Morgunblaðið - 26.01.1993, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993
Neyðaráætlun gangi hjúkrunarfræðingar út 1. febrúar
Innlögnum fækkað og sjúk-
lingar kannski sendir heim
STJÓRN Ríkisspítalanna hefur ákveðið að draga úr inn-
lögnum sjúklinga og hugsanlega verða sjúklingar sendir
heim þegar líða fer á vikuna. Forstöðumaður Blóðbankans
telur nauðsynlegt að gerðar verði ráðstafanir til að hann
starfi þó hjúkrunarfræðingar mæti ekki til starfa.
Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður
á Landspítala héldu fund í gær þar
sem kynnt var lögfræðileg álitsgerð
Viðars Más Matthíassonar hrl. um
að heilbrigðisráðherra væri ekki unnt
að framlengja uppsagnarfrest þess-
ara hópa um þijá mánuði eins og
gert hefur verið. Elínborg Stefáns-
dóttir, talsmaður hjúkrunarfræðinga,
sagði að engar ákvarðanir hefðu
verið teknar á fundinum, en hjúkrun-
arfæðingar og ljósmæður hefðu átt
óformlegar víðræður við stjóm Rík-
isspítala um lausn deilunnar. „Við
lítum svo á að Ríkisspítalar séu rétt-
ir viðsemjendur okkar og höfnum því
að félög hjúkrunarfræðinga semji
fyrir okkar hönd, þar sem um upp-
sagnir einstaklinga innan félaganna
er að ræða, en ekki aðgerð af hálfu
félaganna."
„Við erum að setja saman neyð-
aráætlum, höfum að mestu hætt að
taka við sjúklingum og reynum að
draga úr innlögnum eftir því sem
kostur er. Þá gæti farið svo að við
verðum að senda sjúklinga heim þeg-
ar líða tekur á vikuna ef þá verður
enn útlit fyrir að hjúkrunarfræðingar
komi ekki til starfa 1. febrúar. Við
höfum einnig rætt við önnur sjúkra-
hús um skipulag bráðavakta, en nán-
ari útfærsla á því Iiggur ekki fyrir,“
sagði Pétur Jónsson, framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs Ríkisspítalanna.
Pétur sagði að Ríkisspítalamir
væru að kanna hvaða grundvöllur
væri til sátta í deilunni við hjúkmnar-
fræðinga og ljósmæður. „Það er ekki
Ríkisspítalanna að semja, en við
ætlum að reyna að koma fram með
tillögur sem bæði þessir starfsmenn
og fjármálaráðuneytið geta fallist á.“
Blóðbankinn verður að starfa
„Ef hjúkmnarfræðingar koma
ekki til starfa 1. febrúar lamast starf-
semi Blóðbankans, því í blóðsöfnun-
ardeildinni vinna nær eingöngu
hjúkmnarfræðingar," sagði Olafur
Jensson, forstöðumaður Blóðbank-
ans. „Ég tel ömggt að samkomulag
náist við aðila vinnudeilunnar um að
halda starfseminni áfram hér. Við
emm alltaf með sólarhringsvakt,
enda aldrei að vita hvenær kallið
kemur. Við verðum að halda uppi
starfsemi fyrir slysavarðstofu og
fæðingardeildir. Þá myndi stöðvun
hér ekki eingöngu bitna á Landspítal-
anum, heldur einnig á hinum sjúkra-
húsunum sem við veitum þjónustu."
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 26, JANUAR
YFIRLIT: Við Færeyjar er 997 mb !ægð, sem hreyfist suðaustur. Yfir
Grænlandshafi er vaxandi hæðarhryggur, sem þokast austur.
SPÁ: Hæg norðlæg eða breytiieg átt. Léttskýjað sunnanlands og vestan
en annars skýjað en þurrt að mestu.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suður- og suðaustanátt með hlýnandi veðri.
Rigning eöa slydda, einkum þó sunnanlands og vestan.
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Reikna má með áframhald-
andi suðlægri átt, með éljum sunnanlands og vestan, en á norður- og
norðausturlandi verður úrkomulítið. Frost víðast á bilinu 0-4 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 10.30,
22.30. Svarsímí Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 900600.
a
Heiðskírt Léttskýjað
/ / / * / *
/ / * /
/ / / / * /
Rigning Siydda
& &
Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.,
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
stig
FÆRÐA VEGUM: oo.i7.30ígær)
Greiðfært er um vegi í nágrenni Reykjavíkur nema Mosfellsheiði er ófær. Fært
er fró Reykjavík um Suðurnes svo og austur um Hellisheiði og Þrengsli og
áfram með suðurströndinni til Austfjarða, nema vegur um Hvalnesskriður, sem
opnast um kl. 19. Á Austfjörðum eru flestir vegir ágætlega færir. Þá er fært
fyrir Hvalfjörð um Borgarfjörð og Snæfeilsnes. Einnig er fært um Heydal í Dali
og í Reykhóiasveit. Brattabrekka er ófær. Vegir í uppsveitum Borgarfjarðar
eru víða þungfærir. Á sunnanverðum Vestfjöröum er fært frá Brjánsiæk til
Patreksfjarðar og þaðan til Bíldudals. Frá ísaftrði er fært til Bolungarvfkur og
Suðavikur og sömuleiöis til Þingeyrar og Súgandafjarðar, en þungfært inn i
Djup og Steingrtmsfjarðarheiði er ófær. Þá er fært yfir Hoftavöröubeíði til
Hóimavikur og um Norðurland til Siglufjaröar, Ólafsfjarðar og Akureyrar. Frá
Akureyri er fært um Vikurskarð til Húsavikur og þaðan með ströndinni til
Vopnafjarðar. Þá er fært í Mývatnssveit um Mývatnsheiðí.
