koma saman til að fjalla um ástand jarðar telst það mikil frétt, að íslendingum hafí tekist að ná þeim áfanga að gróðursetja sextán tré á ári á hvert mannsbarn - og bregða menn þá gjarna á skáldlegan talnaleik um það sem gerast mundi ef fleiri þjóðir gerðu slíkt hið sama. Á nýliðnu ári urðu trén okkar reynd- ar tuttugu talsins á hvert manns- barn. - Við höfum einnig náð umtals- verðum árangri í landgræðslu þótt ekki hafí enn tekist að snúa þar vörn í sókn. Viðleitni okkar til þess að verja og vernda lífbeltin tvö stendur og fellur með því að okkur lærist til fullnustu að bera virðingu fyrir ytra umhverfi okkar. En alveg á sama hátt er okkur nauðsynlegt að tileinka okkur virðingu fyrir mörgu öðru. Þar verður meðal annars nauðsyn- legt að spyija hvort vera kunni ein- hveijar þær þverstæður í skapgerð okkar íslendinga sem ráða því að okkur sé áfátt í sjálfsvirðingu okkar og sanngirni í garð annarra? Okkur er annt hveiju um annað þegar á bjátar og vissulega er í því fólgin umhyggja, virðing og tillits- semi. En hvert okkar og eitt óskar þess að eiga virðingu annarra öllum stundum. Samt er það svo að mörg- um reynist erfitt að virða stefnumál og skoðanir samferðamanna sinna og sýna fyllstu tillitssemi gagnvart mönnum og málefnum. Réttur hvers og eins til að segja hug sinn allan, vera á öðru máli en maðurinn í næsta húsi eða konan á hæðinni fyrir ofan er í raun hornsteinn lýð- ræðisins. Virðing fyrir öðru fólki, virðing fyrir skoðunum annarra, er óijúfan- lega háð því að við eigum þann sjálfsaga sem sprettur af virðingu hvers einstaklings fyrir sjálfum sér. í öllu upp- eldi, hvort heldur er á heimil- um eða í skólum, er það rækt- un þess þáttar sem ég vildi helst óska að lögð væri stund á. Því án sjálfsvirðingar ein- staklinganna er okkur ógn- vekjandi hætta búin. Vitanlega er aðgátar þörf á þessu sviði eins og öðrum og hér er ekki verið að talá um þá freku sjálfsréttlætingu og tillitsleysi sem við vitum öll að oft stendur gagn- kvæmri virðingu fyrir þrifum og um leið sameiginlegu afli okkar til átaka. Ég minntist áðan á kyrr- stöðu og hreyfingu. Oft kom- umst við svo að orði um börn- in okkar og unga fólkið að nú séu þau að verða búin að læra. Og líklega erum við of sjaldan á það minnt að ein- mitt í menntun er ekki til neinn lokaáfangi, ekkert sem heitir að vera búinn að læra. Því menntun einstaklinga og menntun þjóða, sem allir eru sammála um að sé undirstaða velferðar um alla framtíð, á sér engin verkalok. Þar má aldrei láta staðar numið heldur verðum við ævinlega að vera reiðubúin að endur- skoða þekkingú okkar og kunnáttu, bæta við og breyta, skilja og skil- greina upp á nýtt. Á liðnum vikum og mánuðum hefur hart verið glímt á vettvangi stjómmála um þær ráðstafanir sem vænlegastar em taldar til að vinna bug á efnahagslegum þrengingum þjóðarinnar nú um stundir. Rætt hefur verið um aðferð alla, hvemig tekjum skal varið og byrðum skipt. Þau viðfangsefni stjórnmálamanna eru hin sömu, hvort sem vel árar eða illa. Hitt er nýrra að Alþingi hafi til umfjöllunar aðild íslands að sam- ktarfí evrópskra ríkja um efnahags- mál, alþjóðlegan samning sem haft getur í för með sér miklar breyting- ar á íslensku þjóðfélagi. Tekist er á um mat á áhrifum samningsins. Annars vegar kemur fram það við- horf að samningurinn muni hafa þau áhrif að mikilvægar ákvarðanir verði ekki í okkar eigin höndum með sama hætti og verið hefur. Hins vegar er mælt fyrir því sjónarmiði að samn- ingur um evrópskt efnahagssvæði sé einungis eðlilegt framhald af skuldbindingum sem einstök ríki hljóta að taka á sig í auknu alþjóð- legu samstarfi. Sá margþætti ágreiningur er tengist umræðum um evrópskt efna- hagssvæði dylst engum sem fylgst hefur með þjóðmálaumræðu á því ári sem nú er liðið. Hann hefur klof- ið samtök og flokka og jafnvel hug einstaklinga í rökræðum þeirra við sjálfa sig um kosti og galla slíks samstarfs. Von tekst á við ótta svo að vogaskálar samþykkis og synjun- ar nsa og hníga til skiptis. Á því ári sem nú er gengið í garð verða liðnir þrír aldarfjórðungar frá hinum stærsta sigri sem við Islend- ingar unnum í sjálfstæðisbaráttu okkar - frá gildistöku laga er gerðu ísland að fullvalda ríki, lögðu grund- völl að sambandsslitum við Dani og ruddu okkur þannig braut að fullu sjálfstæði þjóðarinnar og endurreisn lýðveldis á íslandi. Fullveldi þjóðar- innar á því að vera okkur ofar í huga á nýju ári en endranær. En um leið verðum við að vera minnug þess að fullveldi er ekki þess eðlis að því sé náð og síðan megi setjast um kyrrt. Fullveldi er þróunarferli, síbreytilegt eins og annað í mann- heimum. " BARNADANSNÁMSKEIÐ ' í Grafarvogi og Mjódd Mánudaga í sal Sjáifstæðisfélagsins í þjónustumiðstöðinni við Hverafold 1-3 (12 tíma námskeið) og þriðjudaga og laugardaga í sal Þjóðdansa- félagsins í Álfabakka 14 A Mjódd (12 tíma námskeið) Ath. að miðstöð strætisvagna er í Mjódd. 