Morgunblaðið - 26.01.1993, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993
ÚTVARPSJÓNVARP
SJONVARPIÐ
18.00
RARNAEFNI ►s'órænin9ja
UhIUIhLI nl sögur (Sandokan)
Spænskur teikniniyndaflokkur sem
gerist á slóðum sjóræningja í Suður-
höfum. Helsta söguhetjan er tígris-
dýrið Sandokan sem ásamt vinum
sínum ratar í margvíslegan háska
og ævintýri. Þýðandi: Ingi Karl Jó-
hannesson. Leikraddir: Magnús
Ólafsson og Linda Gísladóttir. (7:26)
18.30 ►Trúður vill hann verða (Clowning
Around) Ástralskur myndaflokkur
um munaðarlausan pilt, sem þráir
að verða trúður, og beitir öllum
brögðum svo að það megi takast.
Aðalhlutverk: Clayton Williamson,
Ernie Dingo, Noni Hazlehurst, Van
Johnson og Jean Michel Dagory.
Þýðandi: Ýrr Bertelsdóttir. (1:8)
18.55 ►Táknmálsfréttir
19.00 hfl-TTID ►Auðlegð og ástríður
r/CI IIII (The Power, the Passi-
on) Ástralskur framhaldsmynda-
flokkur. (74:168)
19.30 ►Skálkar á skólabekk (Parker
Lewis Can’t Lose) Bandarískur ungl-
ingaþáttur. Þýðandi: Guðni Kolbeins-
son. (14:24)
20.00 ►Fréttir og veður
20.35 hlCTTID ►Fólkið í landinu - Þú
rltl IIII verður að hafa ævin-
týrið í þér Ómar Valdimarsson ræð-
ir við Skúla Waldorff starfsmanna-
stjóra Hitaveitu Reykjavíkur. Skúli
vann áður i átta ár í Angóla á vegum
sænskrar hjálparstofnunar og í þætt-
inum segir hann frá landi og þjóð,
og kynnum sínum af galdramönnum
sem enn eru í hávegum hafðir þar í
landi. Dagskrárgerð: Verksmiðjan.
21.05 ►Ormagarður Fyrsti þáttur (Tagg-
art - Nest of Vipers) Skoskur saka-
málamyndaflokkur með Taggart lög-
regiuforingja í Glasgow. Seinni þætt-
irnir tveir verða sýndir á miðviku-
dags- og fimmtudagskvöld. Leik-
stjóri: Graham Theakson. Aðalhlut-
verk: Mark McManus, James MacP-
herson og Blythe Duff. Þýðandi:
Gauti Kristmannsson. (1:3)
22.00 ►! Rússlandsdeildinni (Inside The
Russia House) Bresk heimildarmynd
þar sem fylgst er með tökum á kvik-
myndinni Rússlandsdeildinni , sem
byggð er á njósnasögu eftir breska
höfundinn John le Carré, einni þeirri
fyrstu sem gerist á tímum pere-
strojku. Pjallað er um ritstörf le Carr-
és og viðtökur verka hans í Rúss-
landi, og meðal annars rætt við hann
sjálfan, leikarana Sean Connery og
Michelle Pfeiffer, leikstjórann Fred
Schepisi, rússneska njósnasagnahöf-
unda og Kötju Rashdestvenskaju sem
þýtt hefur verk le Carrés á rússn-
esku. Þýðandi og þulur: Gunnar Þor-
steinsson.
23.00 ►Ellefufréttir og dagskrárlok
STOÐ TVO
16.45 ►Nágrannar Ástralskur framhalds-
myndaflokkur sem flallar um líf og
störf góðra granna við Ramsay-
stræti.
17 30 RADUAFCIII ►Dýrasögur
DHRNHCrm Skemmtilegar
sögur úr heimi dýranna.
17.45 ►Pétur Pan Teiknimyndaflokkur
um ævintýri Péturs Pan.
18.05 ►Max Glick Framhaldsmyndaflokk-
ur um táningsstrákinn Max. (22:26)
18.30 ►Mörk vikunnar Endurtekinn þátt-
ur frá því í gærkvöldi.
19.19 ►19:19 Fréttir og veður
20.15 hiCTTID ►Eiríkur Viðtalsþáttur
rlCI IIH í beinni útsendingu.
Umsjón: Eiríkur Jónsson.
20.30 ►Leitað hófanna - íslenski hestur-
inn í Hollywood - Þáttur þar sem
Jón Örn Guðbjartsson fylgdi átta
knöpum og jafnmörgum íslenskum
hrossum vestur um haf á mikla
hestasýningu sem fram fór í Holly-
wood. Umsjón: Jón Örn Guðbjarts-
son. Kvikmyndataka: Magnús Viðar
Sigurðsson.
