Morgunblaðið - 03.02.1993, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.02.1993, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAG UR 3. FEBRÚAR 1993 Minning Hrefna Jóhannsdótt- ir frá Sauðárkróki Fáedd 17. desember 1905 Dáin 3. janúar 1993 Með þessum fátæklegu orðum langar mig að minnast hennar Hrefnu ömmu minnar. Hún var fædd á Kjartansstöðum í Staðar- hreppi 17. desember 1905. Foreldr- ar hennar voru þau Ingibjörg Jóns- dóttir, ljósmóðir frá Botnastöðum í Svartárdal, og Jóhann Sigurðsson, bóndi frá Sæunnarstöðum í Hall- árdal. Var Hrefna amma yngst tíu systkina. Amma giftist afa, Jóni Frið- bjömssyni frá Rauðuskriðu í Aðal- dal, árið 1933. Þau settust að á Sauðárkróki og bjuggu lengst af á Freyjugötu 23, í húsi sem þau reistu og kölluðu Víkingvatn. Amma og afi eignuðust tvo syni, Ólaf föður minn og Friðbjöm. Við bamabömin emm sjö og bamabarnabömin em orðin ellefu. Amma var 88 ára er hún kvaddi þessi heimkynni 3. janúar síðastlið- inn og hafði hún þá dvalist á Sjúkra- húsi Skagfírðinga frá því í ágúst á síðasta áriv er heilsan gaf sig. Við systurnar þijár áttum því láni að fagna að alast upp í sama húsi og amma og afi bjuggu í og reyndist það okkur gott veganesti út í lífíð. A kveðjustund er margs að minn- ast. Nú em jólin nýliðin og þá hugs- um við oft til baka. Það em ljúfar minningar sem við systur eigum frá okkar bernskujólum og undirbún- ingi undir þau, m.a. þegar amma og mamma bökuðu smákökur og öll fjölskyldan stóð í laufabrauðs- bakstri. Á aðfangadag var oft erfitt að bíða eftir að jólahátíðin gengi í garð, lét þá afí okkur systumar syngja með sér jólasálma með út- varpsmessunni til að stytta okkur biðina. Og ekki var amalegt að vakna á jóladagsmorgun og læðast niður til ömmu og afa sem biðu með heitt súkkulaði og kökur. Þau vom alveg sérstaklega gestrisin, þó að efni væm aldrei mikil og höfðu gaman af að fá gesti, enda komu margir til þeirra, sumir til lengri eða skemmri tíma. Amma og afi vom miklir dýravin- ir og áttu kindur í félagi við for- eldra mína. Nutu þau þess að hugsa um þær eða þar til heilsa afa gaf sig. Hann dó í október 1975, 78 ára að aldri, og hafði þá átt við vanheilsu að stríða í nokkur ár. Þegar amma var komin yfír sjö- tugt fór hún að ferðast um landið með orlofskonum úr Skagafirði. Vora þessar ferðir henni ógleyman- leg ánægja og ævintýri. I þessum ferðum eignaðist hún margar mjög góðar vinkoonur. Hún amma var mikil jafnréttis- og kvenréttindakona og eftir að Kvennalistinn kom til sögunnar studdi hún hann af heilum hug. Ekki er mér gmnlaust um að henni + Ástkær sonur, faðir og bróðir, SIGTRYGGUR VILHJÁLMSSON frá Þórshöfn, lést 1. febrúar. Kristrún Jóhannsdóttir, Selma Rut Sigtryggsdóttir og systkini hins látna. t Systir okkar og mágkona, JÓHANNA LAURENSE HELGASON, lést í Borgarspítalanum mánudaginn 1. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Kristbjörg Jónsdóttir, Paula Jónsdóttir, Eli'se Larsen, Sigurður Jónsson, Jón Jónsson og aðrir aðstandendur. + Hjartkaer móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR kennari, áður Holtsgötu 11, Hafnarfirði, andaðist á Sólvangi mánudaginn 1. febrúar. Jón Bergson, Þórdís S. Sveinsdóttir, Örn Bergsson, Svala Jónsdóttir, Ólafur B. Bergsson, Ragna G. Þórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Útför ástkærrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR SIGRÍÐAR MAGNÚSDÓTTUR, áður Njarðargötu 61, Reykjavík, verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 