Morgunblaðið - 28.02.1993, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.02.1993, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1993 B 25 Nokknr orð til Björns Bjarnasonar alþingismanns FráJens Guðmundssyni: ÉG HEFÐI nú haldið það, Bjöm minn Bjarnason, að þú bærir meiri virðingu fyrir sjálfum þér, tilveru þinni og forfeðrum en mér finnst hafa fram komið í skrifum þínum og umræðum um þetta mikla alls- heijar EES-mál, sem nú á eitt að verða sú allsheijarhamingja, sem gríga við gætum í allri lífssögu okk- ar Islendinga. Mikið af skrifum þín- um og ræðum hefur gengið út á það að skamma ráðherra fyrrverandi stjómar, að mfnnsta kosti Framsókn- ar og Alþýðubandalags, fyrir að ganga frá fyrri afstöðu sinni gagn- vart þessu bandalagi eftir að í stjóm- arandstöðu komu, og þar með ganga á móti þessari helgu framtíðarsýn, sem alla lukku, að þínu mati, skal leggja á framtíðarbraut okkar erfiðu daga. En hafi þeir þessari endemis- vitleysu verið fylgjandi í sinni fýrri stjómarveru, skyldi ég svo sannar- lega leggja þeim til gildis þá vizku- legu göfgi að átta sig á umfanginu og gera sér grein fyrir afleiðingum þess og umfangi öllu, þá fram líða tímar. Það mætti svo sannarlega þakka hveijum og einum, sem svo mikla framtíðarsýn hefði í sínum huga til að bera, að geta nú í huga sér lesið í þær ristu rúnir, sem þið nú allir frumkvöðlar þessara óheilla allra viljið rista í bergvörður okkar allra íslendinga, að þar við okkar landsmenn megi um alla framtíð lesa þann ófögnuð, sem þessi andskota- gangur allur á í skauti sér eftir að bera, þjóð okkar allri til ama og kval- ar. Ekki þurfti við neinn drottin að deila, að mati viðskiptaráðherra okk- ar, er hann sem æðsti prestur þess- ara mála útmálaði með engum smá- vegis bægslagangi hinn helgasta „salómonsdóm" hinnar háttvirtu fjögramannanefndar, að nú þyrfti ekki um að villast um allan réttinn og allt öryggið, allt sem þar á móti mælti væri marklaus mælgi, og sjálf- ur þú hinn mæti maður ekki dregið dul á það öryggi og það réttlæti sem þessi dómur hinna íjögurra manna hafði inni að halda. Én það sem rak mig til að senda þér þessar línur, Bjöm minn Bjarnason, er að spyija þig að því, hvort þú teljir alla þá merku menn, sem á vísindalegan máta hafa í tugatali skrifað hinar merkustu ritgerðir til andsvara þess- Frá Ingu og Sæmundi Óskarssyni: MEÐ ólíkindum er að hægt skuli vera að fara til Kanaríeyja og Bras- ilíu; vera að mestu leyti á 4ra og 6 stjörnu hótelum með morgunverði í þijár vikur og greiða aðeins 98.500 fyrir alla veizluna. Þetta er nú engu að síður satt og eigum við sem nutum slíkrar ævintýraferðar Andra Ing- ólfssyni hjá Heimsferðum hf. það að þakka. Farið var 28. jan. sl. til Kanarí- eyja og gist þar.í sex nætur í nýlegu raðhúsahverfí sem heitir Koala. Þar eru nokkrar smásundlaugar og ein stór sem er upphituð. Nálægt voru kjörbúðir, matsölustaðir, dansstaður og önnur þjónusta sem ferðamenn þurfa. íbúðirnar voru sérstaklega skemmtilegar, vel innréttaðar og þrifalegar. Ef verið er um kyrrt á þessum stað kostar þriggja vikna ferð hjá Andra aðeins 59 þúsund krónur fyrir manninn. Flogið var með spænsku leiguflugi (Boeing 747). Matur var sérlega góður og mátti velja um kjöt- eða fiskrétt (eins og á Saga-class). Hinn 3. febrúar var flogið til Tene- rife og síðan þaðan til Salvador Ba- hia í Brasilíu og dvalizt á 4ra stjömu hóteli sem heitir Hotel Victoria Mar- ina. Farið var í ýmsar ferðir, meðal annars heilan dag á báti úti í litlar eyðieyjar; dvalizt allan daginn á hvít- um fallegum baðströndum og borð- aður veizlumatur. Þessi ferð með langferðabílum, bátsferð og mat kostaði aðeins 3 þús. ísl. kr. á mann. Margar