Morgunblaðið - 12.02.1993, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993
23
Bill Clinton hefur í hótunum við Evrópubandalagið
Styrkið
ekki
Airbus
Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
sagði í sjónvarpsumræðum í
fyrrakvöld að hættu Evrópuríkin
ekki strax að niðurgreiða þotu-
smíði Airbus-verksmiðjanna
myndi hann grípa til sinna ráða.
Clinton sagði að Airbus, sem er
sameign nokkurra ríkja Evrópu-
bandalagsins (EB), hefði fengið sem
næmi um 26 milljörðum dollara í
ríkisstyrki á síðustu tuttugu árum
og náð um 30% hlutdeild í flugvéla-
markaðinum. Á þetta hefðu banda-
rísk yfirvöld horft aðgerðarlaust.
Það kæmi ekki til greina lengur.
Stjórnmálaskýrendur sögðu forset-
ann aldrei hafa veriðjafn harðorðan
og þóttu ummæli hans benda til
þess að hann myndi ekki hika við
að hefja viðskiptastríð gegn EB.
Þrjár vikur eru frá því Clinton
tók við embætti og ferðin til Detro-
it var fyrsta ferð hans út fyrir
Kveðjur
Reuter
BANDARISKU forsetahjónin hittust og kvöddust í anddyri Hvíta
hússins í gærmorgun. Hillary Clinton var að fara í dagsferð til
Pennsylvaníu en forsetinn að koma úr morgunskokki.
Washington á þeim tíma. Sagðist
hann hafa áttað sig á því á þessum
skamma tíma hversu auðveldlega
forseti gæti komist úr tengslum við
samfélagið.
Clinton notaði tækifærið til að
búa þjóð sína undir skattahækkarn-
ir og samdrátt ríkisútgjalda en hann
mun gera grein fyrir aðgerðum í
efnahagsmálum er hann ávarpar
báðar deildir þingsins á sameigin-
legum fundi þeirra á 17. febrúar
nk. Boðaði hann hærri skatta á
fyrirtæki og hátekjuskatt. Sagði
hann að ekki yrði heldur hjá því
komist að miðstéttirnar yrðu látnar
taka þátt í að reisa efnahag lands-
manna við.
Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna
Einhleyp lík-
leg í embættið
Washington. The Daily Telegraph.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti leitar nú logandi Ijósi að nýjum
frambjóðanda í embætti dómsmálaráðherra. Þær tvær konur sem
hann hefur tilnefnt til þessa, Zoe Baird og Kimba Wood, hafa
báðar orðið að draga sig í hlé eftir að í Ijós kom að þær höfðu
á sinum tíma ráðið ólöglega innflytjendur sem barnfóstrur. Forset-
inn er nú sagður íhuga að skipa Janet Reno, saksóknara frá
Flórída, í embættið. Talið er víst að hún sé ekki með neina barn-
fóstrudrauga í farteskinu, enda einhleyp.
Reno, sem er 54 ára gömul,
hefur verið aðalsaksóknari Dade-
sýslu í Flórída í fimmtán ár og
hefur orð á sér fyrir að beijast
hart gegn spillingu af öllu tagi.
Hún nam lög við Harvard-háskóla
og hefur verið gallharður stuðn-
ingsmaður Demókrataflokksins
alla tíð. Þá er það líka talið auka
líkurnar á að hún verði tilnefnd
að hún er sögð vera í þeim hópi
sem nefndur er „vinir Hillary",
en eiginkona forsetans er sögð
láta mikið að sér kveða við
ákvarðanatöku í Hvíta húsinu.
Clinton naut mikils stuðnings
þeirra sem vilja auka hlut kvenna
o g ýmissa minhihlutahópa í
bandarískum stjórnmálum. Hann
hefur lagt mikla áherslu á að
næsti dómsmálaráðherra Banda-
ríkjanna verði kona. Einn karl-
maður er þó einnig nefndur til
sögunnar þegar embætti dóms-
málaráðherra ber á góma, Gerald
Bailes, fyrrum ríkisstjóri Virgi-
níu.
Samkvæmt skoðanakönnun
sem gerð var fyrir dagblaðið USA
Today telja 75% Bandaríkja-
manna að þeir sem hafi ráðið
ólöglega innflytjendur til starfa
komi ekki til greina í æðstu emb-
ætti landsins.
Michael Jackson í opinskáu viðtali
Var misþyrmt
af föður sínum
New York. Reuter.
