Morgunblaðið - 15.04.1993, Side 20
MORGUNBLAÐÍÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1993
„Tálbeita lögreglunnar“ dæmd fyrir hassiniiflutning í Héraðsdómi
Sjö mánaða fangelsi
á skilorði að hluta til
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær 36 ára gamlan mann í 7
mánaða fangelsi, þar af 3 mánuði skilorðsbundið, fyrir kaup og inn-
flutning á 3 kg af hassi í mars 1990, og fertugan vitorðsmann hans í
4 mánaða óskilorðsbundið fangelsi. Yngri maðurinn, sem einnig var
ákærður fyrir að kaupa 10 g af amfetamíni af hinum eldri, er sá sem
í kókaínmálinu síðastliðið haust var nefndur „tálbeitá Iögreglunnar“.
Veijandi hans krafðist skilorðsbindingar refsingar, m.a. vegna aðstoð-
ar hans við lögreglu i því máli.
Flutningaskipið Akranes.
Forstjóri Nesskips
Kyrrsetn-
ingarhótun-
in var mis-
skilningur
HÓTUN um kyrrsetningu flutn-
ingaskipsins Akraness í Noregi
var á misskilningi byggð, að
sögn Guðmundur Asgeirssonar,
framkvæmdastjóra Nesskips,
sem gerir Akranes út.
Flutningaskipið Akranes fékk
viðvörun um kyrrsetningu þegar
það var í höfn í Noregi á þriðjudag.
Umboðsmaður alþjóðaflutn-
ingaverkamannasambandsins í
Noregi hafði fengið ábendingar
um að hásetar fengju aðeins 500
dollara í mánaðarlaun en lág-
markstaxti sambandsins er rúmir
1.000 dollarar. Að sögn Guðmund-
ar fær sá lægstlaunaði um borð í
Akranesi 1.080 dollara í laun án
yfirvinnu. Sagði hann að þessi
misskilningur væri nú úr sögunni.
----»44-----
*
Arsfundur
Landsvirkj-
unar í dag
ÁRSFUNDUR Landsvirkjunar
verður haldinn í stjórnstöð
fyrirtækisins á Bústaðarvegi 7
í dag og hefst klukkan 14. Við
upphaf fundarins flytur Jó-
hannes Nordal stjómarformað-
ur Landsvirkjunar ræðu, Jón
Sigurðsson iðnaðarráðherra
ávarpar fundinn og Halldór
Jónatansson forsljóri flytur
skýrslu sína.
Eftir kaffihlé verður á dagskrá
erindi Jóhanns Más Maríussonar
aðstoðarforstjóra Landsvirkjunar
og fyrirlestur Þorgeirs Örlygsson-
ar prófessors um eignarrétt á landi
og orku. Að lokum verða önnur
mál og umræður.
----» ♦ ♦
31V2 milljón
Ekki er vikið orðum að þeirri kröfu
veijandans í dóminum en grein gerð
fyrir skilorðsbindingunni með þeim
orðum að eftir atvikum þyki rétt að
fresta fullnustu 3 mánaða af 7 mán-
aða refsivistinni skilorðsbundið í 3
ár en þá falli hún niður haldi maður-
inn skilorð.
Falið í togurum
Yngri maðurinn keypti 3 kg af
hassi í Amsterdam í febrúar 1990
en þegar maður sem upphaflega var
fenginn til að annast innflutninginn
heyktist á verkinu fékk hann hinn
dæmda vitorðsmann sinn til liðs við
sig og faldi sá 1,6 kg í tveimur ís-
lenskum togurum í Bremerhaven.
Ekki er vitað hvað varð um afgang-
inn af kílóunum þremur. Mennimir
voru handteknir þegar 1.350 g voru
sótt í annan togarann en auk þess
var lagt hald á 37 grömm af efninu.
Báðir höfðu mennimir, sem geng-
ust við þeim sakargiftum sem þeir
voru dæmdir fyrir í þessu máli, áður
margsinnis verið dæmdir fyrir ýmis
brot. Sá yngri hafði síðastliðin 16
ár hlotið 9 dóma fyrir hegningarlaga-
brot og sá eldri á 22 árum 6 dóma,
m.a. fyrir brot gegn lögum um
ávana- og fíkniefni. Auk þess hafa
báðir gengist undir dómsáttir með
sektargreiðslum fyrir ýmis brot.
Auk fyrrgreindrar fangelsisrefs-
ingar var sá yngri dæmdur til að
sæta upptöku á 1.387 gr. af hassi,
sem tekið var við handtöku þeirra,
og báðum var gert að greiða máls-
vamarlaun og annan sakarkostnað.
