Morgunblaðið - 03.01.1993, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 03.01.1993, Qupperneq 27
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 27 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Samstaða í mótbyr 4nýbyrjuðu ári, 1993, verða 75 ár liðin frá einum stærsta sigri fstæðisbaráttu þjóðarinnar, er ísland varð frjálst og fullvalda ríki. Fullveldið, sem vannst árið 1918, ruddi brautina að fullu sjálfstæði íslendinga og endurheimt lýðveldis hér á landi árið 1944. Forseti ís- lands, frú Vigdís Finnbogadóttir, minnti á þennan mikilvæga fullveld- issigur í nýársávarpi sínu, og sagði m.a.: „Fullveldið er í því fólgið að við stöndum vörð um íslenzka menn- ingu á hveiju sem dynur, að við eigum okkur raust í heiminum, að við höldum fullri reisn og látum aldr- ei efnahagslegar aðstæður draga úr okkur lífsþrótt og baráttuvilja. Við megum ekki snúast hvert gegn öðru í leit að sökudólgum: Við meg- um ekki glata umburðarlyndi og virðingu því aldrei skiptir það jafn miklum sköpum að við sýnum sam- stöðu og þegar á móti blæs. Fullveldishugsjónin er fjöregg okkar. Hún á að efla með okkur þjóðlega eindrægni. Hún má ekki víkja fyrir mótbyr í stundarvanda heldur ber okkur að sækja til henn- ar styrk og hvatningu. Við þurfum að sýna djörfung, dug og fyrir- hyggju." Það er hollt að hafa þessi hvatn- ingarorð í huga og farteski inn í nýtt ár, þar sem mótvindar blása í atvinnu- og efnahagslífi, bæði stað- bundnir og utanaðkomandi. Vand- inn, sem við blasir, þarf að efla með okkur þjóðlegt samlyndi, djörfung og dug, framsýni og fyrirhyggju, „því aldrei skiptir það jafn miklum sköpum að sýna samstöðu og þegar á móti blæs“. Verðbólgan lék íslenzkt atvinnu- líf, íslenzkan þjóðarbúskap og kaup- mátt almennings grátt í nær tvo áratugi, 1971-1990. Seint og um síðir tókst þjóðarsátt um að hemja verðbólguna, stöðva víxlhækkanir verðlags og launa, og skapa nauð- synlegan stöðugleika í efnahagslífi og verðlagi. Sá árangur, sem náðist með þjóðarsáttinni, staðfestir mátt samstöðunnar í þjóðfélaginu og mik- ilvægi þegar á móti blæs. Síðustu tvö árin hefur verðbólga verið minni hér á landi en í helztu samkeppnis- löndum okkar. Þessa samstöðu og þennan árangur verður að varðveita, þar eð hann varðar veg okkar upp úr öldudal atvinnuleysis og efnahags- þrenginga. Í því sambandi skal minnt á það mat Davíðs Oddssonar forsætisráðherra í nýársávarpi til þjóðarinnar, að við getum unnið bug á atvinnuleysinu og samdrættinum í þjóðarbúskapnum, án þess að verð- bólgan fari úr böndum, ef okkur tekst að halda friðinn á vinnumark- aðinum og í samfélaginu. Forsætisráðherra komst svo að orði í áramótagrein hér í blaðinu: „Rétt er að draga athyglina að tvennu. Annars vegar búum við nú við stöðugleika í verðlagsmálum, sem við höfum ekki gert í marga áratugi. Hins vegar er samningur- inn um Evrópskt efnahagssvæði. Samfara samningnum bjóðast mörg tækifæri til sóknar í íslenzku at- vinnulífi. Það skiptir auðvitað mestu að atvinnulífið sjálft nýti sér þessi tækifæri til fulls, bæði þau sem EES-samningurinn felur í sér og' eins stöðugleikinn í verðlagsmálum. Því verður þannig ekki haldið fram, að aðstæður séu um þessar mundir óvenju snauðar af sóknartækifærum fyrir íslenzkt atvinnulíf. Öðru nær. Betri möguleikar eru nú en oft áður til að sækja fram.