Morgunblaðið - 26.01.1993, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993
STEINAR WAAGE
EININGABRÉF2
Eignarska
Raunávöxtun
sl. 12 mánuði
TTSFRJALS
KAUPÞING HF
iJjggilt verðbréfafyrirtœki
Kringlunni 5, sími 689080
í eigu Húnaðarbanka íslands og sparisjóðanna
Góóan daginn!
Sýning
Tæki frá Marel hf.
vekja athygli
TÆKI frá Marel hf. vöktu athygli á sýningu fyrir kjúklingaiðnað í
Atlanta í Bandaríkjunum í síðustu viku. Geir A. Gunnlaugsson fram-
kvæmdastjóri Marels segir að frá sjónarhóli fyrirtækisins hafi sýning-
in tekist eins vel og menn þorðu að vona.
Sýningin í Atlanta er stærsta
sýningin af þessu tagi í Bandaríkj-
unum, en hún stóð frá miðvikudegi
til föstudags. Marel hf. hefur áður
tekið þátt í þessari sýningu, en í
þetta skipti sýndi fyrirtækið með
Johnson Food Equipment, sem er
einn af stærstu tækjaframleiðend-
um fyrir kjúklingaiðnað í Banda-
ríkjunum og hefur tekið að sér
umboð fyrir Marel þar í landi.
„Við vorum þama á mjög stórum
bás með Johnson Equipment og
tækin okkar fengu því mun meiri
athygli en ella. Það var mjög mik-
ill áhugi á tækjunum sem við sýnd-
um og stærsti aðili í kjúklingaiðnað-
inum í Bandaríkjunum fær eitt
þeirra nú til reynslu,“ sagði Geir.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
heimsótti sýninguna í Atlanta á
föstudaginn og sagði við Morgun-
blaðið, að tækin sem Marel sýndi
hefðu vakið mikla athygli. „Það er
óhætt að segja að þessi tæki séu
þau sem lengst eru komin tæknilega
af þeim tækjabúnaði sem þar var
sýndur. Það boðar gott um að ís-
lendingar geti selt þekkingu sína í
fiskiðnaði til annarra greina," sagði
Jón.
Byggist á tölvusjón
Tækin sem Marel sýndi voru
upphaflega hönnuð fyrir fiskiðnað
en hafa verið þróuð til að nýtast
kjúklingaiðnaðinum. Þau eru ann-
ars vegar myndgreiningarflokkari
eða formflokkari sem byggir á
tölvusjón. Flokkarinn flokkar kjúkl-
ingahluta eða fískhluta eftir lögun
þeirra. Hins vegar er hjúpmælir sem
einnig byggist á tölvusjón og getur
mælt þykkt bökunarefnishjúps á
físk- eða kjötstykkjum sem á að
djúpsteikja. Bæði þessi tæki eru
nánast þau einu sinnar tegundar í
heiminum, að sögn Geirs A. Gunn-
laugssonar.
Hann sagði að nú væri framund-
an að vinna úr sýningunni, en mjög
mikið hefði borist af fyrirspurnum.
„Reynslan verður að skera úr um
hvort við náum fótfestu á þessum
markaði. Okkur hefur tekist að
vekja á okkur góða athygli og nú
er að sjá hvort okkur tekst að selja
þessi tæki í framhaldi af því,“ sagði
Geir.
ALFA-LAVAL
— Globus hf. hefur
tekið við sölu og þjón-
ustu á landbúnaðar-
tengdum vörum frá
sænska fyrirtækinu
Alfa-Laval. Hér er um
að ræða eitt stærsta
fyrirtækið í heiminum í
framleiðslu á mjalta-
kerfum en það hefur
auk þess á boðstólum
mikið úrval rekstrar-
vara og tækja fyrir
landbúnað, að því er
fram kemur í frétt frá
Globus. Yfír 90% ís-
lenskra bænda nota
mjaltakerfi þessarar
tegundar. Á myndinni
eru f.v. Þórður Hilmars-
son, forstjóri Globus og
Erik Bergseng fulltrúi
Alfa-Laval sem gengu
nýlega frá samkomulagi
milli fyrirtækjanna.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
Gæðastjórnun í íslenskum fyrirtækjum
- breytt hlutverk stjórnenda
Morgunverðarfundur Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga
fimmtudaginn 28. febrúar nk. kl. 8.00-9.30 á Hótel Holiday Inn.
Mörg íslensk fyrirtæki í ýmsum atvinnugreinum hafa þegar náð
athyglisverðum árangri með aðferðum gæðastjórnunar. Þrátt fyrir
það hefur hugtakið gæðastjórnun verið þokukennt í hugum margra.
Magnús Pálsson, viðskiptafræðingur og framkvæmdastjóri verkefnisins
Þjóðarsókn í gæðamálum, fjallar um gæðastjórnun með tilliti til
íslenskra aðstæðna og breytt hlutverk stjórnenda og miðstjórnenda.
Félagar í FVH og aðrir áhugamenn um umræðuefnið
eru hvattir til að mæta.
Fundir
Fundur um
gæðasijórnun
MORGUNVERÐARFUNDUR
Félags viðskiptafræðinga og
hagfræðinga um gæðastjórnun
í íslenskum fyrirtækjum og
breytt hlutverk stjórnenda verð-
ur haldinn nk. fimmtudag.
Magnús Pálsson, viðskiptafræð-
ingur og framkvæmdastjóri verk-
efnisins Þjóðarsókn í gæðamálum,
flytur erindi og svarar fyrirspum-
um.
Fundurinn veður haldinn
fimmtudaginn 28. febrúar kl. 8.00-
9.30 Hótel Holiday Inn.
Möguleikar
frísvæðis
íReykjavík
Hagræðingarnefnd Félags ís-
lenskra stórkaupmanna boðar til
kynningarfundar um íslenska frí-
svæðið í Reykjavík. Fundurinn
verður haldinn fimmtudaginn 28.
janúar nk. kl. 12 í Skálanum Hót-
el Sögu.
Á dagskrá verður Markúsar Arnar
Antonssonar: Fríhöfn í Reykjavík.
Helgi K. Hjálmsson, forstjóri Toll-
vörugeymslunnar hf., ræðir um
kynningu á möguleikum innflytjenda
á notkun íslenska frísvæðisins í
Reykjavík. Að lokum verða umræður.
VeRKEFNIÐ FrUMKVÆÐi/FrAMKVÆMD AUGLÝSIR EFTIR UPPLÝSINGUM UM STARFANDI RÁÐGJAFA A EFTIRTÖLDUM SVIÐUMi Stefnumótun, Markads-
AÐGERÐIR OG VÖRUÞRÓUN, FjÁRHAGSLEG ENDURSKIPULAGNING OG FJÁRMÁLASTJÓRNUN, FrAMLEIÐSLUSKIPULAGNING OG GæÐASTJÓRNUN.
ÓSKAÐ ER EFTIRAÐ HAFT SÉ SAMBAND VIÐ KaRL FIíIÐRIKSSON
HJÁIDNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS Is/MA 91 - 687000.
f
rumkvæði
Iðntæknistofnun, Keldnoholti, 1 12 Reykjovík, Simi (91) 68 7000