Morgunblaðið - 03.02.1993, Side 34

Morgunblaðið - 03.02.1993, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993 fclk í fréttum ARSHATIÐ Gestir upplifðu Gull- fossstemmningu Fjölmenn árshátíð Eimskipafé- lagsins fór fram á Hótel ís- landi sl. föstudagskvöld, en um 500 manns mættu á staðinn. Starfsfólk lagði mikið á sig við undirbúning og var árshátíðin byggð upp eins og gestir væru að fara í ferð með gamla Gullfossi. Meðal skemmtiatriða var 50 mín- útna löng revía, samantekt á annál fyrirtækisins, sem 20 manna starfshópur tók þátt í undir dyggri leikstjóm Valgeirs Skagfjörðs. Þegar gestir komu að Hótel ís- landi var skipsbjöllu hringt og fólk gekk upp landgang, sem var eftir- líking af hinum eina og sanna landgangi Gullfoss. Brottfarar- spjaldið var á sínum stað, en auk þess voru ýmsir munir til sýnis, ýmist eftirlíkingar eða gamlir hlut- ir af skipinu, eins og gestabókin, LATTU HÖFUÐ SPILLA LÍFSGLEÐ! ÞINNI Talið er að um 20.000 fullorðinna íslend nga hafi einhvern tíma þjaðst af mígren. Ert pú einn þeirra? Leitaðu upplýsinga hjá Mígrensamtökunum í síma 642780 í kvöld kl. 20 - 23. MIGREN SAMTÖKIN SÍMI642780 skipsbjallan og fleira. Aðgöngum- iðinn var útbúinn eins og farmiði, en aftan á honum var danskort, þar sem gestir gátu skráð sig. Þá var matseðillinn útbúinn eins og strompur og á honum stóð: Gull- foss. Eimskip ’93. „Ferð án fyrir- hyggju". Flautað var til brottfarar kl. 20 með skipsflautu. Um leið heyrðist sjávamiður og vélarhljóð til að gestir fengju á tilfinninguna að þeir væm í raun að yfirgefa land- ið. Húsinu var skipt niður í þrjú farrými og lest, en að þessu höfðu þeir hæstsettu aðsetur í lestinni. Að sögn starfsmanna var gleðin mikil og ekki til skammdegi í mannskapnum. Vora menn al- mennt mjög ánægðir með hug- myndina. „Það sýnir sig að þegar starfsfólkið tekur sig saman og sér um undirbúning og skemmtiat- riði, að það fellur vel í kramið. Það var líka stórkostlegt að fyrr- verandi starfsmenn vora tilbúnir að mæta á árshátíðina og taka á móti gestum. Þrátt fyrir barlóminn í þjóðfélaginu var mætingin tölu- Veislustjóri var Thomas Möller. Hann er hér i góðum félagsskap Gyðu Halldórsdóttur, sem að- stoðaði við að draga út vinnings- hafa úr happdrætti kvöldsins. vert betri í ár en til dæmis í fyrra og það mæltist mjög vel fyrir að gera árshátíðina að nokkurs konar ferð,“ sögðu þau Halldóra Har- aldsdóttir og Guðmundur Stefán Jónsson í samtali við Morgunblað- ið. Skipsbjallan ómaði þegar gestir gengu upp landgöngubrúna. Hér stígur um borð Reynir Hólm Jónsson, starfsmaður í skipaafgreiðslu Eimskips, ásamt fleiri gestum. Hreinar tennur Salt-tannkremið hreinsar og örvar lífeðlisfræðilega sjálfhreinsun tannanna, styrkir tannhold og slímhúð. Engin kemísk bleiki- litar- eða slípiefni. Munnskolið er frá bært við munn- angri og bólgum. Þú getur treyst Weleda Weleda fæst í Þumaltnu; Heilsuhúsinu; Rakarastofunni, Suðurlandsbraut 10 og Hafnarstræti 5; Nuddi f. heilsuna, sjúkra- nuddstofu