“ Það verða gerðar meiri kröfur til íslenzks atvinnulífs á næstu árum en nokkru sinni fyrr. Samhliða bjóð- ast nýir möguleikar, m.a. með Evr- ópska efnahagssvæðinu. En til þess að mæta auknum kröfum og nýjum möguleikum þann veg að farsæld fylgi fyrir landsmenn alla verðum við að varðveita þjóðarsátt um stöð- ugleikann í efnahagslífi og verðlagi í landinu. Við megum ekki snúast hvert gegn öffru, þegar heildarhags- munir krefjast samstöðu, þjóðar- sáttar. Sameinuð sigrum við en sundruð getum við fallið í þeirri baráttu fyrir efnahagslegu fullveldi þjóðarinnar og almannahag sem framundan er á næstu misserum og árum. DR. ASGEIR ELL- ertsson, heila- og taugasérfræðingur, flutti merkilegt erindi í kirkjunni minni á sínum tíma. Hann tal- aði um trú sína og lífs- viðhorf og er sá fyrsti og eini sem hefur talað í mín eyru um það hve erfitt er að ákveða hvenær frumur og fóstur verða að manneskju, en það stjómaðist auðvitað af því hve- nær heilastarfsemi þess breytir vefjum í fólk. En það var ekki þetta né annað í trú dr. Ásgeirs sem hér á heima í umræðu um athafna- skáld, heldur sá upplýsandi þáttur í erindi hans sem snertir atvinnu- rekstur. Japanskur starfsbróðir hans spurði um trú hans. Dr. Ás- geir sagði honum frá grundvallar- reglu kristinsdómsins um kærleik- ann. Og hann næði ekki einungis til nánustu ástvina heldur ætti kristið fólk að elska náunga sinn einsog sjálfan sig. Þá sagði Japan- inn hann væri búddatrúar og sam- kvæmt sinni trú væri grundvöllur- inn sá að sýna fjölskyldunni hlýðni, það væri fyrsta boðorðið og minnir á afstöðu forfeðra okkar, en síðan yfirfærist þessi hlýðni yfrá vinnu- staðina. Þessi trúarheimspekilega afstaða væri lykillinn að velgengni japanskra fyrirtækja. Ég hef ekki séð þessu haldið fram annars staðar, en það er athyglis- vert án þess ég sé þarmeð að boða einhvem senbúddisma fyrir at- vinnurekendur! Kærleiksboðskapur Krists er einstæður og mikilvæg- asta gjöf sem manninum hefur hlotnazt. Hún ætti einnig að geta nýtzt atvinnurekstri með einhveij- um hætti. 4ÞAÐ ER EINATT lengri leið • frá orðum til athafna en menn hyggja í fljótu bragði. Það hefur því verið fagnaðarefni, þegar at- hafnamönnum hefur tekizt að stytta þessa leið, ég tala nú ekki um, þegar þeim hefur lánazt að fara hagkvæmustu leiðina frá orð- um til athafna og rétta hlut lág- HELGI spjall launafólks í landinu með því. Það liggur í eðli mikilla fram- kvæmdamanna að fínna þessa hag- kvæmustu leið, og af kynnum mínum við þá er ég þess fullviss, að það er rétt, sem Ragnar í Smára hefur sagt, að sköpunarþráin er sú orku- lind, sem úrslitum ræður. En þegar ég lít yfír samtöl mín við merka athafnamenn, sé ég, að það er ýmislegt annað, sem þeir eiga sam- eiginlegt og er raunar harla mikil- vægt á þessum rótlausu