Morgunblaðið - 12.02.1993, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993 45
Tilvísanakerfið í ljósi
heilsuhagfræðinnar
Frá Ólafi Gunnarssyni:
UNDIRRITAÐUR sótti nýlega nám-
skeið í heilsuhagfræði hjá End-
urmenntunarstofnun Háskóla ís-
lands. Á þessu námskeiði eru mörg
þeirra vandamála sem heilbrigðis-
þjónustan stendur frammi fyrir
skoðuð frá sjónarhóli hagfræðinnar
og sýnt fram á hvernig hagfræðilegt
mat á valmöguleikum getur leitt til
betri nýtingar þeirra fjármuna sem
varið er til þessa málaflokks. í til-
efni af umræðu í fjölmiðlum um það
hvort rétt sé að taka upp svokallað
tilvísanakerfi er hér komið á fram-
færi ýmsu af efni námskeiðsins auk
eigin vangaveltna.
Á undanfömum árum hefur það
verið nokkuð til umræðu hvort
byggja eigi í ríkara mæli á valfrelsi
neytenda og fijálsri samkeppni í
heilbrigðiskerfinu. Þegar þessu er
haldið fram virðist sem ekki sé tekið
nægilegt tillit til þess að heilbrigðis-
þjónusta sem markaðsvara er í
grundvallaratriðum frábrugðin hefð-
bundnum vörum og þjónustu. Það
J er nokkuð viðtekið sjónarmið í þjóð-
félaginu að almennt séu samkeppni
og valfrelsi neytenda til góðs fyrir
| þjóðfélagið í heild. Vegna sérstöðu
' markaðar fyrir heilbrigðisþjónustu
er vafasamt hvort sá markaður geti
i auknum mæli byggst á þessum
forsendum.
Þær spurningar sem leita þarf
svara við þegar valfrelsi neytenda
er tekið til skoðunar í þessu sam-
hengi eru aðallega tvær. I fyrsta
lagi hvort sjúklingar og þegnar þjóð-
félagsins almennt sækjast eftir
meira valfrelsi í heilbrigðismálum
og í öðru lagi hvort meira valfrelsi
leiði til meiri hagkvæmni og jöfnuð-
ar. Ekki liggur ljóst fyrir að almenn-
ingur vilji meira valfrelsi að þessu
leyti og virðast raddir þess efnis að
auka þurfi eða viðhalda valfrelsi í
heilbrigðismálum aðallega hafa
heyrst frá læknum. Einnig virðist
það nokkrum vafa undirorpið hvort
aukið valfrelsi tryggi meiri hag-
kvæmni og jöfnuð innan heilbrigðis-
kerfisins.
Áður en lengra er haldið er nauð-
synlegt að gera grein fyrir nokkrum
grundvallaratriðum varðandi heil-
brigðisþjónustu sem markaðsvöru.
Þegar neytandi kaupir venjulega
vöru ber hann saman verð hennar
og þann ábata sem hann telur að
neysla vörunnar leiði af sér fyrir
hann. Neytandinn er sá sem best
er hæfur til að meta þennan ábata
og hann greiðir fullt verð vörunnar.
Sé ábatinn ekki jafnmikill eða mein
en verðið sem sett er upp, kaupir
hann ekki vöruna. Hvað varðar heil-
brigðisþjónustu er yfirleitt hvorugu
þessara skilyrða fullnægt. Sjúkling-
urinn hefur ekki þá þekkingu sem
þarf til að meta hverjar eru afleiðing-
ar hinna ýmsu valkosta og hann
greiðir aðeins hluta eða ekkert af
kostnaði við þjónustuna, er hann
nýtur hennar. Af þessu leiðir að
þeim er leita sér lækninga eru hvorki
að fullu ijósar læknisfræðilegar né
kostnaðarlegar afleiðingar mismun-
andi valkosta og því er vafasamt að
færa ákvarðanavaldið í of ríkum
mæli í hendur þeirra. Það fer þó
eftir eðli sjúkdóma hversu erfitt er
fyrir viðkomandi sjúkling að meta
hvemig bregðast skuli við.
Hugsum nú að því á hvaða for-
sendum sjúklingur getur valið sér
lækni þegar fullt valfrelsi ríkir.
Hvernig á hann að vita úr hvaða
sérfræðigrein hann ætti að velja sér
lækni og síðan hversu góður hver
einstakur læknir er á sínu sviði?
