Morgunblaðið - 03.02.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993
33
Minning
Sigmar Kristjánsson
frá Eldjámsstöðum
er fyrri dagar bárust í tal.
Oft sagði hún okkur af ferðum
sínum til ættingjanna syðra, ferð-
anna til Guðbjargar sonardóttur
sinnar á Skagaströnd, og dvaldist
hún þar jafnan nokkurn tíma í senn.
Ferðir Hrefnu yfir að Rip til Hebbu
sinnar voru henni sífellt tilhlökkun-
arefni, þar gekk hún á vit sveitalífs-
ins, sem hún tók ástfóstri við í
æsku þó aðstæður höguðu því svo
að hún byggi í kaupstað. Síðustu
tvo áratugina tók Hrefna þátt í
ýmsum fundum kvenfélaganna og
ferðalögum vítt og breitt um land-
ið. Hún naut þessara ferða vel og
var sem jafnan áður vinsæl og
nærri ómissandi ferðafélagi, ekki
síst yngri konunum.
Hrefna vann lengi að málefnum
Sjálfsbjargar sem var mikið starf,
en furðu fljótt fennir í slík spor.
Hrefna var mikill verkalýðssinni
fyrr á árum og vann þeim málum
vel. Hrefna var kona kvenfrelsis og
jafnréttis og léði þeim málum lið
er því varð við komið. Hrefna var
líkamlega fötluð mestan hluta ævi
sinnar og bar það af miklu æðru-
leysi. Við samferðafólkið merktum
þetta ekki, svo sterkan persónuleika
hafði Hrefna.
Við Hrefna erum greinar af stór-
um og sterkum ættstofni hér í
Skagafirði. Finnbogi á Kirkjubóli,
langafi hennar, og Sigurlaug á Ing-
veldarstöðum, langamma pabba,
voru systkin. Eitt sinn á góðri stund
með Hrefnu og Valtý á Geirmund-
arstöðum voru rifjaðar upp fyrstu
bemskuminningar Valtýs, er hann
fimm ára gamall var reiddur fram
í Glaumbæ, að giftingu Jórunnar
og Snorra í Stóru-Gröf og Boga
Gíslasonar afa míns og Þorbjargar
Olafsdóttur, Syðra-Skörðugili. Bogi
og Jórunn voru frændsystkin.
Svaramenn við þessar giftingar
vom foreldrar Hrefnu, Jóhann,
frændi Jórunnar og Boga, og Ingi-
björg á Kjartansstöðum. Athöfnin
fór fram 27. júlí 1907.
Það getur teygst úr vináttunni
innan sömu ætta þó það sé nú fátíð-
ara en áður. Vináttan við Hrefnu
er gott dæmi um það. Ég átti því
láni að fagna að sitja í bæjarstjórn
í tólf ár. Margt eldra fólkið í bænum
studdi mig með ráðum og dáð.
Hrefna var í þeim hópi. Fylgdist
grannt með og var síhvetjandi.
Meðan heilsan leyfði kom hún
reglulega í verslun okkar og kvaddi
okkur alltaf með blessunarorðum
um gott gengi. Það fór jafnan eft-
ir. Hrefna átti því láni að fagna að
vera alla tíð hluti af gömlu ættar-
fjölskyldunni. Fyrst í föðurhúsum,
síðan í sambýli með Þórði bróður
sínum, og síðan þá á Sauðárkróki.
Ólafur sonur hennar og Bára
bjuggu sér heimili á efri hæð
Freyjugötu 23, eftir að fjölskylda
Guðjóns Ingimundarsonar flutti
suður á Bárustíginn. Hrefna fluttist
með íjölskyldunni úr Freyjugötunni
8. desember 1979 að Víðigrund 24.
Þar naut hún útsýnisins yfir fjörð-
inn, „Nesið“ og austurfjöllin í rösk-
an áratug. Sambýlið við Óla og
Báru var til mikillar fyrirmyndar
og hélst óslitið alla tíð, eða þar til
að Hrefna fór á sjúkrahúsið sl.
haust. Þrír til fjórir ættliðir voru
því oftast á heimili Hrefnu. Þetta
heyrir til undantekninga í dag. Það
þarf mikið umburðarlyndi nú á tím-
um svo slíkt geti gengið.