Upplýsingar um færö eru veittar hjá Vegaeftiriiti í síma 91-631500 og í grænní
línu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA
kl. 12.00 ígær
Akureyri
Reykjavík
hrti
4Ö
0
UM HEIM
að ísl. tíma
veöur
úrk.ígrennd
úrk.íflrennd
Bergen
Helsínki
Kaupmannahöfn
Narssarssuaq 4-1
Nuuk +9
Osló 42
Stokkhólmur 4
Þórshöfn 3
<kafrenningur
tnjókoma
haglél á sið. klst.
snjókoma
skýjað
léttsk«að
skýjað
slydduél
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berttn
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
LosAngeles
Lúxemborg
Madríd
Malaga
MaHorca
Montreal
NewYork
Orlando
Parfe
Madeira
Róm
Vin
Washington
Winnipeg
17 heiðskírt
5 alskýjað
vamar
3 haglél
48 téttskýjað
þoka
4 skúrásið.kbL
2 léttskýjað
4 skúrásið.klst
5 skýjað
14 alskýjað
3 skýjað
8 skýjað
12 heiðskírt
15 tóttskýjað
47 snjók.ásið.klsL
2 heiðskút
17 afekýjað
6 skýjað
18 léttskýjað
14 alskýjað
4 skúrásíð.klst.
vantar
422 fenálar
ÍDAG
Heimíid: Veðurstoía ísiands
(Byggt á veðurspá Id. 16.15 í gær)
Viðhorfskönnun Félagsvísindastofn-
unar Háskólans fyrir Morgnnblaðið
Félagsvísindastofnun Háskóla íslands hefur gert könnun
fyrír Morgunblaðið, þar sem spurt er um viðhorf almenn-
ings til blaðsins. Könnunin náði til úrtaks 1.000 Islendinga
á aldrinum 16 til 75 ára um allt land. Meðal annars voru
settar fram nokkrar fullyrðingar í könnuninni og svarend-
ur beðnir um að svara því til hvort þeir væru þeim sam-
mála eða ósammála.
Fullyrðing:
Morgunblaðið er góður vettvangur menningar og lista
724 svöruðu BBHH 55,5%
Morgunblaðið er lesið
ef maður vill fylgjast með
85% sammála -
12,9% ósammála
ER SETT var fram sú fullyrðing í könnun Félagsvísindastofnunar
að Morgunblaðið væri lesið, ef menn vildu fylgjast með, sagðist yfír-
gnæfandi meirihluti henni frekar eða mjög sammála, eða 85% svar-
enda. Ósammála voru hins vegar alls 12,9%.
Þeir, sem sögðust frekar sam- sammála. Rúmlega 2% gátu ekki
mála því, að Morgunblaðið væri gert upp hug sinn, 9,7% voru frek-
lesið ef menn vildu fylgjast með, ar ósammála og 3,2% mjög ósam-
voru 48,7% og 36,3% sögðust mjög mála.
Fullyrðing:
Morgunblaðið höfðar ekki til ungs fólks
Morgunblaðið er blað með ljótt útbt
26,2% sammála -
69,5% ósammála
„MORGUNBLAÐIÐ er blað með ljótt útlit,“ fuilyrtu spyrlar Félags-
vísindastofnunar. Rúmur fjórðungur þeirra sem svöruðu, eða 26,2%,
sögðust þessari fullyrðingu sammála en 69,5% sögðust henni ósam-
mála.
Þeir, sem sögðust mjög sammála hug sinn, voru 4,2%. Hins vegar
því að Morgunblaðið væri Ijótt, voru voru 44,5% frekar ósammála full-
7,3%, en frekar sammála sögðust yrðingunni og 25% mjög ósammála.
18,9%. Þeir, sem ekki gátu gert upp
Gripinn á skyndibitastað
ÁBERANDI öivaður maður var handtekinn á skyndibitastað við Lauga-
veginn um helgina er hann reyndi að borga hamborgara sem hann
keypti með stolinni hálsfesti. Við rannsókn kom í Ijós að hálsfestinni
hafði verið stolið í innbroti í gullsmíðastofu við Hallveigarstaði.
Afgreiðslumanninum á skyndi-
bitastaðnum fannst greiðslumáti
mannsins í hæsta máta grunsamleg-
ur, einkum þegar hann sá að verðm-
iði var enn áfastur hálsfestinni. Af-
greiðslumaðurinn hafði því samband
við lögreglu sem kom og handtók
hinn ölvaða. Við leit á honum fund-
ust fleiri skartgnpir úr framan-
greindu innbroti. Var verðmæti
þeirra áætlað um 100.000 krónur.
Rannsóknarlögreglan fékk síðan
málið til meðferðar.