Upplýsingar sem sjúklingurinn getur
byggt ákvörðun sína á eru oft mjög
ófullkomnar. Hann hefur í mörgum
tilfellum takmarkaða þekkingu til
að tengja saman einkenni og sjúk-
dóm og þá hvaða sérgrein sjúkdóm-
urinn tilheyrir. En það fer vissulega
eftir eðli sjúkdómsins hversu erfitt
þetta er. Upplýsingar um árangur
og hæfíleika einstakra lækna eru
honum ekki aðgengilegar og engin
samantekt er til á árangri einstakra
lækna, enda sjálfsagt erfítt eða
Pennavinir
Ellefu ára bandarískur piltur með
margvísleg áhugamál:
Scott Moore,
5435 Saratoga Street,
Eugene,
Oregon 97405,
U.S.A.
Frá Ghana skrifar 23 ára piltur
sem safnar póstkortum og peninga-
seðlum:
Pater Sam,
P.O. Box 172,
Cape Coast,
Ghana.
Fimmtán ára kanadískur piltur
með áhuga á tölvum o.fl.:
Megan Watters,
56 Gardiner Avenue,
Regina,
Saskatchewan S4S 4P6,
Canada.
Ellefu ára bandarískur piltur með
margvísleg áhugamál:
Ardell Burns,
5435 Saratoga Street,
Eugene,
Oregon 97405,
U.S.A.
Bandaríska menntaskólastúlku
langar mikið til að eignast íslenska
pennavini:
Tracie Nunnaley,
190315th Place,
Yuma,
Arizona 85364,
U.S.A.
LEIÐRÉTTING
Flogið tvisvar
á dag
í frétt Morgunblaðsins sl. miðviku-
dag af samningum Flugleiða og
SAS var missagt að Flugleiðir
flygju milli Kaupmannahafnar og
Hamborgar tvisvar í viku frá með
með 1. júní. Rétt er að flogið verð-
ur tvisvar á dag milli þessara staða.
ómögulegt að koma slíku við.
Ein hlið á valfrelsi í heilbrigðis-
þjónustu er sú að sjúklingur vill oft
ekki velja heldur varpa þeirri ábyrgð
yfir á lækna og heilbrigðiskerfíð.
Aukið val væri íþyngjandi fyrir sjúkl-
ing sem þannig hugsaði.
Eins og áður kom fram hafa þeir
sem leita sér lækninga oft ekki þær
læknisfræðilegu forsendur sem þarf
til að velja heilbrigðisþjónustu á eig-
in spýtur og þurfa til þess aðstoð
læknismenntaðs aðila. Heimilis-
læknirinn er sá aðili sem frekast
ætti að hafa þá heildaryfirsýn sem
þarf til að velja fyrir sjúklinginn,
þannig að tillit væri tekið bæði til
hagsmuna sjúklingsins og þjóðfé-
lagsins í heild. Einnig er þjónusta
þeirra að jafnaði ódýrari en þjónusta
sérfræðinga og því má ætla að hag-
kvæmt sé að þeir sjái um þau læknis-
verk sem ekki krefjast sérfræðiþekk-
ingar.
Af því sem að framan greinir virð-
ist eðlilegast að heimilislæknar stýri
að töluverðu leyti flæði um heilbrigð-
iskerfið. Hlutverk heimilislæknisins
yrði, auk þess að sinna ákveðnum
sjúkdómstilfellum, að visa sjúkling-
um áfram innan kerfisins. Ef vel
væri að þessu staðið gæti þetta fyrir-
komulag leitt til þess að notkun á
heilbrigðisþjónustu yrði hagkvæm-
ari, auk þess sem flæði sjúklinga
gegnum heilbrigðiskerfið yrði mark-
vissara.
Áður en hlutverk heimilislækna i
heilbrigðiskerfinu er aukið þarf að
gera sér grein fyrir hvaða neikvæðar
afleiðingar það gæti haft í för með
sér, bæði fjárhagslegar og læknis-
fræðilegar. Hvað þarf t.d. að eyða
miklu ijármagni í uppbyggingú
heilsugæslustöðva til að heimilis-
læknar geti annað því aukna álagi
sem fylgir tilvísanaskyldu? Fyrir
sjúkling sem ekki fer á milli mála
hvert á að leita getur tilvísanaskyld-
an þýtt viðbótarlæknisheimsókn.
Áður en endanleg ákvörðun er tekin
þarf að skoða afleiðingar kerfis-
breytingarinnar á breiðum grund-
velli þannig að tekið sé tillit til allra
þeirra þátta er skipta máli. Slík skoð-
un gæti verið mjög flókin og viða-
mikil.