Hrefna undirbjó vistaskiptin úr
þessum heimi af mikilli kostgæfni,
séð var fyrir öllu. Hún bað mig að
bera sig til grafar fyrir mörgum
árum og ítrekaði það nokkrum sinn-
um og skriflega til ástvina sinna.
Hinn 9. janúr sl. bárum við hana
síðsutu sporin í fegursta vetrar-
veðri. Það var bjart og stillt í Skaga-
firði. Daginn fyrir dýpstu lægð sem
mælst hefur á norðanverðu Atlants-
hafi, sem olli stórviðri og töfum í
samgöngum, og fjölskylda Hrefnu
naut óvæntrar samveru, umfram
það sem áformað var. Að ósk
Hrefnu fór erfidrykkjan fram á
heimili Óla og Báru. Það var góður
og fjölmennur mannfagnaður.
Hrefna er gengin á vit feðra sinna
og formæðra. Farsælu lífi er lokið.
Guðs blessun fylgi minningu henn-
ar.
Hörður Ingimarsson
og fjölskylda.
Fæddur 17. maí 1912
Dáinn 9. janúar 1993
Við lát góðs vinar er margs að
minnast. Á hugann leita minningar
frá bemsku- og unglingsárum þegar
ég var að alast upp á Eldjámsstöð-
um. Hver sækir nú lengur hesta út
á Hliðarstekk uppi í flóa eða smalar
kvíaánum kvölds og morgna? Hver
fer nú með heybandslest af engjum
og heim í hlað? Hver þvær nú lengur
ull úti við læk? Ullarlest fer ekki leng-
ur í kaupstað, ekki sjást lengur
rekstrar milli bæja á haustin og sil-
ungur ekki veiddur undir fossinum.
Eg hef brugðið upp mynd þess
tíma er ég var drengur og kom í
Eldjámsstaði. Ábúendur þar voru
Matthildur Jóhannesdóttir og Krist-
ján Jónsson ásamt sonum sínum
Guðjóni og Sigmari. Ég var hjá þessu
fólki í sex ár og var strax eins og
einn af fjölskyldunni. Þarna vandist
ég þeim störfum sem krakkar á þeim
tíma gátu leyst af hendi við ýmsa
snúninga. Aldrei varð ég var við að
þreytu gætti á spurulum dreng, þvert
á móti var leitast við að skýra út og
leiðbeina piltinum í hvívetna. Guðjón
hafði lært við Eiðaskóla og stundað
barnauppfræðslu, enda kenndi hann
mér heima á vetrum með þeim
árangri sem ég hef búið að æ síðan.
Sigmar var lærður söðlasmiður,
lærði í Skógum í Vopnafírði. Stund-
aði hann þá iðn aðallega á vetrum.
Hann var mjög vandvirkur og var
gaman að fylgjast með þegar hann
var að smíða spaðahnakka og önnur
reiðtygi. Voru þau áhaldstögl alltaf
til fyrirmyndar svo að eftir var tek-
ið. Gjarðir voru brugðnar úr hross-
hári og kunna nú fái þá iðn.
Þeir bræður spiluðu mjög vel á
harmonikku og spiluðu oft fyrir dans-
leikjum, enda félagslyndir. Þeir voru
mjög listfengir og eftir þá liggja
margir fágætir hlutir. Kristján and-
aðist 1955 og bjuggu þeir áfram til
1959, en fluttust þá til Þórshafnar
í hús sem þeir byggðu og bjuggu þar
með móður sinni þar til hún lést
1969. Eftir það bjuggu þeir einir,
en nú síðustu árin voru þeir á Nausti,
húsi aldraðra á Þórshöfn. Þaðan lagði
Sigmar upp í ferðina löngu.
Með þessum fátæklegu minning-
um vil ég kveðja góðan vin og það
fólk sem reyndist mér svo vel á upp-
vaxtarárum mínum og æ síðan. Guð
blessi Sigmar Kristjánsson.
