Morgunblaðið - 26.01.1993, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993
45
VELVAKANDI
ÞEKKIR
EINHYER
ARMBANDH)?
Armbandið sem myndin er
af er búið að liggja langan tíma
á Morgunblaðinu, líklega tvö
til þijú ár. Það hefúr verið reynt
að auglýsa það en án árangurs
og er nú brugðið á það ráð að
birta mynd af því þar sem trú-
lega er um mjög persónulegan
hlut að ræða. Á skildinum, sem
er búið að lita yfir, eru upphafs-
stafir og tölur sem trúlega eru
ártal og dagsetning. Ef einhver
telur sig þeklq'a gripinn er hann
beðinn hafa samband við Morg-
unblaðið í sima 691100.
GÆLUDÝR
KÖTTUR í ÓSKILUM
Svartur, ómerktur, stór
högni hefur verið á flækingi á
Reynimel sl. vikur. Farið var
með hann upp í Kattholt sl.
fimmtudag þar sem eigandinn
getur vitjað hans.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Svðrt ITC-mappa
Hinn 5. febrúar sl. tapaðist
á leiðinni ftá Hverafold 1-3 í
Grafarvogi að Neðra-Breiðholi,
svört mappa með gögnum frá
ITC-deildinni Irpu. Mappan er
ekki merkt, en í henni eru m.a.
dagskrá og félagalistar ásamt
símanúmerum. Skilvís finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hringja í eitthvert þessara núm-
era.
Týnt gnllhálsmen
I september sl. tapaðist gull-
hálsmen með periu og demönt-
um. Sennilega á leiðinni frá
Suðurlandsbraut með viðkomu
í matvöruversluninni á Grens-
ásvegi 46 og í Dalalandi, í
Mjóddina í Breiðholti. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
11071. Fundarlaun.
ITC og við
Frá Hafdísi Engilbertsdóttur.
MIKIL spenna og óöryggi fylgja
ýmsum þeim hræringum sem eiga
sér stað í okkar þjóðfélagi og í
kringum okkur. Auk bágs efna-
hagsástands og aukins atvinnu-
leysis eru það afdrifaríkar ákvarð-
anir sem við sem þjóð þurfum að
taka varðandi framtíð okkar.
Við þetta verðum við að lifa í
bráð og takast á við þá erfiðleika
sem að okkur steðja þannig að við
sjáum sem fyrst fram á betri tíð
með blóm í haga.
Um leið höfum við flest mögu-
leika á að líta okkur nær og aldrei
er of seint að takast á við þro-
skandi verkefni.
Sjálfsstyrking hvers konar kem-
ur öllum vel, ef hún er ekki beinlín-
is nauðsynleg, ekki síst nú á tímum
aukinna krafna, tímaskorts og óör-
ýggis. Sjálfsstyrking er eins og
orðið gefur til kynna styrking ein-
staklingins, þar sem einstaklingur-
•nn nær með einum eða öðrum
hætti að auka hæfni sína og mögu-
ieika til að takast betur á við þau
fjölbreyttu verkefni, sem hann eða
hún stendur frammi fyrir.
ITC er leið til sjálfsstyrkingar.
Þjálfunin sem þar fæst eykur
sjálfstraust og virkar á marga sem
vítamínsprauta. Einstaklingar fara
að takast á við verkefni sem áður
voru þeim Qarlæg eða hafa öðlast
kjark og þor til að hrinda gömlum
draumum í framkvæmd.
Tíminn er mikilvægur í nútíma
þjóðfélagi og margir kvarta yfir
tímaskorti, það er því mikils um
vert að við kunnum að meta þann
tíma sem við höfum og slripu-
leggja hann sem best. I ITC er
lögð mikil áhersla á þennan þátt.
Þjálfunin leiðir ekki einungis af sér
betri skipulagningu okkar eigin
tíma heldur lærist okkur einnig að
virða tíma annarra og að hlusta
betur á aðra, sem ekki er alltaf
jafn sjálfsagt og ætti að vera.
