Morgunblaðið - 15.04.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.04.1993, Blaðsíða 2
2 MÓRGUNBLABIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1993 Kaupfélag Strandamanna Rekstur erfiður ERFIÐUR rekstur hefur verið á verslun Kaupfélags Stranda- manna á síðasta ári og það sem af er þessu ári. Um er að ræða einu verslun íbúa í Arneshrepp og næsta verslun er á Hólmavík í um 100 km fjarlægð, leið sem lok- uð er yfir vetrarmánuðina. Gunn- steinn Gíslason kaupfélagsstjóri segir að þótt reksturinn hafi verið erfiður blasi gjaldþrot ekki við og verið sé að leita lausnar vandans. Kaupfélag Strandamanna rekur auk verslunarinnar sláturhús og litla fiskverkun en hvorugur sá rekstur skilaði hagnaði í fyrra. Velta kaupfé- lagsins nam um 100 milljónum króna á síðasta ári og þótt tölur um tapið iiggi ekki fyrir segir Gunnsteinn ljóst að það nemi milljónum króna. Rekstur kaupfélagsins hefur verið mjög erfiður á undanfömum árum enda eru aðeins um 100 manns í Ámeshrepp. Gunnsteinn segir að verslun verði að vera á þessum stað sökum þess hve langt er að fara í næsta byggðarkjama. Því verði leit- að allra leiða til að leysa vanda kaup- félagsins. Bifreiða- ’ón námu 363 millj. á6 vikum SAMKVÆMT upplýsingum frá Sambandi íslenskra tryggingafé- laga námu bifreiðaljón í umferð- inni á tímabilinu 22. febrúar til 2. apríi, eða á sex vikum, samtals 363 milljónum króna. Alls voru umferðaróhöpp á þessu tímabili 3.220 talsins. Samband tryggingafélaga hefur að undanförnu tekið saman reglu- lega, í samvinnu við bifreiðatrygg- ingafélögin, tölur um fjölda skemmdra bfla í umferðinni. Þessar tölur eru mun hærri en heyrast títt í fjölmiðlum sökum þess að þær upp- lýsingar byggist á tölum frá lög- reglu. Sem kunnugt er hafí lögreglan hinsvegar afskipti af tiltölulega litl- um hluta umferðaróhappa því flestir fylla út tjónaskýrslur sjálfír. Morgunblaðið/Sverrir Að hjálpa afa ÞESSI ungi Siglfirðingur, Sævar Öm Kárason, hjálpaði afa sínum þegar hann kom úr róðri á mánudaginn. Hannaði forrit fyrir 20 sænsk sjúkrahús ISLENSKUR læknir, Stefán Kristjánsson, sem starfar á röntgendeild Huddinge-sjúkrahússins í Stokkhólmi, hefur gert tölvuforrit vegna hjartaþræðinga og hefur það verið tekið í notkun á öllum sænskum sjúkrahúsunm, þar sem slíkar aðgerðir eru gerðar. Með notkun forritsins er auð- velt að fá yfirlit yfir einkenni sjúklingsins, eðli aðgerðanna og síðari meðferð. Stefán segir að til standi að kynna notk- un forritsins víðar en í Svíþjóð. Stefán er 33 ára. Hann lauk námi frá lækna- deild Háskóla ís- lands árið 1987, en flutti til Svíþjóðar ásamt eiginkonu sinni, Ólöfu Bjamadóttur, end- urhæfingarlækni og tveimur bömum þeirra og hóf störf sem röntgenlæknir á Huddinge- sjúkrahúsinu í ágúst 1989. „Ég byijaði á að skrá allar upplýsingar, sem tengjast hjartaþræðingum og hannaði sérstakt forrit til þess, sem við tókum í notkun í desember 1991,“ sagði hann. „Þegar notkun forritsins fréttist bámst fyrirspum- ir frá öðmm sjúkrahúsum og fljót- Stefán Kristjánsson lega tók Karolinska-sjúkrahúsið það í notkun. Sosialstyrelsen, sem sinnir eftirliti með sænska heil- brigðiskerfinu, ákvað að styrkja verkefnið fjárhagslega til að hægt væri að einfalda forritið, svo það nýttist án sérstakrar tölvuþekking- ar notandans. Nú hafa öll sjúkrahús í Svíþjóð, þar sem gerðar em hjarta- þræðingar, tekið grannforritið í notkun og um þessar mundir er ég að semja handbók til að þau geti unnið úr þeim upplýsingum, sem þau hafa þegar safnað saman. Þessi sjúkrahús em 20-25 talsins." Allar uplýsingar Stefán sagði að forritið væri matað með öllum upplýsingum vegna þræðingarinnar. „Við setjum inn þau einkenni, sem sjúklingur hefur og gera hjartaþræðingu nauð- synlega, önnur einkenni er benda til hjartasjúkdóms, upplýsingar sem fram koma við þræðingu og síðan hvaða meðferð sjúklingurinn fær eftir þræðinguna, þ.e. hvort nauð- synlegt er að gera á honum aðgerð eða hvort hann fer í lyfjameðferð. Með þessu móti safnast á einn stað fjöldi nýtilegra upplýsinga, sem auðveldar til dæmis gæðastjórnun og rannsóknir. Sosialstyrelsen get- ur til dæmis fengið heildaryfirlit yfír ýmislegt, sem að hjartaþræð- ingum lýtur.