Morgunblaðið - 28.02.1993, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.02.1993, Blaðsíða 27
fippr f!'ATíríta,'ir>i MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFnfiSísuiiSraÍ í AigWToOTO'Wí 28. FEBRUAR 1993 W B SÍMTALID... ER VIÐ BÖRK THORODDSEN TANNLÆKNI Tónlist hjá tannlæknum 625299 Tannlæknastofumar Borgar- túni, góðan dag. - Góðan dag, þetta er á Morgunblaðinu, gæti ég fengið að tala við Börk Thoroddsen tann- lækni? Halló. - Komdu sæll, er það rétt sem ég er að heyra, að fólk geti fengið heymartól á höfuðið og hlustað á Vivaldi og Mozart með- an þið tannlæknamir borið? Jú það er rétt. - Er þetta algengt hér á landi? Hver átti þessa snjöllu hug- mynd? Þetta er nokkuð algengt en ég veit nú ekki hver átti hugmynd- ina. í nágrannalöndum okkar hef- ur það sýnt sig að stór hluti fólks er haldið tannlæknaskrekk. í Dan- mörku var þetta kannað og kom í ljós að um 10% fólks er haldið svo miklum skrekk að það forðast að fara til tannlæknis, eða allt þar til verkur rekur það á staðinn. Svo langt hefur það gengið að hjónabönd hafa klofnað vegna hörmulegrar tannhirðu makans. - I alvöm? Þetta er hreinn sannleikur og því verðum við tannlæknar með að gera þessa meðferð þægilega fyrir fólkið með einhveijum ráð- um. Hlustun á tónlist er aðeins ein aðferð til að draga úr tann- læknaskrekk. Einnig til að stytta fólki stundir þegar það þarf að sitja lengi í tannlækna- stól. - Eru það bæði börn og full- orðnir sem notfæra sér þetta? Kannski frekar fullorðnir, böm em yfirleitt ekki hrædd við tannlækna. Þegar afar okkar og ömmur vom ung, vom allt aðrar aðferðir í tannlækningum og tannlæknar lærðu ekki að með- höndla böm. Nú em breyttir tímar og kennsla í bamatannlækningum við Tannlæknadeild Háskóla ís- lands er aldeilis frábær. Allir tannlæknar sem hafa útskrifast undanfarin ár kunna að með- höndla böm, þannig að þau verða ekki haldin tannlæknaskrekk þeg- ar þau verða eldri. - Nú era foreldar farnir að greiða hluta af kostnaði við tann- lækningar bama sinna, hafa tann- skemmdir eitthvað minnkað? Tannskemmdir hjá tólf ára bömum í Reykjavík hafa minnkað um helming á undanfömum tíu ámm, og annað hvert tólf ára bam á íslandi er með allar tennur heilar og enga viðgerða. - Mér þykir þú segja mér fréttir. Já, og þetta er öflugu tann- vemdarstarfi tannlækna að þakka. Forvamarstarfíð hefur borið árangur þrátt fyrir að sæl- gætisneysla hafi ekki minnkað. - En fullorðnir, hafa þeir nokkuð efni á að fara til tann- læknis, nú á þessum tímum? Ja, ég get ekki betur séð en að það láti sig hafa það að fara til tannlæknis þrátt fyrir allt. En líklega frestar fólk því að fara til tannlæknis þegar hart er í ári og minna er endurgreitt. Annars get ég nefnt það, að í Noregi greiðir full- orðið fólk tann- lækningar úr eigin vasa en í Danmörku greiðir sjúkrasam- lagið helming, samt er tannheilsan í Danmörku ekki betri. Þannig að það er spurning hvort þessi endur- greiðsla ríkisins hjálpi nokkuð upp á tannheilsuna. - Já, það er spuming, en ég þakka þér fyrir spjallið. Börkur Thoroddsen Skíðafélag Reykjavíkur lét reisa minnisvarða í Hveradölum til minningar um L.H. Miiller og Kristján Ó. Skagfjörð og voru þessar myndir teknar við það tækifæri. íj j ^ Upphaf lyftualdar á Islandi. Eins og sjá má er lyftuhúsið gamalt pallhús af her- bíl og ekki er stólunum fyrir að fara í lyftunni. Hér hefur tækninni fleygt nokk- uð fram þótt enn vanti stólalyftuna. ÞANN 5. nóvember 1848 kom út fyrsta tölublað Þjóðólfs, en tilkoma þess blaðs markaði þáttaskil í íslenskri blaðamennsku. Þjóðólfur var fyrsta blað sinnar tegundar á íslandi og mátti segja að hinn ytri búningur þess bæri í alla staði nýtt svipmót og gæfi til kynna þróun í átt til dagblaða og fréttablaða seinni tíma. Þjóðólfur kom út hálfsmánaðarlega fyrstu árin og var í stærra broti en tíðkaðst hafði um eldri tímaritin. „Ekkert raun- verulegt blað, sem risið gat undir því nafni, var gefið út í landinu allt til þess að Þjóðólfur kom út,“ segir Einar Laxness í bók sinni um