Morgunblaðið - 03.02.1993, Síða 35

Morgunblaðið - 03.02.1993, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1993 35 HEIMDALLUR Vilhjálmur Egilsson valinn þingmaður ársins 1992 Fyrir skömmu tilnefndi stjórn Heimdallar, félags ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík, Vilhjálm Egilsson þingmann ársins 1992 og afhenti honum farandbikar af því tilefni. Þetta er í sjöunda sinn, sem Heimdellingar verðlauna þann þing- mann, sem hefur skarað fram úr að þeirra áliti, en Davíð Oddsson, for- sætisráðherra, var handhafi bikars- ins í fyrra. í ræðu sem Kjartan Magnússon, formaður Heimdallar, hélt þegar bik- arinn var afhentur kom fram að Vil- hjálmur væri vel að titlinum kominn, enda hefði hann reynst ötull talsmað- ur einstaklingsfrelsis og takmörkun- ar ríkisafskipta á þingi. Hann væri ávallt í fremstu röð þeirra þing- manna, sem vöruðu við skattahækk- unum og stæðu gegn því að stjóm- völds tækju til sín meiri völd úr hönd- um almennings en orðið væri. Þá hefði Vilhjálmur staðið sig með stakri prýði sem formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis en í henni var stór hluti EES-frumvarpanna til meðferðar. Kjartan gat þess einnig að á síð- Áslaug Magnúsdóttir, stjórnarmaður í Heimdalli, afhendir Vilhjálmi þingmannabikarinn eftirsótta. asta ári hefði Vilhjálmur verið dug- stjómarinnar í fjölmiðlum enda væri legur við að svara stjómarandstöð- Vilhjálmur þeim hæfileikum gæddur unni og leiðrétta rangfærslur hennar að geta útskýrt flókin mál með ein- á Alþingi. Hann hefði lagt mikla földum hætti. áherslu á að kynna málstað ríkis- Nemendur í níunda bekk Lækjarskóla vinna að silkimálun. ÞEMAVIKA Morgunblaðið/Sverrir Æfðu ræðumennsku og skoðuðu Alþingi Svonefndri þemaviku lauk s.l. föstudag í Lækjarskóla í Hafnarfírði en hún hefur verið ár- viss í skólastafinu þar undanfarin ár. Þessa viku er ekki kennt eftir stundartöflu heldur fást nemendur við ýmis verkefni og sækja nám- skeið. „Við vomm með margs konar verkefni að þessu sinni,“ sagði Björn Ólafsson, skólastjóri Lækjar- skóla í Hafnarfirði, í samtali við Morgunblaðið. „Þessa viku var ekki kennt eftir stundartöflu heldur fást nemendur við verkefni þar sem tek- ið er á ýmsu sem ekki gefst færi á í hefðbundnu skólastarfi. Verkefnin voru margs konar að þessu sinni: umgengnisreglur, dans, blaða- mennska, tölvufræði, ræðu- mennska, skoðunarferðir, félags- vist o. fl. Auk þess störfuðu föndur- hópar í leirmótum. Þetta er skipu- lagt þannig að nemendur fara í gegn um öll verkefnin, nemandi byijar t.d. í umgengnisreglunum, daginn eftir fer hann í blaða- mennsku, þann næsta í skoðunar- ferð í Alþingishúsið og Ráðhúsið o. s. frv. Við höfum verið með svona þemaviku hér undanfarin ár og hefur hún mælst vel fyrir hjá nem- endum og foreldrum." EGLA -RÖÐ OG REGLA Margir litir margar stærðir. Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum helstu bókaverslunum landsins. VEL jUM ÍSE enskt Múlalundur Vinnustofa SÍBS Símar: 628450 688420 688459 Fax 28819 fltogmiiifftfeife Metsölublad á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.