Morgunblaðið - 03.02.1993, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.02.1993, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993 41 Astúðleg umhyggju- semi Frá Steingerði Steinarsdóttur Eg vil bytja að þakka Þorláki Karls- syni umhyggju hans í minn garð sem hann lýsir svo vel í grein sinni hér í Morgunblaðinu 30. janúar síðastlið- inn. Það eru sennilega ekki margir háskólakennarar sem hafa svo mikl- ar áhyggjur af hvort nemendunum tekst að tileinka sér námsefnið og hvort það sé þá þeirra sök ef svo er ekki. Þorlákur misskilur hins vegar al- gjörlega greinina sem ég skrifaði og varð honum tilefni vangaveltna um hæfni sína í starfi. Ég er ekki að gagnrýna aðferðafræði Þórólfs Þór- lindssonar né hans rannsóknir. Ég er að gagnrýna ummæli hans í blaðaviðtali í Morgunblaðinu þar sem hann kynnir þær niðurstöður Isínar að ákveðinn hópur manna sé duglegri, áræðnari, athugulli og framsæknari en aðrir í sömu grein. Ég held því fram að eðliskostir sem þessir séu einfaldlega of huglægir og teygjanlegir til að nokkuð megi fullyrða um slíkt. Réttlætiskennd mín segir mér að það sé einfaldlega ekki sanngjamt. Menn eru almennt ekki einu sinni sammála um hvað slíkir kostir fela í sér hvað þá að þeir geti verið sammála um hvernig mæla eigi magn þeirra. Ég tel mig ekki snilling í aðferðafræði eins og Þorlákur veit manna best og mundi því aldrei reyna að gagnrýna aðra á þeim forsendum. Hins vegar veit ég að hægt er að túlka sömu gögn á mismunandi vegu. I því sambandi er ekki úr vegi að rifja upp að þegar vökulögin voru samþykkt á sínum tíma voru það ekki hvað síst margir aflaskipstjórar sem stóðu hatrammir á móti af- » greiðslu frumvarpsins á þingi. Marg- ’ ir meðalskipstjórar voru hins vegar meðmæltir þeim og börðust með undirmönnum sínum. Þá er ekki úr vegi að spyrja hvor hafi í þessu til- liti sýnt meiri framsækni og áræði, meðalmaðurinn eða aflamaðurinn? Hvort ber meiri vott um framsækni að vera fljótur að tileinka sér nýjung- ar í búnaði sem getur aukið efnalega velferð manns sjálfs eða að grípa fljótt nýjan boðskap um bættan að- búnað verkafólks? Þorlákur talar líka um getgátur mínar og að ég geri Þórólfi ugp skoð- anir sem hann hafi ekki. Ég þarf ekki að giska á neitt, orð Þórólfs standa svört á hvítu og ef þetta eru ekki hans skoðanir er ég satt að segja mjög undrandi á að hann skuli samþykkja að þær séu lagðar honum í munn í víðlesnasta blaði landsins. Það gleður mig að fréttá að hlutur áhafnar er ekki fýrir borð borinn í rannsóknum Þórólfs en það breytir því ekki að hann kýs að láta hjá líða að nefna hann þegar hann kynnir þjóðinni rannsóknir sínar. Þorlákur talar líka um dylgjur frá minni hendi, en einu dylgjurnar sem ég kem auga á er tilraun hans til að gera lítið úr hæfni minni í starfi. Það tel ég^ bæði ómaklegt og mjög óréttlátt. Ég hef fullan rétt til að lýsa persónulegum skoðunum mín- um á prenti án þess að það hafi neitt með starf mitt að gera. Ég hefði allt eins getað kallað mig hús- móður, en því starfi gegni ég einnig. Hefði Þorlákur þá talið nauðsynlegt að gera að umtalsefni hversu misliprir menn væru með ryksug- una? Ég geri mér fulla grein fyrir að menn ná misgóðum árangri í starfi, en að hægt sé að sanna að það stafí af miklu magni af ákveðnum eðlis- kostum er ég ekki tilbúin að skrifa undir. Þorlákur hefur á engan hátt hrakið það sem ég sagði í grein minni að undanskildum hinum neyð- arlega ruglingi milli Sikileyjar og Korsíku og kann ég honum þakkir fyrir það. STEINGERÐUR STEINARSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 54, Reykjavík. I I VELVAKANDI I I I > LEIÐRÉTTING Fjölmiðlaglaðir nágrannar heimilis