21.00 ►Delta Gamansamur myndaflokkur
um þjóðlagasöngkonuna upprenn-
andi. (4:13)
21.30 ►Lög og regla (Law and Order)
Bandarískur sakamálaflokkur sem
gerist á götum New York borgar.
(18:22)
22.20 ►Sendiráðið (Embassy) Ástralskur
framhaldsmyndaflokkur um líf og
störf sendiráðsfólks. (11:12)
23.10 |fU||f||VUn ►Stórkostlegt
nvlnfrlIIILI stefnumót (Dream
Date) Fyrsta stefnumót stúlku er
föður hennar sannkölluð martröð.
Dani er því að vonum ánægð þegar
henni hefur tekist að róa föður sinn
og sannfæra hann um að allt verði
í stakasta lagi á þessu fyrsta stefnu-
móti hennar með fyrirliða knatt-
spymuliðs skólans. En pabbi gamli
er ekki allur þar sem hann er séður
því hann hefur síður en svo hug á
að senda prinsessuna sína „eina“ á
stefnumótið! Þetta er gamanmynd
fyrir alla flölskylduna. Aðalhlutverk:
Clifton Davis, Tempest Bledsoe og
Kadeem Hardison. Leikstjóri: Anson
Williams. 1989.
0.45 ►Dagskrárlok
Sim - Fósturmóðir Sims er ekki par hrifin af hugmyndum
hans um að verða tróður.
Sim er staðráðinn
í að verða trúður
Fósturforeldr-
arnir vilja að
hann verði
hifvélavirki
Trúðurinn - Sim Gunn-
er á sér enga ósk heit-
ari en að verða trúður.
SJÓNVARPIÐ KL. 18.30 Trúður
vill hann verða er nafnið á áströlsk-
um myndaflokki í átta þáttum, sem
sýndur verður næstu þriðjudaga.
Aðalsöguhetjan er íjórtán ára pilt-
ur, Simon Gunner, sem er svo gott
sem munaðarlaus. Hann hefur verið
á þvælingi milli uppeldisstofnana
og fósturheimila síðan hann var níu
ára en þá yfirgaf móðir hans hann.
Simon, eða Sim eins og hann er
kallaður, hefur sett sér það tak-
mark að verða trúður en fósturfor-
eldrar hans vilja endilega að hann
verði bifvélavirki. Sim er staðráðinn
í að láta draum sinn rætast og
bregður því á það ráð að stijúka
að heiman. Hann fær vinnu hjá
farandsirkus og flakkar víða, og
alls staðar leynast ævintýri. í hlut-
verki Sims er Clayton Williamson.
Þýðandi er Ýrr Bertelsdóttir.
íslenski hesturinn á
aðdáendur í Kaliforníu
Leitað hófanna
er þáttur um
kynningu á
íslenska
hestinum
vestan hafs
STÖÐ 2 KL. 21.50 í haust fóru
átta íslenskir knapar með gæðinga
sína til Hollywood þar sem þeir tóku
þátt í mikilli hestasýningu. Jón Örn
Guðbjartsson fylgdi knöpunum eftir
en í fylkingarbijósti fór Sigurbjörn
Bárðarson. Jón Örn segir að íslenski
hesturinn hafi slegið eftirminnilega
í gegn vestan hafs en hann fylgdist
með sýningunni og spurði banda-
ríska hestamenn álits á fákunum. Á
meðal þeirra sem Jón Örn ræðir við
í þættinum í kvöld er Michael Salom-
on, forstjóri kvikmyndafyrirtækisins
Warner Brothers, en Michael á sjálf-
ur tvo íslenska hesta. Auk þess sýn-
ir Jón Örn myndir frá sýningunni,
fylgist með knöpunum og skoðar
möguleika íslenska hestsins í
Vesturheimi. Kvikmyndatökumaður
í ferðinni var Magnús Sigurðsson
en aðstoð við dagskrárgerð var í
höndum Elsu Bjargar Þórólfsdóttur.
Hann
vex...
Þinn draumur býr þeim
mikla mætti yfir/ að mynda
sjálfstætt líf, sem ógnar þér.
Þessar ljóðlínur úr hinu al-
kunna kvæði Steins Steinars
í draumi sérhvers manns
koma stundum upp í hugann
er ákveðnir pistlahöfundar
taka til máls á Rás 2. Draum-
ar eru lífseigir, ekki síst
draumar um sæluríki þar sem
allir eru góðir og réttlátir.