Umhverf-
isráðherra
heimsækir
Bretland
EIÐUR Guðnason, umhverfisráð-
herra, fór 13. apríl sl. í opinbera
heimsókn til Bretlands í boði
bresku ríkisstjórnarinnar. I ferð-
inni mun ráðherra funda með
umhverfisráðherra Breta, mr.
David Maclean, og starfsmönnum
breska umhverfisráðuneytisins
um sameiginleg viðfangefni á
sviði umhverfismála, segir í frétt
frá umhverfisráðuneytinu.
í gær, var ráðgert að umhverfis-
ráðherra heimsækti kjamorkuendur-
vinnslustöðina í Sellafield og skoðaði
m.a. nýja endurvinnslustöð fyrir
brennsluefni kjamaofna (THORP),
sem verið hefur í byggingu undanfar-
in ár. Þar mun hann eiga fund með
forráðamönnum stöðvarinnar og
ræða um förgun og endurvinnslu
geilsavirks úrgangs og verndun hafs-
ins í því sambandi.
Umhverfisráðherra fundar í dag
með umhverfisráðherra Bretlands og
fulltrúum ráðuneytisins þar sem rætt
verður um rannsóknir og vöktun
umhverfisins í Norður-Atlantshafi,
notkun hagstjómartækja og um-
hverfismál, umhverfisnefnd Samein-
uðu þjóðanna og vemdun og nýtingu
náttúruauðlinda.
Að lokum mun umhverfísráðherra
á morgun heimsækja endurvinnslu-
fyrirtæki í litlu bæjarfélagi, West
Sussex, skammt frá London.
Með umhverfísráðherra í för verð-
ur eiginkona hans Eygló Helga Har-
aldsdóttir og Magnús Jóhannesson,
ráðuneytisstjóri. Heimsókninni lýkur
á morgun, föstudag.
(Fréttatilkynning)
-----»-"»--♦-
Vopn fundust
í bílskúr hjá
fíkniefnasala
Fíkniefnalögreglan lagði ný-
lega hald á tæplega 300 haglaskot
og tæplega 400 riffilskot, hagla-
byssu með söguðu hlaupi, loft-
byssu, startbyssu og heimasmíð-
aða en óvirka 22 cal. skammbyssu
í bílskúr í Hafnarfirði.
í húsleit á heimili leigjanda skúrs-
ins, sem víkingasveit lögreglunnar
framkvæmdi vegna grns um að hann
hefði skotvopn undir höndum, fund-
ust tæp 28 grömm af amfetamíni,
tæp 2 grömm af hassi og tæpt
grömm af kókaíni. Maðurinn, sem
er 45 ára, hefur margsinnis komið
við sögu lögreglu vegna ýmissa mála
en er nú til meðferðar á geðdeild.
1
I T-P j Hh
Fyrsta skóflustungan
KJARTAN Örn Kjartansson tek-
ur fyrstu skóflustunguna að nýj-
um McDonald’s veitingastað.
McDonald’s opnað í ágnst
RÉTT fyrir páskana hófust framkvæmdir við
nýjan McDonald’s veitingastað, hinn fyrsta sem
opnaður verður á íslandi, á lóð á horni Suður-
landsbrautar og Skeiðarvogs eða á Suðurlands-
braut 56. Kjartan Örn Kjartansson forsljóri tók
fyrstu skóflustunguna, en hann og kona hans,
Gyða Guðmundsdóttir, eru eigendur að veit-
ingastaðnum og væntanlegum rekstri þar.
Kjartan sagði við þetta tækifæri, að hann væri fyrst
og fremst feginn að geta loks hafist handa eftir langa
bið. Leiðin að fá einhvers staðar að vera á góðum
stað héfði bæði verið löng og ströng og þymum stráð.
Hann sagðist vilja þakka borgarstjóra og borgarstjórn
og viðkomandi starfsmönnum borgarinnar alla hjálp
og stuðning.
Sérleyfi
Veitingarekstur Kjartans og Gyðu verður undir
merkjum McDonald’s samkvæmt sérstöku leyfi og
rekinn með aðferðum þeirra og undir eftirliti og gæða-
stjórn. Arkitekt hússins er Ingimundur Sveinsson og
byggingaverkfræðingur Jón B. Stefánsson hjá Forsjá
hf., rafmagnsverkfræðingur er Kjartan K. Steinbach
hjá Afli og Orku hf. og loftræsti-, vatns- og hitakerfí
er hannað af Kristjáni Flygenring hjá Verkfræðistofu
Guðmundar og Kristjáns hf. Verktaki við bygginguna
er Álftárós hf. og er verkið unnið í alútboði undir
heildarstjórn þeirra.