upplausn- artímum að reyna að gera sér ein- hverja grein fyrir því. Þeir hafa ekkisízt haft eðlisgróna löngun til að láta gott af sér leiða og auka velmegun í umhverfi sínu. Jafn- framt því sem athafnaskáldin hafa sjálf efnazt hafa þau viljað auka tekjur annarra og tryggja atvinnu I samfélagi sínu. Þau spurðu ekki hvort hægt væri að krefjast þess að þau tryggðu atvinnuöryggi heils bæjarfélags árum saman, heldur var þessi krafa partur af lífsvið- horfí þeirra, sköpunarþrá og at- hafnavilja; þau vildu sjá um þetta öryggi. Haraldur Böðvarsson, einn sanntrúaðasti maður sem ég hef kynnzt, taldi það sjálfsagða skyldu sína að sjá starfsmönnum sínum farborða með einum eða öðrum hætti og vinna með þeim að upp- byggingu á Akranesi. Stórhugur hans og viljafesta voru lífsakkeri allra þeirra sem störfuðu við fyrir- tæki hans. Þannig vildi hann veija lífí sínu; með því að uppfylla at- hafnaþörf sína og auka öðrum ör- yggi í lífsbaráttunni. En hann þurfti einatt að vera fastur fyrir til að tryggja fyrirtækinu þá arðsemi sem fleytti því áfram. En hann hljóp ekki frá fólkinu á Akranesi til að tryggja eigin hag — og helzt ekk- ert annað. Nei, hann byggði upp og bætti samfélag sitt. Það var ástríða hans. 0g í því fólst draum- sjón athafnaskáldsins, sem var sprottið úr þjóðfélagi fátækar og bjargarleysis. Fátæktin var mín fýlgju-kona, voru einkunnarorð þessa þjóðfélags. En menn einsog Haraldur og Ingvar Vilhjálmsson, athafnaskáld- ið mikla sem nú er nýlátinn, sögðu fátæktinni stríð á hendur. í afmæl- issamtali okkar 26. október 1969 sagði Ingvar m.a.: „Ég fór fyrst til sjós á vertíðina 1917. Ég reri frá Þorlákshöfn upp á hálfan hlut hjá Magnúsi Jónssyni, formanni frá Hrauni í Ölfusi. Skipið hét Björg. Þá var venja að ungir piltar færu til sjávar, og mig langaði á sjóinn. í vertíðarlok tilkynnti Magnús mér, að skipshöfnin hefði komið sér sam- an um að ég skyldi fá heilan hlut. Tel ég þessa ákvörðun fímmtán vaskra félaga minna á sjónum einn mesta heiður, sem mér hefur verið sýndur um ævina.“ Og ennfremur: „Við bjuggum í sjóbúðum,_sem gerðar voru úr torfi og gijóti. í þeim voru hlaðnir bálk- ar og §öl fyrir framan og sváfum við í þeim tveir saman. Við lags- menn lágum í bálkunum andfætis, eins og kallað var. Hafði hvor sína skrínu fyrir ofan sig, með kæfu, smjöri og hangikjöti sem við komum með að heiman, en brauð keyptum við í Vesturbúðinni á Eyrarbakka. Þar var gamla Lefolii-verslun. Við hituðum kaffið til skiptist og lögð- um það til í sameiningu. Það var einnig keypt á Eyrarbakka. Ekki fannst mér vistin köld í þessum sjóbúðum, þó að þær mundu ekki þykja hlýlegar vistarverur nú á dögum.