Silju; Hótel Örk og Heilsubúöinni, Hveragerði; Hárskerastofu Sveinlaugar, Neskaupstaö; Laufinu, Hallormsstaö; Ismáfi og Marinu, Egilsstöðum; Heilsurækt Sólrúnar, Djúpavogi; Vallarkoti, Laugum; Hafnarfjarðarapóteki; Ninju, Vestmannaeyjum og í apótekum úti á landi. Umboð: ÞUMALINA, Laifsgötu 32. Sími 12136. Tuttugu manna hópur starfsfólks setti upp kabarett undir stjórn Valgeirs Skagfjörðs. F.v. Elva Brynja Sigurðardóttir, Ásta Gréta Samúlesdóttir og Ása Einarsdóttir. Morgunblaðið/Kristinn Áhöfnin sem starfaði á Gullfossi tók á móti veislugestum. F.v. Erlend- ur Jónsson stýrimaður, Gísli Hafliðason vélstjóri, Guðmundur Þórðar- son bryti og Rannveig Ásgeirsdóttir þerna, sem heilsar hér Herði Sigurgestssyni forstjóra. Rétt glittir í kaskeiti Ragnars Ágústssonar stýrimanns á bak við Auglýsingarnar eins og þær birtast í breskum og íslenskum blöðum. FATNAÐUR Enn hneykslar Benet- ton-auglýsing Auglýsing frá Benetton-sam- steypunni hefur hneykslað fólk út um allan heim einu sinni enn. Að þessu sinni er myndin af Luciano Benetton, 57 ára gömlum framkvæmdastjóra samsteypunnar, allsnöktum og það eina sem hylur hann era bókstafír. Hinn umdeildi Ijósmyndari og auglýsingaleiðtogi Oliviero Toscani segist ekki hafa átt í vandræðum með að sannfæra Benetton um að hugmynd sín væri góð. Toscani neitar því að Benetton sé haldinn þeirri þörf að sýna sig og vera til umfjöllunar. Þvert á móti sé honum eðlilegt að vera lítið áberandi, hann sé feiminn og vilji eiga sitt einka- líf. „En hann er sú manngerð sem hefur gaman af skondnum hliðum mannlífsins," segir Toscani. Bannað að birta auglýsinguna í nokkram löndum hefur gegnum tíðina verið neitað að birta auglýs- ingar frá Benetton vegna mynda sem í þeim hafa verið. Svo er einn- ig nú. í arabalöndum hafa auglýs- ingamar ekki fengið birtinu í dag- blöðum og tímaritum og í Egypta- landi sér einungis í fætur og andlit Benettons. Sjálfur segir hann að auglýsingunni sé ekki ætlað að hneyksla fólk heldur minna á verð- ugt yiðfangsefni. Benetton-fjöl- skyldan hefur skipulagt fatasöfnun dagana 2. febrúar til 13. mars í gegnum 5.300 verslanir sínar í 83 löndum. Fötin verða síðan afhent Rauða krossinum og Caritas, sem munu koma þeim áfram til þurf- andi. Vill hreinsa til í ítalskri pólitík Benetton, sem kosinn var til þings sl. vor, bendir einnig á að nekt sín sé myndlíking um að taka til í ítalskri pólitík. Hann segir að fólk vilji fá að sjá hvern það hafí kosið. Rík þörf sé fyrir hreinleika, skýrmælgi og heiðarleika. Myndatakan fór fram fyrir lukt- um dyram og einungis ljósmyndar- inn og Luciano Benetton voru við- staddir. Hún tók aðeins fímm mín- útur og að sögn var Benetton af- slappaður og þolinmóður. Ljós- myndarinn segist hafa tekið nokkr- ar myndir þar sem Benetton var með útréttar hendur í stað þess að hylja kynfæri sín, en hann hafí tek- ið þá ákvörðun að birta þær ekki. „Það hefði bara orðið til þess að vekja öfund,“ sagði hann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.