Margir vilja hlusta á slíkt
fagnaðarerindi á krepputím-
um. En svo komast menn í
opinberar ábyrgðarstöður og
þá hverfur stundum draum-
sýn bak við gráleit tjöld veru-
leikans. Opinberir starfsmenn
verða jú að gæta hæfilegs
hlutleysis í starfi. Samt deyja
ekki draumarnir heldur öðlast
ósjaldan sjálfstætt líf.
Draumalífið
Sigríður Rósa Kristinsdótt-
ir, Illugi Jökulsson og Óskar
Guðmundsson flytja öll pistla
á Rás 2. Draumfarir Sigríðar
Rósu og Illuga eru stundum
einkennilega samhljóma. Þar
fara tveir ógurlegir drekar
með aðalhlutverk og fer mikil
orka í að kveða þá niður. Líð-
ur varla sá pistill að drekam-
ir ólmist ekki og fnæsi. Annar
drekinn nefnist „ríkisstjórnin“
og hinn „EES“. Draumar Sig-
ríðar Rósu eru reyndár mun
svæsnari en Illuga. Þannig
minntist hún á þann voðalega
Evrópusinna Uffa Elleman
fráfarandi utanríkisráðherra
Dana í seinasta pistli. Uffi
hafði víst yglt sig í sjónvarps-
viðtali er „ríkisstjórnina" bar
á góma og réð þá Sigríður
Rósa af látbragðinu að Uffi
vissi sennilega eitthvað
óskaplega ljótt um stjórnina.
Óskar er mun varfærnari og
endaði seinasta pistil á því að
lýsa því yfir að hann myndi
ljúka tölu áður en hún yrði ...
meira pólitísk en fagleg.
Sagði ekki í kvæði Steins
... með dularfuilum hætti/ rís
draumsins bákn og jafnframt
minnkar þú.
Ólafur M.
Jóhannesson
UTVARP
RÁS 1
FM 92,4/93,5
6.45 Veöurfregnir, Bæn.
7.00 Fréttir, Morgunþáttur Rásar 1.
Hanna G. Sigurðardóttir og Trausti Þór
Sverrisson. 7.30 Fréttayfirlit. Veður-
fregnir. Heimsbyggð. Af norrænum
sjónarhóli Tryggvi Gíslason. 7.50 Dag-
legt mál, Ólafur Oddsson flytur þáttinn.
8.00 Fréttir. 8.10 Pólitíska hornið Nýir
geisladiskar. 8.30 Fréttayfirlit. Úr
menningarlífinu. Gagnrýni. Menningar-
fréttir utan úr heimi.
9.00 Fréttir.
9.03 Laufskálinn. Afþreying í tali og tón-
um. Umsjón: Bergljót Baldursdóttir,
9.45 Segðu mérsögu, „Ronja ræningja-
dóttir" eftir Astrid Líndgren. Þorleifur
Hauksson les eigin þýðingu (24).
10.00 Fréttir.
10.03 Morgunleikfimi með Halldóru
Björnsdóttur.
10.10 Árdegistónar.
10.45 Veðurfregnir.
11.00 Fréttir.
11.03 Byggðalínan Landsútvarp svæðis-
stöðva í umsjá Arnars Páls Hauksson-
ar á Akureyri. Stjómandi umræðna auk
umsjónarmanns er Finnbogi Her-
mannsson á ísafirði.
11.53 Dagbókin.
12.00 Fréttayfirlit á hádegi.
12.01 Að utan.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir.
12.50 Auðlindin. Sjávarútvegs- og við-
skiptamál.
12.57 Dánarfregnír. Auglýsingar.
13.05 Hádegísleikrit Útvarpsleikhússins.
„i aíkima” eftir Somerset Maugham
Sjöundi þáttur af tíu. Pýðing: Torfey
Steinsdóttir. Leikstjóri: Rúrik Haralds-
son. Leikendur: Róbert Arnfinnsson,
Hjalti Rögnvaldsson, Guðmundur Páls-
son og Helgi Skúlason. (Áður útvarþað
1979.)
13.20 Stefnumót. Listir og menníng,
heima og heiman. Umsjón: Bergþóra
Jónsdóttir, Halldóra Friðjónsdóttir og
Sif Gunnarsdóftir.
14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan, „Hershöfðingi
dauða hersíns" eftir Ismaíl Kadare
Hrafn E. Jónsson þýddi, Arnar Jónsson
les (17).
14.30 Kjarni málsins. Atvinnuleysi. Um-
sjón: Arnar Páil Hauksson.