ferðir var um að velja, allar á mjög hóflegu verði. Hinn 8. febrúar var svo.flogið til um stóra dómi fjórmenninganna, séu einhveijir fábjánar út í loftið, sem ekkert mark sé á takandi, né minnsta vit hafi á þessu stórvægilegasta máli sem á dagskrá okkar þjóðar borið hefur um aldir? Viltu kannski halda því fram, svo dæmi sé tekið, að hin, að mínu mati ágætasta grein Björns Þ. Guðmundssonar, prófess- ors í stjórnarfarsrétti við Háskóla íslands, í Morgunblaðinu 1. septem- ber, sé bara bull og kjaftæði út í loftið, og maðurinn sá hafi ekki nokkra minnstu hugmynd um hvað það er sem svona þrúgar hug ykkar og hjarta. En við skulum bara telja okkur trú um að hér hafí allt verið með viskulegu viti gert, en þurfti æsingurinn og töfrasprotinn allur fyrir tilurðinni í máli þessu að rista svo í hamaganginn allan í framkomu ykkar, að einræðið í vondri gerð, reið svo röftum að til einmuna má telja. Ekki nóg með að þið forsmáðuð og fyrirlituð vilja fólksins og kröfur um þjóðaratkvæði, heldur lætur þú hafa þig í þann einræðisverknað að reka hinn mætasta íslending úr formannsstöðu utanríkismálanefnd- ar, sem þar hefur alla tíð staðið sem hetja þjóðar sinnar í fararbroddi fyr- ir mörgum framtíðar stórmálum, og hreiðrar svo um þig sjálfur í sætinu hans, vitandi það, sem eðlilegt er, að á svona hlutum og gerðum hafa allir forsmán og fyrirlitningu, að sá er í slíku stendur getur aldrei litinn orðið sömu augum af nokkrum manni. Nei, Bjöm minn elskulegur, að falla með heiðri og sæmd er hveij- um manni hollt, en að koma málum sínum fram með slíkum aðförum sem þessum afmáist aldrei nokkumtím- ann úr farteski nokkurs manns. Það verður að segjast eins og er að þremenningarnir þeir í Sjálfstæð- isflokknum sem atkvæði greiddu móti EES-samningnum voru sannar- lega menn ársins 1992. Þeir komu mannlega fram í gerð sinni allri, með engum undirferlum eða ómanneskju- legheitum, og mæltu þar allir af þeirri kærleiksríku trú og sannfær- ingu sinni, gamalgróinni tilfinningu til lands síns og þjóðar, að til engrar óvissu mættum við fórna neinum þeim minnstu gerðum sem þeim trú- að væri fyrir að varðveita landi sínu og þjóð til handa. Frá þeim ómuðu þau dýru orð, sem svo dýrum huga eru greypt í þjóðarvitundina, og aldr- borgar fegurðar og gleði, sjálfrar Ríó De Janeiro. Þegar við komum þangað hafði þetta fjögurra stjörnu hótel sem við áttum að gista á verið yfírbókað svo ekki var pláss fyrir okkur öll þar. Heimsferðir hf. sýndu þá þann höfðingsskap að koma okk- ur öllum fyrir á lúxus 5 stjömu hót- eli, 30 hæða með sundlaug á efstu hæðinni og fagurt útsýni þaðan yfir Cobacabana ströndina, Sykurtoppinn og hluta af Ríó. Hótelið sjálft heitir Ríó Othon Palace og er á miðri Cobaeabana-ströndinni. í Ríó var hægt að velja um ýmsar ferðir, m.a. ferð upp að Kristslík- neskinu, upp á Sykurtoppinn, ferð út í eyðieyjar, kabarett-kvöld og margt fleira. Allar flugferðir frá íslandi og heim aftur voru með spænsku leiguflugi (það skýrir að hluta verðið á ferð- inni) og vorum við öll sem tókum þátt f þessari ferði (46 alls) sammála um að matur (tvíréttað) og þjónusta í vélunum hefði verið með afbrigðum góð. Ekki má gleyma fararstsjóranum okkar, ungum og bráðskemmtilegum manni sem heitir Þorsteinn Stephen- sen. Hann sá um að allir hlutir væru í 100% lagi enda fengum við mun meira út úr þessari ferð en lofað var. Við munum fylgjast vel með aug- lýsingum frá Heimsferðum hf. næstu árin og kynna okkur fyrst hvað ferð- in kostar hjá Andra, áður en annað er ákveðið. Beztu þakkir, Andri. INGA OG SÆMUNDUR ÓSKARSSON, Ofanleiti 3, Reykjavík. ei þaðan gleymast munu: Við mót- mælum allir! En sameining allrar Evrópu í