Morgunblaðið - 15.04.1993, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 15.04.1993, Blaðsíða 48
TVÖF^LDUR |. vinningur MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK StMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHOLF 1556 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Reynt til þrautar að ná samningnm í álverinu REYNA átti tii þrautar í gærkvöidi að finna lausn á þeim ágreiningsefnum sem hafa staðið í vegi samkomulags í kjaradeilunni í álverinu í Straumsvík og var viðræðum um heildarkja- rasamninga vikið til hliðar á meðan, enda talið nauðsyniegt að fá botn í það hvort samkomu- lagsgrundvöllur væri fyrir hendi í álversdeil- unni áður en lengra yrði haldið í viðræðum um heildarsamninga. Fundurinn stóð enn á tólfta tímanum og þá var talið ljóst samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins að bilið hefði minnkað milli aðila og líkur aukist á samkomulagi. Þá fóru fram athuganir á því í gær hvort niður- greiðslur á landbúnaðarafurðum gætu komið í stað lækkunar virðisaukaskatts á matvöru á <*<**'þessu ári, eins og ríkisstjórnin gerði tillögu um í fyrrakvöld. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er það talið vel framkvæmanlegt, en óútkljáð er hversu há upphæðin verður. Fundi stóru samninganefnda Alþýðusambands Islands var frestað um kvöldmatarleytið í gær ti! klukkan 21.30. Þriggja manna nefnd fulltrúa starfsmanna í álverinu í Straumsvík fór yfir sjónar- mið innan hópsins, en á fundi samninganefndar starfsmanna ÍSAL í fyrrakvöid komu upp mismun- andi áherslur hjá verkamönnum í Hlíf annars veg- ar og fulltrúum annarra starfshópa hins vegar. Hafði það nær orðið til viðræðuslita í gær, en klukkan hálf níu kom forysta Vinnuveitendasam- bandsins ásamt fulltrúa álversins í Straumsvík til viðræðna og skömmu síðar varð ljóst að sú breyt- ing hafði orðið að ástæða þótti til að halda viðræð- um áfram. Voru menn tilbúnir til þess að einbeita sér að umræðum um þá kröfu að 1,7% launahækk- un sé afturvirk frá því í fyrravor en menn töldu að það atriði væri eitt óleyst er bakslag kom í viðræðumar í fyrrakvöld. Eingreiðsla í einhveiju formi var talin möguleg lausn í þeim efnum. Upplýsingar skortir ASI telur, samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins, að enn skorti á að fullnægjandi upplýs- ingar liggi fyrir frá ríkisstjóminni að því er varð- ar auknar niðurgreiðslur lanc’búnaðarvara um tveggja mánaða skeið og mun vilja gera kröfu til mun hærri niðurgreiðslna síðustu tvo mánuði árs: ins en ríkisstjómin bauð upp á í fyrradag, ef ASÍ féllist á að gildistaka 14% vsk. á matvæli yrði ekki fyrr en 1. janúar 1994 í stað 1. nóvember í ár. Auk þess mun enn deilt um orðalag samnings- atriða er snúa að heilbrigðis- og lyfjamálum. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Bomar saman bækumar Þórarinn V. Þórannsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, og Benedikt Davíðsson, forseti ASI, ræðast við í húsnæði ríkissáttasemjara seinnipartinn í gær. Þorsteinn Pálsson sj ávarútvegsr áðherra Mögulega þarf enn að takmarka þorskveiðar ÞORSTEINN Pálsson sjávarút- vegsráðherra segir að tíðindi þess efnis að þorskafli yfirstandandi fiskveiðiárs kunni að verða um 40 þúsund tonnum umfram tillög- ur