Morgunblaðið - 26.01.1993, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993
19
Lyndiseiiikunnir forsætisráðherra Danmerkur
Poul Nyrup Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur. Ferill hans
innan Jafnaðarmannaflokksins er mjög óvenjulegur, því venjulega
hafa leiðtogarnir byrjað innan ungmennasamtakanna og síðan fetað
sig áfram hægt og bítandi.
Eínstök vinnusemi en
djúpt á kímnigáfunni
Viö smypjwn bílinn á meðan
Þú (ærö þér kaffi ng meö því,
kikir (blöðin - eða sknöar
nrvaliö í versluninni.
Smurstöö fyrir allar tegundir
bíla - ng fnlk!
Kaupmannahöfn. Fra Sigrunu Davídsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
POUL Nyrup Rasmussen sest í stól forsætisráðaherra með gei-
slabaug um höfuðið. Þótt danskir blaðamenn hafi leitað með
logandi ljósi að einhverju misjöfnu um nýorðinn forsætisráð-
herra, þá hefur varla annað fundist en að hann sé óstundvís.
Að öðru leyti virðist allt gott um hann að segja. En það var
ekki að ástæðulausu sem hann sagði við Poul Schluter, fráfar-
andi forsætisráðherra, þegar þeir kvöddust í forsætisráðuneyt-
inu í gær að hann dáðist framar öðru að skopskyni hans og
vildi gjarnan geta tileinkað sér það. Nyrup á langt í Iand með
að ná forvera sínum að því leyti.
Einstök vinnusemi og úthald hefur
alla tíð einkennt hann, rétt eins og
Bill Clinton, sem Danir bera Nyrup
saman við, úr því þeir taka við emb-
ætti nokkurn veginn samtímis. Hann
fæddist 15. júní 1943 í Esbjerg á
Jótlandi. Rétt eins og Clinton ólst
hann upp við kröpp kjör, en gekk
menntaveginn. Móðirin var hrein-
gerningarkona og faðirinn ferðaðist
um og sýndi kvikmyndir. Eftir-
menntaskóla lá leiðin til Kaupmanna-
hafnar, þar sem hann byijaði í verk-
fræði, en skipti fljótlega yfir í hag-
fræði, og prófí í því fagi lauk hann
1971. Hann fór strax að vinna hjá
danska alþýðusambandinu, fyrst í
Brussel. Hann var þá kvæntur og
átti dóttur, sem er hans eina barn.
í sautján ár vann hann hjá samband-
inu, var einn fárra háskólamenntaðra
manna sem þar unnu. Þá lá leiðin í
enn annað vígi jafnaðarmanna, er
hann varð forstjóri Dýrtíðarsjóðs
launþega. Undir hans stjórn breyttist
sjóðurinn úr rykfallinni stofnun í
áhrifavald í dönsku fjármálalífi, því
sjóðurinn er vellauðugur. Með um-
svifum sínum hafði sjóðurinn mikil
áhrif á fjárfestingar annarra laun-
þegasjóða, til dæmis lífeyrissjóða,
sem fóru út í arðbærari og djarfari
fjárfestingar, en áður hafði þekkst.
Nyrup hafði aldrei gegnt ábyrgð-
arstöðum innan Jafnaðarmanna-
flokksins þegar hann varð varafor-
maður 1987. Árið eftir var hann kjör-
inn á þing og 1992 varð hann for-
maður flokksins. Ferill hans innan
flokksins er mjög óvenjulegur, því
venjulega hafa leiðtogarnir byijað
innan ungmennasamtakanna og síð-
an fetað sig áfram hægt og bítandi.
Þegar stjómmálamenn eru annars
vegar spyija Danir einatt hvort við-
komandi sé alþýðlegur eða hifí á sér
háskóla- og gáfumannasvip. Hvað
Nyrup viðvíkur hefur hann fengið
orð á sig fyrir að hafa alþýðlegan
smekk, þó vinir hans segi að í bóka
skápnum séu líka bækur eftir höí-
unda eins og Jean-Paul Sartre og
Albert Camus. Hann sést sjaldan á
sinfóníutónleikum, utan þegar hann
mætti á Pavarotti-tónleika síðastliðið
sumar með Lone Dybkjær, einum af
forsvarsmönnum Róttæka vinstri-
flokksins, en þann dag opinberuðu
þau trúlofun sína.
