Morgunblaðið - 28.02.1993, Qupperneq 2
£ S
MÖRGÚNBLaMð SÚNNÚlDÁGÚR::28.: RÚBRÚAR 1993
eftir Arnold Indriðason
ÞAÐ ERU tveir kvikmyndagerðarmenn í Clint Eastwood. Annar kemst
seint á verðlaunapall. Sá gerir sundurtættar harðhausamyndir fyrir
karlmenn sem ganga að formúlum hans vísum, vildu gjarnan af-
greiða hlutina eins og hann en láta sér nægja að horfa <sem betur
fer). Það er sá Clint sem var sagður fasisti á áttunda áratugnum og
femínisti á þeim níunda. Eða var það öfugt? Hann er ein frægasta
kvikmyndastjarna aldarinnar, dáður um allan hnöttinn. Það ber mun
minna á hinum Clint. Sá spilar á píanó, er jassisti og óvenjugóður
kvikmyndaleikstjóri með þrjár annálaðar, listrænar myndir að baki.
Það er sá Clint sem Óskarsakademían tilnefndi til níu Óskarsverð-
launa fyrir stuttu. Það er sá Clint sem kemst á verðlaunapall.
Hin þeir eru samvaxnir þessir
■h tveir og engin skurðaðgerð
_ akademíunnar getur kippt
þeim í sundur. Eastwood
hefur leikið margan aðkomumann-
inn í myndum sínum og hann er
sannarlega aðkomumaður í Óskar-
borg. Eastwood hefur aldrei ekið
með neina Daisy
og hann dansar
ekki við úlfa.
Hann skýtur
fyrst og gleymir
svo að spyrja.
Hann er amer-
. íski einfarinn
sem treystir á
byssuna og á
alltaf skot í
henni fyrir rétt-
læti og hefnd og sigur hins góða.
Hann pírir augun og lyftir sterkleg-
um kjálkanum og hreinsar út sóða-
bæli eins og Helvíti. „Enginn er
amerískari en hann,“ sagði rithöf-
undurinn Norman Mailer um
Eastwood og hittir kannski nagl-
ann á harðhausinn. Hinir vægðar-
lausu(„Unforgiven“), nýja vestran-
um hans sem hlaut tilnefningamar
níu, lýkur á því að hann hótar að
„snúa aftur og drepa alla“ og í
bakgrunni lýsir elding upp banda-
ríska fánann. Ekkert síður skilaboð
til Saddams en hvað annað; menn
ættu ^að varast að æsa sig upp
gegn landi vestrans.
Hinir vægðarlausu er summan
af verkum Eastwoods og í henni
tekur hann afstöðu til 30 ára ferlis
síns í bíómyndum þar sem dauði
og ofbeldi hefur orðið að skemmti-
efni. Hugmyndafræðin á bak við
hana er einföld. Það hefur sínar
afleiðingar að drepa og ofbeldi er
viðurstyggilegt. „Dauðinn er engin
skemmtun í Hinum vægðarlausu,"
segir Clint og það eru orð að sönnu.
í einu eftirminnilegasta atriði
myndarinnar verður dauðinn að til-
fínningalausu sjónarspili þegar
Eastwood og menn hans tveir sitja
fyrir fórnarlambi sínu og drepa án
neinnar eftirsjár. Þeir eru að þessu
fyrir pening.
Ahorfandinn
finnur kuldann
að baki verknað-
inum og hann
finnur líka að
hér er dauðinn
enginn leikur
lengur heldur
grimmasta, ljót-
asta alvara.
„Það er þó ekki
eins og ég sé að gera yfirbót vegna
þess sem ég hef gert á hvíta tjald-
inu á undanfömum árum,“ segir
Eastwood. „En handrit Hinna
vægðarlausu var það fyrsta sem
ég hef getað túlkað á þá vegu að
dauðinn er ekkert sniðugur. Ein-
hver kvelst af völdum hans, jafnvel
sá sem olli honum."
Það er William Munny sem veld-
ur dauðsföllum í Hinum vægðar-
lausu. Hann er aðalpersóna mynd-
arinnar, klæðskerasniðin að Clint
Eastwood á efri árum. Leikarinn
er nú 62 ára og líkt og hjá Munny
er tekið að hausta í lífí hans. Hún
er tekin í köldum haustlitunum sem
undirstrika þetta og á sama hátt
og myndin boðar ákveðna niður-
stöðu á löngum ferli Clints lítur
Munny um öxl yfir farinn veg, iðr-
unarfullur og hræddur við dauðann
og syndagjöldin sem bíða. Hann
er gamall byssubófi sem áður myrti
menn, konur og börn þótt hann
muni það ekki greinilega því hann
EIN LÍTIL HUGLEIÐING
UM CLINT EASTWOOD
OG HINA VÆGÐAR-
LAUSU í TILEFNIAF NÍU
ÚTNEFNINGUM TIL
ÓSKARSVERÐLAUNA
Breyttur Eastwood; afhjúpar goðsögnina um harðhausa Fyrstu skotin; Eastwood í sjónvarpsþáttunum
villta vestursins. „Rawhide".
Gamall og ryðgaður byssubófl Eastwood í Hinum vægðarlausu.
;;1*
M /4%' wA %
3WB Wm §
m liÍtdÉÉ ik ■u
Mmtþ ■ / m
1 • j
^ r *rir iBMIwBÍ
■ li ) \
i. f M \ JH W ‘ \ • .
var fullur allan tímann en hefur
ekki snert á byssu eða brennivíni
í 11 ár þegar myndin hefst. Konan
í lífi hans fékk hann til að hætta
en nú er hún látin og ungur byssu-
bófí kemur til tveggja bama ekkju-
mannsins og segir að í boði séu
peningar fyrir tvo menn sem skorið
hafa í andlit hóru. Munny, sem
varla getur setið hest lengur, vant-
ar peninginn barnanna vegna og
hóar í gamlan félaga sinn og sam-
an ríða þessir þrír á vit síðustu
drápsverka Munnys.