ÚTLIT og að margra mati undarleg hegðun hins þekkta söngvara
Michaels Jacksons hefur orðið tilefni margra sögusagna. í fyrra-
kvöld var sýnt í Bandarikjunum viðtal sem bandariska sjónvarpskon-
an Oprah Winfrey tók við Jackson á búgarði hans í Kaliforniu og
er það fyrsta viðtalið sem hann veitir í fjórtán ár. Sagði Jackson,
sem nú er 34 ára gamall, að hann hefði sem barn sætt misþyrming-
um af hendi föður síns og hræðst hann svo injög, að stundum hefði
hann kastað upp þegar faðirinn, Joe Jackson, birtist.
hefði stundum
Michael Jack-
son vísaði í við-
talinu á bug öll-
um orðrómi þess
efnis að hann
hefði farið í fjöl-
margar skurð-
aðgerðir til að
breyta útliti sínu
og þar að auki
upplitað húð
sína. Jackson
sagði að hin
dökka húð hans
hefði orðið ljósari
með árunum þar
sem hann þjáðist
af sjúkdómi sem
eyðilegði litar-
efni húðarinnar.
Hann harðneitaði því að skammast
sín fyrir að vera svertingi. „Ég er
stoltur af því að vera svartur
Bandaríkjamaður. Ég er stoltur af
kynþætti mínum,“ sagði söngvar-
inn. Húðvandamál þessi hefðu farið
að gera vart við sig árið 1983
skömmu eftir að hann lauk upptök-
um á plötunni „Thriller".
í þættinum var einnig sýnt við-
tal við LaToya, systur Michaels,
þar sem hún staðfesti að Michael
Michael Jackson.
kastað upp þegar
faðir hans var í
nánd. Sagði hún
að faðirinn hefði
misþyrmt
bömunum og
misnotað kyn-
ferðislega. Mich-
ael Jackson var
einnig spurður
um ástarlíf sitt
og sagðist hann
vera ástfanginn
af leikkonunni
Brooke Shields.
Aðspurður um
hvort hann hefði
einhvem tímann
notið ásta með
konu roðnaði söngvarinn og sagðist
vera heiðursmaður sem ekki ræddi
slíkt á opinberum vettvangi. Hann
játaði því að hafa farið í minnihátt-
ar aðgerðir hjá lýtalæknum, aðal-
lega til að breyta nefi sínu. Þetta
væri þó ekkert einsdæmi. „Ef allir
þeir íbúar Hollywood, sem einhvem
tíma hafa farið til lýtalæknis, fæm
í sumarfrí á sama tíma yrðu ekki
margir eftir," sagði Michael Jack-
son.
Tölvunotkun flugfar-
þega undir smásjánni
Washington. Reuter.
BANDARÍSKA flugmálastjórnin (FAA) hefur óskað eftir þvi við flug-
félög að fylgst verði með notkun rafeindatækja í farþegaklefa með-
an á flugi stendur til þess að kanna hvort og hvernig þau hafi áhrif
á sljórntæki og fjarskiptabúnað flugvéla.
Talsmaður FAA sagði að ekki
væri hægt að rekja nein flugslys
til notkunar rafeindatækja í far-
þegaklefa. í nokkmm tilvikum
hefðu flugmenn þó tilkynnt um
óeðlilega svömn og óvenjulega
hegðan stjómtækja sem engin rök-
rétt skýring hefði fundist á.
Athygli FAA beinist fyrst og
fremst að ferðatölvum en einnig
segulbands- og útvarpstækjum.
Tæki þessi em talin hafa mismun-
andi áhrif vegna mismunandi geisl-
unar sem þau senda frá sér og því
verða flugfélög beðin um að ákveða
sjálf hvaða tæki megi nota um borð
og hvenær.
. vN \\\
.v\>X
SKATABUÐIN
ÚTSÖLUSTAÐIR:
VERSLUNIN ÓÐINN, AKRANESI
SPORTHLAÐAN, ÍSAFIRÐI
SKÍÐAÞJÓNUSTAN, AKUREYRI
SPORTVÍK, DALVÍK
SPORTV.VERSL. HÁKONAR, ESKIFIRÐI
LYKILL, REYÐARFIRÐI
STÁLBÚÐIN, SEYÐISFIRÐI
S.Ú.N., NESKAUPSTAÐ
SPORTBÆR, SELFOSSI
-SKATWK FRAMÚK
SNORRABRAUT 60 • 105 REYKJAVÍK
SIMAR: 1 20 45 og 62 41 45
ÓRKIN 2025-64