í dreifikerfi Fyrrum starfsmaður ÁTVR dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að taka rúmlega 31,5 milljón
króna tilboði lægstbjóðanda
Sveins Skaftasonar í 2. áfanga
endumýjunar á dreifikerfi
Hitaveitu Reylqavíkur. Tilboðið
er 76,25% af kostnaðaráætlun,
sem er 41.358.589 krónur.
Átta tilboð bárust í verkið og
áttu Pípulagningaverktakar hf.,
næst lægsta boð rúmlega 31,7
millj. eða 76,73% af kostnaðar-
áætlun. Næstir komu Gunnar og
Guðmundur sf., sem buðu rúmar
34,8 millj. eða 84,23% af kostnað-
aráætlun, Grétar Sveinsson, bauð
tæpar 35 millj. eða 87,56% af
kostnaðaráætlun, Loftorka bauð
um 36,2 millj. eða 87,56% af
kostnaðaráætlun.
Þá bauð Vélsmiðjan Gils hf.,
rúmar 37,4 millj. eða 90,54% af
kostnaðaráætlun, Dalverk sf.,
bauð um 41,4 millj. eða 109,21%
af kostnaðaráætlun og S.R. Sig-
urðsson hf., bauð rúmar 48 millj.
eða 116,76% af kostnaðaráætlun.
Tveggja ára fangelsi fyrir
23 milljóna króna fjárdrátt
HÉRAÐSSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt
Þorkel Einarsson, 42 ára, fyrrum aðstoðar-
verslunarstjóra útsölu ÁTVR við Lindargötu,
í 2 ára fangelsi fyrir fjárdrátt og til að greiða
ÁTVR rúmlega 23,2 miHjónir króna í skaða-
bætur en það er sú fjárhæð sem hann var
ákærður fyrir að draga sér og dómurinn taldi
sannað að hann hefði tekið. Maðurinn bar hins
vegar að fjárdrátturinn hefði í mesta lagi
numið 10 milljónum króna. Brot hans voru
framin frá miðju ári 1986 og þar til í október
1991.
Fjárdrátturinn var framkvæmdur með tvennum
hætti. Annars vegar dró maðurinn sér úr kassa
verslunarinnar andvirði svokallaðra' veislutékka
sem voru geymslutékkar vegna áfengis sem við-
skiptavinum var lánað en sala þess gerð upp síð-
ar. Hins vegar eyddi hann úttektamótum sem
gefnar höfðu verið út á hans nafn.
Fjárdrátturinn kom ekki fram við birgðataln-
ingu hjá ÁTVR þar sem maðurinn leyndi honum
með því að setja kassa með tómum flöskum í stæð-
ur þar sem voru kassar með fullum flöskum. Því
voru tómu flöskurnar taldar með birgðum allt þar
til eftiriitsmenn með rekstri verslana ÁTVR komu
í búðina í október 1991 til að telja birgðir og sjóð
0g sáu tóma kassa í stæðum. Þá játaði maðurinn
fyrir aðstoðarforstjóra ÁTVR að hafa verið valdur
að verulegri rýrnun birgða og sjóða verslunarinn-
ar. Hann var þá strax leystur frá störfum og
hnepptur í gæsluvarðhaid í sjö daga. Útsölustjór-
inn var einnig leystur frá störfum en reyndist
ekki við málið riðinn.
Talning sem framkvæmd var á birgðum versl-
unarinnar þessa daga leiddi í ljós að verðmæti
birgðanna var um 40,1 milljón króna en átti sam-
kvæmt bókhaldi að vera 63,3 milljónir.
Játaði 10 milljónir
Samkvæmt því nam fjárdráttur mannsins 23,3
milljónum króna. Hann hefur ekki kannast við að
hafa dregið sér svo mikið fé án þess þó að hann
segðist hafa haft yfirlit yfír fjártökurnar en taldi
fjárdrátt sinn ekki meiri en 10 milljónir króna.
Dómarinn, Allan Vagn Magnússon héraðsdómari,
sakfelldi hann fyrir að draga sér þá fjárhæð sem
hann var ákærður fyrir.
Maðurinn sagði að peningarnir hefðu verið not-
aðir í almennar þarfir eða neyslu. Hann mundi
ekki eftir sérstökum tilvikum en sagði skýringuna
á því að hann leiddist út í fjárdráttinn þá að hann
hefði lent í fjárhagserfiðleikum þegar hann stóð
í því að byggja sér hús.