Morgunblaðið - 12.02.1993, Side 13
' MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993
13
Samband rík-
isogkirkju
eftirséra Sigurð
Sigurðarson
Að undanförnu hafa fjölmiðlar
gert sambandi ríkis og kirkju hér
á landi nokkur skil. Kveikja þess
er yfirlýsing áhugamanns um að-
skilnað ríkis og kirkju þess efnis,
að nú standi fyrir dyrum að stofna
samtök til að beita sér fyrir þeim
aðskilnaði.
Þó að samband ríkis og kirkju á
íslandi hafi verið allnáið og viður-
kennt allar aldir kristni í landinu,
er umræðuefnið ekki alveg nýtt.
Fyrir og um síðustu aldamót urðu
líflegar umræður um hugsanlegan
aðskilnað ríkis og kirkju, t.d. í
Kirkjublaðinu gamla. Vöknuðu þær
umræður m.a. vegna mikilla breyt-
inga, sem þá voru að gerast í kirkju-
málum. Sett voru lög um sóknar-
nefndir, afhendingu kirkna til safn-
aða, sölu kirkjujarða og laun presta,
svo eitthvað sé nefnt. Lögin, sem
gerðu ráð fyrir því, að prestar yrðu
launamenn ríkisins, mættu and-
stöðu ýmissa presta. Þau lög fólu
það í sér, svo mikilli einföldun sé
nú beitt, að ríki og sveitarfélög tóku
að sér að varðveita og ávaxta eign-
ir kirknanna og greiða í staðinn
prestunum laun. Prestarnir hættu
þá að taka umbun sína og lífsviður-
væri beint af afrakstri kirkjueign-
anna, en héldu áfram að lifa af
þeim fyrir milligöngu ríkisvaldsins.
Sumum þótti þetta til hagræðis, en
öðrum þótti til mikils hætt um hag
kirkjunnar. Þar má t.d. nefna til
menn eins og hefðarklerkinn séra
Þorkel á Staðarstað, sem vildi að
kirkjan tæki í sína umsjá allar eig-
ur sínar og hefði upp frá því ekk-
ert fjárlag með ríkinu.
Ofan á varð það fyrirkomulag,
sem við nú búum við, að ríkið varð-
veitir eigur kirkjunnar og kostar
þess vegna þjónustu hennar. Hvern-
ig mátti það verða? spyrja menn.
Mitt álit er, að skýringin sé fólgin
í því, að um þetta leyti var komin
á stokkana ný bændastefna, sem
gekk út á það að gera alla bændur
að jarðeigendum. Menn voru að losa
um verulegar jarðeignir með þess-
um ráðstöfunum.
Þeir, sem um það hafa hugsað
og fylgst með, vita að varðveisla
og ávöxtun kirkjueigna hefur ekki
ávallt farist ríkisvaldinu vel úr
hendi. Um það allt liggja fyrir gögn,
sem óyggjandi eru. Hins vegar skul-
um við ekki gleyma því, að Alþingi
hefur ávallt í löggjöf sinni um ráð-
stöfun kirkjueigna til veraldlegra
aðila, skilja samhengið og lagt and-
virði kirkjueigna til þeirra sjóða, er
styrkja eiga kirkjulega þjónustu.
Við eigum því fyrst og fremst við
framkvæmdavaldið að sakast um
þá óvönduðu meðferð kirkjueigna,
sem viðgengist hefur.
Nú starfa nefndir ríkis og kirkju
að því, að fara yfir stöðu eigna-
mála kirkjunnar og nefnd presta-
stefnu um sama efni, og starfa þær
auðvitað á grunni þeim er kirkju-
eignanefndin lagði, en hún hefur
ekki að fullu lokið störfum sínum.
Allt þetta starf stefnir að því að
skýra það, hvernig greiða megi úr
þessum eignamálum til þess að
gera kirkjuna óháðari og sjálfbær-
ari fjárhagslega, og leysa ríkið úr
þeim kröggum að eiga óuppgert við
kirkjuna og eiga yfir höfði sér hættu
á sársaukafullri togstreitu um veru-
lega hagsmuni.