eitt fylki er svo umfangs- mikið kapítal, að ekki nokkur lifandi maður getur gert sér í minnstu hug- arlund hvaða afleiðingar það nýja Sóvét í höndum sér borið getur um ókomna framtíð. Við sáum bara sem lítið brot alla doðrantana sem mynd- aðir voru í einu blaðanna um daginn, og þá eindæma endileysu, sem í blöð- um kom í sumar að allt að 40 manns á fullu kaupi dunduðu við þýðingu á iví klabbi öllu, en svo ekki síst sú rúsína í öllum pylsuendanum, að breyta verði 70-80 lagabálkum til samræmis þessari nýju þjóð, en svo að auki samræma allar gerir okkar lessu kapítali um alla framtíð. En að endingu vil ég votta forset- anum okkar elskulega einlæga sam- úð vegna undirskriftar hennar undir Dessi dæmalausu lög, því það ber myndin af henni með sér í Morgun- blaðinu 14. janúar sl. að þar gengur hún ekki glöð til verka. Ég segi þér það satt, Björn minn Bjamason, að ég sendí þér þessar línur ekki af því að mér sé á nokk- urn hátt illa við þig, heldur hreint og beint til að sýna þér fram á þá niðurlægingu sem þú hefur með þessu máli sjálfum þér bakað, og ekki verður af þér máð í bráð og lengd. JENS GUÐMUNDSSON í Kaldalónij Kirkjubæ, Isafirði. Hver er maðurinn Þessi mynd fannst í dánarbúi sr. Matthíasar Jochumssonar í Sigurhæðum. ■ Ef einhver kannast við manninn þá vinsamlega hafi hann samband við Auði í síma 91-30882. Pennavinir Frá Bretlandi skrifar 33 ára kona með áhuga á íþróttum, leikhúsi, skák, ferðalögum, bókmenntum o.fl. Með mikinn íslandsáhuga og reynir að læra íslensku: Ruth Evans, 44 Larkspur Close, Taunton, Somerset, TAl 3XA, England. LEIÐRÉTTING Safnstjóri í frétt um þjóðminjaþing í Morg- unblaðinu í gær var rangt farið með starfsheiti Lilju Árnadóttur safnstjóra. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. ------------------——| GM)AFLÍSAR Á GÖÐU VEKÐI rð ai i-U Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44 Tekið ofan fyrir Andra / D a n s 12 ára stúlka óskar eftir dansherra Hefur dansað í mörg ár og tók síðast þátt í íslandsmeistarakeppni í 8 dönsum nú í febrúar. Upplýsingar í síma 20857. LAUFIÐ y v. Voivömrnar komnar Vinsælu, frönsku stretsbuxurnar fást hjá okkur. LAUFIÐ, iðnaðarmannahúsinu, Hallveigarstíg 1, s. 11845. Dagur harmonikunnar er haldinn í Tónabæ við Skaftahlíð í dag kl. 15.00. Stór- sveit Harmonikufélags Reykjavíkur, minni hópar og einleik- ararflytja klassískog léttklassísk lög auk jazz og dægurlaga. Harmonikufélag Reykjavíkur. □ Fyrstir til að bjóða viðurkennt svissneskt-amerískt próf- skírteini á háskólastigi í hótelrekstrarfræðum. ri 1 ár - sem lýkur með prófskírteini með rétt til fram- haldsnáms. □ 2 ár - hótelrekstrarnám sem lýkur með prófskírteini viðurkenndu í Sviss og Bndaríkjunum. Gjörið svo vel og fáið ókeypis ráðgjöf/námsmat. SIMI 90 41 25 81 38 62. Fax. 90 41 25 81 36 50. Skrifið SHCC Colleges Admissions Office, CH-1897 Le Bouveres. Reykjavík: Opinn kynningarfundur miðvikudaginn 10. mars 1993, kl. 17-19 á Hótel Sögu, Hagatorgi. Tilkynning frá framleiðanda og umboðsaðila Einstakt tœkifærí Utwrles snyrtivörurnar - 40% ufsláttur Öll starfsemi Charles of the Ritz snyrtivörumerkis- ins leggst niður í Evrópu. Charles of the Ritz vörurnar verða því ófáanlegar innan skamms. Við viljum nota tækifærið og veita viðskiptavinum okkar 40% afslátt af öllum Ritz snyrtivörum í eftir- töldum verslunum: Reykjavík: Hagkaup, Kringlunni Laugavegs Apótek, Laugavegi 16 Mikligarður v/Holtaveg Sigurboginn, Laugavegi 80 Landið: Bjarg, Akranesi Hagkaup, Akureyri Krisma, ísafirði Smart, Keflavík ^twrtes o | tl*e &»fx á ÍsMi bakkar sinum Iryggu vidskiptavinum viðskiptin síöusta 17 áiin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.