Morgunblaðið - 03.02.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.02.1993, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/C 27. tbl. 81.árg. MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Yitzhak Rabin segir frekari eftirgjöf ekki koma til greina Útlagarnir hafna málamiðlun ísraela Jerúsalem, Sameinuðu þjóðunum. Reuter og The Daily Telegraph. PALESTÍNSKU útlagarnir í suðurhluta Líbanons höfnuðu í gær tilboði Israelsstjórnar um að tæpur fjórðungur þeirra fengi að snúa aftur til hernumdu svæðanna. Þeir fara hins vegar fram á læknishjálp handa fjórum mönnum sem eru fárveikir. Yitzhak Rabin, forsætisráðherra ísraels, sagði að þetta væri lokatilboð hans og ekki kæmi til greina að semja um frekari eftirgjöf af hálfu ísraela. Hundalíf á Spáni Madrid. Reuter. BÆJARSTJÓRINN í Cebre- ros á Norður-Spáni hyggst koma umferðarmálum í betra horf og hefur bannað öll hlaup á götum borgarinnar — einnig þótt um fjórfætta bæjarbúa sé að ræða. „Hundar mega aðeins vera á hægri helmingi gangstéttarinn- ar og ekki fara hraðar en fetið," segir í nýju reglunum. Ekki er ljóst hver viðurlög eru við broti ef hundarnir sjá kött — og gleyma öllum reglum. Rabin tilkynnti málamiðlunartil- boð sitt eftir að hafa haft samráð við bandaríska embættismenn. í tilboðinu felst að um hundrað út- lagar geta snúið aftur til her- numdu svæðanna en útlegðardóm- urinn yfir hinum útlögunum 296 verður styttur um helming, þannig að þeir gætu snúið heim um næstu áramót. í samræmi við ályktun SÞ? Warren Christopher, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði til- boð Sameinuðu þjóðanna vera í samræmi við ályktun Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um að ísra- elar heimili öllum útlögunum að snúa heim. „Við teljum að vegna tillögu ísraela sé ekki þörf á frek- ari aðgerðum af hálfu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og að þær gætu jafnvel grafið undan þeim sáttaumleitunum sem þegar eru hafnar,“ sagði Christopher. Viðræður í biðstöðu Arabaríki hafa krafist þess að öryggisráðið samþykki refsiað- gerðir á hendur Israelum fallist þeir ekki á að heimila öllum útlög- unum að snúa þegar aftur til her- numdu svæðanna. Rabin sagði að stjórn Bills Clintons Bandaríkja- forseta hefði lofað að beita neitun- arvaldi sínu gegn tillögu um refsi- aðgerðir gegn Israel. Bandaríkja- menn myndu einnig aðstoða við að fá annað ríki til að taka við útlögunum. Arabaríkin hafa hins vegar öll hafnað að taka við þeim og stjórnvöld í Líbanon neita að skipta sér af þeim. Hanan Ashrawi, talsmaður nefndar Palestínumanna í friðar- viðræðum þjóða Miðausturlanda, sagði að finna yrði lausn á út- lagamálinu áður en hægt yrði að hefja viðræður á ný. Talsmenn Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO) höfnuðu tilboði Rabins og sögðu það enga lausn á vandanum. Reuter Guð refsi þeim Einn af palestínsku útlögunum í Suður-Líbanon biður guð að „refsa Israelum og Yitzhak Rabin forsæt- isráðherra." Utlagarnir hafna boði um að hundrað þeirra fái að fara heim. Þeir segjast munu verða áfram í útlegðinni þar til ísraelar gefist upp og hlíti samþykktum SÞ. Clinton sakaður um að beita við- skiptahótunum Brussel. Reuter og The Daily Telegraph. VIÐSKIPTARÁÐHERRAR Evrópubandalagsins (EB) gagnrýndu harðlega í gær nýjustu viðskiptaþvinganir Bandaríkjastjórnar. Fram- kvæmdastjórn EB segir að á fyrstu dögum stjórnar Bills Clintons hafi tvisvar verið vegið mjög að Evrópubandalaginu í viðskiptamálum. Ráðherrarnir lýstu þungum áhyggjum vegna hótana Bandaríkja- manna frá því á mánudag um að banna verktökum í EB að bjóða í verk á vegum alríkisstjórnarinnar frá og með 22. mars næstkomandi. Þessi hótun kemur í kjölfar árslangr- ar viðleitni Bandaríkjastjórnar til að hnekkja reglugerð innan EB sem leyfir að verktakar í EB séu teknir fram yfir aðra ef um verkefni er varða viss svið er að ræða eins og fjarskipti, orkuframleiðslu og flutn- ingatæki. Fulltrúar EB hafa svarað því til að Bandaríkjastjórn sjálf taki bandaríska