4. febrúar nk. kl. 15.00. Magnea J. Þorsteinsdóttir, Þór V. Steingrímsson, Sigurður H. Þorsteinsson, Erna Sigurbaldursdóttir, Hjördís Magnúsdóttir, Kristmann Magnússon, Guðmundur Þorsteinsson, Ásthildur Þorkelsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. hafí fundist við systur heldur linar í kvenréttindamálunum. Amma var mjög vel gefin kona og víðlesin og hafði ætíð frá mörgu að segja. Hún kom oft í heimsókn til mín til Skagastrandar, eftir að ég fluttist þangað árið 1973. Vom það oft skemmtilegar stundir sem við áttum við eldhúsborðið og fræddi hún mig um margt frá gam- alli tíð. Elsku amma mín, nú er komið að leiðarlokum og vil ég þakka þér samfylgdina. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Guðbjörg Ólafsdóttir. Sífellt tifar tímans hjól. Kynslóð- imar koma og fara. Eg var bæði hryggur og glaður í senn er vinkona mín og heimilisvinur kvaddi sitt jarðneska líf. 87 ár vom að baki. Þó varð Hrefna aldrei gömul í venjulegum skilningi þess orðs. Síung og fersk í hugsun fram á síðustu misseri er heilsunni hrakaði ört. Hrefna var einn þeirra einstak- linga er setti svip á mannlífíð á Sauðárkróki með sinni ljúfu og hæglátu framkomu í nærri sex ára- tugi. Árið 1935 fluttist hún ásamt manni sínum, Jóni Friðbjamarsyni, framan úr sveitinni og á Krókinn, en fyrstu tvö hjúskaparárin bjuggu þau á Kjartansstöðum á Langholti á föðurleifð Hrefnu í sambýli við Þórð bróður hennar. Skamma hríð bjuggu þau í „Heimi“, Skagfírð- ingabraut 1, og síðan í „Skúmum", Freyjugötu 13, í sama húsi og Pét- ur Laxdal bjó með fjölskyldu sinni, faðir Siguijóns, fyrrverandi forseta borgarstjómar Reykjavíkur. Jón og Hrefna byggðu húsið Freyjugötu 23 á móti Eiríki frá Djúpadal og fluttust þau 1938 í nýbyggt hús sitt og bjuggu þar síðan allan sinn búskap. Jón Friðbjörnsson lést 1. október 1975, en hann fæddist 27. júlí 1897. Hrefna og Jón eignuðust tvo syni, Ólaf, sem kvæntur er Bám Svavars- dóttur, og Friðbjörn, sem kvæntur er Sigrúnu Ámundadóttur. Ólafur býr á Sauðárkróki, en Friðbjöm í Reykjavík. Báðir eigá marga af- komendur, Ólafur þijú börn og átta bamaböm, Friðbjörn fímm börn og sex barnabörn. Eg kom stöku sinn- um á heimili Jóns og Hrefnu á æskuárum mínum, enda stutt milli húsanna í sömu götu. Jón rækti félagsmál af mikilli samviskusemi og starfaði mikið að verkalýðsmál- um, var lengi gjaldkeri V.m.f. Fram. Faðir minn og hann áttu samleið hjá Fram og var ég oft fenginn til ýmissa snúninga því viðkomandi. Jón var afar vel gerður maður og vinsæll og átti bágt með að neita fólki, á hann hlóðust því margvís- legustu störf. í áranna rás fór það svo að þau hjónin bæði deildu með sér verkefn- um og þegar heilsu Jóns tók að hraka tók Hrefna að sér hin ýmsu verkefni á félagslega sviðinu jafn- hliða daglegum önnum. Hrefna og Jón vom sérlega samhent hjón. Heimilislífið kærleiksríkt og ákaf- lega notalegt að sækja þau heim. Um áratugi áttu þau búpening, sem lengi var í húsum niðri á Kambin- um, síðar uppi á Móum. Bæði vom þau hjón mikið fyrir skepnur, enda fædd og uppalin í sveit, komin af traustu og rótgrónu bændafólki. Þau höfðu margt fé, mjólkurkú og fjöldann allan af hænum um tíma. Krókurinn var eins og lítið landbúnaðarþorp á þessum ámm. Fólk komst vart af nema hafa nokkurt skepnuhald, sjálfsþurftarbúskapurinn skipti sköpum. Jón og Hrefna hugsuðu afar vel um sinn búsmala, áttu fal- legt fé. Magnús heitinn Konráðs- son, sem í mörg ár átti heimili