Á kirkjan eigur sínar
með réttu?
Þessarar spurningar get ég hér
vegna þess, að þegar rætt er um
kirkjueignir minnast margir sög-
unnar um prestinn, sem laut yfir
deyjandi manneskju og sagði „og
gefur hún enn“. Sagan er ótrúlega
lífseig og hefur þannig áhrif, að á
grundvelli hennar finnst mörgum
þeir hafa fundið út, að kirkjueignir
séu nú ekki vel fengnar. Slík álykt-
un er auðvitað hin mesta fjarstæða.
Kirkjum hafa safnast eignir frá
kristnitöku og allt til þessa dags.
Við skulum líka vara okkur á því,
að ef við vefengjum eignarrétt
kirkna erum við að vefengja eignar-
rétt yfirleitt.
Þegar ég kom til Ungveijalands
1989 predikaði ég þar í lúterskri
kirkju. Það fyrsta sem staðarprest-
ur þar vakti athygli mína á var
mikil bygging áföst kirkjunni. Hann
sagði mér að þarna hefðu þeir rek-
ið skóla þangað til kommúnista-
stjórnin tók hann af þeim. Nú var
búið að afhenda þeim skólann aftur
og þeir ætluðu að hefja rekstur á
ný. í nóvember síðastliðnum fékk
ég tækifæri til að fara til Lettlands
á ráðstefnu, sem haldin var í Riga.
Þar prédikaði ég í kirkju í Sloga.
Fjöldi skráðra safnaðarmanna hafði
ijórfaldast á einu ári. Nú vantaði
þá sárlega húsakynni, sem kirkjan
hafði lengi átt. Ríkið var búið að
skila byggingunni formlega. í því
húsi búa rússneskir herforingjar og
leigusamningur þeirra er ekki runn-
inn út. Þeir vita það samt að það
er kirkjan í Sloga en ekki ríkið sem
leigir þeim. Þannig telja þessar
þjóðir það sjálfsagðan þátt í lýðræð-
isþróuninni að virða eignarétt kirkj-
unnar. Þær eignir urðu ekki til með
neinum öðrum hætti en eignir okk-
ar kirkju. Ef einhver munur er á
viðhorfi til eignarréttar þessara lút-
ersku kirkna þar og hjá okkur, er
það mikið umhugsunar- og rann-
sóknarefni, er varðar bæði þjóð-
menningu og réttarfar.
Sigpirður Sigurðarson
„Hugtakið þjóðkirkja
felur fyrst og fremst í
sér, að það sé kirkja
þjóðar, sem deilt hefur
kjörum með heilli þjóð
og lagt sitt fram við
uppbyggingu þjóð-
menningar. Oumdeilan-
legt er, að íslenska
þjóðkirkjan hefur verið
og er enn slík kirkja.“
Þjóðkirkja eða ríkiskirkja
Fyrr gat ég um, að allar aldir
kristni á íslandi hefði samband rík-
is og kirkju verið nokkuð náið. Um
þá fullyrðingu verður varla deilt.
Hitt má fremur um deila hvort
kirkjan hefur hér fremur verið ríkis-
kirkja en þjóðkirkja.
Hugtakið þjóðkirkja felur fyrst
og fremst í sér, að það sé kirkja
þjóðar, sem deilt hefur kjörum með
heilli þjóð og lagt sitt fram við upp-
byggingu þjóðmenningar. Óumdeil-
anlegt er, að íslenska þjóðkirkjan
hefur verið og er enn slík kirkja.
Því verður ekki breytt með einhveij-
um yfirlýsingum um aðskilnað ríkis
og kirkju, né með stjórnarskrár-
breytingu.
