Morgunblaðið - 28.02.1993, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1993
B 5
fimmtíu háskólar voru stofnsettir.
Vestrænir vindar hleyptu lífi í rúss-
neskar bókmenntir, blöð og tímarit
spruttu upp og fjöldi bóka var gefinn
út.
Katrín vildi stjórna í anda upp-
lýsts einveldis. Hún lagði áherslu á
að koma skikk á rússneskt viðskipta-
líf og embættismannakerfið, dró úr
pyntingum og sýndi öðrum trúarhóp-
um umburðarlyndi, enda hafði hún
sjálf látið af trú sinni fyrir gifting-
una. Þá létti hún skattabyrði borga-
rastéttarinnar og hvatti til aukinnar
framleiðslu, sem varð til þess að
efla útflutning gífurlega.
Árið 1767 skipaði Katrín mikla
löggjafarnefrid sem semja átti heild-
arlög fyrir rússneska ríkið. Skrifaði
keisaraynjan sjálf leiðbeiningar fyrir
nefndina en þær voru byggðar á
lestri hennar á verkum frönsku
heimspekinganna Montesquieu og
Beccaria. Einnig skipulagði Katrín
skrifræðisstjórn og skipti landinu í
fimmtíu fylki. Afraksturinn var hins
vegar rýr þrátt fyrir að yfirsýn yfir
ríkið batnaði en hún var svo bágbor-
in þegar Katrín tók við völdum að
enginn vissi hveijar heildartekjur
ríkisins voru.
Ofugþróun
Upphafleg ætlun Katrínar var að
afnema bændaánauð en vegna and-
stöðu aðalsins féll hún frá þeirri
hugmynd. Varð raunin sú að á sama
tíma og bændaánauð var á undan-
haldi í Vestur-Evrópu, jókst hún í
Rússlandi. í grundvallaratriðum þró-
aðist Rússland því í þveröfuga átt
við meginreglur upplýsingarinnar
um frjálsa bændastétt. Katrín kom
þó á margvíslegum umbótum innan-
lands en dregið var úr þeim eftir
bændauppreisnir á árunum 1773-
1775, sem urðu í kjölfar aukinnar
ánauðar. Stærstu uppreisninni stýrði
Donkosjakkinn Púgastjov en hann
kvaðst vera eiginmaður Katrínar,
Pétur III, sem þá hafði legið dauður
í gröf sinni í rúman áratug. Upp-
reisnin var bæld niður og Púgatsjov
tekinn af lífí.
Landvinningastefna Katrínar II
færði henni fjölmarga sigra í vestri
og suðvestri. Rússland náði stórum
hlutum Póllands á sitt vald með
samningum við Austurríki og Prúss-
land á árunum 1772-1795, svo og
svæðum Tyrkja norðan Svartahafs
á árunum 1768-1774 og 1787-
1792. Var Rússland eitt helsta stór-
veldi Evrópu á valdatíma Katrínar.
Þrátt fyrir að Katrínu miklu tæk-
ist ekki að koma eins miklu til Ieiðar
og hún ætlaði sér, og þrátt fyrir að
hún hreykti sér af árangri sínum við
franska vini sína, hafði stjórnarseta
hennar mikil áhrif í Rússlandi, ekki
síst menningarleg. Ólæsi var út-
breitt, jafnvel meðal aðalsins, og
gerði Katrín tilraunir til að bæta
menntun, þótt þær væru heldur van-
máttugar. Hún sóttist eftir málverk-
um og höggmyndum evrópsku
meistarana, svo og ritum þeirra,
komst meðal annars yfir bókasafn
Voltaires, alls 7.000 bindi. Lista-
verkaáhugi hennar breiddist út með-
al rússneska aðalsins og mörg þekkt-
ustu evrópsku listaverkin „hurfu“-
inn í glæsihallir í austri. Sjálf hafði
Katrín fest kaup á um 4.000 verkum
þegar hún lést, sem var svipaður
fjöldi og aðrir stórhöfðingjar Evrópu
áttu.
