Morgunblaðið - 28.02.1993, Page 7
MQRGUNBJjVyiD
S2#.- irEBRÚAii.,l&93
Æ iZ
STRHGVEXÐH/Hvenœr er veibitœkifullreyntf
Töfraagnið
Lengi er von á einum.
ÞAÐ ER vitaskuld rétt sem kunn-
ingi minn skaut að mér um daginn
að tveir fiskar teknir á devon
sanna ekki að trésíli sé óskeikult
undravopn. Sem betur fer verður
seint fundið upp slíkt veiðitæki.
En sögunni um sílið er ekki lokið.
egar ég kom að norðan fór ég
til veiða austur fyrir Fjall. Svo
talaðist til að myndatökumenn
mættu fylgjast með veiðunum. Veið-
iáin hagaði sér því miður öfugt við
önnur framsækin
fljót sl. sumar,
veiðin varð enn
minni en árið áður.
Við veiddum tveir
á þriggja stanga
svæði, byijuðum
auðvitað með
flugu, það væri
ekki sæmandi að
sýna í kvikmynd annað en flugu-
veidda laxa. Veiðisvæðið var víðáttu-
mikið og þarna hafði ekki verið veitt
daginn áður. Horfur voru því góðar
eftir atvikum, hæglætisveður og
vatnsskilyrði ákjósanleg.
Ekki var ástæða til að æðrast
þótt við yrðum ekki varir fyrstu tvær
klukkustundirnar en undarlegt að
sjá ekki fisk. Annað eins hafði þó
gerst og samkvæmt sálfræði veiði-
manna vorum við sannfærðir um,
fyrst morgunveiðin brást, þá hlyti
hann að taka um hádegisbilið.
Við fluttum okkur og reyndum
ýmsa staði, fórum upp á Breiðu, út
á Snös, niður í Rennur, undir Hlíð
og ofan í Þrengsli en ekkert stoð-
aði. Myndavélarnar voru látnar
murra annað slagið, það átti að ná
myndum af glæsilegri töku og eftir-
leikurinn hafði verið skipulagjður.
Allt búið undir komu laxins. En
hann lét á sér standa.
Við ætluðum ekki að gefast upp
við fluguna fyrr en í fulla hnefana
en þegar klukkan nálgaðist eitt varð
mér tíðhugsað til kvöldstundarinnar
við Stekkjarhyl þegar dolpungarnir
tveir dembdu sér á devoninn á síð-
ustu mínútum dagsins.
Það yrði léleg veiðimynd ef enginn
fengist fiskurinn svo ég segi við fé-
laga mína:
„A ég að sýna ykkur fisk?“
Þeir jánka en spyija hvernig ég
ætli að fara að því.
„Ef ykkur er sama þótt það sé
ekki flugufiskur þá er ég héma með
töfragrip sem særir fiska upp úr
dauðu vatni.“
„Þú segir fréttir. Stattu þá við
það,“ segja þeir, og koma myndavél-
inni fyrir á bakkanum.
Ég var kominn út á hálan ís en
ekki varð aftur snúið, ófyrirleitnin
hafði náði undirtökunum. Ég hnýtti
rauða og gula trésílið á spinnlínuna
og herti hnútinn vel.
„Ég þarf tíu köst,“ kallaði ég utan
af Breiðunni, „en það er ekki víst
að hann verði stór,“ bætti ég við til
að storka ekki forsjóninni.
Ekki þurfti að kasta langt en betra
að vanda sig. Agnið veltist í vatns-
skorpunni þar til það staðnæmdist
niður af mér. Þá lyfti ég stangar-
toppnum og dró sílið ofan á vatninu
móti straumi til að ekki hlypi snurða
á þráðinn.
I fimmta kasti fínn ég þunga
leggjast á línuna. Það glampar á
nýrunninn smáfísk sem sækir út í
strauminn, stekkur og hristir sig en
allt kemur fyrir ekki, löndunarstað-
urinn er fyrirfram ákveðinn og auga
myndavélarinnar fylgir honum þar
til hann tekur síðustu sporðtökin og
liggur spegilfagur hreyfíngarlaus í
mölinni.