Aukið sjálfctraust, fijálsleg tjá-
°g skoðanaskipti, virk þátttaka í
eigin lífi, og virkari þátttaka í sam-
félaginu í kringum okkur. Viljum
við ekki flest sjá slíkt einkenna
okkar líf? ITC samtökin veita okk-
ur þjálfun sem nýtist vel í daglegu
lífi og getur jafiiframt verið skref
yfir þröskuldinn sem áður hamlaði
okkur að vera það sem hugur okk-
ar stóð til.
HAFDÍS ENGILBERTSDÓTTIR,
Vesturási 52,
Reykjavík.
Pennavinir
Frá borginni Sunderland á norð-
austurströnd Englands skrifar 43
ára einhleyp kona með áhuga á
hannyrðum, matargerð, tónlist og
bréfaskriftum. Vill skrifast á við
konun
Christine Bell,
21 Lake Court,
Doxford Park,
Sunderland SR3 2JX,
England.
Frá Ghana skrifar 23 ára stúlka
með áhuga á ljósmyndun, íþróttum,
dansi og bréfaskriftum:
Elizabeth Lizzy Basten, '
c/o Blasters,
Box 1236,
Oguaa Lane,
Ghana.
LEIÐRÉTTING
Seðlaveski fundust
í fórum Rússanna
Vegna fréttar í Morgunblaðinu
föstudaginn 22. janúar, um þijá
Rússa sem stöðvaðir voru í verslun
við Skólavörðustíg, grunaðir um
þjófnað, er rétt af fram komi, að
þijú seðlaveski fundust í fórum
rnannanna.
í fréttinni var sagt, að ekkert
þýfi hafi fundist á mönnunum. Hið
rétta er, að daginn eftir að lögregl-
an hafði afskipti af mönnunum skil-
aði skipstjóri togarans, sem þeir eru
skipveijar á, þremur seðlaveskjum
til lögreglunnar.
Leiðrétting
á ljóði
Frá Auðuni Braga Sveinssyni:
í SAFNI ljóða föður míns, Andstæð-
um, er út kom á vegum Setbergs
1988, hefi ég rekist á villu, sem ég
vil biðja eigendur ritsins ~M
uppi, á bls. 118 — og lei ta.
Þar stendur:
Vaxa hretin, hagur þrengist,
hljóðir strengir bærast ei.
í staðinn komi:
Vaxa hretin, hagur þrengist
hljóðnar allt, sem gleðja má.
AUÐUNN BRAGI SVEINSSON,
Hjarðarhaga 28,
Reykjavík.
NIKON F4
Til sölu er mjög vel með farin
Nikon F4s myndavél.
Verð aðeins kr. 85.000,-
Upplýsingar í síma 23411 kl. 9-18.
Mínúta til stefnn!
Minolta til taks!
VTNNJNGAR FJÖLDI VHSNNGSHAFA UPPHÆÐÁHVERN VWNWGSHAFA
1. 5aí5 1 6.157.430
2. 162.383
3. 4aí5 169 6.629
4. 3af 5 5.035 519
Heildarvinningsupphæðþessaviku:
10.540.428 kr.
UPPLYSWGAR SUISV»Hl91 -681511 LUKKUUNA991002
Vhvúngsíöur
Minolta Ijósritunarvélar
uppfylla allar óskir
Einföld. Klár.- Einfaldlega klár!
--------
SPARIÐ - SETJIÐ SAMAN SJÁLF
i
—
6
jöminn býður upp á gott og
fjölbreytt úrval efnivi&r til
smíði á eldhús- og baðinnréttingum
og fataskápum.
Fagmenn okkar sníða efhið
eftirþínumþörfum.
Þú setur innréttinguna saman
sjálf(ur) og sparar þannig
peninga.
Komdu með þína hugmynd til
okkar - fagmenn aðstoða þig
við að útfæra hana.
BJORNINN
B0RGARTÚNI28 S. 6215 66
Afflt MMtJiágs