Morgunblaðið - 28.02.1993, Blaðsíða 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1993
Pukur með
bankabók
ÚTSÖLUR eru það besta sem fyrirfinnst, einkum hér á landi
því þá eru vörurnar loksins á réttu verði. Það versta er þó að
fjölskyldur eru oft auralausar eftir jólavertíðina og margir fá
þreytandi reikninga í janúar og febrúar. Þar sem mikilvægt er
að grípa gæsina meðan hún gefst, fá sem sagt vöruna loks á
réttu verði, nota margir krítarkortið sitt í þeirri sigildu blekk-
ingu að vorið komi með blóm í haga í mars og apríl. Þeir sem
nota aldrei krítarkort missa hins vegar af útsölunum, nema að
þeir eigi aura inni á bók.
Til skamms tíma var það ein-
ungis aldamótakynslóðin hér á
landi sem átti sparifé á bók.
Kynslóðin sem hóf búskap sinn
í verðbólgunni vissi varla hvemig
slíkar bækur litu út. Evrópu-
væri ljótasta gólfið í bænum.
Mér var alveg sama, dauðfegin
að vera laus við liðið.
Ári seinna sáum við auglýst
parket á tilboði og fórum strax
þjóðir sem upplifðu mestu
verðbólgu í sögu heimsins á
kreppuárunum, hafa þó ekki
látið slá sig út af laginu þeg-
ar sparisjóðsbækur eru ann-
ars vegar og hafa safnað
ótrauðar áfram fyrir sumar-
leyfinu, bílnum og væntan-
legri háskólamenntun bama
sinna. Innræta síðan afkom-
endum sínum nauðsyn spam-
aðar frá unga aldri.
Þessar þjóðir borga ekki
sumarleyfíð eða húsgögn með
afborgunum, í fyrsta lagi
vegna þess að þeir þurfa þess
ekki, launin þeirra em hærri
en hér á landi og vömverð
miklu lægra, þannig að þeir
em ekki mjög lengi að safna
fyrir hlutunum, og í öðm lagi
er það ekki til siðs. Almenni-
legt fólk borgar ekki með
afborgunum, þeim er vor-
kennt sem gera það.
Hjá þessu almennilega fólk
tíðkast ekki að borga hlutina
eftir á með krítarkorti, og ef
maður reynir að útskýra fyrir-
bæri eins og raðgreiðslur, fær
það hláturskast.
Hér á landi hefur hins vegar
tíðkast að greiða dýra hluti með
afborgunum. Söftiun á
bankabækur hefur þótt óarðbær
og sveitaleg. Það á heldur ekki
við íslendinga að bíða eftir því
að eignast hlutina. Blóðið rennur
svo hratt í æðum okkar að við
getum ekki beðið eftir neinu, við
getum ekki einu sinni beðið í röð
í bankanum, fáum bara kláða af
stressi ef við þurfum að standa
svona lengi.
En það getur verið dýrt að
kunna ekki að bíða.
Ég fluttist um árið í nýtt hús
og þurfti að kaupa parket á gólf-
ið. Fór ég því með bóndann í fína
parketbúð, svona til að grennsl-
ast um verð og afborgunarskil-
mála. Við gátum fengið tilskilið
magn af því parketi sem okkur
langaði í á 240 þúsund kr., með
undirlagi. Þar sem við ætluðum
ekki að greiða út í hönd, var
okkur boðið að greiða parketið
með raðgreiðslum í 18 mánuði.
Sem svarinn óvinur krítarkorta
fór ég strax í baklás og óskaði
eftir öðrum greiðslumáta. En
sölumaðurinn tók ekki vel í það,
sagði að menn greiddu flestir
með krítarkorti. Eftir útreikn-
inga kom í ljós að ef við greiddum
með raðgreiðslum í 18 mánuði
yrði verð parketsins nær þijú
hundruð þúsund.
Urðum við bæði orðlaus en
þegar við fengum málið aftur um
kvöldmatarleytið, ákváðum við
að nota gömlu, þýsku aðferðina
og safna fyrir þessu fjárans park-
eti. Mér var alveg sama þótt ég
þyrfti að skúra steingólf í nokkra
mánuði, en dæturnar þusuðu i
hvert sinn sem þær áttu að skúra.
Sögðust líka ekki geta haldið
bekkjarpartý af því að þetta
Morgunblaðið/Júlíus
á staðinn. Og viti menn, þarna
var sama parketið, frá sama fyr-
irtæki þótt í annarri búð væri,
og nú kostaði tilskilið magn 160
þúsund kr. Með undirlagi.
Það var keypt samdægurs og
borgað út í hönd. Ég man hvað
mér þótti gaman að telja seðlana
á borðið, einn í einu og sjá and-
lit sölumannsins lengjast. Hann
hafði nefnilega ekki séð neitt
nema plastkort síðustu mánuði.
Þannig að biðin borgar sig.