15.00 Fréttir,
15.03 Á nótunum. Umsjón: Sigríður
Stephensen.
16.00 Fréttir.
16.05 Skíma. Fjölfræðiþáttur fyrir fólk á
öllum aldri. Umsjón: Asgeir Eggertsson
og Steínunn Harðardóttir. Meðal efnis
í dag: Heimur rauiivísinda kannaður
og blaðað í spjöldum trúarbragðasög-
unnar með Degi Þorleifssyní. 16.30
Veðurfregnir. 16.45 Fréttir. Frá frétta-
stofu barnanna.
17.00 Fréttir.
17.03 Að utan.
17.08 Sólstafir. Tónlist á siðdegi. Um-
sjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
18.00 Fréttír.
18.03 Þjóðarþel. Egils saga Skallagríms-
sonar. Árni Björnsson les (17). Ragn-
heiður Gyða Jónsdóttir rýnir i textann
og veltir fyrir sér forvitnilegum atriðum,
18.30 Kviksjá. Meðal efnis er listagagn-
rýni úr Morgunþætti. Umsjón: Halldóra
Friðjónsdóttir og Sif Gunnarsdóttir.
18.48 Dánarfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar. Veðurfregnir,
19.35 „í afkima" eftir Somerset Maug-
ham Sjöundi þáttur af tíu. Endurflutt
hádegisleikrit.
19.50 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá
morgni, sem Ólafur Oddsson flytur.
20.00 Islensk tónlíst. Sónata eftir Þor-
stein Hauksson. Tölvuverk á segul-
bandi.
20.30 Fjórða krossferðin. Umsjón: Sigríð-
ur Svana Pétursdóttir. (Áður útvarpað
i fjölfræðiþættinum Skimu fyrra mánu-
dag.)
21.00 ísmús. Frá Tónmenntadögum Rik-
ísútvarpsins i fyrravetur. Kynning á
gesti hátiðarinnar, Blake Wilson, pró-
fessor við Vanderbilt háskólann í Nas-
hville í Tennessee í Bandarikjunum.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir. (Áður
útvarpað sl. miðvikudag.)
22.00 Fréttir.
22.07 Pólítíska hornið.
22.15 Hér og nú.
22.27 Orð kvöldsins.
22.30 Veðurfregnir.
22.35 Uglan hennar Mínervu. Syrpa um
upplýsinguna. Umsjón: Arthúr Björgvin
Bollason. (Áður útvarpað sl. sunnu-
dag.)
23.15 Djassþáttur. Umsjón: Jón Múli
Árnason. (Einnig útvarpað á laugar-
dagskvöldi kl. 19.35.)
24.00 Fréttir.
0.10 Sólstafir. Endurtekinn tónlistarþátt-
ur frá síðdegi.
1.00 Næturútvarp.
RÁS2
FM 90,1/94,9
7.03 Morgunutvarpið. Vaknað til lifsins.
Kristín Ólafsdóttir og Kristján Þorvaldsson.
Veðurspá kl. 7.30. Margrét Rún Guð-
mundsdðttir hringir frá Þýskalandi. 9.03
Eva Ásrún og Guðrún Gunnarsdóttir.
íþróttafréttir kl. 10.30.12.45 Hvítir máfar.
Gesfur Einar Jónasson. 14.03 Snorralaug.
Umsjón: Snorri Sturluson.16.03 Dægur-
málaútvarp og fréttir. Starfsmenn dægur-
málaútvarpsins og fréttaritarar heima og
erlendis rekja stór og smá mál dagsins.
Veðurspá kl. 16.30. 18.03 Þjóðarsálin.
Sigurður G. Tómasson og Leifur Hauks-
son. 18.30 Lottóbikarkeppnin i handknatt-
leik í Noregi. fsland-Rúmenía. Arnar
Björnsson lýsir síðari hálfleik. 19.30 Ekki
fréttir. Haukur Hauksson. 19.32 Spurn-
ingakeppni framhaldsskólanna. Fjöl-
brautaskólinn í Ármúla keppir við Verk-
menntaskóla Austurlands í Neskaupstað.
Spyrjandi: Ómar Valdimarsson. Dómari:
Álfheiður Ingadóttír. 20.00 Úr ýmsum átt-
um. Umsjón: Andrea Jónsdóttir. 22.10
Gyða Dröfn Tryggvadóttir og Margrét
Blöndal. Veðurspá kl. 22.30. 0.10 Gyða
Dröfn Tryggvadóttír. 1.00 Næturútvarp.
Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12,
12.20,14,15, 16, 17,18, 19, 22 og 24.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.00 Næturtónar. 1.30 Veðurfregnir. 1.35
Glefsur úr dægurmálaútvarpi þriðjudagsins.