íjögurra einhverfra unglinga að Sæbraut, Seltjarn- arnesi, sendu yfírlýsingu í öll blöð og ljósvakamiðla á dögun- um vegna dóms sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykja- víkur hinn 14. janúar sl., þar sem þeim var gert skylt að þola búsetu fatlaðra í hverfínu. Yfirlýsingin birtist m.a. hér í Bréfi til blaðsins. Þar var sagt að í dómnum hefði í raun verið staðfest sáttatillaga stefnenda frá í haust, en henni var þá hafnað. í tillögunni var boðið upp á að málssókn yrði hætt gegn ákveðnum skilyrðum um rekstur heimilisins og ef allur málskostnaður yrði greiddur. Skemmst er frá því að segja að í dómnum eru heimilinu engin skilyrði sett um rekstur eins og gert var ráð fyrir í sáttatil- lögunni. Þá er ríkinu aðeins gert að greiða hluta málskostn- aðar. Að frádregnum hluta rík- isins þurfa stefnendur að greiða eina milljón þijúhundruð og fjörutíu þúsund sjöhundruð fimmtíu og átta krónur í máls- kostnað skv. framlögðum reikningum fýrir rétti. Svo að afdrif kröfugerðar stefnenda fyrir dómi séu rifjuð upp þá var aðalkrafan sú að hvers konar starfsemi fyrir alla þroskahefta yrði bönnuð á Sæbrautinni. Það stóð nefni- lega til á tímabili að ungling- arnir flyttu annað vegna ná- grannavandamála og að þama yrði stofnað sambýli fyrir full- orðna þroskahefta einstakl- inga. Þessum hugmyndum mótmæltu nágrannamir einnig svo að ekkert varð úr. Aðalkröfu nágranna um að banna búsetu þroskaheftra á Sæbraut 2 var vísað frá dómi. Og varakröfu um að flytja heimili einhverfra burt var hafnað. í samræmi við þennan dóm geta nú fatlaðir jafnt og aðrir flutt heimili sitt á Sel- tjarnames (eða annað)( án þess að spyija nágranna eða bæjar- stjórn leyfís. Það er mergurinn málsins. H.G. 280952-4869. SVEIATTAN! Mig langaði til að benda hundaeigendum á þann óþverra sem liggur eftir hundana þeirra um allar götur og fólk verður vart við nú _þegar snjóa er farið að leysa. Eg bý ofarlega við Lokastíg og á sjálf einn hund. Ég fer aldrei með hann út úr húsi öðruvísi en taka með mér plastpoka til að hirða upp eftir hann en því miður virðast ekki allir gera það. Ekki er ósenni- legt að íbúar við götuna eigni mínum hundi úrganginn sem liggur á Lokastígnum, þar eð þeir vita að ég á hund. Mér finnst það alveg forkast- anlegt að fólk skuli ekki þrífa upp eftir hunda sína svo fólk þurfi ekki að vaða í úrgangi eftir þá. Inga Rafmagnsverð til garðyrkj ubænda Frá Þorsteini Hilmarssyni: Kjartan Ólafsson formaður Sam- bands garðyrkjubænda héfur ekki rétt fyrir sér í Morgunblaðinu 31. janúar sl. þegar haft er eftir honum að kaupendur þurfi að auka raf- magnsnotkun sína strax um 300 megawattsstundir til þess að njóta umframrafmagns á afsláttarkjömm sem Landsvirkjun hefur boðið frá og með síðustu áramótum og næst fimm árin. Uppfylli menn þau skil- yrði sem sett eru fyrir kaupum á umframrafmagni fæst afsláttur á allri aukningu í rafmagnsnotkun og er þeim þá frjálst að auka notk- un sína smátt og smátt gagnstætt því sem haft er eftir Kjartani. Eitt skilyrði fyrir kaupum á um- framrafmagni með afslætti er að kaupandi hafi notað a.m.k. 300 megawattstundir undangengið ár. Nú eru ekki allir garðyrkjubændur í Hveragerði svo stórir að þeir upp- fylli þetta skilyrði. Þess vegna er ætlunin að koma til móts við þá með því að heimila þeim að mynda orkusamlag til sameiginlegra inn- kaupa á rafmagni sem gerir það að verkum að þeir munu njóta af- sláttarins. Til þess að fá aðgang að samlaginu þarf hver bóndi m.a. að nota a.m.k. 50 magawattsstund- ir á ári. Með þessu móti vill Lands- virkjun gera sitt til þess að flýta fyrir aukinni rafmagnsnotkun. Kjartan talar enn fremur um „afarkosti" í því sambandi