“ Og loks: „Togaramir voru þá mikið ævintýri. Alveg eins og það þótti mikið ævintýri fýrir sveita- strák að koma fyrst til Eyrarbakka og drekka saftblöndu og borða súkkulaði fyrir aura, sem höfðu fengizt fyrir að tína hagalagða og leggja þá inn í Lefolii-verzlun. Á þann hátt hafði ég eignazt tvær eða þijár krónur, sem ég gat tekið út á i verzluninni. Það voru stórkostlegir dagar, og Eyrarbakki var stórborg í mínum augum." M. (meira næsta sunnudag) REYKJAVIKURBRÉF FYRSTI JANÚAR 1993 hefur verið töfradagsetn- ing í hugum margra Evr- ópubúa. Árið 1985 settu aðildarríki Evrópubanda- lagsins sér það markmið að ljúka undirbúningi innri markaðar EB fyrir þennan dag. Það ótrúlega hefur gerzt - það tókst. Hvorki órói í gengismálum inn- an Evrópubandalagsins né hrakfarir Maas- tricht-sáttmálans, sem hvort tveggja kom upp á lokasprettinum í markið, hindruðu að markmiðið næðist. Það má eiginlega kallast kraftaverki líkast að ríkin tólf skuli hafa komið sér saman um 95% af þeirri löggjöf, sem árið 1985 var talin nauðsyn- leg til að tryggja fijálst flæði vöru, þjón- ustu, fólks og fjármagns um Evrópu. Líf Evrópubandalagsþegna breyttist ekki í einni svipan þegar klukkan sló tólf á mið- nætti og nýja árið gekk í garð, því að innri markaðnum hefur verið komið á smátt og smátt og enn eru ýmsar undanþágur frá reglum hans í gildi. En margir sjá ástæðu til að fagna þeim árangri, sem náðst hef- ur, og sumir myndu halda því fram að slagorð á borð við „Evrópa án landamæra“ og „sameinuð Evrópa“ væru nú ekki leng- ur heróp, heldur veruleiki. Vissulega er innri markaðurinn mikið afrek. Þjóðir, sem áður bárust á bana- spjót, hafa nú að mestu leyti tekið niður landamæragirðingarnar og búa við sömu lög og reglur um margvísleg svið mannlífs- ins. Innri markaðurinn er stærsta hindrun- arlausa markaðssvæði heims, sem verður enn stærra um leið og samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði gengur í gildi og EFTÁ-ríkin (að Sviss undanskildu) fá einn- ig fijálsan aðgang að markaðnum. Árang- urinn er ekki sízt í því fólginn að tekizt hefur að vinna bug á margvíslegri verndar- stefnu, sem byggzt hefur á skammtíma- hagsmunum einstakra ríkja og oft og tíð- um þröngsýnni þjóðernishyggju, en skaðað efnahagslífíð til lengri tíma litið. í Cecch- ini-skýrslunni svokölluðu, þar sem áhrif innri markaðarins eru metin, er spáð a.m.k. 4,5% aukningu landsframleiðslu, 6,1% lækkun verðlags, 1,8 milljónum nýrra starfa og 2,2% betri afkomu ríkissjóða EB-ríkjanna. Efnahagslegur ávinningur af innri markaðnum er því margvíslegur. Sundurleit mynd ÞEGAR STALDR- að er við um áramót og litið yfir atburði liðins árs í Evrópu, hljóta menn hins vegar að álykta sem svo, að séu slagorðin um Evrópu, sameinaða og án landamæra, orðin að raunveruleika, þá eigi hann a.m.k. aðeins við um Vestur-Évrópu. Þegar horft er á Evrópu sem heild, blasir við sundur- leit mynd. Margt hefur breytzt síðan leið- togar Evrópubandalagsins settu kúrsinn á 1. janúar 1993. Árið 1985 voru löndin austan Járntjaldsins í raun miklu ijarlæg- ari Vestur-Évrópu í stjómmálalegu og efnahagslegu tilliti en bandamenn Evr- ópubúa vestanhafs. Aðeins var farið að örla á stefnubreytingu í Sovétríkjunum með valdatöku Gorbatsjovs, en enginn sá fyrir hrun heimsveldis kommúnismaps. Staða mála í álfunni var tiltölulega vel skilgreind og flestir voru búnir að sætta sig við að hún yrði tvískipt til frambúðar og samskipti austurs og vesturs áfram