hjá foreldmm mínum, var mikill heim- ilisvinur hjá Jóni og Hrefnu. Þau hjón vom afar hjálpleg við Magga sem var mikið fatláður síðari hluta ævinnar, sem vom afleiðingar byltu af hesti, þegar hann var tólf ára gamall. Maggi sá oft um gjöfína fyrir þau hjón þegar þannig stóð á. Það var mikið og gott sálufélag milli þessara vina minna. Ekki veit ég hvað réð, en Ólafur sonur Jóns og Hrefnu og Valdimar sonur Magga gerðu lengi út saman. Fyrst trillur og síðan dekkbátinn Sigurvon SK 8. Svo vildi til að síð- sumars 1959 og fram undir áramót- in það ár reri ég með Óla og Valda, fyrst á handfæri og síðan á net og línu. Það var gott að róa með þeim félögum. Þetta efldi kunningsskap- inn við Jón og Hrefnu. Nú liðu árin við nám og vinnu, og tengslin við fólkið í heimahögun- um minnkuðu. Þáttaskil urðu 1970 er fjölskylda mín fluttist í Smára- gmndina. Parmes Siguijónsson, afí konu minnar, leiddi okkur Jón og Hrefnu saman á ný. Parmes og Jón vom gamlir sveitungar úr Keldu- hverfí. Leiðir þessara föllnu heið- ursmanna lágu saman á heimili mínu í fáein ár og þeir auðguðu svo sannarlega heimilislífið, og Jón varð heimilisvinur allt til dauðadags. Hrefna tengdist smátt og smátt heimili mínu, og hnýtti bönd mikill- ar vináttu við fjöískylduna, ekki síst konu mína sem varð tveggja áratuga órofa vinátta. Þær vom notalegar stundimar þegar Hrefna sat við eldhúsborðið og var stundum dálítið hugsi. Strauk hendinni yfír borðbrúnina og fallega hlýja brosið hennar breiddist eins og sólargeisli yfír okkur hin. Umhyggja Hrefnu fyrir fjölskyldu minni var mikil. Á sinn hægláta og kærleiksríka hátt gaf hún af sér allt sitt besta til samferðafólksins. Jón og Hrefna vom lengi í sambýli við fjölskyldu Guðjóns Ingimundarsonar sem bjó á efri hæð Freyjugötu 23. Sambýlið var til fyrirmyndar og kærleikar með fjölskyldunum. Birgir sonur Guðjóns átti við vanheilsu að stríða í bemsku. Hrefna varð Birgi sem önnur móðir á þessum ámm, enda sótti hann mjög til Jóns og Hrefnu á neðri hæðinni. Þessi vinátta entist ævilangt, og lýsir vel hjartalagi Hrefnu, en oft nefndi hún Birgi sinn Verð kr. 800,- Hallargarðurinn Húsi verslunar, sími 678555. Erfidrykkjur Glæsileg kafli- hlaöborö íaJlegir salir og mjög góð þjónusta. Upplýsingar ísíma22322 FLUGLEIDIR HÍTEL LIFTLEIIIK + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VIKAR ÁRNASON fyrrverandi sjómaður, Sólvallagötu 28, Keflavík, lést mánudaginn 1. febrúar. Árni Vikarsson, Sigurjón Vikarsson, Hólmbert Friðjónsson, tengdadœtur, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐMUNDA JÓNA PÉTURSDÓTTIR frá Isafirði, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 3. febrúar kl. 13.30. Fanney Halldórsdóttir, Pétur Geir Helgason, Ósk Norðfjörð Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, ÓLAFUR MAGNÚSSON húsasmíðameistari, Dalbraut 20, lést í Landspítalanum 2. febrúar. Helga Á. Guðmundsdóttir, Ólafur A. Ólafsson, Katrín Ólafsdóttir, Sólveig Ólafsdóttir, Marfa Ólafsdóttir. + Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, PETREA ANDRÉSDÓTTIR, til heimilis á Skólastíg 14A, Stykkishólmi, sem iést í Sjúkrahúsinu í Stykkishólmi 29. janúar sl., verður jarð- sungin frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 6. febrúar kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á dvalarheimili aldraðra, Stykkishólmi. Fyrir hönd vandamanna, Elsa Valentínusdóttir, Guðni Friðriksson og börn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.