Morgunblaðið - 12.02.1993, Page 21

Morgunblaðið - 12.02.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 12. FEBRUAR 1993 hans að undirskriftasöfnunin og áskoranir á hendur forsetanum hafi verið til þess fallnar að grafa undan þeim samhug sem ríki_ um embætt- ið. „Embætti forseta íslands er og á að vera sameiningartákn lýðveld- isins. Stjómmálamenn eiga að standa í flokkadeilum. Það fer alls ekki vel á því að draga embætti forseta íslands inn í slíkar deilur,“ sagði Björn. Hann sagðist ekki sjá betur en að forsetinn væri sjálfur þessarar skoðunar og vitnaði í því sambandi til yfirlýsingarinnar sem forseti íslands gaf út 13. janúar sl. Björn vék að því í lok framsögu- ræðu sinnar að rökrétt væri í ljósi reynslunar að hugað væri að því að afnema þennan synjunarrétt for- setans eða takmarka hann, t.d. þannig að forsetinn gæti ekki beitt ákvæðinu nema að tillögu ráðherra. „Ég tel að okkur íslendingum sé nauðsynlegt eins og öðrum þjóðum að eiga þjóðhöfðingja sem er tákn sameiningar inn á við og þjóðarinn- ar út á við. Ég er þeirrar skoðunar að slíkur embættismaður geti starf- að af fullri reisn án þess að geta gripið fram fyrir hendumar á lög- gjafarvaldinu," sagði Björn. 26. greinin veitir þinginu eðlilegt aðhald Sigurður Lindal prófessor sagði nauðsynlegt að menn hefðu í huga þegar rætt vasri um stjórnskipulega stöðu forseta íslands, að hann væri annar handhafi löggjafarvaldsins. Það kæmi fram í 2. grein stjómar- skrárinnar og ef eitthvað væri hrófl- að við 26. greininni þyrfti jafnframt að lagfæra 2. greinina. Sigurður sagði að í núverandi mynd væri samræmi milli þessara greina. Það aðhald sem 26. greinin veitti þing- inu væri eðlilegt og nauðsynlegt og þrátt fyrir þetta aðhald þekktist það varla að löggjafarþing gæti leikið eins lausum hala og það gerði hér á íslandi. Þessi regla sem kæmi fram í 26. grein væri því síður en svo guðlast. Sigurður sagði að enga almenna reglu væri hægt að gefa um það hvaða afleiðingar synjun staðfest- ingar hefði. Það færi eftir því um hvaða mál væri að ræða. „Auðvitað getur allt farið í bál og brand og auðvitað getur það leitt til allskonar vandræða, en ég sé ekki að það þurfi að gera það undir öllum kring- umstæðum. Mér sýnist að það gæti jafnvel haft æskilegar hliðar að forseti hefði slíkt vald,“ sagði Sig- urður. Synjunarvald í einhverri mynd Sigurður sagðist alveg geta verið sammála því að fyrirkomulag 26. gr. væri ekki að öllu leyti heppi- legt. „En ég er hins vegar eindreg- ið þeirrar skoðunar að forseti eigi að hafa visst stjórnskipulegt vald, meðal annars synjunarvald í ein- hverri mynd. Mér finnst menn alltof viðkvæmir gagnvart slíku,“ sagði Sigurður. Hann vék að áliti stjórn- arskrárnefndar frá 1983 og sagðist geta fallist á að það væri að sumu leyti heppilegri aðferð sem þar kæmi fram. „Hitt er annað mál að ég sé ekki neinn grundvallarmun á þessu. Það má segja að það sé nokk- uð mildari aðferð, en í bæði skiptin vill forseti ekki staðfesta lögin og því finnst mér menn gera of mikið úr þessum mun.“ Aukið vald þingsins ekki heppileg þróun Sigurður vék síðan að þeirri spumingu hvort sú stefna að draga úr valdi þjóðhöfðingjans væri heppi- leg. Hann sagði að stjómskipunar- þróun á íslandi væri komin í það horf að til nokkurs háska stefndi. Það birtist m.a. í óhóflegu framsali löggjafarvalds og óhóflegum af- skiptum löggjafarvalds af fram- kvæmdavaldinu. „Þessi þróun, sem menn kalla þingræði og hefur leitt til þess að vald þingsins hefur vax- ið, er að mínum dómi ekki heppi- leg. Það er alveg nauðsynlegt að skapa eitthvert mótvægi við þetta,“ sagði Sigurður. Morgunblaðið/Kristinn Hlustað af áhuga MIKILL fjöldi mætti á fræðafund Orators, félags laganema, um réttarstöðu forseta íslands samkvæmt stjórnarskránni. leyti frá forsetanum. Hún vildi koma í veg fyrir að forsetinn yrði I settur í jafn erfíða stöðu og kom á " daginn níu ámm síðar,“ sagði Gunnar. „Þetta er að mínu mati mun betri leið, mun æskilegra ákvæði en það sem við höfum nú í stjómlögum." Gunnar velti því líka upp hvort menn stæðu ekki frammi fyrir ásjónu fortíðar í þessu ákvæði og kannski væri ástæða til þess að afnema það með öllu úr stjórnlög- um, eins og t.d. Svíar hefðu gert. Það kæmi til greina, en þá þyrfti einnig að huga að öðmm úrræðum, svo sem stjómlagaráði sem hægt væri að vísa deilumálum til eða að taka upp í stjómarskrána ákvæði sem heimilaði t.a.m. ijórðungi kjós- enda að kreíjast þjóðaratkvæða- greiðslu um tiltekin mál með undir- skriftasöfnun. Efnisleg andstaða forsenda synjunar Bjöm Bjarnason alþingismaður gerði að umtalsefni það mál sem kom upp í síðasta mánuði í kringum staðfestingu forseta íslands á fmm- varpi til laga um EES. Hann rakti í stuttu máli aðdraganda málsins og kom fram í máli hans að hann hefði aldrei verið í vafa um að for- seti íslands myndi staðfesta frum- varpið. Hann vék síðan að 26. grein- inni og sagði að forsendan fyrir því að forseti beitti því valdi, sem hann hefði samkvæmt henni, væri að hann væri andvígur því máli sem Alþingi hefði samþykkt og tæki þá efnislegu afstöðu að hafna málinu. „Það er ekki um það að ræða að forseti standi í þeirri stöðu að hann geti tekið ákvörðun um að vísa málinu til þjóðarinnar, heldur verð- ur hann að vera efnislega ósam- þykkur málinu og vera reiðubúinn til að taka þátt í opinberum umræð- um um málið á vettvangi stjórn- málabaráttunnar og knýja fram í atkvæðagreiðslunni þá efnislegu niðurstöðu sem er í samræmi við þá skoðun að viðkomandi mál eigi ekki að ná fram að ganga,“ sagði Bjöm. Rökrétt að afnema synjunarvaldið Björn sagði að það væri skoðun 1» " ÚTSUbUl.^K Wýnu»mj> ***’ iöwiwm«'*n lX - gatan mín ' föstudag frá kl. 10 - 19, lauqardag frá kl. 10-16 [

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.