með þeim hætti, sem verið hafði frá lokum seinni heimsstyijaldar. Vestur-Evrópubúar hafa fagnað hruni kommúnismans eins og aðrir, en kannski hafa fáir áttað sig á þeim gífurlegu vanda- málum, sem virðast ætla að sigla í kjölfar- ið. Hnignun og fall stjómarinnar í Moskvu leysti úr læðingi öfl, sem lengi höfðu blund- að; þjóðernisdeilur, sem eiga rætur aftur í aldir, hafa blossað upp víðs vegar um Austur-Evrópu og falskt velferðarríki sós- íalismans hefur hrunið eins og spilaborg. Árið, sem nú hefur runnið sitt skeið á enda, einkenndist af hrikalegum efnahags- erfiðleikum í Austur-Evrópu og hræðileg- ustu bræðravígum og ofbeldisverkum, sem Evrópubúar hafa horft upp á síðan 1945. Skuldbind- ingar við A-Evrópu Á meðan sameiningaröfl voru að verki í Vestur-Evrópu sundraðist Austur-Evrópa; sama dag og innri markaðurinn gekk í gildi, klofnaði Tékkóslóvakía í tvö ríki og áfram var barizt í Bosníu, svó tvö dæmi séu tekin. TILVIST JÁRN- tjaldsins og ógnar- jafnvægi kalda stríðsins voru að því leyti þægileg fyrir Vestur-Evrópubúa að þeir gátu tiltölulega áhyggjulaust sinnt eigin vandamálum og þurftu ekki að taka ábyrgð á þróun mála austar. í álfunni. Nú hefur þetta breytzt. Nýfijálsu ríkin knýja á um aðstoð og samstarf við Vesturlönd í efnahags-, öryggis- og stjórnmálum og biðja um að vera tekin í samfélag fijálsra lýðræðisþjóða. Mörgum þykir sem Vestur- Évrópuríkin, og þá sérstaklega Evrópu- bandalagið, hafí ekki brugðizt við þessum nýju kringumstæðum sem skyldi, heldur haldið áfram að eltast við skottið á sjálfum sér. Hinn gamalreyndi þýzki stjórnmála- maður, Egon Bahr, sem meðal annars var náinn samstarfsmaður Willy Brandts kanzlara við mótun „Ostpolitik" hans, skrifar þannig í Berlingske Tidende 27. desember að Vestur-Evrópubúar geti hvorki varðveitt efnahagslega velsæld sína né viðhaldið pólitískum stöðugleika, láti þeir það viðgangast að austurhluti álfunn- ar verði efnahagslegri og pólitískri ringul- reið að bráð. Slíkt muni leiða af sér fá- tækt, borgarastyijaldir og þjóðflutninga og Austur-Evrópubúar muni láfa reyna á það athafna- og ferðafrelsi, sem Vestur- landabúar hafi innleitt; með öðrum orðum að flóttamannastraumurinn til Vestur- landa verði gífurlegur. „Þegar allt kemur til alls, getum við ekki endurreist Berlín- armúrinn og Járntjaldið og varið þau með vopnavaldi," skrifar Bahr. „Það er tálsýn að halda að Vesturlönd geti hugsað ein- göngu um sjálf sig og gefið austurhluta álfunnar örlögum sínum á vald. Þegar Evrópubandalagið var stofnað, lofuðu menn löndunum handan við Járntjaldið, sem Moskvustjórnin hindraði í að taka þátt í bandalaginu, að þau myndu eiga frátekið pláss, þegar þau fengju sjálfs- ákvörðunarrétt sinn að nýju. Nú geta þau og vilja taka þátt. Vestur-Evrópumenn ættu að fagna og taka á móti Austur-Evr- ópu opnum örmum.