Heitar ástríður
Katrín II skildi eftir sig djúp spor
í sögu Rússlands vegna margvís-
legra umbóta, endurbættrar löggjaf-
ar, landvinninga og menningarmála
og fýrir þetta hefur hún hlotið viður-
nefnið „hin mikla“. En hún hefur
einnig hlotið ámæli fyrir lauslæti,
og þótt ástarlíf hennar hafi vissulega
kostað dijúgan skilding setti hún
hagsmuni Rússlands ofar öllu öðru.
Katrín jós gjöfum yfir elskhuga sína,
jafnt í lausafé, góssum og embætt-
um. Hún kallaði þá gjaman nemend-
ur sína og gantaðist með að í rekkju
sinni væri hún að þjálfa þá í að þjóna
Rússlandi.
Þegar Katrín komst til valda var
Grigori Orlov elskhugi hennar og
velgjörðarmaður og hún launaði
honum með því að sæma hann nafn-
bótinni „prins“. En þegar hann fór
að tala um hjónaband, fannst henni
tími til kominn að senda hann í
burtu. Hann fór sem sértakur sendi-
Samdi eigin
grafskrift
í höilinnl. Samtíma koparstunga frá hirðlífinu í höll Katrínar miklu.
fulltrúi hennar til Evrópu og er hann
sneri aftur færði hann henni afar
stóran demant, „Nadir-Shah“ de-
mantinn sem einnig er kallaður
Orlov-demanturinn og víðfrægur er.
Orlov átti hins vegar ekki aftur-
kvæmt í sæng keisaraynjunnar því
þar hafði búið um sig ungur macjur,
dökkur á brún og brá, Alexis Vasilsj-
ik.
Elskhugar Katrínar komu og fóru
og samkvæmt sagnfræðingnum Will
Durant voru fastir ástmenn hennar
nafngreindir 21 talsins á íjörutíu
árum og eru þá ónefndir allir þeir
sem hún er sögð hafa kippt upp í
ból til sín til skyndikynna. Þóttu
sumir þessara manna lítið hafa til
brunns að bera annað en frítt and-
lit, æskuþrótt og íturvaxinn líkama.
Þetta hefur þótt bera vott um laus-
læti og brenglaða siðferðisvitund
Katrínar, en á það má benda að sjálf-
sagt hafa ástmenn Katrínar hvorki
verið fleiri né færri en frillur þess
karlpenings sem var í svipaðri að-
stöðu vítt og breitt um Evrópu. En
af því að hún var kvenmaður var
það kallað „brókarsótt".
Stóra ástin
Sá maður sem nafnkunnastur
varð allra ástmanna Katrínar miklu
var Grigori Alexandrovitsj Potemkin
og líklega hefur hann verið stóra
ástin í lífi hennar. Hún var komin á
fimmtugsaldur þegar hún féll fyrir
honum og það svo rækilega að sum
bréfa hennar til hans eru vart birt-
ingarhæf, svo opinskátt játar hún
girnd sína til hans. Sumir sagnfræð-
ingar hafa haldið því fram að þau
hafi verið gift á laun því í nokkrum
bréfanna kallar hún hann sinn „elsk-
aða eiginmann“ og talar um sjálfa
sig sem „þín heittelskandi eigin-
kona“.
Potemkin var ekki aðeins elskhugi
hennar heldur einnig sálufélagi og
á milli kossa og hvílubragða ræddu
þau stjórnmál og unnu samhent að
þeim áformum að auka veldi Rúss-
lands. Hann ruddi henni braut að
Svartahafi og hún jós í hann pening-
um, metorðum og völdum og sagt
er að hann hafi kostað ríkisk^ssann
um fimmtíu milljónir rúblna. Pot-
emkin var einna þekktastur í sög-
unni fyrir það að dubba upp þorp
og bændur til að breiða yfir eymd
rússneskrar alþýðu þar sem keisara-
ynjan átti leið um og bera samtíma-
teikningar þessu athæfi hans hlálegt
vitni. Þegar hann lést er sagt að hún
hafi fallið í yfirlið og ekki verið
mönnum sinnandi lengi á eftir.
