Morgunblaðið - 26.01.1993, Qupperneq 37
eeer u/vjr/iAC jé jrjoAa jcaííM aia/_£axíí.')HOiz
MOKGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2B'. JANÚAR'im
Björgvin Hermanns-
son - Kveðjuorð
Fæddur 17. september 1934
Dáinn 17. janúar 1993
Þú komst og fórst með ást til alls, sem
grætur,
á öllu slíku kunnir nákvæm skil.
Þín saga er ljós í lífi einnar nætur,
eitt ljós, sem þráði bara að vera til.
(Vilhjálmur frá Skáholti.)
Elsku vinur minn!
Ávallt mun ég minnast okkar
góðu daga og þó sérstaklega í Garði,
og á þessari stundu kemur upp í
huga minn þegar við vorum að flytja
þangað, hvað lífíð blasti við okkur
og ástin heit og innileg og hvað við
nutum þess að búa okkur nýtt og
dásamlegt heimili þar sem okkur gat
liðið vel hvoru með öðru. Þessar
stundir munu aldrei líða mér úr
minni. Er ég skrifa þetta streyma
tárin niður kinnar mínar og enn get
ég ekki trúað því að ég sjái þig aldr-
ei aftur, en lífið er hverfult og eitt
sinn skal hver deyja. Það hvarflaði
aldrei að mér að þú ættir eftir að
hverfa mér úr augsýn svona fljótt,
þessi hressi og káti maður, sem allt-
af átti ráð við öllu. Eina huggun
mín er sú að nú hittir þú þína fyrstu
ást, sem látin er fyrir mörgum árum,
og tekur áreiðanlega vel á móti þér
í nýjum heimi.
Elsku Björgvin, söknuðurinn er
svo mikill að orð fá ekki lýst. Eina
von mín er að tíminn græði öll sár,
en það mun taka langan tíma. Á
hveijum morgni þreifa ég rúmið mér
við hlið, en finn engan, engan Björg-
vin, og það er ólýsanlega sárt. Eg
vona að Guð gefí mér styrk til að
komast yfir þá sorg sem ég hef orð-
ið fyrir við andlát þitt, elsku vinur,
þó að ég sé lítil einmana sál. Með
þessum fátæklegu orðum læt ég í
Ijós þá von að þér líði vel. Ég elska
öll þín börn sem hafa verið mér
mjög góð í sambúð okkar og votta
þeim mína dýpstu samúð. Megi Guð
geyma þau um aldur og ævi og
þakka þér allar okkar dásamlegu
samverustundir sem aldrei munu
gleymast.
Edda Eyfeld.
Það er sunnudagur 17. janúar
1993. Úti fyrir gnauðar vindurinn.
Komið er hádegi og ég slappa af
heima eftir eril liðinnar viku. Síminn
hringir, það er frændi minn Her-
mann að flytja mér sorgarfregnir.
Faðir hans og móðurbróðir minn,
Björgvin Hermannsson, hafði látist
þá um morguninn. Banameinið
hjartaslag. Mig setur hljóðan.
Hvernig má það vera, Bíi frændi
látinn, aðeins 58 ára gamall. En
enginn ræður örlögum sínum.
Björgvin Hermannsson fæddist á
Patreksfirði 17. september 1934,
yngstur sex systkina. Foreldrar hans
voru sæmdarhjónin Guðrún Andrea
Einarsdóttir frá Uppsölum í Arnar-
firði og Hermann Kristjánsson frá
Krossadal í Tálknaflrði. Hermann
lést af slysförum árið 1977 en Guð-
rún lést árið 1987. Systkini Björg-
vins: Sólveig móðir mín, maður
hennar var Holger Clausen, hann
er látinn. Finnur, hann er látinn,
kvæntur Stellu Jóhannesdóttur, sem
einnig er látin. Kristján, hann er
látinn, kvæntur Ásdísi Árnadóttur,
hún er einnig látin. Óskar, kvæntur
Sjöfn Kristjánsdóttur. Stella, gift
Harold Raatz, búsett í Bandaríkjun-
um.
Björgvin, eða Bíi eins og hann var
jafnan kallaður af vinum og vínum
nánustu, fluttist með foreldrum sín-
um og systkinum til Reykjavíkur
árið 1936, þá tveggja ára gamall.
