Morgunblaðið - 26.01.1993, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993
5
.......... ........1~—r
Afangaskýrsla nefndar um mótun menntastefnu
Framhaldsskóla-
nám lengi námsár-
angrí í grunnskóla
í ÁFANGASKÝRSLU nefndar um mótun menntastefnu
og endurskoðun grunn- og framhaldsskólalaga, sem Ólaf-
ur G. Einarsson menntamálaráðherra skipaði, eru settar
fram 24 tillögur. Þrjár veigamestu tillögurnar eru full
yfirfærsla reksturs grunnskólans til sveitarfélaganna,
grundvallarbreytingar á námi á framhaldsstigi með
starfsmenntabrautum og almennum bóknámsbrautum,
og efling tengsla skóla og atvinnulífs.
Nefndin leggur til að horfið
verði frá þeirri stefnu að allt al-
mennt nám í framhaldsskólum sé
byggt þannig upp að það nýtist
sem hluti af stúdentsprófi. Þrjár
námsleiðir verði innan framhalds-
skólans og ráðist það af árangri
í grunnskóla hvaða leiðir nemend-
ur færu.
Þrjár námsleiðir
Nefndin leggur til að nemendur
sem hafa ekki náð námsmarkmið-
um grunnskólans, eða einkunn
undir 5, eigi kost á sérstöku námi,
fornámi, sem verði a.m.k. eins árs
nám. Að sögn Sigríðar Önnu Þórð-
ardóttur, formanns nefndarinnar,
er fornámið eins konar sér-
kennsluúrræði fyrir þann hóp
nemenda sem lakast stendur að
vígi.
Að loknu fornámi leggur nefnd-
in til að nemendur geti þreytt
gi-unnskólapróf á ný til þess að
geta hafið nám á öðrum námsleið-
um framhaldsskólans. Einnig
verður í boði áframhaldandi
starfstengt nám fyrir fornáms-
nemendur.
Lagt er til að komið verði á
eins árs gagnfræðanámi, sem
ljúki með framhaldsskólaprófi þar
sem samræmd próf verði í völdum
greinum. Til þess að geta hafið
gagnfræðanám þurfi nemendur
að hafa lokið grunnskólaprófi með
lágmarkseinkunninni 5. Til að
hefja nám á námsbrautum fram-
haldsskólans verði settar lág-
markskröfur um námsárangur,
einkunnin 6.
Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra sagði að hér væri
um verulegar breytingar á skóla-
kerfinu að ræða, sem miðuðu
m.a. að því að hjálpa nemendum
á framhaldsskólastigi út úr öng-
strætum. í ljós hefði komið að
nemendur úr framhaldsskólum
væru afar misjafnlega undir há-
skólanám búnir.
Skýrsla til Alþingis
Nefndin leggur til að stefnt
verði að því að fagleg og fjárhags-
leg ábyrgð á skólum, eftirlit, mat
á skólastarfi og ráðgjöf verði sem
næst starfsvettvangi skólans, t.d.
hjá sveitarfélögum, skólum,
Rannsóknastofnun uppeldis- og
menntamála og kennaramenntun-
arstofnunum á háskólastigi. Lagt
er til að heildarmat á menntakerf-
inu verði tekið upp á næstu árum
til afla áreiðanlegra upplýsinga
um þætti eins og innra eftirlit í
skólum, skólanámskrá, náms-
árangur nemenda og fleira. Rann-
sóknastofnun uppeldis- og
menntamála verði falið að gera
áætlanir um úttektir og stýra
þeim. Skýrsla um framkvæmd
menntastefnunnar verði lögð fýrir
Alþingi á tveggja ára fresti.
Samræmd próf
framhaldsskóla
Lagt er til að samræmd próf í
Ólafur G. Einarsson
grunnskólum verði efld og þeim
komið á í framhaldsskólum í
kjamagreinum, þ.e. íslensku,
ensku og stærðfræði. Lagt er til
að upplýsingamiðlun til almenn-
ings um skólastarf, framkvæmd
þess og árangur verði aukin og
markvisst rannsóknar- og þróun-
arstarf á sviði skólamála verði
eflt. Stefnt skuli að því að koma
á einsetnum skóla með samfelld-
um skóladegi um allt land, en slíkt
ákvæði hefur reyndar verið í
grunnskólalögum frá 1974.
Atvinnulíf og skóli
Lagt er til að iðnmenntun verði
samstarfsverkefni ríkis og við-
komandi starfstétta, jafnvel þann-
ig að atvinnulífið ákveði náms-
markmið einstakra iðngreina og
aðilar úr samtökum atvinnurek-
enda og launþega eigi sæti í stjórn
iðnmenntaskóla eða deilda innan
þeirra í tilraunaskyni. Eftirliti með
gæðum iðnnáms verði í höndum
menntamálaráðuneytis og at-
vinnulífsins. Mælt er með leng-
Sigríður A. Þórðardóttir
ingu á árlegum kennslutíma í
framhaldsskólum og það tengt við
hugmyndir innan nefndarinnar
um styttingu náms til stúdents-
próf í framhaldsskólum um eitt ár.
Sveitarfélög reki
grunnskólann
Þá er lagt til að rekstur grunn-
skóla færist að fullu til sveitarfé-
laga. Gert er ráð fýrir að í hverju
skólahverfi starfi skólanefnd sem
sé sveitarstjórn til ráðgjafar um
málefni skóla, en sérskólar og
sérdeildir verði á ábyrgð svéitarfé-
Iaga. Sett verði á laggirnar nefnd
fulltrúa ríkis og sveitarfélaga til
að meta kostnað af tilfærslunni
og gerðar verði tillögur um með
hvaða hætti sveitarfélögum yrðu
tryggðar nauðsynlegar tekjur og
hvernig jafna megi kostnaði milli
sveitarfélaga. Kostnaður ríkisins
af grunnskólunum er á yfirstand-
andi skólaári um fimm milljarðar
kr. Þá er bent á að gera þarf
nákvæma úttekt á réttarstöðu
kennara við tilfærsluna.
'♦GREIÐSl
Landsbanki
islands
Bankl allra landsmanna
. .._„__jóður léttir glöggum
gjaldkerum lífið:
I Innheimtir félagsgjöldin.
II Greiðir reikningana á eindaga.
III Heldur utan um bókhaldið.
IV Innheimtir dráttarvexti.
OFLUG
FJÁRMÁLAÞJÓNUSTA
FYRIR HÚSFÉLÖG OG
ÖLL ÖNNUR FÉLÖG
Þjónustan er án endurgjalds
fyrstu þrjá mánuðina. Leitið
upplýsinga hjá þjónustu-
fulltrúanum í bankanum.