Síðasti ástmaður keisaraynjunnar
var ungur og fríður hirðmaður, Plat-
on Zubov að nafni, fjörutíu árum
yngri en Katrín, sem þá var um
sextugt. Hann stóð við hlið hennar
þar til hún lést skyndilega úr heila-
blóðfalli þann 17. nóvember 1796.
Zubov átti nokkrum árum síðar þátt
í morðinu á Páli syni hennar, sem
þá var sestur á valdastól.
Eftirkomendur
Sagt er að Katrín hafi beitt Pál
son sinn harðræði, einkum eftir að
hann fór að spyija óþægilegra
spurninga varðandi morðið á föður
sínum. Raunar þótti Páll oft hegða
sér einkennilega, ekki ósvipað Pétri,
þótt því væri haldið fram að hann
væri alls ekki sonur hans. Jafnvel
Pétur sjálfur afneitaði börnunum á
meðan hann lifði og einhveiju sinni
var hann sagður hafa hrópað til
Katrínar, ölvaður í einni veislunni
að ekki vissi hann hvaðan bömin
kæmu. Svo mikið væri víst að hann
ætti ekkert í þeim. En þótt fátt
væri með þeim Katrínu og Páli syni
hennar lagði hún ofurást á syni
Páls, einkum þann elsta, Alexander.
Páll tók við völdum eftir móður
sína, en stóð stutt við og er í raun
ekki þekktur fyrir annað en að vera
faðir Alexanders keisara I. Hann
kom til valda 1801 og vann í fyrstu
að umbótum í fijálsræðisanda. Síðar
fór hann í stríð við Napóleon Frakka-
keisara og átti stóran þátt í falli
hans og var áhrifamikill á Vínar-
fundinum, sem haldinn var til að
ákveða framtíðarskipan Evrópu.
Bróðir Alexanders, Nikulás I., tók
við ríki 1825. Hann var afturhalds-
samur og vildi efla stórrússneska
þjóðemishyggju. Sonur hans Alex-
Árið 1778 samdi Katrín mikla
eftirfarandi grafskrift fyrir
sjálfa sig
Hér hvílir Katrín II, fædd þann
21. apríl 1729 í Stettin. Atján
ára leiðindi og einmanaleiki urðu
til þess að hún las fjölda bóka.
Er hún hafði tekið við völdum í
Rússlandi, var hið góða henni
hjartfólgið, hún lagði sig fram um
að færa undirsátum sínum ham-
ingju, frelsi og velmegun. Hún var
fljót til að fyrirgefa og hataði eng-
an. Umburðarlyndi hennar og lífs-
gleði, áhugi á lýðveldisstefnunni
og hjartagæska ávann henni vin-
áttu margra. Starfið reyndist
henni auðvelt og hún hafði yndi
af samkvæmum og hinum fögru
listum.“
ander II tók við ríki 1855 og reyndi
að koma á ýmsum umbótum en varð
lítt ágegnt vegna skorts á hæfum
embættismönnum. Honum tókst þó
að afnema bændaánauð árið 1861.
Alexander III tók við ríki af föður
sinum, Alexander II, og reyndist
afar íhaldssamur. Sonur hans, Niku-
lás II, tók svo við ríki af honum og
var síðasti keisari Rússlands, en
hann lét af völdum í kjölfar febrúar-
byltingarinnar 1917 og var líflátinn
ásamt fjölskydlu sinni árið 1918. Þar
með hurfu síðustu áhrif Katrínar
miklu á stjóm landsins, sem hún
hafði ung tekið ástfóstri við.
Már Hinriksson, Guðjón Gíslason og Garðar Ingþórsson eru
ánægðir með sinn árangur: Þetta er stórfín þjálfun. Við
hófum aukið þrek og þol til muna, við erum frískari í vinnunni
og léttari andlega og líkamlega.
Hefst 6. mars
* Tækjaþjálfun
og tröppuþrek 3x-5x í viku
* Fitumælingar og vigtun
* Aðhald og hvatning
* Fræðslufundir
Verð kr. 9.900
Ath.: Morgunhópur- hádegishópur
og kvöldhópur AGÚSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 68 98 68