“ Bahr segir að þróun Evrópubandalags- ins hafi verið svo hröð, og gengið svo vel, að pólitískur vilji til að ganga í bandalag- ið hrökkvi ekki til; honum verði að fylgja efnahagslegar forsendur til að fylgja regl- um þess. Hann segir að hið sögulega verk- efni EB-ríkjanna sé því að gera sem flest Evrópuríki hæf til að ganga í bandalagið. Vandamálin, sem séu komin upp vegna Maastricht-sáttmálans, megi ekki verða til að seinka áætlunum um stækkun banda- lagsins. Bahr veltir því síðan fyrir sér hvaða ríki séu líkleg til að uppfylla inntöku- skilyrði Evrópubandalagsins í nánustu framtíð. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að EFTA-ríkin eigi þess kost að vera kom- in inn í bandalagið 1995. Næst komi Ung- veijaland, Pólland, Tékkneska lýðveldið og Slóvakía, þótt síðastnefnda landið muni eiga í meiri erfiðleikum en hin með að undirbúa sig fyrir aðild. Þessi ríki geti hugsanlega hlotið inngöngn í kringum árið 2000. Hins vegar telur hann ólíklegt að Eystrasaltsríkin þijú geti bætzt í hóp- inn svo fljótt, þrátt fyrir að þau muni senni- lega taka skjótari efnahagslegúm framför- um en Hvíta-Rússland, Ukraína, Rúmenía og Búlgaría. Síðastnefndu löndin sjö þurfí því einkum á viðskiptasamningum við Evrópubandalagið að halda, sem henti aðstæðum hvers og eins. Hvað geta Vesturlönd gert? Austur-Evrópu og búa nýfijálsu ríkin und- ir þátttöku í vestrænu efnahagssamstarfí? HVAÐ GETA Vesturlönd gert til þess að styðja við bakið á þróun lýð- ræðis og ftjáls markaðshagkerfis í Laugardagur 2. janúar Það fyrsta ætti að vera að tryggja ríkjun- um í Austur- og Mið-Evrópu sem rýmstan markaðsaðgang í Vestur-Evrópu. Slíkt getur að sjálfsögðu skapað vandamál. ís- lendingar þekkja til dæmis vel af eigin raun hvemig mikið framboð af áli frá Austur-Evrópu hefur lækkað álverð og valdið áliðnaði á Vesturlöndum erfíðleik- um. Sama mætti segja um það, hvernig skipasmíðaiðnaður Pólveija hefur dregið til sín æ fleiri verkefni á kostnað skipa- smiðja í Vestur-Evrópu. En þetta er aðeins ein afleiðing fijáls heimsmarkaðar. Vilji Vesturlönd styðja við bakið á efnahagslífí fyrrverandi kommúnistaríkja stoða lítt upphrópanir um undirboð og ósanngjarna samkeppni. Vinnuafl er ódýrt í þessum ríkjum og laun lág á meðan efnahagslífíð er að ná sér á strik. Þeim er lífsnauðsyn að eiga greiðan aðgang að mörkuðum fyr- ir afurðir sínar. Markaðsaðgangur er líka forsenda þess að það sé fýsilegur kostur fyrir erlenda fjárfesta að taka þátt í at- vinnurekstri í Austur-Evrópu. Flestir sérfræðingar um efnahags- og öryggismál eru sammála um að það yrði til að ýta mjög undir jákvæða þróun, til dæmis í Ungveijalandi, Tékkneska lýð- veldinu og Póllandi, að Evrópubandalagið gæfí þeim upp ákveðna dagsetningu, sama hverSu fjarlæga í tíma, er þau yrðu tekin inn í bandalagið að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þetta yrði þessum ríkjum sams konar hvatning og dagsetningin 1. janúar 1993 var sumum EB-ríkjum til að koma skikki á efnahagsmál sín. Ef hins vegar stjómvöldum og athafnamönnum í þessum löndum fínnst að ekki sé til neins að vinna eða að þeim hafi mistekizt að gera sig gildandi í samfélagi Vestur-Evrópuþjóða, mun sú tilfínning breiðast út um alla Austur-Evrópu og markaðsumbætur hvar- vetna bíða hnekki, segir Lutz Hoffmann, forstjóri Efnahagsrannsóknastofnunarinn- ar í Berlín, í viðtali í áramótahefti tímarits- ins Time. Hann lætur í ljós áhyggjur af vemdarstefnutilhneigingum innan Evr- ópubandalagsins, og í sama blaði segir Jan Stankovsky, austurrískur starfsbróðir Hoffmanns: „Stærsta vandamál Austur- Evrópuríkjanna er ekki í Austur-Evrópu, heldur í EB.