Eftir að verðlag var nokkum
veginn orðið stöðugt hér á landi,
fóru sérvitringar að pukrast með
bankabækur. Ég sá þá stundum
í bankanum, sá karlana laumast
í brjóstvasana á jökkunum sínum
og skima flóttalega í kringum
sig áður en þeir rifu upp bækum-
ar. Ég vissi auðvitað hvað þeir
vom með, þýddi ekkert að
blekkja mig, ég var með eina
svona í töskunni minni.
Listin við að safna áurum á
bók er að byija mjög smátt. Það
er gert til að þjálfa þolinmæðina.
Síðan er ágætt að færa út kvíam-
ar, hætta einhveijum ósóma og
leggja andvirði hans inn á aðra
bók. Þegar tölurnar fara að
hækka, eykst sjálfstraustið og
öryggið, jafnvel þótt upphæðin
sé hlægilega lág í augum efna-
manna.
Vextir á sparisjóðsbókum
hækkuðu um áramótin, til dæmis
hækkuðu vextir á Kjörbók
Landsbankans úr rúmum 3% í
5%. Ef upphæðin liggur óáreitt
um tíma geta þeir farið upp í
7%. Fyrir safnara þýðir það blóm
i haga.
Nú hefur maður vaðið fyrir
neðan sig og safnar fyrir útsölum
næsta árs. Enda vandalaust að
opna eina bókina í viðbót í þeim
tilgangi.
Kristín Maija
Baldursdóttir
Cindy Crawford hefur tekist vel til þegar hún hefur verið kynnir á tiskuþáttum í sjónvarpi og er hún
að verða eftirsótt í slík hlutverk.
STJÖRNUR
630 þúsund krónur í laun á dag
Tískusýningardaman Cindy
Crawford sagði nýlega í
pallborðsumræðum í Princeton-
háskóla, þar sem verið var að
ræða kvennamálefni, að hún
væri í góðri aðstöðu til að af-
hjúpa leyndardóm fegurðarinn-
ar. Hún sagði að eflaust héldu
allir sem sæju forsíðumynd af
henni að hún væri aldrei með
poka undir augunum né liti illa
út. Hún benti á að þetta væri
útkoman eftir tveggja stunda
förðun og hárgreiðslu. „Jafnvel
ég vakna ekki upp á morgnana
eins og Cindy Crawford," sagði
hún.
Það er ekki tekið út með sæld-
inni að halda líkamanum í formi,
en hvað gerir maður ekki fyrir
630 þúsund krónur á dag? En
það er sú upphæð sem Cindy er
sögð vinna sér inn daglega.
I tískuþætti í bresku dagblaði
birtist nýlega grein um Cindy,
sem ber yfirskriftina: Hreint víti
að vera Cindy-dúkka. Hefst
greinin á því, að aðalfrétt liðinn-
ar viku sé, að Cindy Crawford
hafí þyngst um nokkur pund, eftir því sem fréttir
hermdu frá Chanel tískusýningunni. Þar segir:
„í raun er Cindy ekki orðin feit, aðeins [sjástl
húðfellingar hér og þar“.
Síðar í greininni segir að Cindy hafí
alltaf þurft að passa mataræði sitt og
meðal annars hafi hún nánast lifað á
örlitlum skammti af hýðishrísgijónum
fyrir nokkrum árum. í framhaldi af
því segir: „En samt sem áður, Craw-
ford, þetta er starfið þitt. Þú hlýtur séx
stafa tölu laun fyrir að borða hýðishrís-
gijón. Þú mátt ekki vera feit. Við viljum
ekki að fyrirsætur líti út eins og við og
vegi það sama og við.“
En ef til vill er hún einmitt orðin leið á
því að vera módel. Alla vega hefur henni
tekisí vel upp sem kynnir í tískuþáttum
MTV. Einnig hefur Fox-fyrirtækið áhuga á
að hún verði kynnir í einhverjum sjónvarps-
þáttum þeirra.
Förðun og hár-
greiðsla tekur tvær
klukkustundir,
áður en árangur-
inn kemur í ljós,
segir fyrirsætan
Cindy Crawford.
Cindy Crawford vakti athygli
í París fyrir að hafa þyngst
um nokkur pund.
Ég hafði séð mynd í blaði af beinagrindarbúningi
sem var málaður í svörtum fötum og þess vegna
datt mér í hug að búa til þennan búning, sagði
Auðunn Jónsson, en búningur hans vann til verð-
launa á öskudaginn. Auðunn var ekki í búningnum
sjálfur heldur hafði hann lánað bekkjarfélaga
sínum, Skarphéðni Ársælssyni, hann. „Eg hafði
nokkrum sinnum áður notað búninginn, en svo
datt pabba í hug að nota herðatréð og þá varð
búningurinn miklu flottari," sagði Auðunn.
Hann hafði reyndar hugsað sér
að vera beinagrind eitt árið
í viðbót, en daginn fyrir öskudag
rakst hann á úlfagrímu sem hann
Auðunn Jónsson
og Skarphéðinn
Ársælsson halda
á búningnum á
milli sín.
FURÐUFATNAÐUR
Tíu ára hönnuður