Klukkuna vantaði fjórðung í eitt.
Ég færðist allur í aukana, árguðinn
var mér hliðhollur; eins gott að nota
tækifærið og áður en varði var ég
búinn að missa út úr mér:
„Viljið þið sjá annan? Ég þarf sjö
köst.“
Ég vissi óðara að þetta var full-
komin fífldirska en fer nákvæmlega
eins að og áður nema hef tveimur
skrefum lengra milli kastanna. í
öðru kasti tók lax af svipaðri stærð
og sá fyrri og allt fór á sömu leið.
Tveir fískar festir á fílmu, þótt ekki
væru fiugufiskar - það var ómögu-
legt að segja að þetta væri slæmur
morgunn.
Við vorum á sömu slóðum eftir
hléið. Þarna voru áreiðanlega fleiri
laxar sem víst ættu að taka flugu
eins og annað agn en allt kom fyrir
ekki. Yfír Bátalóninu sveif ger af
hettumávum sem völdu æti úr mor-
inu sem barst meðfram Hlíðinni.
Náttúran iðaði öll af lífi. Hérna hlutu
að leynast tökufiskar og ef ekki hér
þá í straumröstunum undan Töngun-
um.
En það var bið á því að þeir sýndu
sig. Sólin var komin yfír á vestur-
himininn. Við bættum á okkur peysu
og ókum upp í Gryfju, þrautreyndum
bæði ofan við brotið og innan við
það, þræddum bakkana niður að
Hólma og eyddum dijúgri stund við
Símastrenginn. Eina lífsmarkið var
grútleginn ræfíll sem stökk efst í
lænunni austan við Hólmann.
Eintómar náttúrustemmningar,
ekkert nema fuglatíst og árniður á
seinni spólunni, engir sporðaskellir
og löndunarhljóð svo ég segi við
strákana:
„Komum aftur niður á Breiðu, ég
ætla að ná í kvöldfískinn."
„Nei, þú endurtekur ekki sama
leikinn og i morgun," segja þeir.
„Komum, ég þarf ekki nema fimm
köst,“ segi ég í algerum gapaskap
en tíminn var á þrotum svo köstin
yrðu varla fleiri hvort eð var.
Það er skemmst frá því að segja
að í þriðja kasti var hnellinn sex-
pundari enn á rauða trésílinu. í fjöru-
borðinu glitraði smágert laxahreist-
ur á steinum þegar við röltum upp
kjarrivaxna brekkuna. Dagurinn var
á enda.
eftir Gylfo
Pólsson
Höfum flutt
lögfræðiskrifstofur okkar
á Suðurlandsbraut 48 v/Faxafen (2. hæð),
108 Reykjavík.
Nýtt símanúmer: (91 )684660.
Nýtt númer bréfsíma: (91 )684661.
Önnumst öll lögfræðistörf.
Björn Jónsson hdl.
Björn Ólafur Hallgrfmsson hrl.
TILBOÐ
ÓSKAST
í Ford Bronco IIXL 4x4, árgerð '89 (ekinn 25 þús.
mílur), Toyota Corolla XL, árgerð ’92 (ekinn 17
þús. km.), Volkswagen Combi SAN 8 sæta (bilgð
vél) árgerð '88 og aðrar bifreiðar, er verða sýndar
á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 2. mars kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARN ARLIÐSEIGN A
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
• Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
• Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25.
• Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
• Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
• Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
• ísafjörður: Póllinn hf., AÖalstræti 9.
• Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1.
• Sauöárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
• Siglufjörður: Torgið hf., Aðalgötu 32.
• Akureyri: Ljósgjafinn, Reynishúsinu, Furuvöllum 1
• Húsavík: öryggi sf., Garðarsbraut 18a.
• Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3.
• Neskaupstaður: Rafalda hf., Hafnarbraut 24.
• Reyöarfjöröur: Rafnet, Búðareyri 31.
• Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guömunds., Kaupvangi 1.
• Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
• Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43.
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf., Flötum 18.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
• Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29.
• Garöur: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
• Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.
C CO
gs
0*0*
3<Q
l|
=> 2*
§§
38;
oS
Q Q'
§j&
3 7T
0.2
=50
Q^
3
a