Hitt skal svo viðurkennt, að með
ýmissi löggjöf um kirkjumál í heila
öld, hefur nokkuð sótt í það far,
að þjóðkirkjan yrði meiri ríkiskirkja
en áður var. Þau atriði þarf auðvit-
að að endurskoða. Slík endurskoðun
snýst ekkert endilega um aðskilnað
ríkis og kirkju, heldur um sambúð
ríkis og kirkju. Sú sambúð hlýtur
ávallt að vera til umræðu um allan
heim.
Sambúð ríkis og kirkju
í stjórnarskrá Bandaríkjanna er
ákvæði um aðskilnað ríkis og kirkju.
Þar deila menn um hvort því ákvæði
sé hlítt í ljósi þeirra miklu skattfríð-
inda, sem kirkjur og prestar njóta
þar. Einnig er deilt um hvort þessi
aðskilnaður sé æskilegur vegna
þess hve ósnertanleg trúfélög eru
í skjóli stjórnarskrárinnar. Af þeim
sökum reyndist erfitt að koma lög-
um yfir vafasama starfsemi ýmissa
framandlegra trúfélaga.
í stjórnarskrá fyrrverandi Sovét-
ríkja var hliðstætt ákvæði. Þar
komust menn að þeirri niðurstöðu,
að ríkinu bæri að vernda þjóðina
fyrir kirkjunni með því að frysta
sjóði hennar og leggja hömlur á
boðun hennar.
Af þessum dæmum og fleirum,
sem rekja mætti, sjáum við, að yfir-
lýstur aðskilnaður ríkis og kirkju
leysir menn ekki úr þeim vanda að
þurfa að taka afstöðu til sambúðar
ríkis og kirkju. Sú sambúð er og
verður með ýmsu móti, og hana
hljótum við að móta fyrir okkur á
grundvelli sögunnar og reynslunnar
í landinu.
Stjórnarskrárgreinin um þjóð-
kirkjuna fellur ekki ein sé hún felld
úr gildi. Hún er sjálfsagt framhald
þess sáttmála, sem til varð milli
ríkis og kirkju á siðaskiptatímanum
og skýrast kemur fram í kirkjuskip-
an eða ordinatíu Kristjáns III. Hún
var samþykkt á Alþingi. Ekki varð
kirkjan að ríkiskirkju við siðaskipt-
in, en konungur tók sér ákveðið
vald innan kirkjunnar og hét í stað-
inn vernd sinni. Þetta samstarf rík-
is og kirkju stóð svo óbreytt þegar
stjórnarskráin var samin og stendur
að miklu leyti enn. Enn hefur ríkis-
valdið nokkurt vald í ytri málefnum
kirkjunnar og enn eru eigur kirkj-
unnar í vörslu ríkisins. Enn sinnir
kirkjan í þjónustu sinni ákveðnum
almennum samfélagslegum þáttum
fyrir ríkisvaldið. Ef við nú fellum
stjórnarskrárgreinina um þjóðkirkj-
una úr gildi, fellur allt þetta úr gildi.
Þá skilar ríkið eigum kirkjunnar og
hættir að hafa nokkur áhrif á starf
hennar og þiggja þjónustu hennar.
Ríkið mundi hætta að innheimta
sóknargjöldin fyrir þjóðkirkjuna og
öll trúfélögin, sem ríkið þjónar að
þessu leyti núna. Endurskoða þyrfti
alla löggjöf, er snertir trúfélög í
landinu, og ekki er víst að hin nýja
löggjöf yrði öðrum trúfélögum eins
hagkvæm og hún er nú. Þetta yrði
afdrifaríkt, og skyldi engan undra,
því að það á við um allar greinar
stjórnarskrárinnar, að þegar við
viljum þar einhveiju breyta, erum
við komin að innstu kviku stjórn-
skipunarinnar í landinu.
Ekki ætla ég að hafa þessi orð
fleiri nú, en tel að þetta nægi til
þess, að sýna fram á, að ef menn
vilja aðskilnað ríkis og kirkju þurfa
að liggja til þess gildari rök en
þau, að þar sé fundin einföld leið
til að spara ríkissjóði peninga. Ef
einhveijir láta sér detta í hug, að
ekki þurfi að virða réttindi kirkjunn-
ar, þá stofna þeir til átaka, því að
þeir verða líka til, sem miklu vilja
til kosta að veija réttindi þjóðkirkj-
unnar.