“ Er Stefán var inntur eftir því hvort forritið færi víðar svaraði hann að til stæði að kynna það í fleiri Evrópulöndum. Kuldatíð í vændum VEÐURSTOFAN spáir norð- anátt um land allt fram á sunnudag. Gert er ráð fyrir næturfrosti norðanlands og að hitinn komist mest í 5 til 6 gráður yfir daginn sunnan- lands. Spáð er fremur köldu veðri um allt land næstu daga. Á föstudag snýst í norðanátt og á laugardag verður komin stíf norðanátt með éljum norðan- lands. Léttskýjað verður sunn- anlands og vestan en fremur kalt, eða það sem stundum hefur verið kallað „gluggaveð- Við frostmark Hitinn verður við frostmark norðanlands en meiri á landinu sunnanverðu. Á sunnudag er spáð hvassri norðaustanátt og fer þá heldur hlýnandi. Líklega verður skýjað að mestu um allt land og slydda norðan- og aust- anlands. Útgerðarfélagið Óðirni á Eyrarbakka endurvakið Afsalaðar eignir félagsins eru nú veðsettar fyrir 12 milljónir Fundahöld í dag Sjávarútvegsráðuneytið stendur nú fyrir fundaherferð um sjávarút- vegsstefnuna. Um 150 manns mættu á fyrsta fundinn á Grundar- firði 24 Bmkarsund Um 60% Borgnesinga eru fylgjandi verndun Brákarsunds 25 Mafíutengsl_____________________ ítalskir fjölmiðlar segja að Andre- otti hafi fyrirskipað morðin á Aldo Moro og Dalla Chiesa 18 Leiðarí__________________________ Frumskógur eignarhaldstengsl- anna 24 Viðskipti/Atvinnulíf Dagskrá ► Þreifingar um stjómarkjör í Sameinuðum verktökum - Verð- lækkun skilaði 100% söluaukningu á steikum - John Fenger stofnar fyrirtæki í Bandaríkjunum HLUTHAFAR í Útgerðarfélaginu Óðni á Eyrarbakka hafa verið boðaðir til fundar í kvöld til að ræða málefni félagsins og endur- vekja það, jafnvel til að efla atvinnustarfsemi á Eyrarbakka. Eins og fram kom í Morgunblaðinu fyrir skemmstu höfðu óviðkomandi menn, án samráðs við eigendur Oðins, tilkynnt hlutafélagaskrá um breytingar högum félagsins í þvi skyni að eignast hlutafélag með „rótgróna kennitölu“ og spara sér að auki umtalsverðar fjárhæðir í skráningargjöld. Sá gemingur hefur nú verið ógiltur. Að því er fram kom í samtali Morgunblaðsins við Eirík Guð- mundsson, einn upphaflegu hlut- hafanna í Óðni og þann sem undir- búið hefur fundinn í kvöld, var hús- eignum félagsins afsalað til annarra aðila fyrir 2-3 árum og í dag hvíla á þessum húsum 12 milljóna króna veðbönd. Eiríkur vildi ekki svara nánari spumiiigum um þessa eignatil- færslu og það endurgjald sem fyrir kom. Hann kvaðst ekki telja ljóst að hún yrði rædd á fundinum í kvöld. Þar kveðst hann eiga von á að á félaginu verði kosin bráða- birgðastjórn, sem falið verði að undirbúa aðalfund. Eiríkur kvaðst vænta þess að á fundinn kæmu a.m.k. á annan tug manna, bæði heimilisfastir og brott- fluttir Eyrbekkingar. Hann sagði að þótt félagið, sem stofnað var árið 1944, hefði ekki starfað um langt árabil virtist nokkur áhugi á ► Hvarf Amelíu Earhart árið 1939 - Alveg einstök tilfinning - Ég hefði átt að depla þeim - Flytj- ast bflaþættimir yfír á sjónvarpið - Taka þeir niður fyrir sig að kanna hvort unnt sé að hefja í nafni þess einhveija atvinnustarf- semi í kauptúninu. Óðinn endurreisi Eyrarbakka öðru sinni í máli Eiríks _kom fram að á sín- um tíma hefði Útgerðarfélagið Óð- inn átt mikinn þátt í uppbyggingu sjávarútvegs á Eyrarbakka með bátaútgerð sem síðar hafi tengst Hraðfiystihúsi Eyrarbakka. Hvort tveggja félagið hafi í raun verið almenningshlutafélag í eigu Eyr- bekkinga. Undanfarin ár hafi mál þróast á þann veg að störfum við sjávarútveg hafi stórfækkað á Eyr- arbakka, þar sem hafnaraðstaða er léleg. Fátt hafi komið í staðinn. Bakkafískur, sem keypti hraðfrysti- húsið, hefur rekstur í Þorlákshöfn en ekki á Eyrarbakka. Eiríkur sagði að umræður um endurreisn Óðins hefðu ekki verið bundnar við starfsemi í sjávarút- vegi, frekar en t.d. þjónustu eða iðnað, né heldur hefðu neinar ákvarðanir verið teknar um að stefna að hlutafjáraukningu eða einhveijum ákveðnum aðgerðum á vegum Óðins. Aðeins væri rætt um að nota þðtta gamla félag enn á ný til að byggja upp atvinnulíf á Eyrarbakka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.