Afí Hermann hafði stundað sjósókn
og útgerð fyrir vestan, en í Reykja-
vík hóf hann verslunarrekstur, opn-
aði fiskbúð á Leifsgötu 32 og síðan
nýlenduvöruverslun og fiskbúð í
Samtúninu. Reksturinn gekk vel hjá
afa enda var hann harðduglegur og
orðlagður fyrir áreiðanleika í við-
skiptum. Bíi byijaði mjög ungur að
hjálpa til í versluninni hjá föður sín-
um en hugur eldri bræðra hans
hneigðist í aðra átt. Óskar og Krist-
ján stunduðu sjóinn en Finnur gerð-
ist húsasmiður. Strax á unga aldri
kom í ljós einstök lipurð Bía við af-
greiðslustörf og varð hann fljótt eft-
irlæti viðskiptavina.
Árið 1952 hætti afi Hermann
verslunarrekstri og stofnaði útgerð
frá Reykjavík ásamt sonum sínum
Óskari og Kristjáni svo og Gunnari
Magnússyni og bróður hans Guð-
mundi. Báturinn var nefndur Arn-
firðingur og varð útgerð þessi fyrsti
vísir að hinu myndarlega útgerðar-
og fiskverkunarfyrirtæki Arnarvík
hf. í Grindavík.
Þegar Hermann hætti verslunar-
rekstri hóf Bíi störf hjá Kjötverslun
Tómasar Jónssonar á Laugavegi 2,
þá ein þekktasta kjötverslun í
Reykjavík. Bíi lagði metnað sinn í
starfið og var dugnaði hans og
snyrtimennsku við brugðið. Árið
1956 flutti eigandi verslunarinnar
til Ameríku. Bíi keypti þá af honum
fyrirtækið og var því rétt rúmlega
tvítugur orðinn eigandi tveggja
kunnustu kjötverslana í Reykjavík,
Kjötverslun Tómasar á Laugavegi 2
og Laugavegi 32.
Erfidrykkjur
Glæsileg kalli-
hlaðborð íidlegir
sídir og ínjög
góð þjómistíL
llpplýsingar
í sínia 2 23 22
/B
FLUOLEIDIR
1ÍTIL LIPTmiIt
LEGSTEINAR
4p ©cpcamo^ s/0
I ! HELLUHRAUNI 14 -220 HAFNARFIRÐI ■ SÍMI 652707
Á örskömmum tíma bætti hann
síðan við verslun við Grensásveg og
annarri á Nesvegi og nokkru síðar
stofnaði hann Kjötmiðstöðina við
Laugalæk. Reksturinn blómstraði,
þetta var ævintýri líkast.
Átján ára gamall hafði Bíi kvænst
Guðrúnu Bachmann, ætíð kölluð
Dótla, en hún var dóttir Gunnars
Bachmann í Rafskinnu og Hrefnu
konu hans. Dótla vann með Bía
myrkranna á milli við verslunar-
reksturinn á þessum árum og var
til þess tekið, hversu samhent þau
voru. Þau eignuðust tvö börn,
Hrefnu og Hermann Gunnar.
Þrátt fyrir alla velgengni var allt-
af eitthvert eirðarleysi í Bía frænda.
Árið 1960 selur hann fyrirtækið, þó
ekki húsnæðið á Laugavegi 32, og
flutti þá fjölskyldan til Bandaríkj-
anna. Heim kominn árið eftir heldur
hann áfram rekstrinum á Laugavegi
32. Hann selur þann rekstur nokkru
síðar og festir þá kaup á Flugskólan-
um Þyt hf. og varð umsvifamikill í
flugkennslu og leiguflugi. Árið 1970
slitu Bíi og Dótla samvistum. Dótla
lést stuttu síðar.
Bíi giftist árið 1972 Sigríði Guð-
mundsdóttur og eignuðust þau eina
dóttur, Andreu. A þessum árum
stundaði Bíi ýmsa kaupsýslu. Þau
fluttu til Seattle í Bandaríkjunum
árið 1978 þar sem þau bjuggu í þijú
ár en komu síðan heim til Islands
og skildu stuttu síðar. Þriðja eigin-
kona Bía var Anetta Hermannsson
frá Vestur-Þýskalandi, þau skildu
eftir stutt hjónaband. Síðustu æviár-
in bjó Bíi í Garði á Suðurnesjum og
hafði hann búið sér fallegt heimili
þar. Hann var um tíma í sambúð
með Eddu Eyfeld.