Jón Guðmundsson rit- stjóra og alþingismann, sem þetta fréttaljós er að hluta unnið úr. að var einmitt Jón sem gerði Þjóðólf að stórveldi í íslensku þjóðlífi þess tíma. Jón var samt ekki fyrsti ritstjóri Þjóðólfs. Séra Sveinbjörn Hallgrímsson ritstýrði blaðinu til ársins 1852, er Jón tók við því. Það má því til sanns veg- ar færa að Sveinbjöm sé fyrsti íslenski blaðamaðurinn, undir stjórn hans varð Þjóðólfur strax áhrifamikill. Talið er að sú ráðstöf- un að Jón Guðmundsson tæki við Jón Guðmundsson ritstjóri gerði Þjóðólf að stórveldi i ís- lensku þjóðlífi um miðja síðustu öld. Þjóðólfi hafi verið afleiðing af hin- um örlagaríka þjóðfundi árið 1851, þar sem Jón og aðrir þjóð- kjömir fulltrúar, undir forystu Jóns Sigurðssonar, risu á fætur allir sem einn og mótmæltu fmm- varpi dönsku stjórnarinnar að inn- lima ísland sem amt í Danmörku. Hina einörðu afstöðu sína varð Jón Guðmundsson að gjalda fyrir með því að falla í algera ónáð hjá yfir- völdum og vera þar með útilokað- ur frá embættum. Þjóðólfur var stofnaður til þess að gerast boðberi hinna þjóðlegu og frjálslyndu skoðana sem menn höfðu þá tileinkað sér undanfarið ár í íslenskum stjómmálum. Blað- ið hóf göngu sína með þessum orðum:„Guð gefi yður góðan dag. Vér getum ekki neitað því, að það hefur lengi verið svo að orði kveð- ið, að vér svæfum og þyrftum FRÉTTALJÓS ÚR FORTÍD Þjóðólfur og blaða- mennskan endilega að vakna. Og vér getum heldur ekki borið á móti því, að það hafa hljómað til vor raddir, sem hafa haft það markmið að vekja oss af svefni.“ Yfirvöld litu strax hornauga þetta djarfmælta blað sem geyst- ist fram á völlinn og gerðu marg- ar tilraunir til að koma blaðinu fyrir kattamef. Um flesta hluti var Þjóðólfur auðvitað mjög ólíkur dagblöðum nútímans. Efni þess var þó af margvíslegu tagi, en ríkust áhersla var lögð á að blaðið væri málsvari og boðberi hinna róttæku skoðana í íslenskum stjórnmálum. Það var þannig stefna blaðsins að flytja þjóðinni grundarvallarkenningar Jóns Sig- urðssonar. Á síðum Þjóðólfs var boðað til Þingvallafunda og þeim lýst. Einn- ig var sagt frá störfum Alþingis. Langir pistlar frá landsbyggðinni birtust og einnig var allmikið um erlendar fréttir, svo einangruð al- þýða manna gæti fylgst með helstu heimsviðburðum. Blaðið var Stefna Þjóðólfs var að flylja þjóðinni grundarvallarkenning- ar Jóns Sigurðssonar. sent út á landsbyggðina á baki póstanna. Jón setti markið hátt sem blaðamaður, en ráðagerðir hans um að stækka blaðið og birta í því meira af skemmtiefni strönd- uðu á erfíðum fjárhag þess. Kaup- endur Þjóðólfs voru í upphafí um 700. Árið 1853 voru þeir orðnir 900 en vom síðan lengst af um 1.200. Landsyfirvöld settu Jóni afarkosti í sambandi við prentun Þjóðólfs, og hann átti ekki annars úrkosta en ganga að. Þetta olli sífelldum íjárhagsvandræðum í útgáfunni. Hinn 15. ágúst 1855 segir Jón: „Ja, Þjóðólfur — nú held ég annaðhvort hann drepist líka eða ég yfir honum.“ Svo illa fór þó ekki. Jón og Þjóð- ólfur lifðu saman langa tíð. Þjóð- skáldið Matthías Jochumsson keypti seinna Þjóðólf fyrir 900 rd. Var kaupsamningurinn undirrit- Dr. Hannes Þorsteinsson þjóð- skjalavörður tók við blaðinu árið 1892 og stýrði því til ársins 1909. aður heima hjá Jóni Sigurðssyni í Kaupmannahöfn hinn 11. febrúar 1874. Matthías fékk fyrir að vera meira skáld en ritstjóri. Þorleifur Jónsson stýrði Þjóðólfi um tíma. Áhrifamestur varð Þjóðólfur eftir daga Jóns Guðmundssonar undir stjóm dr. Hannesar Þorsteinsson- ar þjóðskjalavarðar, sem tók við blaðinu árið 1892 og stýrði því til ársins 1909. Á 50 ára afirnæli Þjóð- ólfs, 5. nóvember 1898, birtist grein eftir Hannes um Jón Guð- mundsson, hins sókndjarfa fyrrum ritstjóra Þjóðólfs. Þar segir m.a.: „Þeim heiðri verður Jón aldrei sviptur, að hann hafi fyrstur hafið íslenska blaðamennsku til vegs og virðingar, og sýnt að hún væri „vald“ sem menn ættu að óttast og virða ef rétt væri að farið." Útgáfu Þjóðólfs var hætt árið 1912.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.