A ferðalaginu afhjúpa þeir goð-
sögnina, sem Eastwood á ekki lít-
inn þátt í að skapa, um harðjaxla
villta vestursins, um ofbeldi sem
bestu lausnina, um einfararóman-
tíkina. Boðskapurinn hefur breyst
frá því hann gerði „High Plains
Drifter" (1973), „The Outlaw Josey
Wales“ (1976) og „Pale Rider“
(1985). Eastwood er þroskaðri og
vísari. Hann keypti handrit Davids
Webbs Peoples árið 1983 úr hönd-
unum á Francis Ford Coppola en
setti það til hliðar og beið eftir að
það eltist og yrði eins og gott,
þroskað vín. Sex árum síðar var
kominn tími til að dusta af því ryk-
ið. Hann vandaði valið á leikurun-
um sem allir eru komnir á efri árin,
Richard Harris, Morgan Freeman
og Gene Hackman, sem hikaði af
því hann vildi ekki of mikið ofbeldi
og orðsporið sem fór af Eastwood
í þeim efnum var ekki gott. „Ég
veit nákvæmlega hvað þú átt við,“
sagði Eastwood við hann. „Ég hef
gert margar ofbeldisfullar myndir
en mér þætti vænt um ef þú vildir
líta á þetta handrit því það er flöt-
ur á því sem er gerólíkur því sem
ég hef fengist við áður. Eg held
það upphefji ekki ofbeldi og ef við
gerum þetta rétt munum við ekki
misnota það; boðskapurinn er raun-
ar sá að það leysi engann vanda.“
Hackman var sammála.
Byssumaðurinn Clint á sér mun
lengri sögu en listamaðurinn.
Margir hér heima veittu honum
fyrst eftirtekt í kanasjónvarpinu
þegar hann lék kúrekann Rowdy
Yates í sjónvarpsþáttunum „Raw-
hide“ en alþjóðlega frægð hlaut
hann í þremur spagettívestrum ít-
alska leikstjórans Sergio Leone,
sem gerðir voru á Spáni. Þar mót-
aðist kúrekahetjan, einfarinn og
ofbeldismaðurinn. Spagettíhetjan
flutti á mölina í Dirty Harry-mynd-
unum í byrjun áttunda áratugarins
og fram á þann níunda en í þeim
lék Eastwood lögreglumanninn
Harry Callaghan sem fannst fljót-
legra að skjóta hina grunuðu en
yfírheyra þá.
Hin hliðin á Clint, hinn listræni
kvikmyndagerðarmaður og jassisti,
kom fram í myndinni „Bird“, sem
Ijallaði um átrúnaðargoð East-
woods, jassistann Charlie Parker.
Þetta var langt í frá fyrsta myndin
sem hann leikstýrði en hér var
komin mynd frá aðalharðhausi
hasarmyndanna sem hvergi átti
heima í safninu hans, afar listræn,
persónuleg og næstum ljóðræn út-
tekt á kostum og göllum Parkers.
Gagnrýnendum kom þetta jafnmik-
ið á óvart og föstum aðdáendahópi
hans. Vikuritið „Time“ sagði að
með myndinni væri Eastwood kom-
inn í hóp fremstu leikstjóra Banda-
ríkjanna. Hann hélt áfram á þess-
ari braut í myndinni „White Hunt-
er, Black Heart“ og lét sér ekki
nægja neitt minna en að leika John
Huston á fílaveiðum í Afríku um
það leyti sem hinn frægi leikstjóri
gerði Afríkudrottninguna með
Humphrey Bogart og Katharine
Hepburn. Myndin var glettilega
skemmtileg lýsing á veiðimannin-
um og kvikmyndagerðarmanninum
Huston, fyndin og sönn og styrkti
Eastwood enn í sessi sem alvarleg-
an kvikmyndaleikstjóra.
í framhaldinu komu Hinir vægð-
arlausu sem sameinar listrænan
metnað Eastwoods, reynslu hans
af kúrekamyndum og nýjan og
greinilega tímabæran boðskap
hans um dráp og ofbeldisverknaði.
Gagnrýnendur og áhorfendur hafa
tekið fagnandi þeirri þróun sem
orðið hefur á ferli Eastwoods og
kristallast í myndinni og óskar-
sakademían er tekin að líta á hann
með slíkri velþóknun að hvorki fleiri
né færri en níu útnefningar eru
honum veittar. Hann hefur aldrei
sótt neitt í akademíuna eða Holly-
wood, ekki kært sig um það, rekur
kvikmyndafyrirtæki sitt í Carmel í
Kalíforníu þar sem hann var áður
borgarstjóri.
Ófá dæmi sanna að níu útnefn-
ingar þýða ekki endilega níu stytt-
ur en það er óneitanlega kítlandi
tilhugsun að sjá Dirty Harry raða
á sig gullstyttunum. Nema hvað
hann er enginn Dirty Harry leng-
ur. Clint sagði nýlega í viðtaii að
hann væri hættur að gera harð-
hausamyndir sem eru eins og fílm-
uð hasarblöð; að lokaskotbardaginn
í Hinum vægðarlausu hafí verið
hans síðasti. Hann hafí vaxið frá
þeim. „Ég held að þeir dagar séu
liðnir. Þetta er nútíminn fyrir mér.
Ég læt yngri kynslóðum það eftir
að fara með gæjalegar setningar
og drita niður tonn af fólki. Það
er hluti af því að eldast.“