“ Stankovsky telur að mark- aðsaðgangur fyrir afurðir Austur-Evrópu- ríkjanna hafí „úrslitaáhrif" á þróun efna- hagsumbóta þeirra. Raunhæfar vonir um EB-aðild gætu líka orðið til að slaka á þjóðernisspennu í Austur-Evrópu. Árangur EB-ríkjanna í efnahagsmálum hefur meðal annars byggzt á því að þau hafa kastað her- skárri þjóðernishyggju fyrri tíma fyrir róða og fylkt sér um önnur sameiningartákn en þau, sem endilega tengjast þjóðríkjum. Horst Teltschik, fyrrverandi ráðgjafi Helmuts Kohls, kanzlara Þýzkalands, í öryggis- og utanríkismálum, segir í fyrr- nefndu hefti Time að endurvakning þjóð- emishyggju í Austur-Evrópu hafí ekki verið meðvituð stefna, heldur miklu frekar birtingarmynd leitar Áustur-Evrópubúa að menningarlegri sérstöðu og „tæki til að losna frá Sovétríkjunum". Hann telur því að Austur-Evrópuríkin vilji allra sízt sjá að samrunaþróuninni í Vestur-Evrópu verði snúið við og horfið á vit þjóðemis- stefnu á nýjan leik. Hlutverk Sameinuðu þjóðanna HRUN KOMMÚN- ismans hefur ekki aðeins flækt þá mynd, sem blasir við í Evrópu, heldur einnig heimsmynd- ina í heild. Höfuðóvinur vestrænna ríkja, Sovétríkin, er horfínn. í stað ógnaijafn- vægis kjamorkuvopnanna hefur komið staða, sem að ýmsu leyti er flóknari og ófyrirsjáanlegri en sú gamla. Hættan á gereyðingarstyijöld er að flestra mati liðin hjá - en hin „nýja heimsmynd", sem mik- ið hefur verið rætt og ritað um, er samt lítt friðvænlegri en sú gamla. Sovétríkin skildu eftir sig ákveðið tómarúm. Eins og fyrr var vikið að, hafa grimmúðleg þjóðern- isátök siglt í kjölfar hruns kommúnism- ans. Jafnframt skiptist heimurinn ekki lengur í tvennar herbúðir, þar sem stór- veldin mörkuðu sér áhrifasvæði og höfðu mikil áhrif á gerðir bandamanna sinna. Sú skipan varð til þess, til dæmis í deilum í Mið-Austurlöndum, að hafa nokkurn hemil á svæðisbundnum deilum, vegna þess að risaveldin óttuðust að eijur banda- manna þeirra kynnu að stigmagnast upp í kjamorkustyijöld. Á nýja árinu er hætt við að enn fleiri svæðisbundnar deilur, borgarastríð og þjóðernisátök, eigi eftir að setja svip sinn á sögu líðandi stundar. Hið alþjóðlega samfélag þarf ný tæki til að bregðast við þessum kringumstæð- um. Ýmsir möguleikar hafa opnazt í þeim efnum, en jafnframt hafa ný vandamál litið dagsins ljós. Haft hefur verið á orði að með lokum kalda stríðsins séu Samein- uðu þjóðimar loksins þess megnugar að gegna upphaflegu hlutverki sínu og tryggja frið í heiminum. Hmn Sovétríkj- anna hefur gert það að verkum að neitun- arvaldi er nú æ sjaldnar beitt í Öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna og samtökin eru betur í stakk búin en áður til að fylgja eftir ályktunum sínum. Þetta