Höfundur er sóknarprestur á
Selfossi.
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E rCTl
v/Reykjanesbraut. -fryr-t
Kopavogi, sími
671800
OPIÐ SUNNUDAGA
KL. 14 - 18.
Toyota Corolla Touring XL 16v 4 x 4 ’91,
hvítur, ek. 41 þ. V. 1190 þús. stgr.
Waagoneer Limited ’86, brúnsans, m/við-
arkl., 6 cyl. (2.8), sjálfsk., ek. 89 þ., leður-
innrétting, rafm. i rúðum o.fl. V. 1190
þús. stgr., sk. á ód.
V.W. Golf GL 1.8 sport ’92, grænsans,
5 g., ek. 8 þ., vökvast. o.fl. V. 1090 þús. stgr.
MMC Lancer GLXi 4x4 Hlaðbakur ’91,
vínrauður, 5 g., ek. 18 þ., rafm. í öllu,
þjófav.kerfi, fjarst.læsingar o.fl. V. 1130
þús. Bein sala
Jaguar XJ6 ’81, sjálfsk., m/öllu, álfelgur,
sóllúga o.fl. Óvenju gott eintak. V. 970
þús., sk. mögul. á t.d. jeppa.
BMW 518i ’88, 4ra dyra, 5 g., ek. 52 þ.,
sóllúga, álfelgur o.fl. Toppeintak. V. 1290
þús., sk. á ód.
Fiat X1/9 Bertone Spider '80, 5 g., ek.
55 þ. Allur endurnýjaður. V. 430 þús.
Nissan King Cap SE V-6 (USA) ’92, rauð-
ur, sjálfsk., ek. 16 þ., álfelgur, sóllúga,
ABS, rafm. rúður o.fl. V. 1750 þús. stgr.
Toyota Hilux Ex Cap SR5 '91, m/húsi,
5 g., ek. 33 þ., álfelgur o.fl. Gott eintak.
V. 1490 þús.
Nissan Sunny 1600 SLX '92, 4ra dyra,
sjálfsk., ek. 13 þ., vökvast., álfelgur o.fl.
V. 950 þús. stgr.
MMC Lancer EXE hlaðbakur '92, sjálfsk.,
ek. 15 þ. V. 1080 þús. stgr.
Toyota Hilux Douple Cap diesel '89, 5
g., ek. 109 þ. V. 1150 þús., sk. á ód.
Cherokee Jeep 2.5L '84, 5 dyra, 4 g.,
uppt. vél. Gott útlit. V. 850 þús.
Ford Bronco 8 cyl. (302) ’74, sjálfsk.,
mikið endurnýjaður. Gott ástand. V. 480
þús.
V.W. Transporter 9 manna '87, ek. 93
þ. V. 550 þús., sk. á ód.
MMC Galant GLSi hlaðbakur '92, sjálfsk.,
ek. 32 þ., sóllúga, álfelgur, ABS o.fl.
V. 1550 þús.
Ford Ranger Ex Cap XLT 4x4 '92,
sjálfsk., 6 cyl., ek. 12 þ. V. 1690 þús., sk.
á ód.
Honda Civic GL 16v '90, 5 g., ek. 30 þ.
V. 750 þús.
Honda Accord EXi '90, 5 g., ek. 43 þ.,
sóllúga o.fl. V. 1280 þús.
MMC Lancer GLX '86, 5 g., ek. 82 þ.
V. 320 þús. stgr.
Volvo 760 GLT station '91, blásans, 5
g., ek. 20 þ., ABS bremsur o.fl. V. 1950
þús., sk. á ód.
Höfdar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
I Útsölunni lýki ir á moiminjaugardag 1
| 1 Við lækkum 1 í dag Tískuverslunin O O O 1 um 15% til viðbótar 1 og á morgun 1