Morgunblaðið - 03.01.1993, Side 41

Morgunblaðið - 03.01.1993, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1993 41 FERÐALÖG Unnur Guðjónsdóttir ballett- meistari er nýkomin úr þriggja vikna ferð um Kína og Tíbet. Þetta var í fyrsta sinn sem hópur íslenskra ferðamanna fer til Tíbet og fjórða ferð Unnar til Kína, en aðspurð kvaðst hún snemma hafa fengið áhuga á þessum tveim- ur fjarlægu löndum. „Eg var bara smástelpa þegar ég fór að velta fyrir mér hvers konar staður á jörðinni Kína væri,“ sagði Unnur. „Mamma átti nefni- lega lítið þrífætt bronsker frá Kína, sem ég handfjatlaði oft og ég velti mikið fyrir mér hvað skrítna mun- strið á kerinu táknaði. Áhugi minn á Tíbet vaknaði hins vegar þegar ég fjórtán ára gömul las bókina „Sjö ár í Tíbet" eftir Heinrich Harrer." Unnur kvgðst hafa farið fyrst til Kína árið 1983, er hún ferðað- ist ein síns liðs um landið í rúma tvo mánuði. „Eftir þá ferð var ég komin með landið „á heilann“, eins og stundum er sagt. Á ferð minni um Kína árið 1991 komst ég lang- leiðina til Tíbet, en fékk ekki leyfi til að fara inn í landið. Ég gafst samt ekki upp og eftir að hafa farið til Kína síðastliðið vor með 21 íslending fór ég núna í október með sextán manna hóp í ferð um Kína, þar af 6 daga í Tíbet. Unnur segir að ferðin til Kína og Tíbet hafi verið mikið ævintýri fyrir alla sem tóku þátt í henni. 1 báðum þessum löndum byggju fornar menningarþjóðir og þar væri að vonum margt áhugavert að sjá. Tíbet væri að sjálfsögðu alveg sérstakt land bæði vegna rótgróinna siðvenja íbúanna og einnig vegna legu sinnar og hæðar. „Við fundum auðvitað til óþæg- inda fyrst í stað vegna hæðarinn- ar. Kínveijarnir sem skipulögðu ferðina fyrir mig urðu skelfingu lostnir þegar þeir sáu hversu margt fullorðið fólk var með mér, sá elsti var nefnilega 83 ára. En sá lét engan bilbug á sér finna heldur gekk þvert á móti oft fram úr okkur hinum enda vanur fjallamaður að heiman. Eftir tvo daga í Tíbet voru allir bún- ir að jafna sig hæðinni og loftslaginu og við fórum hæst í 5.350 metra yfir sjávarmál. Ég viðurkenni þó að mér létti mikið þegar við höfðum Tíbet að baki og allir voru heilir á húfi, enda söng ég ljóðlínuna ,,..og allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó“, af meiri inn- lifun en nokkru sinni fyrr þegar hópurinn tók „Kátir voru karl- ar“ á flugvellinum í Beijing á heimleiðinni." Unnur er ekki af baki dottin því nú ætlar „Kínaklúbbur Unnar“ í þriðja sinn til Kína í lok janúar. Það verður tveggja vikna ferð og lét Unnur þess getið að enn væri pláss fyrir áhugasama ferðafé- laga. En áður en af þeirri ferð verður mun Unnur efna til dans- sýningar með nemendum úr List- dansskóla Islands í Norræna hús- inu hinn 24. janúar næstkomandi. Þetta verður danssýning fyrir böm með dönsum eftir Unni, en sýning- in var pöntuð af Norræna húsinu í tilefni af 25 ára afmæli hússins. Unnur Guðjónsdótt- ir ballettmeistari sýn- ir hér kínverskan dans í tilheyr- andi búningi, en hún hefur tekið ástfóstri við Kína og hefur skipu- lagt. hópferðir þangað og til Tí- bet. Mannlífið er ólíkt í Tibet og á íslandi. Hópurinn sem fór til Tíbet í október síðastliðnum. 31 W L»' / Á L Æ AFSL r* Otsah Okkar árlega vetrarútsala hefst í fyrramálið kl. 9. ledurtöskur á öllum fataefnum RUSSKINNS' TÖSKUR Trönuhrauni 6 • 220 Hafnarfirði Sími 651660

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.