Lífshlaup Bía var ekki alltaf með
hefðbundnu sniði. Hann lifði hratt,
var snöggur að taka ákvarðanir og
væru þær ekki alltaf vel grundaðar
þá tók hann afleiðingum þeirra með
karlmennsku: Fyrir mér er Bíi alltaf
sá sem ég Ieit upp til sem barn og
unglingur. Hann var mér einstak-
lega góður þegar ég dvaldist oft
langdvölum hjá afa Hermanni og
ömmu Guðrúnu. Mér fannst hann
líta á mig sem yngri bróður sinn.
Milli okkar mynduðust mjög sterk
tengsl þótt síðustu árin hafi sam-
band okkar verið stopulla en áður,
og alltaf var gaman að hitta Bía.
Það var sama á hvetju gekk, ekkert
víl og volæði. Bía varð öllum sem
kynntust honum eftirminnilegur. Ég
er ekki frá því að honum hafi að
lunderni svipað til afa síns Einars
Finnssonar, hins landsfræga og lífs-
glaða hestakaupmanns úr Dölunum.
Bíi skilur eftir sig minningu hjá
mér um kærleiksríkan frænda sem
sýndi mér mikla ástúð sem barn,
frænda sem fyllti mig stolti þegar
vel gekk hjá honum, en jafnframt
frænda sem mér sárnaði stundum
við þegar mér fannst hann ekki fara
rétt að hlutunum og ætíð frænda
sem mér þótti mjög vænt um.
Hrefnu, Hermanni Gunnari,
Andreu og börnum þeirra votta ég
innilega samúð mína. Guð blessi
minningu Bía frænda.
Herluf Clausen.
Hið skyndilega andlát Björgvins
Hermannssonar olli mér mikilli
sorg, því með honum er genginn
náinn vinur og velgerðarmaður
minn og minna nánustu.
Ég vil því með nokkrum fátæk-
legum orðum minnast hans, en þau
eru einnig rituð í nafni sonar míns, -
sem vegna fjarlægðar og veikinda
konu sinnar getur trúlega ekki ver-
ið viðstaddur greftrun þessa góða
vinar síns. Kunningsskapur og vin-
átta okkar við Björgvin hófst þegar
Sigurður, sonur minn, hóf flugnám
hjá honum. Björgvin varð ekki ein-
ungis kennari hans, heldur og sann-
ur vinur og ráðgjafi. Sá vináttu-
grunnur sem þá var lagður reynd-
ist traustur, þegar sonur minn hóf
flugstörf hér heima og einnig síðar
í fjarlægu landi.
Þrátt fyrir fjarlægð hélst vinátta ■
þeirra og sonur minn virti Björgvin
meira en aðra menn og kunni vel
að meta þá föðurlegu umhyggju
sem Björgvin ávallt sýndi honum.
Mér eru minnisstæð viðmót Björg-
vins og þau fallegu orð sem hann
mælti við brúðkaup sonarsonar
míns, svo og hluttekning hans við
fráfall manns míns. Þannig tók
Björgvin þátt í gleði og sorg innan
minnar fjölskyldu og með þeim
hætti sem aðeins vinur getur veitt.
Sagt er að sannur vinskapur sé
gulli betri og ég get svo sannarlega
vottað það þegar ég hugsa til þessa
látna vinar.
Aðstandendum sendi ég sam-
úðarkveðjur mínar og sonar míns
og biðjum þess að Guð launi honum
fyrir allt sem hann gerði fyrir okk-
ur. Við hörmum fráfall Björgvins
og komum til með að sakna hans.
Við erum þó forsjóninni þakklát
fyrir að hafa notið vináttu og hjálp-
semi þessa góða manns.
Unnur Sigurðardóttir og
Sigurður V. Kristjánsson.
e
Glitnir hf.
,kt. 511185-0259
Armúla 7, Reykjavík
Skuldabréfaútboð 1. flokkur 1993
Heildarfjárhæð kr. 300.000.000.-
Útgáfudagur 15. janúar 1993
Fyrsti söludagur 25. janúar 1993
Flokkur Gjalddagi Upphæð
l.fl.A 1993 15.01.1997 60.000.000
l.fl.B 1993 15.03.1997 60.000.000
l.fl.C 1993 15.05.1997 60.000.000
l.n.D I993 15.07.1997 60.000.000
l.n.E 1993 15.09.1997 60.000.000
Skuldabréfin eru verdtryggð skv. lánskjaravisitölu.
Grunnvísitala er 3246
Ávöxtun yfir hækkun lánskjaravísitölu nú 8,8%
Umsjón: Verdbréfamarkaður Islandsbanka hf.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Myndsendir 68 15 26.