3-4 ára 5-6 ára 7-8 ára 9 ára og eldri GRAFARVOGUR Mánudögum Kl. 17.00-17.30 Kl. 17.40-18.10 Kl. 18.15-19.00 Kl. 19.05-20.05 MJÓDD Þriðjudögum Kl. 17.00-17.30 Kl. 17.40-18.10 Kl. 18.15-19.00 Kl. 19.05-20.05 MJÓDD Laugardögum Kl. 10.00-10.30 Kl. 10.35-11.05 Kl. 11.10-11.55 Systkinaafsláttur er 25% Kennsla hefst mánudaginn 11. janúar 1993 Við bjóðum upp á sértíma fyrir leikskóla - og aðra hópa eftir samkomulagi. /UNl Innritun og upplýsingar í síma 681616. Þrír aldarfjórðungar eru skammur tími á mælistiku heimssögunnnar en nálgast þó að vera sá jafnaðarævi- tími sem forsjónin færir hveijum íslendingi nú á dögum. Efst hlýtur okkur öllum að vera í huga hvernig hægt er að efla sam- stöðu okkar um fullveldi þjóðarinnar og sjálfstæði landsins; samstöðu um þann skilning að fullveldi okkar sé verkefni sem sífellt þarf að vinna og aldrei má leggja til hliðar. Allir þurfa að gera sér þess fulla grein að fullveldið býr í okkur sjálfum; í því felst lífsafstaða okkar og öll- framganga á hveijum tíma. Fullveldi er því fólgið að við stönd- um vörð um íslenska menningu á hveiju sem dynur, að við eigum okk- ur raust í heiminum, að við höldum fullri reisn og látum aldrei efnahags- legar aðstæður draga úr okkur lífs- þrótt og baráttuvilja. Við megum ekki snúast hvert gegn öðru í leit að sökudólgum; við megum ekki glata umburðarlyndi og virðingu því aldrei skiptir það jafn miklum sköp- um að við sýnum samstöðu og þegar á móti blæs. Fullveldishugsjónin er fjöregg okkar. Hún á að efla með okkur þjóðlega eindrægni. Hún má ekki víkja fyrir mótbyr í stundarvanda heldur ber okkur að sækja til hennar styrk og hvatningu. Við þurfum að sýna djörfung, dug og fyrirhyggju. Sérhver framför í sögu okkar hef- ur verið knúin af afli hugsjóna. Oft- sinnis hefur þó rekum verið kastað á framsæknar hugmyndir og hug- sjónir manna sem sáu ef til vill lengra fram í tímann en samferða- menn þeirra. En hugsjónir lifa og kenna okkur að sífellt má bæta hag manna og þjóða, að ekkert er full- komnað og sífellt má sækja fram. Hugsjónir eru ómetanlegur orku- gjafi. Þær eru ekki draumórar, held- ur geta þær verið leiðarljós að betri kjörum og bættum heimi. Fram- kvæmd þeirra brúar bilið milli áforms og veruleika. Við höfum þörf fyrir hugsjónir nú, ekki síður en fyrrum, hugsjónir sem kveða niður þá nauðhyggju að ástandi andartaksins verði ekki breytt, hugsjónir sem vísa því á bug að íslensk þjóð þurfí að sitja föst í doða, úrtölum og úrræðaleysi. Stundarerfiðleikar og ágreiningur um leiðir að sameiginlegum mark- miðum eru eðlileg og síendurtekin viðfangsefni sjálfstæðrar þjóðar. Og öll vitum við innst inni að það eru viðfangsefni sem við ráðum við, því að við getum stuðst við þann lærdóm og þá þekkingu sem við drögum af fortíð okkar. Við getum hagnýtt hugvit okkar og handafl til að standa saman um það sem mestu skiptir fyrir framtíð okkar í landinu - menn- ingu okkar og sjálfstæði. Um leið vitum við líka að hugar- far getur verið örlagavaldur í lífí þjóða og ýmsum hefur reynst dýr- keypt að glata trú á framtíðina. Það má aldrei gerast enda höfum við alla burði til að komast vel af. Síst af öllu megum við misbjóða börnum og ungmennum með bölsýni og von- leysi. Til þess er heldur engin ástæða. Glæsileg verkefni á svið mennta og menningar, hátækniiðn- aðar, umhverfismála - sjálfstæð við- fangsefni og samstarfsverkefni með öðrum þjóðum allt bíður þetta hand- an næsta leitis. Það eina sem þarf er einbeittur vilji til verka, vilji til að gera betur en hingað til. Þórarinn skólameistari Björnsson komst svo að orði í skólasetningarræðu fyrir hartnær fjörutíu árum: Mannshugsjón norrænna manna var drengskapur, en drengur heitir vaskur maður og batnandi, segir Snorri. Þessi skilgreining er stór- merkileg. Fyrst er talað um vask- leika. Það þarf vaskleikann, átakið til alls manndóms. Og þó er hitt orðið, sem valið er, batnandi, enn merkilegra. Krafturinn einn er ekki nógur. Hann getur verið bæði af því góða og illa. Hann verður að meta siðferðilegu mati. Og það er ekki einu sinni nóg að vera góður, heldur batnandi. Mestu varðar að stefna í rétta átt, sækja á brattann, upp, hærra. Góðir íslendingar. Ég geri þessi orð hins merka skólamanns að brýn- ingu minni á þessari stundu. Megi gæfa fylgja okkur á nýju ári og um alla framtíð. Guð blessi land og þjóð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.