Vinir hans og samstarfsmenn
segja hann lifa eins og hann tali,
hann sé hjálpfús og megi ekkert
aumt sjá. En hann þykir líka bera
þess merki að leið hans inn í stjórn-
málin lá úr háskóla með viðkomu á
skrifstofu alþýðusambandsins. Hann
ber ekki utan á sér eldlegar hugsjón-
ir, hann hrífur ekki fólk með inn-
blásnum ræðum, heldur er varkár,
stilltur og orðvar. Maður málamiðl-
ana og sátta. Sérgrein hans er að
segja það sem hann ætlar sér, ekki
að svara spurningum.
Ráðlagt að gifta sig
Ráðið, sem Poul Schluter gaf eftir-
manni sínum í sjónvarpinu á sunnu-
dagskvöldið var að drífa sig nú í
hjónaband með Lone Dybkjær. Hann
myndi örugglega fljótt fínna fyrir
því að í þessu starfí væri gott að
eiga góðan bakhjarl. Schliiter lét
þess þó ógetið að þau búa þegar
saman, svo hjónabandið gerir
kannski hvorki til né frá. Hins vegar
spillir rómantíkin varla fyrir vinsæld-
um Nyrups, því fjölmiðlar vaka yfír
hjónaleysunum. En tíminn einn leiðir
í þós hvort mikið breytist við það
að einn Poul kveður og annar tekur
við.
KíWíblöðiníveitingastofu.
Lykketoft
Jelved
Sjursen
Ráðherralisti dönsku
rí kisstj órnarinnar
RAÐHERRAR í nýrri ríkisstjórn Danmerkur eru sem hér segir:
• Forsætisráðherra: Poul Nyrup Rasmussen, Jafnaðarrnannaflokknum
• Utanríkisráðherra: Niels Helveg Petersen, Róttæka vinstriflokknum
•Ráðherra þróunaraðstoðar: Helle Degn, Jafnaðarmannaflokknum
• Fjármálaráðherra: Mogens Lykketoft, Jafnaðarmannaflokknum
•Atvinnumálaráðherra: Jytte Andersen, Jafnaðarmannaflokknum
• Orkumálaráðherra: Jan Sjursen, Kristilega þjóðarflokknum
•Ráðherra húsnæðismála, norrænnar samvinnu og samskipta við
A-Evrópu: Flemming Kofoed-Hansen, Kristilega þjóðarflokknum
•Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra: Bjorn Westh, Jafnaðarm.fl.
•Varnarmálaráðherra: Hans Hækkerup, Jafnaðarmannaflokknum
•Innanríkisráðherra: Birthe Weiss, Jafnaðarmannaflokknum
• Dómsmálaráðherra: Pia Gjellerup, Jafnaðarmannaflokknum
• Iðnaðarráðherra: Jan Trojborg, Jafnaðarmannaflokknum
• Umhverfisráðherra: Svend Auken, Jafnaðarmannaflokknum
•Efnahagsráðherra: Marianne Jelved, Róttæka vinstriflokknum
• Menningarmálaráðherra: Jytte Hilden, Jafnaðarmannaflokknum
• Samgönguráðherra: Helge Mortensen, Jafnaðarmannaflokknum
•Ráðherra fjarskiptamála: Arne Melchior, Miðdemókrötum
• Skattamálaráðherra: Ole Stavad, Jafnaðarmannnaflokknum
• Félagsmálaráðherra: Karen Jespersen, Jafnaðarmannaflokknum
• Menntamálaráðherra: Ole Vig Jensen, Róttæka vinstriflokknum
•Kirkjumálaráðherra: A. D. Andersen, Miðdemókrötum
•Ráðherra tæknimála og vísindarannsókna: Svend Bergstein, Miðd.
•Viðskiptaráðherra: Mimi Jakobsen, Miðdemókrötum
•Heilbrigðisráðherra: Torben Lund, Jafnaðarmannaflokknum
Skeljungur hf.
Einkaumboö fyrir Shell-vörur á íslandi
HEKLA
SMURSTÖÐ
LAUGAVEGI 174
SÍMI695500
SÍMI 695670