Guðjón, ég votta þér mína dýpstu
samúð, hafðu þökk fyrir allt. Guð
gefí þér styrk. Hann leggur ávallt
líkn með þraut.
ívar Þórhallsson.
t
Ástkær eiginkona mín,
BJÖRK JÓNASDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Þjóökirkjunni Hafnarfirði fimmtudaginn
4. febrúar kl. 13.30.
Stefán Jónsson.
t
Móðir mín, amma okkar og langamma,
GUÐRÚIM ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Ranakoti,
Stokkseyri,
lést 30. janúar.
Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 6. febrúar
kl. 14.00.
Valdimar Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
KRISTMUNDUR GUÐMUNDSSON
fyrrverandi bifreiðastjóri
á Hótel Borg,
lést á elliheimilinu Grund 2. febrúar.
t
Kveðjuathöfn um móður okkar,
DAÐÍNU JÓNASDÓTTUR
frá Auðkúlu,
Arnarfirði,
verður í Fossvogskirkju fimmtudaginn 4. febrúar kl. 10.30.
Jarðsett verður að Hrafnseyri, Arnarfirði, laugardaginn 6. febúar.
Börn hinnar látnu.
t
Útför fóstursonar míns,
SIGMUNDAR EGGERTS EGGERTSSONAR,
fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 6. febrúar kl. 13.30.
Verður hann lagður til hinstu hvílu í Hagakirkjugarði í Holtum.
Fyrir hönd systkina og annarra aðstandenda,
Margrét Eyjólfsdóttir.
t
Þakka innilega samúð og hlýhug við andlát og útför
GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR
frá Dalsmynni.
Fyrir hönd aðstandenda,
Margrét Guðjónsdóttir.
t
Útför eiginmanns míns, föður, tengda-
föður og afa,
GUÐJÓNS MAGNÚSSONAR
frá Kjörvogi,
Furugerði 1,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudag-
inn 4. febrúar kl. 13.30.
Guðmunda Þ. Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
SIGRÍÐAR HAGALÍN
leikkonu.
Sérstakar þakkir færum við Leikfélagi
Reykjavíkur og starfsmönnum þess.
Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir,
Kristín Ólafsdóttir, Björn Vignir Sigurpálsson,
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Kolbeinn Atli Björnsson.
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför
HJARTAR HJARTAR
fyrrv. framkvæmdastjóra,
Flyðrugranda 8.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks deildar 32A
á Landspítalanum.
Guðrún J. Hjartar,
Jóna Björg Hjartar, Páll van Buren,
Sigriður Hjartar, Stefán Guðbergsson,
Elín Hjartar, Davíð Á. Gunnarsson,
Egill Hjartar, Marfa Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Öllum þeim, er sýndu okkur hlýhug og heiðruðu minningu elsku
legs föður okkar, tengdaföður og afa,
JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR,
Bjarkarbraut 1,
Dalvík,
sendum við hjartanlegar kveðjur og þakkir.
Nanna Jónasdóttir, Jónatan Sveinsson,
Halla S. Jónasdóttir, Anton Angantýsson,
Júlfus Jónasson, Mjöll Hólm
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu,
INGIBJARGAR JÚLÍUSDÓTTUR,
Atlastöðum
í Fljótavík.
Atli Smári Ingvarsson, Ásta Grfmsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum, sem auðsýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR PÁLI'NU JÓNSDÓTTUR,
Spftalavegi 16,
Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Fjóðrungssjúkrahússins á
Akureyri fyrir frábæra hjúkrun og umönnun í veikindum hennar.
Guð blessi ykur öll.
Haraldur Sigurgeirsson
og fjölskylda.
t
Innilegustu þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vináttu
við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
SIGURBJARGAR HELGADÓTTUR,
Stokkseyri.
Guð blessi ykkur öll.
Valdimar Jónsson,
Sigrún Helga Valdimarsdóttir,
Guðrún Jóna Valdimarsdóttir,
Steinar Ingi Valdimarsson,
tengdasynir og barnabörn.