Hafrannsóknastofnunar í fyrra, eða 230 þúsund tonn, séu auðvitað váleg og geti leitt til þess að ákveða verði enn frekari takmörkun þorskveiða fyrir næsta fiskveiðiár en ákveðið var í ár, þegar heimilaðar voru veiðar á 205 þúsund tonnum. „Þetta er hættan, þegar kerfið er ^götótt, eins og fram hefur komið, að því er varðar tvöföldun á línuveið- um og afla smábáta," sagði sjávarút- vegsráðherra í samtali við Morgun- blaðið í gær. Aðspurður hvort einhver leið væri til þess að ákveða takmarkanir nú, sem kæmu í veg fyrir að þorskveiði yrði 25 þúsund tonnum meiri í ár en ákvörðun sjávarútvegsráðherra hljóðaði upp á í fyrra, svaraði Þor- steinn: „Nei, það er engin leið til þess.“ Heilsuvörur úr grösum Blönduósi. Undirbúnlngsfundur vegna stofnunar hlutafélags um framleiðslu á heilsuvörum unnum úr fjallagrösum var haldinn á Blönduósi i gær. Það eru Blönduósbær og nágrannasveitarfélögin í Torfa- lækjar-, Svínavatns-, Vindhæl- is- og Engihlíðarhreppi ásamt nokkrum fyrirtækjum og stofn- unum úr A-Húnavatnssýslu og af höfuðborgarsvæðinu sem standa að stofnun þessa hluta- félags. Kristján B. Garðarsson, iðnráðgjafí á Norðurlandi vestra, sagði að ákveðið hefði verið að stofna til félags um þennan rekstur á Blönduósi eftir tvær til þijár vikur. Jón Sig. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Fyrstu áratök vorsins VEÐURBLÍÐAN um páskana var einstök og kærkomin eftir umhleyp- Hafravatni þar sem nokkrir áhugamenn um kajak-róður tóku fyrstu ingasaman vetur. Fólk naut útiveru um allt land, meðal annars á áratökin á þessu vori. Erfiðleikar í rekstri Þörungaverksmiðjuniiar á Reykhólum 740 tonna birgðir eru nú óseldar í Finnlandi REKSTUR Þörungaverksmiðjunnar á Reyk- hólum var mjög erfiður á síðasta ári en endan- legar afkomutölur liggja ekki fyrir. Stafa erfiðleikarnir einkum af því að hlaðist hafa upp óseldar birgðir i Finnlandi, alls 740 tonn, sem er um þriðjungur ársframleiðslunnar en finnsku kaupendurnir hafa aðeins greitt fyrir 60 tonn. Söluhorfur á þessu ári eru hins veg- ar betri en á undanförnum árum og jákvæð teikn á Iofti í gengismálum ef pundið heldur áfram að styrkjast, að sögn Páls Ágústs Ás- geirssonar framkvæmdastjóra. Gert er ráð fyrir framleiðslu á 3.000 tonnum af þangmjöli á þessu ári samanborið við 2.200 tonn á síðasta ári og 1.800 tonn árið 1991. Verð á þangmjöli er hins vegar fremur lágt um þessar mundir. Hefja vinnslu eftir 2 vikur Rekstur verksmiðjunnar er árstíðabundinn og öflun þangs aðeins stunduð á sumrin. Stendur til að hefja starfsemi þörungavinnslunnar eftir tvær vikur eftir vetrarstoppið. Gripið var til ýmissa sparnaðaraðgerða á síðasta ári og starfsfólki sem hafði verið á heilsárs launum var sagt upp sl. haust. Ekkert varð af fyrirhugaðri hlutafjáraukningu á síðasta ári en hinn norski eignaraðili verksmiðj- unnar, Pronova sem er að meirihluta í eigu Norsk Hydro, vildi auka hlutafé sitt um 4,5 milljónir gegn því að innlendir aðilar legðu fram hlutafé á móti. Strandaði það á aðilum hérlendis að sögn Páls. Sagði hann óvíst hvort aukið fjármagn feng- ist til verksmiðjunnar í vor en það ætti þó ekki að koma í veg fyrir að hægt yrði að hefja fram- leiðslu um næstu mánaðamót.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.