kom skýrt fram í Persaflóastríðinu og þeim aðgerð- um, sem SÞ hafa síðan gripið til gegn írökum. Hernaðaraðgerðimar í Sómalíu marka einnig tímamót í sögu samtakanna. Áður hafa Sameinuðu þjóðimar einungis aðhafzt hafí eitt ríki ógnað fullveldi ann- ars, en nú er vopnavaldi beitt til að setja niður innanríkisdeilur og þar með má í raun segja að SÞ séu famar að ganga á fullveldi ríkja í þágu mannúðar og heims- friðar. Það hefur sýnt sig að gömlu, „kurteis- legu“ aðferðirnar, sem Sameinuðu þjóðim- ar beittu um langt skeið, duga engan veg- inn til að ná markmiðum samtakanna. Friðargæzlusveitir þeirra em fámennar og lítils megnugar og eilífar ályktanir og hótanir um viðskiptaþvinganir hafa sömu- leiðis gert takmarkað gagn. Æ oftar er nú rætt um þörfína á alþjóðlegu herliði, sem geti skorizt í leikinn í svæðisbundnum deilum og hafí hernaðarmátt til að yfír- buga stríðandi fylkingar. Þessari hugmynd fylgja hins vegar margvísleg vandkvæði. Áð halda úti slíku liði er í fyrsta lagi afar dýrt. í öðru lagi hafa fá ríki hersveitum á að skipa, sem hægt er að skipuleggja á skjótan og skilvirkan hátt til þess að grípa til aðgerða hvar sem er í heiminum. Hætt er við að Bretar, Frakkar og Bandaríkja- menn yrðu ráðandi í slíku herliði. Slíkt munu mörg ríki, einkum í þriðja heiminum, ekki sætta sig við og nú þegar heyrast raddir um _,,nýja nýlendustefnu" í þessu sambandi. I þriðja lagi er svo komið, að víða hafa hinar stríðandi fylkingar í svæð- isbundnum deilum yfír svo öflugum her að ráða, að það myndi kosta talsverðar fómir að sigrast á honum. Þetta er ein ástæða þess að enn hefur ekki tekizt sam- staða um hvað gera skuli til að stilla til friðar í lýðveldunum, sem áður mynduðu Júgóslavíu. Að sigra serbneska herinn er enginn hægðarleikur. Loks er tiltölulega auðvelt að ákveða, hvenær hafa skuli af- skipti af deilum, sem upp kunna að koma, en erfíðara að segja til um hvenær skuli hætta aðgerðum. Hvenær á herliðið til dæmis að fara frá Sómalíu? Er ekki hætta á að borgarastyijöldin blossi þegar í stað upp að nýju og enn fleiri falli í bardögum eða deyi úr hungri? Og af hveiju á að ráðast inn í Sómalíu en ekki t.d. Súdan eða Líberíu, þar sem ástandið er svipað? Frammi fyrir spurningum af þessu tagi munu Sameinuðu þjóðimar standa á nýja árinu. Við upphaf nýs árs blasa við ýmis óleyst vandamál á alþjóðavettvangi. Um leið hafa vestræn lýðræðisríki fleiri tækifæri en áður til að setja mark sitt á heimsmyndina og tryggja lýðræði, markaðsbúskap og friðsamlega sambúð þjóða í sessi. Árið 1993 er ár tækifæra í alþjóðamálum. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon „Nýfrjálsu ríkin knýja á um aðstoð og samstarf við Vesturlönd í efna- hags-, öryggis- og stjórnmálum og biðja um að vera tekin í samfélag fijálsra lýðræðis- þjóða. Mörgum þykir sem Vestur- Evrópuríkin, og þá sérstaklega Evrópubandalag- ið, hafi ekki brugðizt við þess- um nýju kringum- stæðum sem skyldi, heldur haldið áfram að eltast við skottið á sjálfum sér.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.