2.00 Fréttir - Næturtónar. 4.00 Næturlög.
4.30 Veðurfregnir - Næturlög. 5.00 Fréttir.
5.05 Gyða Dröfn Tryggvadóttir og Margrét
Blöndal. 6.00 Fréttir af veðri, færð og flug-
samgöngum. 6.01 Morguntónar. 6.45 Veð-
urfregnir. Morguntónar hljóma áfram.
LANDSHLUTAÚTVARPÁ
RÁS2
8.10-8.30 og 18.35-19.00 Útvarp Norður-
land.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9/ 103,2
7.00 Það hálfa væri nóg. Morgunþáttur
Aðalstöðvarinnar. Umsjón: Davíð Þór
Jónsson. 9.05 Katrin Snæhólm Baldurs-
dóttir. 10.00 Sigmar Guðmundsson.
13.00 Páll Óskar Hjálmtýsson. 16.00 Síð-
degisútvarp Aðalstöðvarinnar. Umsjón:
Jón Atli Jónasson.18.30 Tóniist. 20.00
Magnús Orri Schram. 24.00 Voice of
America.
BYLGJAN FM 98,9
6.30 Þorgeir Áslvaldsson og Eiríkur Hjálm-
arsson. 9.05 íslands eina von. Erla Frið-
geirsdóttir og Sigurður Hlöðversson.
13.10 Ágúst Héðinsson. 16.05 Reykjavík
síðdegís. Hallgrímur Thorsteinsson og
Auðun Georg Ölafsson. 18.30 Gullmolar.
20.00 Kristófer Helgason. 23.00 Kvöld-
sögur. Hallgrimur Thorsteinsson. 24.00
Næturvaktin Fréttir á heila tímanum frá
kl. 7 til kl. 18 og kl. 19.30, fréttayfirlit
kl. 7.30 og 8.30, íþróttafréttir kl. 13.00.
BROSIÐ FM 96,7
7.00 Kristján Jóhannsson. 9.00 Grétar
Miller. 12.00 Hádegistónlist. Fréttir kl.
13.00. 13.05 Rúnar Róbertsson. 16.00
Ragnar Örn Pétursson og Hafliði Kristjáns-
son. Fréttayfirlit og íþróttafréttir kl. 16.30.
18.00 Lára Yngvadóttir. 19.00 Sigurþór
Þórarinsson. 23.00 Plötusafnið. Aðal-
steinn Jónatansson. 1.00 Næturtónlist.
FM 957 FM 95,7
7.00 Steinar Viktorsson. 9.05 Jóhann Jó-
hannsson, 11.05 Valdís Gunnarsdóttir.
Blómadagur. 14.05 ívar Guðmundsson.
16.05 Árni Magnússon ásamt Steinari
Viktorssyni. Umferðarútvarp kl. 17.10.
18.05 Ragnar Bjamason. 19.00 Halldór
Backman. 21.00 Hallgrímur Kristinsson.
24.00 Valdís Gunnarsdóttir, endurt. 3.00
(var Guðmundsson, endurt. 5.00 Árni
Magnússon, endurt.
Fréttir kl. 8, 9,10,12,14,16,18, íþrótt-
afréttir kl. 11 og 17.
HUÓÐBYLGJAN
AkureyriFM 101,8
17.00-19.00 Pálmi Guömundsson. Fréttir
frá fréttastofu Bylgjunnar/Stöð 2 kl. 17.00
og 18.00.
SÓLIN FM 100,6
7.00 Guðjón Bergmann. 9.00 Birgir Ö.
Tryggvason. 12.00 Arnar Albertsson.
15.00 Pétur Árnason. 18.00 Haraldur
Daði. 20.00 Þungavigtin. Bósi. 22.00 Stef-
án Sigurðsson.
STJARNAN FM 102,2
7.00 Morgunútvarp Stjörnunnar. Tónlist
ásamt upplýsingum um veður og færð.
9.05 Sæunn Þórisdóttir. 10.00 Saga barn-
anna. 11.00 Ólafur Jón Ásgeirsson. 13.00
Jóhannes Ágúst. 17.15 Barnasagan end-
urtekin. 17.30 Lifið og tilveran. Ragnar
Schram. 19.00 íslenskir tónar. 20.00 Sig-
urjón. 22.00 Guðlaug Helga Ingadóttir.
24.00 Dagskrárlok.
Bænastund kl. 7.15, 9.30,13.30, 23.50.
Fréttir kl. 7, 8, 9, 12, 17, 19.30.