að raf- magn er rofið hjá bændum á mestu álagstímum nema þeir greiði hærra verð fyrir rafmagn sem annars hefði verið rofið. Með því að sæta rofi á ákveðnum tímum fá bændur rafmagn á mun lægra verði en ella, þeir greiða rúmlega helmingi lægra verð en eftir almennum taxta. Jafn- vel með kaupum á dýru rafmagni á roftímum sem eru ekki nema um 2-300 klst. á ári er þetta fyrir- komulag þeim mun hagstæðara en kaup á forgangsrafmagni sem ekki hefur neitt rof í för með sér. Garð- yrkjubóndi sem kaupir sig undan öllu rofi hækkar ekki meðalraforku- verð hjá sér nema um 5-10% en hafa verður í huga að oft er í lagi að ijúfa lýsingu á plöntur í gróður- húsum og því ekki nauðsynlegt að kaupa sig undan öllu rofínu. Það er óneitanlega undarlegt að þeir sem hyggja á samkeppni við erlenda aðila á fijálsum markaði skuli kalla það „afarkosti" að þurfa að greiða Pennavinir Frá Ghana skrifar 22 ára stúlka með áhuga á póstkortum og pen- ingaseðlum: P.O. Box 172, Cape Coast, Ghana. LEIÐRÉTTING Málsgrein féll niður Þau mistök urðu við vinnslu á gagnrýni Ragnars Bjömssonar um tónleika Auðar Hafsteinsdóttur, sem birtist í blaðinu í gær, að kafli féll brott. Því verður öll sú máls- grein birt hér á eftir: „Auður byijaði tónleikana með verki eftir Færeying, Sunleif Ras- mussen, „Echoes of the past“, gott verk og gaf flytjandanum engin grið frá fyrstu nótu. Edward Mc- Guire, skoskur, átti næsta verk, „Rant for solo violin", eins konar dansar, vel skrifaðir fyrir fíðluna, enda verðlaunaverk. „In vultu solis“ eftir Karólínu Eiríksdóttur, þrettán ára gamalt verk. Þrátt fyrir eðlilega og fallega framrás finnst mér höf- undur of hræddur við að bijóta sé leið út úr viðjum rammans. Síðasta verk fyrir hlé var „Variations for solo violin" eftir Lyel Gresswell, sem búsettur eþ í Skotlandi, — fæddur á Nýja-Sjálandi.“ hærra verð en ella fyrir vöru eins og rafmagn þegar eftirspurn eftir henni er í hámarki á álagstímum en lægra verð þegar eftirspumin minnkar. Enda þótt umframraf- magn sé til staðar á íslandi nú þá kostar meira að afhenda það á álagstímum en utan þeirra. Um rafmagn og gúrkur gilda í raun svipuð markaðslögmál. Þeir bændur sem nú rækta gúrkur við ljós, kosta meiru til og komast þar með fyrst- ir á markað með sína vöru þegar eftirspum er mest. Þeir selja hana varla á sama verði og þegar eftir- spurn minnkar. Á meðan umframnotkun er til staðar í landinu vill Landsvirkjun hvetja til aukningar í rafmagns- notkun og gera þá jafnframt sitt til þess að örva atvinnulífíð. Lands- virkjun getur hins vegar ekki boðið verðlækkun á rafmagni almennt eða til einstakra greina án þess að um viðbótamotkun sé að ræða. Annað ylli tekjulækkun hjá Lands- virkjun sem af kostnaðarástæðum leiddi til verðhækkunar á rafmagni þegar til lengri tíma er litið og væri slík ráðstöfun rafmagnskaup- endum ekki til hagsbóta. ÞORSTEINN HILMARSSON, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E | v/Reykjanesbraufy Kopavogi, sími 671800 Talsverð hreyfing Vantar góða bfla á sýningarsvæðið Opið sunnud. kl. 14 - 18. HII8GAGM- ÍTSALA Seljum næstu daga mikið úrval af húsgögnum með allt að 50% afslætti, t.d. sófasett m/leðri og áklæði - borðstofuhúsgögn - sófaborð - vatnsrúm - vegghúsgögn - hvíldarstóla - eldhússtóla. Visa - Euro raðgreiðslur. HUSGAGNAVERSLUN REYKJAVÍKURVEGI 66, HAFNARFIRÐI, SÍMI654100. Við vorum 3 ódýrastir og bestir í fyrra og erum það enn Pantaðu fermingarmyndatökuna tímanlega Ljósmyndastofurnar: Barna- og fjölskylduljósmyndir, sími 677 644 Ljósmyndastofan Mynd, sími 65 42 07 Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 4 30 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.