verktaka fram yfir aðra t.d. þegar um fólksflutninga er að ræða. Clinton hættulegnr? Ráðherrarnir fordæmdu einum rómi refsitolla sem Bandaríkin settu í síðustu viku á stálinnflutning frá 19 ríkjum, þar af sjö EB-ríkjum, vegna meintra óleyfilegra niður- greiðslna til stálframleiðenda. Niels Helveg Petersen, utanríkisráðherra Dana, sem nú eru í forsæti í ráð- herraráði EB, sagðist óttast stefnu Clintons og varla hefði verið um slys að ræða á mánudag. „Þetta er ekki smávægileg viðskiptadeila heldur er verið að senda efnahagslífi heimsins kolröng skilaboð“. ^ Mickey Kantor, samningamaður Bandaríkjanna í viðskiptamálum, segir að þessar aðgerðir séu teknar í fullu samráði við Clinton og beri vott um þá sannfæringu hans að heimsverslun eigi að vera fijáls. Alltaf beitt ógnunum Bruno Durieux, utanríkisvið- skiptaráðherra Frakklands, sagði í gær að einu vopnin sem Bandaríkja- menn þekktu í viðskiptaviðræðum við erlend ríki væru ógnanir og ein- hliða aðgerðir. Hann sagði að ákvörðunina um refsitolla á stálinn- flutning mætti e.t.v. rekja til stjórn- ar George Bush en Clinton bæri augljóslega ábyrgð á hótunum um að setja verktaka í EB-ríkjum út í kuldann. Reuler Þúsund fallnir í Zaire AÐ MINNSTA kosti 1.000 manns hafa beðið bana að undanfömu í óeirð- um í Kinshasa, höfuðborg Zaire, að sögn talsmanns Etienne Tshiseke- dis, forsætisráðherra í bráðabirgðastjórn landsins. Hann sagði einnig að flestir þeirra sem féllu hefðu verið uppreisnarmenn innan hersins, sem úrvalssveitir hollar Mobutu Sese Seko forseta hefðu drepið. Mobutu sak- ar Tshisekedi um að hafa kynt undir óeirðunum með því að hvetja fólk til að taka ekki við nýjum peningaseðlum sem forsetinn lét prenta, meðal annars til að geta greitt hermönnum laun. Hermenn gengu berserksgang um göturnar þegar þeir gátu ekki notað seðlana. A myndinni er lík It- ala, sem beið bana í óeirðunum, borið úr ferju sem flutti erlenda ríkis- borgara í Zaire til nágrannaríkisins Kongó. Kúrdum smyglað frá Irak Hclsinki. Reuter. RÚMLEGA hundrað Kúrdar komu til Helsinki í gær með eistneskum togara eftir að hafa verið laumað til Finnlands frá Eistlandi. Kúrdarnir, þeirra á meðal um 40 börn, voru við góða heilsu og óskuðu eftir hæli í landinu. Þeir segja að hver fullorðinn farþegi hafi greitt 600 Bandaríkjadali, um 32.000 kr., fyrir ferðina. Þriggja manna áhöfn togarans var færð til yfirheyrslu. Rússneska mafían Um 500 Kúrdar komu til Sví- þjóðar fyrir tveimur vikum með skipi frá Lettlandi og skipverjarnir voru rússneskir. Sænskir embætt- ismenn hafa sagt að grunur leiki á að rússneska mafían standi fyrir smygli á flóttamönnum til Svíþjóð- ar. Finnskir embættismenn vildu ekki tjá sig um það hvort tengsl væru á milli þessara atburða. ----» ♦ ♦ Færeyskur þingmaður Aðstoðin munduga skammt Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdótt- ur og N, J. Bruun, fréttariturum Morgnn- blaðsins. í DANMÖRKU eru viðbrögðin við danskri neyðarhjálp til handa Færeyjum annars vegar áhyggjur yfir að hún muni ekki nægja og hins vegar vangavelt- ur um hvort þar með sé ekki búið að kippa fótunum undan heimastjórninni. Óli Breck- mann, annar fulltrúi Færeyja á danska þinginu, segir í samtali við Politiken að samkomulagið sé „auðmýkjandi“ fyrir Færey- inga. Auk þess muni aðstoðin aðeins duga í nokkra mánuði. Framfaraflokkurinn danski seg- ir að fjárhagsaðstoðin sl. haust hafi verið eins og að ausa fé í botnlausa hít. Þegar danska stjórn- in bjargaði Sjóvinnubankanum frá gjaldþroti í haust var Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn beðinn um að gera úttekt á fjárhag eyjanna. Skýrslu hans er vænst eftir um mánuð. í kjölfar hennar fylgir hugsanlega meira atvinnuleysi og ný bylgja gjaldþrota, sem gætu þá kallað á frekari aðstoð. Skattar varasamir Af hálfu margra Dana þykir varhugavert að skattleggja Færey- inga frekar, því þá aukast líkurnar á að enn fleiri flytji til Danmerkur og íþyngi félagsmálakerfinu þar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.