Hér hefur verið minnst á ýmsa
þætti sem máli gætu skipt varðandi
valfrelsi og tilvísanakerfi í heilbrigð-
iskerfinu. Þessari grein er þó frekar
ætlað að vekja spurningar en svara
þeim, en vonandi er lesendum ljóst
að þetta mál snýst ekki einvörðungu
að læknum, heldur er nauðsynlegt
að skoða málið einnig út frá sjónar-
hóli sjúklinga og þjóðfélagsins í
heild.
ÓLAFUR GUNNARSSON,
Ásvallagötu 4, Reykjavík.
VELVAKANDI
STORMUR
MEIRA EN ROK?
Víkveiji fjallaði um mælingar
á veðurhæð í pistli um daginn
og samkvæmt hans málvitund
fannst honum stormur meiri
vindur en rok. Samkvæmt mæl-
ingum Veðurstofu íslands er það
á hinn bóginn. Ég er sammála
Víkverja í þessu máli og finnst
rétt að benda á að Veðurstofan
virðist ekki alveg sjálfri sér sam-
kvæm, því hún gefur út storm-
viðvaranir þegar búast má við
mikilli veðurhæð, en ekki rokvið-
vörun.
Haraldur Ámason.
„STASSEMI“
Undanfarið hefur borið mikið
á umræðu um nýsköpun í at-
vinnulífinu vegna atvinnu-
ástandsins í hinum ýmsu byggð-
arlögum landsins. Fjölmiðlar
hafa keppst við að fá skoðanir
forystumanna í atvinnulífí og
stjórnmálum á ástandinu.
Einn ónefndur forystu„sauð-
urinn“ hefur þann sið að segja
„stassemi" í stað starfsemi á
mjög áberandi hátt og þá er eins
og öll hjörðin þurfi að elta, bæði
fréttafólk ljósvakafjölmiðlanna
og fólk framarlega í atvinnulíf-
inu.
Hvemig væri að skoða eina
grundvallarreglu málfræðinnar
og athuga stofn orða?
Steingrímur
OSMEKKLEG
AUGLÝSING
Það er vægast sagt óviðfelldið
að heyra í sjónvarpinu kvöld
eftir kvöld notað upphaf ein-
hvers fallegasta vers úr Heil-
ræðisvísum sr. Hallgríms Pét-
urssonar í ómerkilegri ölauglýs-
ingu og aldeilis með ólíkindum
að það skuli vera fyrrverandi
prestur sem er útvarpsstjóri.
Eða ræður hann kannski engu
um hvað er borið á borð fyrir
hlustendur?
Soffía
TILLAGA UM
BARNAEFNI
Vinsamlegast reynið að fella
stutta fimleika- og dansþætti
inn í bamaefnið ef það er lengur
en 30-40 mínútur samfellt, t.d.
á sunnudagsmorgun.
í þáttunum þyrfti að hvetja
áhorfendur til að standa upp og
hreyfa sig eftir því sem sagt
væri*til um og áýnt í útsending-
unni.
Anna Gísladóttir
TAPAÐ/FUND-
IÐ
Föt týndust á Hótel
íslandi
Blár frakki og græn peysa
töpuðust á Nemendamóti Versló
á Hótel íslandi fimmtudaginn
4. febrúar sl. í vösum kápunnar
var ýmislegt dót. Upplýsingar í
síma 678058.
Kjuklingar
á tilbobi í febrúar!
Velkomin í kjúklingakrœsingarnar okkar
Verb 1990 kr.
Fjölskyldupakki fyrlr 5.
10 kjúklingabitar franskar, sósa og salat
Fjölskyldupakki fyrir 3.
6 kjúklingabitar franskar, sósa og salat
Pakki fyrirl.
2 kjúklingabitar franskar, sósa og salat
Verö 1290 kr.
Verb 490 kr.
I^uklingastaðurinn 99
SOUTHERW FRIED CHICKEN ^
Sími 29117
Hraófétta veitingastaóur
í hiarta boraarinnar
O
Þú getur bæði tekib matinn meb þér heim eba borbab hann á stabnum
llTA J| | |t 20-50% afsláttur
II | Nl£| |1 »hummel^
II ■ ■■ [ VV íþróttagallar, iþróttaskór, SPORTBÚÐIN
| ■jj^ ■ ■ HH ■ skíði, skídaskór o. fl. o. fl. ármúla 40 ■ símar 813555, 813655.
cgzok